Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2001, Side 28
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREISEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
íbúar í Grafarvogi í slag viö borgaryfirvöld:
Embættismenn leyndu
úrskurði ráðherra
- hugsanlegt að minnisblöð verði lögð fram
Rónar og Coldplay
í Fókusi á morgun gefur að líta ný-
stárlegar hugmyndir um miðstöð fyr-
ir drykkjumenn. Rætt er við bresku
rokkarana í hljómsveitinni Coldplay
um lífið, tilveruna og yfirvofandi ís-
landsfór. Aðrir rokkhundar, Gunnar
Bjarni Ragnarsson og Páll Rósin-
krans, eru farnir að spila aftur saman
með Jet Black Joe og segja frá ýmsu
varðandi samstarfið nú og áður.
Skemmtistaðurinn Skuggabarinn fær
virðulega minningargrein í blaðinu
og sætasta knattspyrnukona landsins
segir frá sjálfri sér. Að sjálfsögöu eru
svo ítarlegar leiðbeiningar um hvert á
að halda um helgina.
Margeir
Pétursson.
„Þessir menn i
geta ekki búist við
að þeir séu alveg
ósnertanlegir. Mér
er misboðið, það er |
einfalt,“ segir Ólaf-
ur G. Einarsson,
fyrrverandi stjórn-1
armaður í Lyfja-
verslun íslands og
bankaráðsformað-
ur Seðlabanka ís-
lands. Ólafur, sem skrifaöi grein í
Morgunblaðið i dag, þar sem hann
fordæmir vinnubrögð Margeirs
Péturssonar og félaga sem náðu
meirihluta í I.yfjaverslun íslands.
Þar segir hann Margeir hafa beitt
„stórmeistarafléttu" til að ná undir
sig fyrirtækinu. Hann segist sjálf-
ur vera til vitnis um að Margeir
hafi verið með í ráðum hvað varð-
ar hin umdeildu kaup á Frumafli.
Hann kveðst ekki hefði farið inn I
stjórn Lyfjaverslunar ef hann hefði
Olafur G.
Einarsson.
I vitað „að það ætti
að svikja þetta allt
I saman“.
„Það er ekkert
I annað orð til yfir
þetta en svik. Þeir
voru sjálfir búnir
að samþykkja
kaupin á Frumafli
en komu því síðan
inn hjá hluthöfum
að verið væri að
semja óhæfuverk. Ég sat tvo fundi
með þáverandi stjórnarmönnum
þar sem eingöngu var talað um
kaup á Frumafli. Þar voru Margeir
og Örn Andrésson," segir Ólafur..
Hann segir að til séu minnisblöð,
undirrituð upphafsstöfum stjórn-
armanna, og ef málið haldi áfram
verði þeir dregnir fram í dagsljós-
ið haldi Margeir og félagar því enn
fram að þeir hafi hvergi komið
nærri áformuðum kaupum á
Frumafli. „Það er enginn vandi að
Mörg eftirmál
Ekki sér fyrir endann á deilum um
Lyfjaverslun íslands. Myndin er af síöasta
aöalfundi félagsins, sem var sögulegur.
sanna þetta,“ segir hann.
Ólafur var spurður hvort hann
væri ekki i erfiðri stöðu sem
bankaráðsformaður Seðlabankans
að taka þátt í slíkum átökum:
„Það get ég ekki séð. Ég veit ekki
betur en þeir sem setið hafa í
stjóm Seðlabanka í gegnum árin
hafi verið i alls konar störfum öðr-
um og þar með í bisness.
Það er ekkert óeðlilegt við
það og síst af öllu eftir að
bankaeftirlitið fór úr hönd-
um Seðlabankans. Ég er ein-
faldlega að upplýsa um að
þama var búið að gera
samninga um kaup á Frum-
afli,“ segir Ólafur.
Margeir Pétursson, sem
fór fyrir þeim hópi sem bylti
meirihlutanum, og er sakað-
ur um svik, segist ekki átta
sig á því hvers vegna Ólafur
G. Einarsson komi nú fram
með gagnrýni sina en hafi
ekki mætt á aðalfundinn. „Það
kemur mér ekki á óvart að Ólafur
Geir og aðrir sem tóku þátt í þessu
með Jóhanni Óla vilji útskýra sinn
þátt i málinu. En það kom mér á
óvart að hann skyldi ekki mæta á
hluthafafundinn 10. júlí,“ sagði
Margeir Pétursson 1 morgun.
