Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2001, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2001, Blaðsíða 23
27 FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001_________________________________________ DV Tilvera Melanie Griffith 44 ára Leikkonan Mel- anie Griffith og eig- inkona spænska hjartaknúsarans Antonios Banderas er 44 ára í dag. Mel- anie var áður gift leikaranum Don Johnson og á með honum dótturina Dakota. Áður átti hún soninn Alexander með Steven Bauer og á síðan dótturina Stellu með Banderas. Melanie hefur leikið í fjölda kvikmynda og má þar nefna Something Wild, Working Girl, Stormy Monday og A Stranger Am- ong Us. Gildlr fyrlr föstudaginn 10. ágúst Vatnsberinn (20. ian.-ia. febr.i: ■ Þú sýnir mikinn dugn- að í dag. Þér verður mest úr verki fyrri hluta dagsins, sérstaklega ef þú ert að fást við erfitt verkefni. Fiskarnlr (19. fRhr.-20. mars>: \ Þú ert orðinn þreyttur lá venjubundnum verk- efnum. Einhver leiði er yfir þér í dag og þú þarft á einhverri upplyftingu að halda. Hrúturinn (21. mars-19. aprílt . Fjármálin þarfnast ' endurskoðunar og þú vinnur að því í dag að breyta um stefnu í þeim efrium. Happatölur þínar eru 2, 23 og 26. Nautið (20. april-20. maíl: / Fólk treystir á þig - og leitar ráða hjá þér í dag. Þú þarft að sýna skilning og þolinmæði. Happatölur þínar eru 7, 11 og 24. Tvíburarnir (21. maí-2i. iúní): Þú þarft að gæta þag- mælsku varðandi _ / / verkefni sem þú vinnur að. Annars er hætt við að minni árangur náist en ella. Krabbinn (22. iúní-22. iúiít Þú átt erfitt með að I taka ákvörðim i sam- bandi við mikilvægt mál. Einhver bíðin þess l ákveðir þig. Hugsaði máhð vel áður en þú anar að neinu. Liðnlð (23. iúlí- 22. áeústl: Varastu að sýna fólki tortryggni og van- treysta því. Þér gengur betur í dag ef þú vinn- ur með fólki heldur en að vinna einn. Mevian (23. áeúst-22. seot.l: Þér finnst ekki rétti tíminn núna til að .taka erfiðar ákvarðan- ir. Ekki gera neitt að óhugsuðu máli og þiggðu aðstoð frá þínum nánustu. Vogln (23. sept.-23. oKt.l: J Eitthvað sem hefur Oy breyst í fjölskyldunni \ f hefur truflandi áhrif á r f þig og áform þín. Þú þarft að skipuleggja þau upp á nýtt. SPOrðdrekl (24. okt.-21. nóv.i: Morgiminn verður frekar rólegur og þú jeyðir honum i ánægju- ] legar hugleiðingar. Vertu óhræddur við að láta skoð- anir þínar i ljós. Boeamaður (22. nóv.-21. des.l: LFjölskyldan þarf að ' taka ákvörðim og mik- il samstaða ríkir um ákveðið málefhi. Fé- lagslífið tekur mikið af tíma þín- um á næstunni. Stelngeltln (22. des.-19. ian,): ^ _ Þú hefur í mörgu að snúast í dag. Þú færð * Jr\ hjálp frá ástvinum og það léttir þér daginn. Viðskipti ganga vel seinni hluta dagsins. Einher j aklúbburinn: Draumahöggið sem lifir í minningunni Það er margt sem gerir golfiþrótt- ina skemmtilega og meðal þess sem þykir einna eftirsóknarverðast er að hafa slegið upphafshögg sem end- ar í holunni sjálfri. Þetta er nánast eingöngu hægt á par-3 brautum en þó eru til einstaklingar sem hafa náð þeim árangri að fara „holu í höggi“ á par-4 brautum. Meðal þeirra er Ólafur Skúlason í GR, oft- ast kenndur við Laxalón, sem ungur að árum náði því einstæða afreki að fara tvisvar „holu i höggi“ í sama golfhring og er hann eini íslending- urinn hingað til sem náð hefur þess- um einstæða árangra. Og það sem meira er, annað höggið var á par-4 braut. Allt frá því Halldór Hansen lækn- ir fór fyrstur íslendinga „holu í höggi" árið 1939 hafa rúmlega níu hundruð fslendingar leikið það eftir honum og er það félagafjöldinn í Einherjaklúbbi íslands, sem heldur utan um skráninguna og sér til þess að allir fái viðurkenningu. Sumir leika golf megnið af sinni ævi án þess nokkurn tímann ná því afreki að fara „holu í höggi“. Aðrir gera þetta nánast reglulega. Þrír þekktir kylfingar eiga íslandsmetið sem er sex sinnum, það eru þeir Kjartan L. Pálsson, NK, (formaður Einherjaklúbbsins), Björgvin Þor- steinsson, GA, og Þorbjörn Kjærbo, GS. Nokkrir kylfingar hafa