Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2001, Síða 39
51
LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2001
DV
Tilvera
%
Augun á búð-
arstúlkunni
stækkuðu ört
- og hún benti mér á að bollur væru ekki hollar
og súkkulaði því síður
Lækkaði hitann
á öllum ofnun-
um í húsinu
„Ég blandaöi sam-
an deiginu og hóf aö
laga allar tegundirn-
ar sem ég hafði
keypt af búöingum.
Á meðan ég beið eft-
ir bollunum í ofnin-
um skellti ég mér í
ekta kokkagalla og
setti góöa rokktón-
list á. Eftir all-
nokkurn tíma var ég
búin að baka um 200
vatnsdeigsbollur og
nú beið mín
skemmtilegasti part-
urinn þ.e. að sprauta
mismunandi búðingi
og sultu inn í þær
ásamt því að hjúpa
þær mismunandi
súkkulaðitegundum.
Ég sá fyrir mér að
kærastinn minn
myndi endanlega
falla fyrir mér þegar
hann labbaði inn í
eldhús og sæi allar
þær tegundir af
vatnsdeigsbollum
sem hann hefði
einhvern tímann
dreymt um. Þetta
yrði eins og að labba
inn i nammihús sem
„Ég var alveg viss um aö ég myndi slá í gegn meö þessar bollur. Ég eyddi mörgum klukkutím■
um í baksturinn og var komin í svo mikinn ham aö ég var byrjuö aö teikna andlit og annaö
eins á toppinn á bollunum. - En ég læröi þó af reynslunni og núna veit ég aö allt er gott í
höfi. þaö var bara svo spennandi aö sjá Þröst fyrir sér umkringdan skreyttum vatnsdeigsboll-
um. Ég mæli þó meö því aö fólk kynni sér matarsmekk annarra áöur en þaö byrjar aö elda
fyrir þá til þess aö koma þeim á óvart".
Stærsta ferðahelgi ársins er nú
um garð gengin og hápunkti sum-
arsins þar með náð að mati flestra
ungmenna. Meirihluti landsmanna
var á faraldsfæti um helgina og
skemmtu sér flestir vel. Að þessu
sinni er matgæðingur vikunnar Að-
alheiður Ólafsdóttir, eða Heiða
söngkona í Url, eins og flestir kalla
hana, en þessa helgina var hún
einmitt á ferð og flugi um landið.
Þessi unga stúlka hefur haft í nógu
að snúast og má taka sem dæmi að
hún fór bæði á Eldborg um helgina
og á þjóðhátíö í Eyjum þar sem hún
var að skemmta með skólafélögum
sínum sem taka þátt í sýningunni
Wake me up before you go go. Þó
það hafi verið nóg að gera hjá henni
þessa helgi hefur hún eflaust verið
eins og frí fyrir Heiðu því hún er
ávallt hlaðin verkefnum. í vetur var
hún að vinna að plötu sem hún tók
upp ásamt hljómsveit sinni, Url, var
aðalstjarnan í Wake me up before
you go go og kláraði stúdentsprófin
í VÍ. Fram undan er kynning á
plötu Url sem kemur út í haust og
mun Heiða því verða á faraldsfæti
það sem eftir er sumars.
Brjálað að gera
„Það er búið að vera alveg brjálað
að gera hjá mér upp á síðkastið, sér-
staklega þar sem að ég er í hljóm-
sveitinni Url og við erum að klára
plötuna okkar sem kemur út í
haust. Það sem bjargar mér eflaust
er það að kærastinn, Þröstur Jó-
hannsson, er með mér í hljómsveit-
inni, það myndi eflaust enginn ann-
ar strákur geta verið með mér þar
sem það er alltaf svo mikið að gera
hjá mér. Þannig aö í rauninni er
það alger lukka fyrir mig að við
erum saman ásamt því að vera í
sömu hljómsveit því þannig getum
við verið meira saman en elia.“
Hljómsveitin Url
„Við Þröstur kynntumst þegar ég
byrjaði að syngja með Url. Við byrj-
uðum þó ekki að vera saman fyrr en
hálfu ári seinna en samt sem áður
myndi ég segja að þetta hefði verið
ást við fyrstu sýn, allavega af minni
hálfu. Fyrsta skiptið sem hann hitti
fjölskyldu mína var hann varaður
við því að þegar ég elda þá þarf
alltaf allt að vera til staðar og þegar
ég á annað borð legg þaö á mig að
elda fyrir fjölskylduna þá er það
alltaf eins og dýrindis hlaðborð. Eft-
ir einhvern tíma flutti hann inn til
mín og á bolludaginn ákvað ég að
koma honum á óvart með því að
baka fyrir hann. Ég settist niður og
skrifaði niður allar girnilegar teg-
undir af vatnsdeigsbollum sem ég
gat hugsað mér. Þegar ég kom í búð-
ina má segja að ég hafi algerlega
fríkað út þvi ég gat einfaldlega ekki
hætt aö kaupa mismunandi tegund-
ir af búðingum, sultum og
súkkulaði til þess að bragðbæta
bollurnar. Ég vissi að það væri hefð
hjá fjölskyldunni hans að borða góð-
an mat á bolludagskvöld þannig að
ég reyndi að kaupa það mikið inn
að ég hlyti að detta niður á uppá-
haldstegundina hans af bollum. -
En eins og við vitum öll þá vilja
sumir bollur með sultu, aðrir með
búðingi og rjóma og enn aðrir bara
með rjóma þannig að til þess að
taka enga áhættu þá keypti ég bara
allar tegundir sem hugsast gat. Ég
ætlaði sko sannarlega að koma elsk-
unni minni á óvart,“ sagði Heiða og
við könnumst eflaust öll við tilfinn-
inguna þegar við gleymum okkur
við matargerð.
