Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2001, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2001, Blaðsíða 6
6 _______________________________________FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001 Fréttir DV Skattrannsóknarstjóri vill ekki greina frá nýjum skattsvikaaðferðum: Grófari og kerfis- bundnari skattsvik - hugmyndaríkir skattsvikarar finna alltaf nýjar leiðir „Það hefur verið tekin sú ákvörðun að segja ekki frá því í hverju svikin eru fólgin til að menn fari nú ekki að apa þetta eftir. En eflaust kemur þetta fram í einhverj- um dómum eftir tvö ár eða svo. Annars er það svo að ef menn vilja svikja und- an finna þeir æv- inlega nýjar leiðir. Það skiptir ekki máli hvaða skattheimtukerfi er not- að, menn finna sér alltaf nýjar leið- ir,“ sagði Skúli Eggert Þórðarson skattrannsóknarstjóri í samtali við DV. Skúli Eggert greindi skattstjórum landsins nýlega frá áður óþekktum leiðum til skattsvika sem skattayflr- völd hafa orðið vör við á undanförn- um misserum. Brotin eru grófari og kerfisbundnari en áður og flóknari aðferðum er beitt. Hann sagöi að leynd væri ríkari þáttur í brotum en fyrr og svo virðist sem framtelj- endur séu meðvitaðri en áður um áhættuna af brotunum. „Menn eru að dylja slóðina með flóknum bókhaldslegum aðferðum og ætlast til að geta talið skattayfir- 5>orlákshöfn 50 ára: Ibúum boöiö til morgunverðar Um þessar mundir fagna íbúar sveitarfélagsins Ölfuss því að 50 ár eru liðin frá því að þéttbýli tók að myndast í Þorlákshöfn. Af þvi tilefni verður mikið um dýrðir og hápunktur hátíðahaldanna verða hafnardagar sem haldnir verða helgina 9. til 11. ágúst nk. með opnun sögusýningar sem heitir „Úr verstöð í bæ“. Á föstudeginum verða í tjaldi á Skarfanesbryggju m.a. tónleikar KK og Magnúsar Eiríkssonar og hljóm- sveitin Clírótes og Tríó Ró frá áttunda áratugnum. Á laugardeginum er svo öllum bæjarbúum, sem og gestum, boðið til morgunverðar undir ljúfri harmoníkutónlist. Síðan tekur við dorgveiðikeppni, hátíðarstund i Þor- lákshafnarkirkju að viðstöddum for- seta íslands og við ráðhúsið verður af- hjúpað listaverk. Eftir hádegið tekur svo við dagskrá á Skarfanesbryggju. Um kvöldið verður svo söngur og brenna á Óseyrarbraut, flugeldasýn- ing og dansleikur í tjaldi á Skarfanes- bryggju fram á nótt. -GG Hættur við hunda „Mér heyrist Guðni Ágústsson ráð- herra vera búinn að flauta þetta af,“ segir Fylkir Þ. Sævarsson rafvirki þegar hann er spurður hvernig áform hans um hundaeldi gangi. Fyrir skömmu var greint frá því í DV að Fylkir hygöist sækja um leyfi til landbúnaðarráðuneytisins til að rækta hunda til manneldis. „Guðni veit ekki af hverju hann er að missa, þetta er einstakt tækifæri. Mér flnnst hann líka gera lítið úr Kín- verjum þegar hann segir að þeir séu fátæk þjóð sem neyðist til að borða gæludýrin sín. Ég held að hann geri sér ekki grein fyrir því sem hann er aö segja. Kínverjar eiga miklu eldri menningu en við og svo eru hundar sem þeir borða ekki gæludýr, þeir eru séraldir til manneldis." -Kip völdum trú um að í aðalatriðum sé þetta í lagi. Þessar einföldu aðgerð- ir til að sannreyna að veltan skili sér duga ekki þegar menn eru með flóknar bókhaldsæfingar," sagði Skúli Eggert. Hann segir að jafnvel þótt grunsemdir vöknuðu myndi það verða erfitt fyrir skattayfirvöld að staðreyna gruninn. Þetta þýði að rannsóknir á undandrætti þurfa að vera talsvert ítarlegri en verið hef- ur. í þessu sambandi segir Skúli Þeir bjartsýnustu í hópi félaga í Veðurklúbbnum á Dalbæ á Dalvík sögðu að það færi að hlýna eitthvað meira og yrði jafnara og betra veður upp úr 4. ágúst, á fullu tungli, og að þá kæmu suðlægar áttir. Annars