síðan farið fimm sinnum „holu í höggi“. Sú af konum sem oftast hefur leikið þennan leik er Ólöf Geirsdóttir sem fjórum sinnum hefur farið „holu i höggi". Golf er iþrótt fyrir alla aldurs- hópa og þeir sem fara „holu í höggi“ eru á öllum aldri. Sá elsti var 99 ára gamall. Var hann þýskur ferðamað- ur sem var að leika La Manga-völl- inn á Spáni árið 1985. Og nú fyrir stuttu gerðist það að þriggja ára drengur fór „holu í höggi“. Um var að ræða 50 metra holu í Bandaríkj- unum. Snáðinn náði um 40 metra höggi og þá byrjaði boltinn að rúlla og endaði í holunni. Það er sem sagt alltaf von en á móti kemur að töl- fræðin er ekkert sérstaklega vin- gjarnleg kylfingum. Samkvæmt nýj- ustu tölvuútreikningum eru mögu- leikarnir 1 á móti 10.738 að kylfing- ur fari „holu i höggi" á 18 holu hring. Einherjaklúbburinn verður fjöl- mennari meö hverju árinu sem líð- ur enda mikil aukning í golfi og því fleiri sem eiga möguleika á að ná draumahögginu. Árlega heldur klúbburinn fagnað fyrir nýja Ein- Móöir Charlize drap pabbann Leikkonan Charlize Theron reis ekki alsköpuð upp úr froðunni í Hollywood. Hún ber á herðum sér fortíð hörmunga í fjölskyldunni. Þegar hún varð fræg leikkona út- skýrði hún dauða foður síns með þvi að hann hefði dáið í bílslysi. Nú er sannleikurinn hins vegar kom- inn í ljós. Fyrir tíu árum kom pabbi Charlize fullur heim og lenti 1 rifr- ildi við hana og móður hennar. Ósættið leiddi til átaka þegar faðir- inn réðst á Charlize í ölæöinu. Til að bjarga dóttur sinni tók móðirin byssu og skaut ölóðan föður hennar til bana. Charlize segist lengi hafa kennt sjálfri sér um atvikið. Nú eftir 10 ár gerir hún það ekki lengur og hefur lært að horfa fram á veginn. Skyldi hann fara í holuna Þaö fer stundum fiöringur um kylfinga þegar upphafshögg er slegiö og boltinn stefnir beint í holu. herja sem þá eru leystir út með gjöf- um og einnig heldur klúbburinn ár- lega golfmót sem aðeins er ætlað Einherjum. Auk veglegra verðlauna á móti þessu er keppt um farandbik- ar sem þykir einn sá glæsilegasti sem er i umferð. Er hann úr silfri og gefinn af veitingahúsinu Röðli fyrir fjöldamörgum árum. Einherjamótið í ár, sem að venju er punktamót, verður haldiö á Nesvellinum sunnu- daginn 18. ágúst næstkomandi og verður ræst út frá klukkan 8-10 og 13-14. Hægt er að skrá sig í mótið í síma Nesklúbbsins. Einherjaklúbb- urinn hefur látið gera húfur, sem merktar eru Einherjaklúbbnum, og barmmerki og verða þessi tákn klúbbsins til sölu á Nesvellinum á sunnudaginn. Borðar morgun- matinn nakin Jennifer Lopez er heimsfræg fyr- ir vöxt sinn. Inýlegu viðtali játar hún á sig ákveðnar hneigðir sem hjá gömlum körlum nefnast löstur en er dyggð hjá J-Lo. „Þaö furðulega við mig er að ég hef gaman að því að ganga um nakin,“ segir form- fagra latínudrottningin. Jennifer segist hafa það að sið að sitja nakin við morgunverðarborðið þegar hún borðar kókópuffsið sitt. „Ég sit við morgunverðarborðið og allir eru klæddir nema ég. Fólkið í kringum mig er annaðhvort stelpur eða hommar þannig að það skiptir engu máli,“ segir söngkonan sem vantar kannski frekari selskap. 1 Krúsi mætir á mynd Kidman Kvikmyndastjarnan Tom Cruise mætir hér á frumsýningu myndarinnar The Others sem Nicole Kidman leikur aöalhlutverkiö í. Cruise mætti ekki til aö pirra Kidman vegna skilnaöarmáls þeirra heldur er hann einn af framleiðendum myndarinnar. Samkvæmt fréttum gættu skötuhjúin þess aö vera ekki aö rekast á hvort annaö á meöan á herlegheitunum stóö. ^óökaupsveislur—írttsomkomur—skemmtanir—lónleikar — sýnlngor—kynniogar og fl. og fl. og fl. iSsotjðld - veislutjðld. ^ ..og ýmsir fylgihlutir 4 lil v Ekki treysta á veðrið. skipuleggja_á eftirmlnniiegan viðburö - - www.scout.is lelglð stórt tjald á marg borgarsig. Tryggið ykkur staðinn - Tjdldaföilum stœrðum frá 20 - 700 m*. Leigjum einmg borð og stóla í tjöldin. áaSeSga sScáta ..meo skátum 6 heimavdli sfml 550 9ðOO • fax 550 9801 • W*®scout.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.