-rt
Ólafur G. Einarsson kveðst geta sannað samráð um Frumafl:
Segir Margeir vera
sekan um svik
Jón Sigurösson
„Úrskurði ráð-
herrans var stungið
undir stól og hann
ekki kynntur kjörn-
um borgarfulltrú-
um. Við erum í
klóm embættis-
manna og það er
ójafn leikur," segir
Jón Sigurðsson, for-
svarsmaður þeirra
íbúa við Garðhús
sem berjast gegn því að Hallsvegur
verði lagður aö húsabaki hjá þeim.
Jón vísar þarna til þes að umhverf-
isráðherra nam úr gildi úrskurð
skipulagsstjóra í desember á síðasta
ári og krafðist frekara umhverfis-
mats. I síðasta mánuði, hálfu ári eft-
ir að úrskurðurinn féll, var Árna
Þór Sigurðssyni, formanni skipu-
lagsnefndar Reykjavíkurborgar,
ekki kunnugt um hann og kom af
fjöllum. Ámi Þór staðfesti í samtali
við DV að honum hefði lengst af
ekki verið kunnugt um athugasemd-
ir umhverfisráðherra. „Ég hafði
ekki séð þessar athugasemdir um-
hverfisráðherra. Auðvitað er eðli-
legt þegar úrskurður sem þessi fell-
ur að hann sé kynntur fyrir þeim
nefndum borgarinnar sem um þetta
íjalla, skipulagsnefnd, umhverfis-
nefnd og borgar-
ráði. Það hafði ekki
verið gert en ég
skal ekki um það
segja hvort það
snýst um tímasetn-
ingar," segir Árni
Þór.
Hann segist ekki
hafa kynnt sér úr-
skurð skipulags-
stjóra sem féll í
fyrradag.
„Ég skil viðhorf íbúanna og mér
finnst koma til greina að leita frek-
ari leiða til lausnar vandans. En
þarna þarf ríkisvaldið að koma til
þar sem þetta er stofnbraut og fjár-
mögnuö af ríkinu,“ segir Ámi Þór.
Krafa íbúanna við Garðhús er sú
að vegurinn verði settur í stokk eða
húseignir þeirra að öðrum kosti
keyptar upp.
Fréttaljós á bls. 5
-rt
Arni Þór
Sigurösson.
DV-MYND GVA
Lyktaö af eyrarrós
Lyktin er góö en þaö veröur aö bera sig eftir henni. Helgi Gíslason myndlistarmaöur krýpur og teygar angan eyrarrós-
arinnar i Súlnadal í Skaftafellssýslu. Hann reis á fætur annar maður-.
„Timburmenn“ Eldborgarhátíðar:
Tugir síma týndir
„Viö gerum varla nokkuð
annað en að svara í sima
hringingum frá fólki sem var
á Eldborgarhátíðinni og hef-
ur týnt þar símum, veskjum
og öðrum hlutum," sagði lög-
reglumaður í Ólafsvík sem
DV ræddi við í gær.
Hann sagði að lögreglan
hefði undir höndum 10-15
síma sem fundist hefðu en
það væri alveg ljóst að nokkra
tugi síma vantaði til viðbótar
Verðmæti í súginn
Þaö voru ekki aöeins tjöld og viölegubúnaöur sem
skilinn var eftir á Etdborg, heldur og fjöldi síma.
ef allir ættu að endurheimta
sína síma. Þar fyrir utan
væru svo veski og aðrir hlut-
ir sem tapast hefðu.
í gær var unnið af krafti
við hreinsun á Eldborgarhá-
tíðarsvæðinu og af nógu að
taka. Ruslið var yfirgengilegt
og i því kunna að leynast
fjöldi farsíma og aðrir hlutir
sem fólk sárvantar nú að gleð-
inni lokinni.
-gk
Reykjavík 581 2233 Akureyri 461 1150
Heilsudýnur t sérflokki!
^EÍLSUNNAR
Rafkaup
Ármúta 24 • stmi 5S5 2800
stmi 585 2800