Þungir pokar og gömul
skólasystir
„Að sjálfsögðu fór ég í stærstu
matvöruverslun landsins því það
var eini staðurinn það sem það var
pottþétt að ég gæti fundið allt til
alls. Þegar ég svo byrjaði að versla
mætti segja að ég hefði farið inn i
annan heim og dagdraumar um
svipinn á Þresti þegar hann sæi
hlaðborð af bollum tóku völdin. Ég
sá fyrir mér að hann myndi labba
inn í húsið og sjá allt út í vatns-
deigsbollum, svona eins og þegar
konurnar í myndunum koma heim
til sín og ástmaður þeirra hefur sent
þeim tugi ef ekki hundruð rósa sem
þekja allt. í þessum draumum mín-
um var ég viss um að hann myndi
tárast af gleði yfir því hversu hepp-
in hann væri að hafa náð sér í því-
líkt fullkomna húsmóður eins og
mig. í þessari sæluvímu sveif ég um
búðina og var ekki lengi að fylla
körfuna af öllum tegundum af búð-
ingum, sultum, súkkulaði, og til
þess að þetta væri allt saman pott-
þétt keypti ég meira að segja venju-
legan rjóma og svo rjóma í sprautu.
Ég vissi að ég hefði allan daginn fyr-
ir mér þannig að þetta ætti ekki að
verða neitt vandamál. Þegar ég kom
að afgreiðslukassanum vaknaði ég
þó upp úr draumalandinu því göm-
ul skólasystir mín var að vinna i
þessari verslun. Svipurinn á henni
benti til þess að henni fyndist magn-
ið af mismunandi góðgæti fullmik-
ið, enda er þetta manneskja sem
drekkur einungis vatn og borðar
léttpopp. Ég varð hálfvandræðaleg á
svipinn og spurði hana hvort henni
fyndust bollur ekki góðar. Ég hefði í
rauninni getað sagt mér það sjálf að
auðvitað borðaði hún ekki bollur
því þær eru víst ekki nógu hollar.
Þegar ég loksins kom heim og byrj-
aði að tína upp úr pokunum komst
ég í sæluvímu því ég vissi að það
myndi bíða dýrindis veisla eftir
Þresti þegar hann kæmi heirn."
væri byggt úr pipar-
kökum. Til þess að
vera örugg um bragðið á hverri teg-
und þá bragðaði ég á þeim öllum og
að mínu mati hefði ég ekki getað stað-
ið mig betur við baksturinn. Þegar ég
var búin að fylla um 70 bollur fattaði
ég það að ég þyrfti að hringja í
kærastann og láta hann vita að hans
biði óvæntur matarglaðningur
heima. Hann var að sjálfsögðu mjög
ánægður og lofaði mér því að hann
myndi ekki borða neitt fyrr en hann
kæmi heim um kvöldið. Þar sem
hann kom ekki heim fyrr en frekar
seint hafði ég nægan tíma til þess að
útbúa góðgætið. Þegar ég var loksins
búin að skreyta allar bollurnar rað-
aði ég þeim öllum á borð eftir tegund,
iækkaði hitann á ofnunum í húsinu
svo súkkulaðið á bollunum myndi
ekki bráðna og að lokum dempaði ég
ljósin svo stemningin yrði rómantísk
þegar hann kæmi heim,“ sagði Heiða.
