Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2001, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2001, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2001 DV Helgarblað Rafstöðvar 15 Mikið úrval bensín og dísil rafstöðva. Hagstætt verð! Angelina Jolie Menn segja aö kvikmynd hennar Erfðasyndin sé svo vond að hún verði aidrei sýnd. Angeline Jolie: Erfða- syndin er vond Leikkonan Angeline Jolie á í hálf- gerðu basli um þessar mundir. Sennilega eru allir fjölmiðlar heims- ins búnir að fá sig fullsadda af ein- kennilegum yfirlýsingum hennar um hjónaband og kynlif og hlýtur þó að þurfa allmikið til. Eins og það sé ekki nóg þá er fer- illinn í hálfgerðum lamasessi. Tomb Raider gengur að vísu mjög vel enda eitt atriðið tekið á íslandi og miklar vonir eru bundnar við fram- haldsmyndina sem Jolie var nýlega að semja um. Vandræöin tengjast kvikmynd sem Jolie lék í á móti Antonio Band- eras og heitir The Original Sin sem best væri þýtt sem Erfðasyndin. Menn hafa verið að draga að sýna myndina vegna þess að hún þótti svo vond en loksins var henni laum- að í bíó í Ameríku í síðustu viku. Gagnrýnendur voru ekki látnir vita, það var engin hátiöleg frumsýning og ekki vottur af því húllumhæi sem oft umkringir frumsýningu efnilegra kvikmynda. Það ber allt að sama brunni. Erfðasyndin er vond. Nicole Kidman: Snýr á Lars von Trier Það vita allir að Nicole Kidman er ekkert lamb að leika sér við. Hún er hörð í horn að taka og vön að hafa sitt fram eins og stórar stjörn- ur eiga vanda til. Þetta fékk hinn sérvitri og miskunnarlausi íslands- vinur Lars von Trier að reyna á dögunum. Lassi hélt að hann væri búinn að ráða Kidman til þess að leika i næstu kvikmynd sinni sem á að heita Dogville sem má kannski þýða sem Hundabærinn. Kidman vék sér þó jafnan fimlega undan því að skrifa undir endanlegan samning. Á endanum var Lars orðinn svo pirr- aður að hann lét móðan mása um stjörnustæla Kidman og þrjósku í viðtali við eitthvert dagblað. Þetta líkaði Kidman alls ekki og lét danska snillinginn hafa það óþvegið að sögn og hefur verulega dregið úr líkunum á því að hún $ SUZUKI SUZUKI BÍLAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. www.suzukibilar.is SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Hafnarfjörður: Guðvarður Elíasson, Grænukinn 20, slmi 5S51S 50. Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, simi 431 28 00. Borgarnes: Bilasala Vesturlands, simi 437 15 77. Isafjörður: Bllagarður ehf., Grænagarði, sími 456 30 95. Hvammstangi: Bfla- og búvélasalan, Melavegi 17, slmi 451 22 30. Sauðárkrókur: Bila- og búvélasalan, Borgarröst 5, simi 453 66 70. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, simi 462 63 00. Egilsstaðir: Bllasala Austurlands, Fagradalsbraut 21, simi 471 30 05. verði stjarna í Hundabæ. Skemmst er að minnast grimmilegrar með- ferðar Lars þessa á henni Björk okkar sem hann grætti hvað eftir annað. Það er eins gott að hann komi aldrei til íslands en sennilega hefur Björk verið ráðgjafi Kidman í þessu máli, Nicole Kidman Hún vildi alls ekki leika í kvikmynd undir stjórn Lars von Trier. Suzuki Grand Vitara er öflugur og vel búinn grindarbyggður jeppi með hútt og lágt drif tengjanlegt um millikassa. Berðu saman getu, aksturseiginleika, búnað, þægindi og rekstrarhagkvæmni jeppiinga við það sem þú færð í Suzuki Grand Vitara. KOMDU í REYNSLUAKSTUR full^ ERAMElPII .aaiB! Byggður á grind Hátt og lágt drif

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.