Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2001, Síða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 11.08.2001, Síða 52
Opel Zafira Bflhelmiir FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST2001 Eldhúsiö Núverandi eigendur eru hættir. Efling gengur að Eldhúsi Forsvarsmenn Eldhússins í Kringl- unni sinntu ekki í gær þeirri kröfu verkalýðsfélagsins Eflingar að gera upp þau vörslugjöld starfsmanna sem eru í vanskilum aOt síðan í september á síðasta ári. DV greindi frá því i gær að Eldhúsinu var lokað um miðjan júlí. I ljós kom að skattar og lífeyrisið- gjöld, sem dregin höfðu verið af starfs- fólkinu, höfðu ekki skilað sér i réttar hendur. Starfsmenn fengu því bak- reikninga frá skattinum um mánaða- mótin auk þess sem engin laun voru greidd út. Eíling gaf Úrvalsvörum, sem reka Eldhúsið, lokafrest þar til í gær til að ganga frá greiðslum. Ekkert gerðist í þeim efnum og því mun verkalýðsfélagið ganga að Eldhúsinu og innheimta kröfurnar. Einn eigenda Eldhússins sagði við DV að leitað væri allra leiða til að greiða umrædd gjöld. -rt Tónlistartöffarar Ólafur Þórarinsson, Heimir Davíös- son og Hjörleifur Brynjólfsson á æf- ingunni í Þorlákshöfn í gærkvöld. Hafnardagar í Þorlákshöfn: Oddvitinn er poppari DV. ÞORLÁKSHQFN: „Við erum að rifja upp gamla tíma frá því við vorum með bönd hér á yngri árum, frá 1973 tO ‘79,“ sagði Hjörleifur Brynjólfsson, oddviti bæjarstjórnar Ölfuss, sem var ásamt Heimi Davíðssyni og Ólafi Þórarins- syni, Labba í Glóru, að æfa pró- gramm kvöldsins í gærkvöld fyrir endurkomu hljómsveitarinnar Clírótes og Trió Ró. Hafnardagar eru í Þorlákshöfn og í tUefni þeirra fer oddvitinn aftur í gervi popparans. Labbi er gestaspUari með þeim félög- um í kvöld því félagi Hjörleifs og Heimis, Ómar Ásbergsson, lést af slysforum árið 1979. -NH DV-MYND HARI Rigningartíð Nú, þegar sumri hallar, er runnin upp sú tíö aö rigningar aukast. Haustiö læöist aö og áöur en varir tekur Vetur konungur vöidin. Enn lifa þó nokkrar vikur af sumrinu og þegar himnarnir opnast þarf aö skella sér í regngallann eins og þetta fólk á götum höfuöborgarinnar geröi í gær. Styttist í 1. september og kvóta á smábáta: Ráðherra útilokar ekki miðlunarleið - mjög sterkur þrýstingur á að endurvekja miðlunartillögu „Ég útUoka ekki að það verði ofan á og vissulega nálg- ast \. september óðUuga," seg- ir Árni Mathiesen sjávarút- vegsráðherra aðspurður hvort hann muni breyta reglugerð þannig að hin svokallaða málamiðlunarleið i málefnum smábáta á þorskaUamarki geti tekið gildi. Málamiðlunin felst í því að til að draga úr óæski- legum áhrifum kvótasetning- ar á smábáta, sem mun að óbreyttu bresta á um mánaðamótin, með því að úthluta aukalega 1800 tonna ýsukvóta til þessa útgerðar- Uokks og 1500 tonnum til viðbótar af steinbít. Steinbítur yrði þá aftur sett- ur undir kvóta. Árni Mathiesen segir að málið sé enn í skoðun enda sé það bæði Uókið og viðkvæmt og mun erf- iðara viðfangs nú en á Alþingi í vor þegar ekki náðist samstaða um að fara þessa leið. Ráðherra segir að Arni Mathiesen sjávarútvegsráö- herra hans vilji sé klár, hann hafi alltaf viljað fara þessa leið, en hins vegar sé ekki einfalt að sjá hvernig sú leið yrði farin undir þeim kringum- stæðum sem nú eru uppi. „Mér sýnist vera alveg klár klofningur innan raða smá- bátamanna i þessu máli. Ég hef verið að fá mjög sterk viðbrögð frá útgerðarmönn- um smábáta, sérstaklega á Vestfjörðum en lika víðar að. Ég gæti trúað að á bak við þessa menn sé um helmingur smábátaaU- ans. Þessir menn eru að þrýsta á um að málamiðlunartiUagan verði tekin upp að nýju, þ.e. þessi tUlaga sem var minn fyrsti valkostur í þessu máli,“ segir Árni. Hann