Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2001, Blaðsíða 8
Viðskipti_______________________________________
Umsjón: Víftskíptablaðíð
Mikill rekstrarbati
hjá Delta hf.
- hagnaður fyrir afskriftir hækkar um 70%
Á Þýskalandsmarkaö
/ ágúst fer sýklalyfiö Ciproftoxacin á markaö í Þýskalandi og hefur Delta
tryggt sér stóra sölusamninga þar.
Hagnaður af rekstri Delta fyrstu 6
mánuði ársins nam 156 milljónum
króna sem er í samræmi við áætlan-
ir þrátt fyrir 204 milljóna gengistap
á tímabilinu. Aíkoma fyrir afskrift-
ir og fjármagnsliði var 523 milljónir
króna en áætlun gerði ráð fyrir 381
milljón. Þetta er veruleg aukning á
milli ára en á sama tímabili í fyrra
var hagnaður fyrir afskriftir 308
milljónir króna.
Hreint veltufé frá rekstri nam 426
milljónum króna á tímabilinu sem
er jafnframt veruleg aukning frá
sama tímabili árið 2000, en þá nam
veltufé frá rekstri 224 milljónum
króna.
Rekstrartekjur fyrirtækisins
námu 1.508 milljónum króna, en
voru 1.044 milljónir á sama tíma í
fyrra, sem er 44% aukning á milli
ára. Rekstrargjöld tímabilsins námu
1.114 milljónum króna, en voru 866
milljónir á sama tíma í fyrra, sem
er um 29% aukning á milli ára.
Eigið fé í lok tímabilsins var 1.755
milljónir króna og hafði aukist um
207 milljónir frá áramótum.
Mikil söluaukning
I frétt frá Delta kemur fram að
mikil söluaukning hefur verið á ár-
inu og þrátt fyrir að Delta hafi ný-
lega tekið í notkun nýjan tækjabún-
að, sem stóreykur framleiðslugetu
töfluverksmiðjunnar í Hafnarfirði,
er fyrirsjánlegt að hann verður nær
fullnýttur innan tiöar.
í ágúst fer sýklalyfið Cipro-
floxacin á markað í Þýskalandi og
hefur Delta tryggt sér stóra sölu-
samninga þar. Framleiðsla á lyfinu
hófst á fyrri hluta ársins og endur-
speglast það í 448 milljón króna
hækkun á birgðum á tímabilinu
sem stafar fyrst og fremst af aukn-
um hráefnabirgðum. Salan á Cipro-
floxacin á árinu mun fara umtals-
vert fram úr væntingum.
Frá 1. júlí tók Delta hf. við rekstri
lyíjafyrirtækisins Pharmamed á
Möltu og er undirbúningur þegar
hafinn að því að flytja hluta af fram-
leiðslu Delta hf. til Möltu. Rekstur
Pharmamed er því ekki inni í sam-
stæðuuppgjöri Delta í 6 mánaða
uppgjörinu. Delta stofnaði söluskrif-
stofu á Mön, Medis Ltd., nú nýverið
sem er hluti af stefnu félagsins að
styrkja enn frekar markaðsstarf fé-
lagsins erlendis. Gert er ráð fyrir að
fleiri söluskrifstofur verði stofnaðar
á komandi misserum.
Gott hálfsárs-
uppgjör hjá VÍS
Hagnaður af rekstri VÍS fyrstu sex
mánuði þessa árs nam 316 milljónum
króna eftir skatta, samanborið við 109
milljóna króna tap á sama tíma árið
2000. Reiknaðir skattar nema 111
m.kr. Hagnaður af vátryggingarekstri
nam 556 m.kr., samanborið við 116
m.kr. tap á sama tíma á síðasta ári.