veröur veðrið frekar köflótt en með mjög góðum dögum inn á milii og bú- ist er við því að það komi tveggja til fjögurra daga kafli þar sem jafnvel verða slegin hitamet, alla vega verði Hartnær 30 sauöfjárbændur í ísafjarðarsýslum komu saman í síðustu viku til fundar á Hótel ísa- firöi þar sem þeir hlýddu á tals- menn Kaupfélags Skagfirðinga gera grein fyrir boði Kaupfélagsins um að taka að sér sauöfjárslátrun á svæðinu. Sauðfjárslátrun er í miklu uppnámi eftir að Goði til- kynnti að ekki yrði slátrað í 7 slát- urhúsum félagsins. En reikna má með að um það bil 5 þúsund lömb- um verði slátrað af þessu svæði í haust. Forsvarsmenn KS lofuðu bændum því að verð til þeirra yrði ekki lakara en hjá öðrum slátur- leyfishöfum en Goða. Flutnings- kostnaði yrði jafnað niður og verð- ið yrði að fullu greitt í lok slátur- tíðar. Milli ísafjarðarbæjar og Sauðárkróks eru 498 km og óx það vestfirsku bændunum nokkuð í augum, auk þess sem það er spurn- ing hvernig það fer með sláturfé að aka því um svo langan veg. Það Eggert að endurskoða þurfi starfs- aðferðir og forgang verkefna í skattaeftirliti. Skattrannsóknarstjóri segir að hugmyndaflug skattsvikara sé mik- ið og greinilega setji menn sig afar vel inn í skattareglur og lög. En reynsla skattrannsóknarstjóra víð- ast hvar um lönd er hins vegar sú að yfirleitt hafi menn dulda starf- semi skráða einhvers staðar í sín- um gögnum og með einhverjum mjög hlýtt og gott. Aftur á móti koma líka dagar í mánuðinum þar sem hann verður mjög kaldur. Veðrið þann 11. ágúst á „fiskidaginn mikla" verður gott. Nýtt tungl kviknar í norðnorð- austri þann 19. ágúst og voru menn hugsi yfir því tungli á fundinum en vonandi tekur hann því vel og svík- ur ekki, við trúum því ekki að kall- inn í tunglinu svíki tvisvar í röð og kann að varða við dýraverndunar- lög. Nokkrir bændur hafa sótt um slátrun hjá Sölufélagi Austur-Hún- vetninga á Blönduósi og enn halda nokkrir í þá von að slátrað verði hjá Goða á Hvammstanga. Slátrun hjá KS kann því að vera eini kost- urinn í stööunni, ekki síst þar sem ekki er fyrirhuguö nein slátrun hjá Goða í Búðardal. SnævEir Guðmundsson, bóndi á Melgraseyri við ísafjarðardjúp, gerir ráð fyrir að senda sitt slátur- fé, um 500 lömb, á bíl til Sauðár- króks. Hann segir að bíllinn sem flyti lömbin taki um 150 i hverri ferð og svo rúmt sé um féð á langri leið að alls ekki fari illa um það, það geti legið og því ekki ástæöa til að óttast að það gangi í berhögg við dýraverndunarlög. Ekki fari verr um það en þegar það standi inni í fjárhúsum. „Ég heyri ekki annað en flestir bændur hér í nágrenninu ætli að hætti. Embætti skattrannsóknarstjóra var nýlega tekið út af Ríkisendur- skoðun og var niðurstaðan sú að mikill árangur hefði náðst í meðferð mála og málafjöldi sem færi fyrir dóm vaxandi. Um leið var bent á að mál þyrftu að ganga hraðar fyrir sig. Skúli Eggert sagði að verið væri að flýta ferlinu og það hefði í raun hafist áður en niðurstaða Ríkisend- urskoðunar birtist. -JBP búumst við góðum seinni parti i ágúst. Bjart veður á Lárentíusar- messu, 10. ágúst, boðar oft hvass- viðri og veit á kaldan eða votan vet- ur, sólskin á Maríumessu fyrri, 15. ágúst, boðar sólskin fram undan. Höfuðdagur, 29. ágúst, ræður mjög miklu i trú margra á veður, bregður þá vanalega veðráttu og helst það við í 20 daga. -GG þiggja boð Skagfiröinga en þeir lofa góðu verði. Nokkrir senda fé til Blönduóss og eitthvað fer vænt- anlega til Ferskra afurða á Hvammstanga. Svo hefur einhver reytingur farið í Króksfjarðames. En það er ljóst að það er allt of langt á Sauðárkrók til þess að bændur fylgi sínu fé. Ég sendi mestallt mitt fé til