Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2001, Síða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2001, Síða 38
Tilvera DV mssÐi Túnfiskur Túnfiskur er nafnið á hópi feitra fiska sem lifa meðal annars í Miðjarðarhafi og Indlandshafi. Um er að ræða nokkrar skyldar tegundir sem allar eru straumlínu- laga, sifurlitar, með oddhvasst höfuð og mjóan sporð. Kjötið er allt frá því að vera eldrautt yfir í rauðbrúnt, en það fer eftir tegundinni. Túnfiskur er með heitt blóð og verður því stöðugt að vera á hreyfingu til að fá nauðsynlegt súrefni. Þessi stöðuga hreyfmg túnfisksins gerir það að verkum að holdið verður þétt og næstum beinlaust Hægt er að matreiða túnfisk á marga vegu og hann hentar vel sem aðalréttur. ' mm Einnig má grilla hann eða nota í fiskikássur, fiskborgara og fiskhakk. Túnfiskur er líka mikið notaður í ýmsa asíska rétti, til að mynda í hið japanska sushi. skmofar Meðhöndlun á túnfiski LAUGARDAGUR 11. AGUST 2001 Sjávarpakk- húsiö Á einum fallegasta staðnum við höfnina í Stykkishólmi er að finna kaffihúsið Sjávarpakkhúsið sem opnað var í vor. Húsiö er mjög skemmtilegt, með fallegri verönd fyrir framan þar sem hægt er að sitja úti og njóta út- sýnisins yfir höfnina. Ef gestir vilja sitja úti þegar rökkva tekur, eða bara að degi til, er hægt að fá teppi til að breiða yfir sig til að manni verði ekki of kalt. í heim- sókninni í Sjávarpakkhúsið að þessu sinni var bragðað á café au lait sem smakkaðist vel og var það drukkið utandyra. í Sjávar- pakkhúsinu er meðal annars hægt að fá bæði sjávarréttasúpu og kjötsúpu sem eru einstaklega góðar og svo er boðið upp á bakk- elsi með kaffinu. Fjöruhúsiö á Hellnum Á Hellnum á Snæfellsnesi er líklega eitt sérstæðasta kaffihús landsins. Það er Fjöruhúsið sem, eins og nafnið gefur til kynna, er í fjörunni. Útsýnið af veröndinni er hreint stórkostlegt þar sem þar er hægt að njóta þess að horfa klettana og sjóinn í góðu veðri. í Fjöruhúsinu var smakk- að á heitu súkklaöi, kaffi og með því gætt sér á vöfflum með rjóma og sultu. Allt þetta bragðaðist mjög vel og einnig er fólki bent á aö bragða heimabakað brauð sem borið er fram með reyktum laxi og osti. Upplagt er að fá sér gönguferð um hið fallega ná- grenni staðarins áður en sest er niður í Fjöruhúsinu. Narfeyrarstofa Kaffihúsið Narfeyrarstofa í Stykkishólmi er í einu af gömlu húsunum í bænum, ekki mjög langt frá höfninni, og þar er hægt að fá sér ýmiss konar kaffi og meðlæti, auk margs konar drykkja. Þegar Narfeyrarstofa var heimsótt fyrir skömmu varð gulrótakakan fyrir valinu og café au lait drukkið með. Kakan, sem var meö þykku kremi, var borin fram meö rjóma og var hún ljúf- feng. Café au lait kaffið var nokk- uð sterkt á bragðið en Macinato- kaffi borðfélaga míns, sem ég fékk að prófa, var aftur á móti einstaklega gott á bragðiö. -MA Túnfiskpottrétt- ur með ólífum Best er að kaupa nýjan tún- flsk og á hann að vera frísklegur í útliti, rakur og ekki bera merki þess að hann sé að þorna. Eins og allan annan flsk er best að elda hann og borða samdæg- urs. Hentugast er að taka hann beint úr pakkningunum þegar heim er komið og setja á hrein- an disk. Yfir er síðan sett filmuplast og hann geymdur í ís- skáp þar til hann er matreiddur. Ef túnfiskurinn hefur ekki verið frystur áður má setja hann í frysti og þá geymist hann í tvo til þrjá mánuði. Tvær teskeiðar af ólífuolíu eru settar á pönnu og því næst er brúnaður einn laukur sem búið er að brytja niður og tvö hvítlauksrif. Þegar það hefur brúnast er bætt við einni 400 gramma dós af niðursoðnum tómötum og einu glasi af hvitvíni. Það er látið krauma smástund og því næst er 450 grömmum af ferskum túnfiski bætt við og það eldað þangað til túnfiskurinn er tilbúinn. Gott er bæta við skvettu af sítrónusafa og smávegis af steinselju. Pott- rétturinn er borinn fram