Þá hafa verið færðar til tekna á vá-
tryggingareksturinn fjárfestingartekj-
ur að ijárhæð 1.232 m.kr. sem er mik-
il hækkun frá fyrra ári en þá var sam-
svarandi tala 686 m.kr. Hærri nafn-
vaxtakrafa vegna aukinnar verðbólgu
á stóran þátt í þessari breytingu. Út-
jöfnunarskuld félagsins hefur hækkað
um 100 m.kr. á árinu.
Heildamiðurstaða efnahagsreikn-
ings í júnílok 2001 nam 21.433 milljón-
um króna, miðað við 19.909 milljónir
króna í lok ársins 2000. Heildarvá-
tryggingaskuld félagsins nam 17.005
milljónum króna á móti 15.272 millj-
ónum króna í lok síðasta árs. Bókfært
eigið fé er 3.576 milljónir króna, sam-
anborið við 3.245 milljónir króna í lok
ársins 2000.
Landsbankinn og
Landsbréf auka
samstarfið
Landsbréf hf. og fjárfestingarbanka-
þjónusta Landsbankans munu eftir-
leiðis koma fram undir sameiginlega
heitinu Landsbankinn-Landsbréf á
öllum sviðum verðbréfa- og fjárfest-
ingarbankastarfsemi.
Landsbréf, Fyrirtækjasvið og Al-
þjóða- og fjármálasvið Landsbankans
munu eftir þessa breytingu starfa
nánar saman en verið hefur til þessa.
Yfirstjórn þessara eininga innan
Landsbankans er óbreytt, þ.e.
Brynjólfur Helgason er framkvæmda-
stjóri Fyrirtækjasviðs, Gunnar Þ.
Andersen er framkvæmdastjóri Al-
þjóða- og íjármálasviðs og Sigurður
Atli Jónsson er forstjóri Landsbréfa
hf.
í frétt frá Landsbankanum-Lands-
bréfum segir að ekki sé um veigamikl-
ar skipulagsbreytingar að ræða en þó
hefur verðbréfamiðlun fyrirtækjanna
tveggja verið sameinuð hjá Landsbréf-
um sem starfa áfram sem löggilt verð-
bréfafyrirtæki í eigu Landsbankans.
Magnús og Steingrímur
kaupa Landssímahúsið
í dag var skrifað undir
kaupsamning um sölu á að-
alstöðvum Símans við
Austurvöll. Síminn sam-
þykkti tilboð kaupenda
þann 27. júni sl. og hefur
verið að vinna að frágangi
kaupsamnings frá þeim
tima. Sala þessi kemur í
beinu framhaldi af þeirri
stefnu Símans frá fyrra ári
að færa sem mest af starf-
semi Símans inn í Múla-
stöðina og á svæðið þar í
kring.
Síminn og Landsafl
mynduðu félagið Tækniak-
ur um kaup á eignum
Orkuveitunnar við Suður-
landsbraut og Ármúla og
var gengið frá þeim kaup-
um fyrir tæpu ári. Síminn
hefur þegar flutt hluta af
starfsemi sinni þangað.
Söluverðið á húseignum
Símans við Austurvöll er
820 milljónir sem greiðist
við undirritun. Kaupand-
inn er verktakafyrirtækið
Magnús og Steingrimur hf.
Landsímahúsiö
Verktakafyrirtækiö Magnús og Steingrímur hf. hefur
ásamt nokkrum öflugum fjárfestum, keypt húseign
Landssímans viö Austurvöll.
en með þeim eru nokkrir öfl-
ugir fjárfestar. Samningur-
inn felur í sér að Síminn af-
hendir Hótel Vík og Sigtún,
sem hýsir mötuneyti Símans,
eftir 30 daga. Samhliða kaup-
samningnum er samið um
leigu á meginhluta eignanna
að lágmarki í 16 mánuði en
það er sá lágmarkstími sem
Síminn ætlar sér til að flytja
starfsemina á nýjan stað.
