Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2001, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2001, Blaðsíða 10
10 Hagsýni FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001 DV Gósentíð hjá hinum hagsýnu: Utsölulok um helgina Hákon Kristinsson og Guöfinna Fox „Ég varð aö fá mér jakka, ég á ekki nema fjórtán stykki fyrir, “ segir Hákon en hann greiddi 6.000 kr. fyrir jakka sem áöur kostaöi 15.000 kr. Nú er sumarútsölunum að ljúka og hægt að gera mjög góð kaup. Hagsýni kíkti í Kringluna í gær en þar fer nú fram svokallaður götu- markaður þar sem versianir setja punktinn yfir i-ið á verðlækkunum og bjóða ýmsar vörur á stórlækk- uðu verði. Nokkuð fjölmennt var í Kringlunni og ljóst að margir vilja nýta sér þennan kost. Auðvitað eru sumarfötin alltaf ráðandi á útsölum á þessum tíma en inn á milli er t.d. hægt að finna góð skólafót á yngri börnin, raftæki, skrautmuni, skó, snyrtivörur og fylgihluti og jafnvel ágætis skólatöskur á fínu verði fyr- ir börnin. Við tókum nokkra Kringlufara tali. Fyrst varð á vegi okkar Margrét Finnbogadóttir en hún stóð fyrir utan Hagkaup og skoðaði hvað var í boði þar. „Ég er að skoða fatnað á bamabörnin og ég sé að hægt er að gera mjög góð kaup. Eins og t.d. í þessum buxum,“ segir hún og sýnir blaðamanni gráar buxur sem voru upphaflega á 1695 kr. en eru nú á 350 kr. „Maður fær ekki efni í hálfa skálm fyrir þennan pening,“ segir hún. Hún segist nýta sér útsölurnar töluvert og kaupir jólagjafír á þeim. „Þetta er mikil búbót, sérstaklega ef maður á fullt af barnabörnum, eins og raunin er með mig.“ Næst hittum við fyrir Söndru Sig- þórsdóttur en hún var að skoða undirföt. Aðspurð sagðist hún ekki viss hvort hægt væri að gera góð kaup þrátt fyrir að verðið væri lágt. „Mér líst nú ekkert voðalega vel á þetta sem hér er,“ sagði hún og benti á fullan kassa af alls kyns undirfötum. „Ég er frá Egilsstöðum og fyrst ég var í bænum ákvað ég að kikja en ég er nýkomin hingað og hef ekki skoðað mikið. En það getur vel verið að maður finni eitthvað sem manni líkar.“ Hákon Kristinsson og Guðfinna Fox voru að enda við að kaupa jakka í Herragarðinum þegar blaða- mann bar að. „Ég varð að fá mér jakka, ég á ekki nema fjórtán stykki fyrir,“ segir Hákon. Fyrir jakkann greiddi Hákon 6.000 kr. en hann seg- ist ekki vita hvað hann kostaði áður. „Hann kostaði 15.000 kr.,“ skýtur Guðfinna inn í. Aðspurður segir Hákon að þau noti útsölurnar ekki mikið, þau versli frekar í út- löndum en Guðfmna er ekki sam- mála honum og segir að þau kíki af og til á þær. Hún hefur ekki keypt neitt af fötum á sig aö þessu sinni en er hæstánægð með gæðakaffi og te í poka frá Hirti Nielsen. -ÓSB Spáö og spekúleraö Þó ekki hafi veriö mjög mikiö aö gera þegar þessi mynd var tekin er næsta víst að um helgina veröur handagangur í öskjunni þegar versianir lækka verð enn frekar og margir hyggjast gera góö kaup. Sandra Sigþórsdóttir „Ég hefekki fundiö neitt enn þá en ég er líka nýkomin frá Egilsstööum." Margrét Finnbogadóttir Hún kaupir jólagjafirnar á útsölunum og segir aö þaö sé mikil búbót. Þau eru mörg ráðin sem til eru og létta okkur