Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2001, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2001, Blaðsíða 24
28 _____________________________FIMMTUDAGUR 9. ÁGÚST 2001 Tilvera dv 11 f 1 Ö Kertafleyting á Tjörninni íslenskar friðahreyfingar standa að kertafleytingu á Reykjavíkur- tjörn í kvöld. Athöfnin er í minningu fórnarlamba kjarnorkuárásanna á japönsku borgimar Hírósíma og Nagasakí 6. og 9. ágúst um leið og lögð er áhersla á kröfuna um kjarnorkuvopnalausan heim. Safnast verður saman við suðvesturbakka Tjarnarinnar (við Skothúsveg) klukkan 22.30 og verður þar stutt dagskrá. Þetta er 17. árið sem kertum er fleytt á Tjöminni af þessu tilefni. Að venju verða flotkerti seld á staðnum. Malþing MÁIÞING UM STÖÐU OG FRAIVITÍÐ ISLENSKRA FJOLIVIIÐLA Málbing um stöðu og framtíð íslenskra fjölmiðla verður haldið í dag á milli kl. 13 og 16.30 í Odda, húsi Félagsvísindadeildar Háskóla íslands. Málþingið er öllum opið sem áhuga hafa á framtíð íslenskra fjölmiðla. Aðgangur er ókeypis og kaffiveitingar verða í boði. Meðal erinda eru Hlutverk fjölmiöla skv. Mannréttindasáttmála Evrópu og dómaframkvæmd Mannréttinda- dómstólsins, Staða og framtíð dagblaða og Möguleikar stafræns og gagnvirks sjónvarps. Einnig verða pallborðsumræður í stjórn Þorbjörns Broddasonar, prófessors í félagsfræöi. Djass TUGBORGDJASS í DEIGLUNNI I Deiglunni á Akureyri verður Tuborg Djass í kvöld. Þar leikur Jasstríó Óla Stolz. Meðlimir hennar eru Jón Páll Bjarnason, Ólafur Stolzenwald og Birkir Freyr Matthíasson. Jón Páll Bjarnason gítarleikari er trúlega okkar reyndast og virtasti gítarleikari í djassheiminum í dag, búinn að starfa lungann úr ævinni í Banda- ríkjunum. Olafur Stolzenwald hefur látið mikið og vel til sín taka í miðkynslóð djassleikara okkar og svo kemur ungstirniö hann Birkir Freyr Matthíasson sem blæs öllum betur I trompetinn. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.30. Myndlist MYNDLIST OG UÓÐ I LISTHUSINU I LAUGARDAL Þessa dagana sýnir Anna Hrefnudóttir, mynlistakona málverk og Ijóö, í Listacafé og Veislugallerí. Á sýningunni eru akrýlmálverk sem öll eru máluð á þessu ári. Flest verkin voru gerð í Gestavinnustofu Gilfélagsins á Akureyri sl. vetur, en þar dvaldi Anna í boðið félagsins 1. janúar til 14. febrúar og lauk þeirri dvöl með sýningu í Deiglunni. Sýningin er opin alla virka daga frá klukkan 9 til 19 og laugardaga frá klukkan 10 til 19. Henni lýkur þann 31. ágúst næstkomandi. ERNA GUÐMARS í SNEGLU LISTHUSI Frá því 3. ágúst síöastliöinn hefur Erna Guðmars- dóttir kynnt verk sín í gluggum Sneglu listhúss. Sýndar eru vatnslitamyndir og myndir málaðar á silki. Erna sækir myndefni sitt í veöurfar og þlæbrigði íslenskrar náttúru. Snegla listhús á tíu ára afmæli í haust og munu sneglur þá efna til samsýningar af því tilefni. Snegla listhús er á horni Grettisgötu og Klaþþarstígs og lýkur kynningunni á verkum Emu þann 19. ágúst. Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is Bíógagnrýni Sambíóin - Antitrust: i Hinsegin dagar haldnir í þriðja sinn: Allt litrófið í • • • • emni gongu Betur heima setið *=?? um kvikmyndir. þjóðleg yfirskrift hátíðahaldanna í ár er „Fögnum fjölbreytni" og segir Páll Óskar að ástæða fyrir því sé að sýna að samfélag samkynhneigðra sé marglitur hópur og komi alls staðar við í samfélaginu. „Gangan á ekki bara að einskoraðst við homma og lesbíur heldur viljum við sjá alla sem láta sig málið varða,“ „Þetta er í þriðja sinn sem Hinsegin dagar eru haldnir hátíð- legir hér á landi og í annað sinn sem farið verður í Gay Pride-göngu niður Laugaveginn," segir Páll Ósk- ar Hjálmtýsson, einn talsmaður há- tíðarinnar sem fram fer um næstu helgi. í fyrra tóku um fjögur þúsund manns þátt í göngunni og var það framar björtustu vonum allra sem að henni stóðu. Einnig voru níu til tíu þúsund manns samankomnir í miðbænum til að fylgjast með. Að sögn Páls Óskars er margþætt ástæða fyrir Hinsegin dögum og eru þeir haldnir hátíðlegir í 90 borgum viðs vegar um heiminn. Hann segir að dagarnir séu ekki einskorðaðir við einn ákveðinn dag en miðað sé við 27. júní því þann dag hófust Sto- newall-uppþotin í New York. Á milli borganna sé þögult samkomulag um að hafa ekki sömu dagsetninguna þannig að flestir nái að fylgjast með alls staðar. Islendingar séu siðastir í röðinni og hér hentar fyrsta helgin eftir verslunarmannahelgina best. Hvatning og klapp á bakiö „Gangan gengur fyrst og fremst út á stolt og allir sem eru stoltir af sjálfum sér geta tekið þátt í henni,“ segir Páll Óskar og bætir við að staðreyndin sé að leitun sé að slíku fólki. Hún sé hvatning og klapp á bakið fyrir þá sem eru stoltir, búnir að gera hreint fyrir sínum dyrum og því tilfinningalega frjálsir. „Að sama skapi er gangan líka hvatning og uppörvun fyrir öll litlu hjörtun sem eru í felum úti í bæ og vantar einhverja hvatningu frá öðrum.“ Al- Páll Óskar Hjálmtýsson „Mig grunar að það besta viö svona skrúðgöngu sé að um leið og þú gerir hið óvenjulega sýnilegt þá hættir það að vera óvenjulegt og þess vegna tek ég þátt í þessum undirbúningi. “ Gengiö eftir Laugavegi / fyrra tóku um 4 þúsund manns þátt í göngunni og voru búningarnir margvíslegir. segir Páll Óskar. Þetta verði stærsta skrúðganga sem farin hefur verið á ísland og í henni komi allt litrófið saman. Sjálfboðavinna af hugsjón Hátíðahöldin byrja á morgun í Kaffileikhúsinu í Hlaðvarpanum við Vesturgötu þar sem bandaríski háðfuglinn Mina Hartong stígur á svið og síðan mun kvennasveitin Móðinz spila fyrir gesti fram undir miðnætti. Á laugardaginn verður svo safnast saman á Rauðarárstíg klukkan 14 og klukkustund seinna verður lagt af stað frá Hlemmi geng- ið eftir Laugavegi og niður í Kvos- ina. Að göngunni lokinni verður Hinsegin hátíð á Ingólfstorgi þar sem fjöldi skemmtiatriða verður í boði. Meðal þeirra eru Bergþór Páls- son, Felix Bergsson, kór lesbía og homma og fimm drottingar sem mynda hópinn DivaLicious. Eftir skemmtunina verður hátíðarkvöld- verður um borð í veitingastaðnum Þór við Reykjavíkurhöfn og síðan endar dagurinn á hátíðardansleik á Spotlight. Páll Óskar segir að undanfarið hafi menn verið að vinna allan sól- arhringinn að undirbúningnum, til dæmis við að búa til vagna og bún- inga. Allt sé gert í sjálfhoðavinnu því þetta sé gert af hugsjón. „Mig grunar að það besta viö svona skrúðgöngu sé að um leið og þú ger- ir hið óvenjulega sýnilegt þá hættir það að vera óvenjulegt og þess vegna tek ég þátt í þessum undir- búningi,“ segir Páll Óskar að lok- um. -MA Milo og Lisa Ryan Phillippe og Rachael Leigh Cook í