segist líka verða var við óánægju með þá ákvörðun að gefa veiðar á steinbít frjálsar þar sem menn telji aö sú aðgerð hjálpi ekki eins hún átti að gera. „Því má kannski segja að það sé tUgangslaust fyrir mig að hanga mikið á þeirri ákvörðun ef hún skilar ekki því sem hún átti að gera,“ segir ráðherrann. Aðspurður hvort hann sjái að 1 nið- urstöðu nefndar um endurskoðun laga um stjórn fiskveiða, sem á að skUa af sér um mánaðamótin, muni koma eitthvert útspil sem muni höggva á þennan hnút segist ráðherra ekki vita til að þar sé neitt sem sé frá- brugðið eða mundi stangast á við málamiðlunartiUögu sína. Kvótasetn- ingin á smábátana brestur á þann 1. september og segir Árni alveg ljóst að kvótasetningu verði ekki frestað - stjórnarskráin einfaldlega heimili það ekki. Því sé krafa þeirra sem enn haldi sig við það að fresta verði kvóta- setningu út í hött. „Sumir vUja engu skeyta um stjórnarskrána og keyra málið alveg fram af brúninni fremur en að leita að einhverri niðurstöðu," segir sjávarútvegsráðherra. -BG Lögreglan á ekki að ritstýra blöðunum: Ríkislögregla óskar skýringa „Við höfum óskað eftir að fá upp- lýsingar og öU gögn varðandi sam- skipti lögreglunnar og fjölmiðla. Við erum að skoða hvernig þessum sam- skiptum er háttað og viljum fá heild- armynd," sagði Guðmundur Guðjóns- son hjá Ríkislögreglustjóra í gær. ít- rekað hefur lögreglan haft óeðlileg af- skipti af starfi blaðamanna á undan- fornum misserum, nú síðast þegar lögregla reyndi að hindra fréttamenn í starfi við Reykjavíkurhöfn. Lög- reglustjórinn í Reykjavík fékk bréf embættisins í gær, undirritað af Jóni Snorrasyni sem leysir Harald Johann- essen af í fríi hans. Stjórn Blaðamannafélags íslands samþykkti í gær harðorða ályktun vegna framgöngu lögregluþjóna við eftirlit með mótmælum á hafnarbakk- anum í vikunni. „Lögreglan hindraði þar enn og aftur blaðamenn við störf og braut stjórnarskrárvernduð rétt- indi þeirra, m.a. með því að taka fyr- ir linsu á ljósmyndavél, sem er hvort tveggja, ofbeldisverknaður og lög- brot,“ segir í ályktun blaðamanna. Er þess krafist að lögreglan í Reykjavík biðji hlutaðeigendur afsökunar og tryggi að slík framkoma verði ekki endurtekin. Stjórn Blaðamannafélagsins segist hafa þungar áhyggjur af framkomu lögreglu í garð blaðamanna sem hefur ekki batnað þrátt fyrir fogur fyrirheit um bætt samskipti. „Maður hefði talið að umræðan í kringum Li Pen-heimsóknina hefði skilað einhverjum árangri. Lögreglan baðst afsökunar - en greinilega er hún enn við sama heygarðshornið," sagði Þór Jónsson, varaformaður Blaðamannafélags íslands, í gær. Hann sagði það hreint ekki í verka- hring lögreglu í lýðsræðisríki að ákveða hvað er frétta- eða myndaefni og hvað ekki. -JBP National Geographic myndar Kára- hnjúka Hið heimsfræga og aldraða tíma- rit National Geograpic hefur sent hóp manna til íslands sem hafa það verkefni að mynda Kárahnjúka, Dimmugljúfur og öræfi Austur- lands. Þetta er lið ljósmyndara, rit- stjóra og sérhæfðra blaðamanna sem hefur verið faliö að kynna milljónum lesenda blaðsins um heim allan þá náttúruperlu sem þar er finna. Að sögn heimildarmanna DV brugðu menn skjótt við þegar frétt- ist af því að til stæði að virkja við Kárahnjúka og sendu hópinn hing- að í snatri. Heimildarmaður DV hafði eftir myndritstjóra leiðangurs- ins að hér væri í uppsiglingu um- hverfisslys og einhver mesta heimska sem hann hefði séð á sín- um ferli. í gær hreppti leiðangurinn fagurt veður á svæðinu en þoka og rigning mun hamla störfum í augnablikinu. -PÁÁ Heilsudýnur t sérjlokki'! Svefn&heilsa ★ ★★★★ <'t-r HEILSUNNAR Reykjavík 581 2233 Akureyri 461 1150

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.