störfin á heimilinu og í garðinum. Hér koma nokkur slík sem gott er að hafa við höndina við hin ýmsu tækifæri. Veggfóðrun bak við miðstöðvarofn Það er erfitt að veggfóðra bak við miðstöðvarofn. Séu hins vegar fest- ir tveir gluggatjaldshringir neðan í lengjuna og kefli stungið í þá frá hlið er langtum þægilegra að þoka veggfóðrinu á sinn stað. Hringirnir losna ef snöggt er kippt í keflið og þá er hægt að strjúka veggfóðrið með sérhannaðri málningarrúllu á löngu skafti sem ætluð er til notkunar bak við mið- stöðvarofna. Svalur drykkur Öl- eða vínflaska verður þægilega svöl í sólarbreiskju ef hún er sveip- uð i vott stykki og geymd þannig. Tekkborð lagfært Dýfðu stálull af vönduðustu gerð í vaselín og nuddaðu síðan borðplöt- una langsum eftir viðaræðunum uns hún er slétt og fín og allir blett- ir horfnir. Gættu þess að viðurinn sé þakinn vaselíni meðan á verkinu stendur. Þurrkaðu mestu feitina en farðu þó varlega. Láttu borðið bíða í 2-3 daga en þurrkaðu síðan feitina sem eftir er með mjúkum klút. Svampur í kertastjaka Nútímaleg, handunnin kerti eru skemmtileg - en fara því mið- ur ekki jafnvel f öllum stjökum. Því er ráð að sníða mjóan svamprenning í stjakann. Hann styður við kertið ef það er í mjórra lagi. Fjölskyldu- stimpill Gúmmístimpill er dýr í fram- leiðslu, en þó er ódýr leið að búa til stimpil fyrir alla fjöl- skyld- una. Þú hefur eyðu fyrir persónuna en setur heimilisfang og byggðarlag á stimp- ilinn. Þetta getur farið skemmtilega, einkum ef mannsnafnið er með öðr- um lit en stimpilblekið. Ryklaus borun Rykið breiðist um allt þegar bor- að er í vegg. Rektu borinn í gegnum tóma eldspýtuskúffu og þrýstu henni að veggnum áður en borun hefst. Ryk og mylsna safnast nú í skúffuna í stað þess að þyrlast út um herbergið. Tilboð verslana Seliun£ur v/Selectverslana Tilvoöin gilda til 29. ágústl 0 Maarud fíögur, ÍOO g 149 kr. Q Mónu Rex súkkulaöikex 49 kr. Q Nóa-kropp, 150 g 199 kr. Q Maltabltar, 200 g 229 kr. Q Mc Vites Homewheat kex 179 kr. Q Snakkfískur, ýsa/steinbít. 199 kr. Q Blue dragon núölur 49 kr. Q Oeteker pitsur, 330 g 369 kr. Q Oeteker pitsur, 430 g 399 kr. 0 Rayovac lukt 1709 kr. Hraöbúöir Esso Tllboöin giida tii 31. ágúst.! o Homeblest (blátt), 200 g 139 kr. Q Doritos snakk, 200 g 239 kr. Q Doritos snakk, 50 g 79 kr. Q Stjörnupopp, 90 g 105 kr. Q Störnu ostapopp, 100 g 110 kr. Q Pik-nlk kartöfíustrá, 113 g 209 kr. Q Góu Lindu buff 49 kr. Q Góu æöi bltar 189 kr. Q Freyju iakkrísdraumur 89 kr. 0 Skyr.ls, 170 g 69 kr. Samkaup Tilboöin gilda til 12. ágúst.! Q Gourmet læri 1092 kr. kg Q Frosinn lambahryggur 839 kr. kg Q íslenskar agúrkur 189 kr. kg Q íslenskir tómatar 189 kr. kg Q íslenskt blómkál 295 kr. kg Q íslenskt kínakál 259 kr. kg Q íslenskt spergilkál 295 kr. kg Q Q © Nettó Helgartilboö. Q Kjarnaf. gril lambakótel. 1265 kr. kg Q KJarnaf. grill lambasn. 983 kr. kg 0 Tex Mex læri m/legg 636 kr. kg Q Kjarnaf. rauðvl. lambal. 908 kr. kg Q MS Boxari 79 kr. Q Lindu marslpansúkk., 3 stk. 99 kr. Q Llndu kaffisúkkulaöi, 3 stk. 99 kr. Q IM tiiboösfranskar, 650 g 99 kr. Q ©

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.