htutverkum sínum sem forritararnir Milo og Lisa í spennumyndinni Antitrust sem fjallar um skuggahiiðar tölvuheimsins. „Tim Robbins leikur í þessari mynd svo að hún getur nú ekki ver- ið alvond," sagði vinkona mín og fór siðan á hana um síðustu helgi. Hún komst hins vegar að því, eins og ég í gær, að þrátt fyrir að þessi eðalleikari sé í stóru hlutverki þá er kvikmyndin samt alveg einkenni- lega afspyrnu vond. (Maður verður bara að vona að Robbins sé að safna pening fyrir einhverju frábæru verkefni og hafi sagt já þess vegna.) Antitrust fjallar í stuttu máli um unga forritarann Milo sem í stað þess að stofna litið bilskúrsfyrir- tæki með vinum sínum fer að vinna fyrir stóra fyrirtækið í tölvubrans- anum, NURV, sem er stýrt af Gary Winston (Tim Robbins). Gary þessi er svo líkur Bill Gates í útliti, klæðaburði og töktum, fyrir utan það að í myndinni er dómsmála- ráðuneytið að rannsaka hann fyrir meint brot á samkeppnislögum, að mér þykir eiginlega merkilegast að Gates hafi ekki ákveðið að setja kvikmyndagerðarmönnunum stól- inn fyrir dyrnar og kæft þetta verk- efni í fæðingu. En, sem sagt, Milo kveður vini sína og vinnur fyrir Bill, nei afsakið Gary, og kemst að ýmsu misjöfnu um hann og hans fyrirtæki. Sem sagt, gamla sagan um unga lærlinginn sem selur sál sína „djöflinum" fyrir frægð og frama en kemst að því að hann er að borga of hátt gjald fyrir lífsins lystisemdir. Þessi saga hefur oft verið sögð ágætlega, t.d. í The Firm fyrir ekki svo mörgum árum eða enn bókstaf- legar í The Devils Advocate þar sem A1 Pacino er ekki ígildi djöfulsins heldur djöfsi sjálfur. En hér gengur ekkert upp. Sagan er kjánalega ein- fóld og endirinn er ljós eftir aðeins 20 mínútur. Samt er öll framvinda óskaplega þunglamaleg og tilgangs- laus atriði teygjast út í hið óendan- lega. Inni á milli eru atriði sem eru svo út í hött að myndin verður al- veg óvart fyndin, ég nefni hér sem dæmi um sesamfræin og gaffalinn. Handritið er einfaldlega engan veg- inn tilbúið því hugmyndin sem slík er ekkert fáránleg en útfærslan er engin. Gary Winston er alltaf að segja við undirmenn sína: „Komið mér á óvart, ögrið mér, verið skap- andi.“ Þessi orð hefði handritshöf- undurinn, Howard Franklin, átt að tileinka sjálfum sér, þá hefði útkom- an ef til vill orðið örlítið skárri. Hann hefur annars átt ágæta spretti fram að þessu, t.d. skrifaði hann og leikstýrði hinni ágætu Quick Change með Bill Murray fyrir nokkrum árum. Tim Robbins er finn leikari og stendur sig hér eins vel og handritið leyfir honum en það segir nú kannski ekki margt. Ryan Phillippe leikur Milo og mér taldist hann hafa ein fern svipbrigði til að skipta á milli en skiptingarn- ar voru oft dálítið stífar. Með hon- um eru tvær sætar stelpur, Rachael Leigh Cook og Claire Forlani, og þær sýndu vel hvað þær eru sætar og það er kannski bara nóg? Leik- stjórinn Peter Howitt leikstýrði síð- ast Sliding Doors þannig að ekki er honum alls varnað en hann hefði betur heima setið en af stað farið eins og aðrir sem að þessari mynd koma. Aðallelkarar: Ryan Phillippe, Tim Robb- ins, Rachael Leigh Cook, Claire Forlani o.fl. Leikstjóri: Peter Howitt. Handrit: Howard Franklin. Kvikmyndataka: John Bailey. Tónlist: Don Davis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.