með grjónum og hann dugar fyrir fjóra. Avacodosalsa með túnfiski Avocadosalsa smakkast frá- bærlega með túnfiski og það sem þarf er einn avocado sem skor- inn er í tvennt, innhaldið hreinsað með teskeið og sett í skál ásamt sítrónusafa. Saman við það er blandað sex vorlauk- um sem búið er að hreinsa og skera smátt, einni 400 g dós af tómötum og einum niðurskorn- um rauðum chilipipar sem búið er að taka fræin úr. Að síðustu er hært út með limesafa og ólífu- oliu og kryddað. Salsað er borið fram með heitum túnfiski. Túnfiskur í salat Ef nota á ferskan túnfisk í salat er gott að skera hann í 3/4 eða 1 cm þykkar sneiðar og baka í 180 gráða heitum ofni í 12 til 15 mínútur. Hann er síðan einfaldlega skorinn í bita og settur út í salatið. Hægt er að búa til slíkt salat með því að nota 2 tsk. majones. 2 tsk. sýrð- an rjóma, 1 til 2 tsk. sítrónusafa og 1/2 til 1 tsk. Dijon sinnep. Salatið er að lokum kryddað með salti og pipar. DV-MYNDIR BRINK Bjarni Arnarson matreiöslumaöur Túnfiskurinn smakkast vel, hvort sem er afgrillinu, pönnunni eöa bara hrár. Þéttur, safa- ríkur og góður „Mjög gott er að elda úr túnfiski því hann er þéttur í sér, safaríkur og góður fiskur," segir Bjarni Arn- arson, matreiðslumeistarinn hjá Gallerý Kjöt, og bætir við að það eina sem þurfi að passa þegar verið er að elda túnfiskinn sé að elda hann ekki of mikið. Fyrirtækið hef- ur í rúman mánuð boðið upp á ferskan túnfisk frá Indónesíu í verslun sinni í Hlíðasmára og segir Bjarni að landsmenn hafi tekið þessari nýjung á fiskmarkaðinum mjög vel. Hann segir að þegar kemur að því aö matreiða túnfisk sé best að létt- steikja fiskinn og nóg sé að brúna hann bara á báðum hliðum og láta hann halda sér þannig. Fiskurinn megi alveg vera vel rauður innan og einnig smakkist hann vel hrár og henti því sérstaklega vel í sushirétti „Túnfiskurinn er líka góður á grillið og þá er best að pensla hann með olíu og krydda með salti og pipar. Síðan er hann hafður lokaður í báðar hliðar og grillaður á háum hita í eina til tvær mínútur á hvorri hlið.“ Þegar kemur að meðlætinu með túnfiskinum nefnir Bjarni að gott sé að hafa með honum ferskt eða gufusoðið grænmeti. „Það er úr miklu velja núna af með- læti en fiskurinn er til að mynda mjög góður með kartöflum eöa grjónum," segir Bjarni. Hér fylgir einmitt uppskrift frá Bjama af góm- sætum túnfiski með grjónum að hætti Indónesa og er hún ætluð fyr- ir fjóra. Sósa 11/2 dl fisksoð 1/2 dl hvítvín 11/2 msk. smjör 1 msk. sesamolía 1 msk. saxað engifer 1 msk. sojasósa 1 msk. hunang Túnfiskur að hætti Indónesa fyrir fjóra 800 g túnfiskur (yellow tuna), ferskur 1 bolli ristað sesamfræ 200 g jasmine-grjón 1. stk. succini, skorinn í 1/2 cm sneiðar 1/2 blaðlaukur, skorinn í gróf- ar ræmur 2 rauðar paprikur, skornar í grófar ræmur Túnfiskurinn er skorinn í 2 cm þykkar sneiðar og kryddaður með salt og pipar. Síðan er hann penslaður með hunangi og velt upp úr sesamfræjum. Túnfiskur- inn er svo steiktur í olíu og smjöri í ca 2 minútur á hvorri hlið. Þegar byrjað er á sósunni er hunangið sett á pönnuna og síðan hvltvínið. Það er soðið niður og engiferinu, grænmetinu og sojasósunni bætt út í. Því næst er suðan látin koma upp og þykkt með köldu smjöri og maizena ef menn vilja. Rétturinn er bor- inn fram með jasmine- grjón- um og mikil- vægt er að skola þau vel áður en eru soðin. -MA Næringargildi Mikilvægasta vítamínið í túnfiski er B-vítamín en einnig er í honum örlítiö af A- vítamíni. í ferskum túnfiski er líka kalsíum og magnesíum sem eru nauðsynleg fyr- ir beinin. Eitt dýrmætasta næringarefnið í túnfiskinum er Omega 3 sem kemur í veg fyrir að blóðtappar myndist og minnkar þannig líkurnar á hjartasjúkdómum. í 100 g af ferskum túnfiski eru m.a.: 136 kaloríur 23,7 g prótín 4,6 g fita

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.