200 vatnsdeigsbollur
„Mér hefur sjaldan liðið jafn vel
eins og þegar ég tók á móti honum
þegar hann kom heim því mér fannst
ég loksins orðin gjaldgeng húsmóðir
sem væri tilbúin til þess að stofna
heimiii. Mér til mikillar mæðu benti
hann mér strax á það að húsið væri
við frostmark og að við yrðum bæði
fárveik ef ég stillti ekki ofnana. Ég
sagði honum að það væri góð og gild
skýring á þessu öllu saman og hann
ætti eftir að þakka mér þegar hann
vissi ástæðuna. Ég bað hann um að
loka augunum og leiddi hann að borð-
unum þar sem bollumar biðu hans.
Ég verð að viðurkenna að það voru
alveg ótrúlega margar bollur þarna
og þegar hann opnaði augun fékk
hann vægt taugaáfall og spurði mig
strax hvort ég hefði fengið afgangana
úr einhverju heildsölubakaríi. - En
þegar hann spurði mig hvar matur-
inn hans væri þá féllust mér hendur.
Ég var auðvitað gráti næst og
kjökraði að ég væri búin að vera á
fullu i allan dag að útbúa fullkominn
bolludag fyrir hann. Hann brosti til
mín og spurði mig hvort ég vissi ekki
að hann gæti ekki borðað vatnsdeigs-
bollur. Mér fannst eins og heimurinn
væri að hrynja. Þarna hafði ég ætlað
að heilla ástina í lífi mínu upp úr
skónum en það eina sem gerðist var
það að hann borðaði ekki vatnsdeigs-
bollumar, kvartaði undan óheyrileg-
um kulda og ég sat uppi með 200
vatnsdeigsbollur," sagði Heiða og
brosir breitt er hún rifjar þetta
áhugaverða kvöld upp.
-Saga Ýrr
Camembertbrauð
Fyrir 6
Gott í allar veislur og sem aðalrétt-
ur
2 rúllutertubrauð
2 camembertostar
1/2 græn, 1/2 rauð og 1/2 gul
paprika
1 peli rjómi
200-300 g skinka
Rifið brauðið niður og setjið í eld-
fast mót. Stráið niðurskorinni
papriku og skinku yfir. Bræðið
camembert og rjóma í potti og setjið
yfir. Bakið í ofni við 180” C þangað tU
osturinn er orðinn brúnleitur. Gott er
að borða brauðið með rifsberjahlaupi.
Hörpudiskur
Fyrir 4
200 g hörpudiskur
2 dl matarolía
1/2 hvítlauks-sojasósa
svartur pipar og salt eftir smekk
2 marðir hvítlauksgeirar
Látið hörpudiskinn liggja í 2-3 tíma
í leginum. Síðan á að þræða þetta upp
á grUlpinna með t.d. lauk, papriku eða
sveppum. GriUið í stutta stund á
hvorri hlið.
Uppskrrftir
Lambafilet med
krækiberjasósu
og rauðkáli
Fyrir 4
800 g lambafilet í 200 g steikum
3 msk. olía
Rauðkál i krækiberjasósu
2-3 msk. matarolía
2 laukar
400-500 g rauðkál, nýtt
6-8 dl rauðvín (óáfengt)
1 msk. viUijurtir í púrtvíni (frá
Pottagöldrum)
4 lárviðarlauf
1 dl krækiberjasaft
2 dl kjúklingasoð (vatn og
Knorr-teningur)
2-3 msk. maizenamjöl eða sósu-
jafnari
Meðlæti
12-16 stk. kartöflur, smáar
Brúnið kjötið vel í olíu á
pönnu. Kryddið með salti og pip-
ar. Setjið í 200' C heitan ofn í 6
mínútur, takið út úr ofninum, lát-
ið standa í 3 mín. og setjið aftur
inn í aörar 3 mínútur. Berið fram
með rauðkáli og krækiberjasósu.
Rauökál í krækiberjasósu
Skerið laukinn í sneiðar og
rauðkálið í strimla. Steikið í olíu
í 12 mínútur. Bætið þá kryddjurt- við og sjóöið við vægan hita í 8-10
um og öllum vökvanum saman mínútur. Þykkið með sósujafn-
aranum og sjóðið áfram í 2-3 mín.
Setjið sósuna og kálið á miðja
diska, skerið hverja steik í fjóra
bita og raðið snyrtilega niður.
Meðlæti
Berið fram með soðnum kartöfl-
um.
Nykaup
Þarsem ferskleikinn býr
Uppskriftirnar eru fengnar frá Nýkaupi
þar sem allt hráefni í þær fæst.
w