Norðvestur- bandalagsins á Hvammstanga í fyrra, sem nú heitir Goði, en að- eins einn bíil fór á Hólmavík. Það gekk svo illa að manna sláturhúsið á Hólmavík að þetta varð þá niður- staðan," segir Snævar Guðmunds- son. Sauðfé hefur fyrr verið ekið um langan veg frá Vestfjörðum til slátrunar. Þannig hafa ábúendur í Hattardal við Súðavík sent fé til Ferskra afurða á Hvammstanga og fé hefur verið flutt alla leið úr Dýrafirði vestur á Hvammstanga, um 420 km leið. -GG Skúli Eggert Þórðarson skatt- rannsóknarstjóri Embætti hans fær hól hjá Ríkis- endurskoöun. Bjartsýni ríkir í Veöurklúbbnum á Dalvík. Veðurklúbburinn á Dalvík: Hitamet verður slegið ísfirskir sauðfjárbændur hyggjast slátra á Sauðárkróki: 5 þúsund fjár ekiö 500 km Umsjón: Birgir Guömundsson Þjóðhátíðarbolir Engum blandast hugur um að Árni Johnsen kom, sá og sigraði á þjóðhátíðinni í Vestmannaeyjum um síðustu helgi. Það er þó ekki þar með sagt að þjóð- hátíðargestir hafl verið búnir að gleyma Árnamál- um alveg og mátti sjá þess stað víða. Þannig voru fjöl- margar ungar stúlkur i bolum þar sem á hafði verið letrað: „Mamma heldur að ég sé í Eyjum að leggja hellur!" Sömu- leiðis mátti sjá marga í bolum sem merktir voru Istaki og var nokkuð ljóst að sá friði flokkur tengdist þessu verktakafyrirtæki ekki nokkurn skapaðan hlut!!... Markmannsraunir Það verður nokkurt áfall fyrir stuðningsmenn KA ef Hörður Flóki Ólafsson hverfur af landi brott til að leika með Virum sem Lars Walter, fyrrum KA-maður, þjálfar en flest bendir nú til að svo verði. Hörður j hefur, sem kunn- ugt er, verið aðal- markmaður liðsins en Hans Hreins- son varamarkmað- 1 ur mun þó áfram verða kyrr. Óljós orðrómur hefur verið um að Litháinn Egedius Pet- kevicius, sem m.a. hefur verið hjá Val, sé inni í myndinni fyrir KA en slíkt er ekki selt dýrar en það var keypt. í pottinum heyrist þó að þegar neyðin sé stærst þá sé hjálpin næst hjá KA því ef Hans standi sig ekki geti KA eins og svo oft áður náð í bráðefnilega menn í yngri flokkana... Slefberar í Samfylkingu Það er þungt í stuðningsmönnum VG þessa dagana vegna frétta á Pressu Hrafns Jökulssonar úr samningaviðræðum þeirra flokka sem standa að Reykja- víkurlistan- um. Þetta má m.a. sjá á skrifum Steinþórs Hreiðarsson- ar á Múmum en þar telur hann vist að forustu- maður í Samfylkingunni sé að „leka“ upplýsingum sem henti Sam- fylkingunni pólitískt. „Þannig virð- ist nafnlausi slefberinn hafa komið því afar vel til skila að einkavæð- ing eða hlutafélagsvæðing Orku- veitunnar sé ekkert ágreiningsefni. Með öðrum orðum: Áhrifamaður- inn úr Samfylkingunni vill að kjós- endur hafi það á hreinu að kosn- ingabandalagið snúist ekki um póli- tík heldur bara völd. Má þá spyrja til hvers sé af stað farið í að bjóða fram; bara að halda Sjálfstæðis- flokknum frá völdum?" í pottinum töldu menn að viðræðurnar hlytu að ganga vel miðað við orðbragðið sem aðilar nota um hvem annan!... Nína Björk og Nína Björk í pottinum var verið að segja frá því að í Deiglunni á Akureyri stæði til að halda á föstudag sérstaka bók- menntahátíð í minningu Nínu Bjarkar Árna- dóttur sem hefði orðið sextug í sumar. Eftir því sem næst verður komist á að flytja úrval ljóða Nínu Bjarkar og munu ýmsir listamenn flytja verk hennar. Það sem mesta athygli vakti þó í pottinum var að þarna mun nafna Nínu, hin tiltölulega lítt þekkta söngkona, Nína Björk Elíasson frá Kaupmannahöfh, syngja lög sín við ljóð nöfnu sinnar Árnadóttur. Aðrir flytjendur dagskrárinnar eru Karl Guðmundsson leikari og Hildur Inga Rúnarsdóttir og Kristín Bjamadóttir, báðar Húnvetningar eins og Nína Björk Árnadóttir...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.