Auk þess er leigusamningur
gerður til 15 ára fyrir þann
hluta húsnæðisins sem hýsir
miðbæjarstöð Símans og
tengingar við hana. Fyrstu
breytingarnar fela í sér að
starfsemi flyst úr Hótel Vík,
annars vegar inn í Múla en
hins vegar inn i laust hús-
næði í öðrum byggingum
Símans við Austurvöll.
Mesta breytingin verður þó á
starfsemi mötuneytisins en
það flyst á næstu vikum í
rými á þriðju hæð hússins og
er unnið að því að koma upp
aðstöðu þar.
Mikil aukning húsbréfalána í júlí
Heildaríjárhæð samþykktra hús-
bréfalána í húsbréfakerfinu var
2.784 milljónir króna í júlí síöast-
liðnum en var 1.972 milljónir í júlí
í fyrra. Þetta er 41,1% aukning á
milli ára. Heildarfjárhæð sam-
þykktra húsbréfalána fyrstu sjö
mánuði ársins er 17.491 milljónir
króna á móti 16.790 milljónum á
sama tíma í fyrra, en það er 4,2%
aukning á miUi ára.
Júlí er annar mánuðurinn 1 röð þar
sem veruleg aukning verður í heildar-
fjárhæðum samþykktra húsbréfalána
en í júní var aukningin 35,7%. I maí
var einnig aukning sem nemur 13,9%
en í febrúar og mars var talsverður
samdráttur í heildarfjárhæð sam-
jjykktra húsbréfalána.
Að sögn íbúðalánasjóðs kemur í
ljós við samanburð á milli ára að júní-
og júlímánuðir síðasta árs eru illa
samanburðarhæfir vegna óróa á
skuldabréfamarkaði á þeim tíma.
Hins vegar beri tölur þessa árs þess
merki að stöðugleiki sé að myndast á
markaði og hækkun lánsfjárhæða sé
að skila sér. Síðustu 6 ársfjórðunga
hefur tala samþykktra skuldabréfa-
skipta verið um 2.400 í hverjum
ársfjórðungi. Einnig eru fjárhæðir
samþykktra skuldabréfaskipta,
uppgert á 6 mánaða tímabilum, til-
tölulega hægfara en jöfn þróun í
átt til lækkunar. íbúðalánasjóður
segir því að varast beri að oftúlka
einstaka sveiflur milli mánaða.
Áætlað markaðsverð húsbréfa,
sem gert er ráð fyrir að gefin verði út
í tengslum við þessi lán, nemur 2.483
milljónum króna í júlí og hækkar um
45,6% frá júli í fyrra. Fyrstu sjö mán-
uði ársins er áætlað markaðsverð-
mæti samþykktra húsbréfalána 15.800
milljónir króna en var 15.537 milljón-
ir á sama tima i fyrra.
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2001
DV
HEILDARVIÐSKIPTI 1800 m.kr.
Hlutabréf 280 m.kr.
Húsbréf 600 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
Baugur 65 m.kr.
Marel 65 m.kr.
Q íslandsbanki 41 m.kr.
MESTA HÆKKUN
OSamherji 4,6%
o Húsasmiöjan 3,2%
O Marel 2,0%
MESTA LÆKKUN
OÞróunarfélag íslands 8,3%
Omp-bío 3,3%
©ÚA 2,2%
ÚRVALSVÍSITALAN 1031 stig
- Breyting O 0,22 %
Hlutabréf í
Tokyo taka kipp
Hlutabréfaverð í kauphöllinni í
Tokyo tóku kipp upp á við eftir að
seðlabanki Japans tilkynnti óvænt
um enn frekari minnkun aðhalds
peningstefnunnar.
Á einum timapunkti hafði Nikkei
225 hækkað um meira en 4% en end-
aði siðan í 3,8%. Þetta var fjórða til-
raun bankans til að „kveikja neista“
í næststærsta efnahagslífi heimsins
sem hefur löngum átt við að stríða
mjög lítinn hagvöxt og verðhjöðn-
un. Þessi síðasta aðgerð bankans
dælir meiri peningum inn í við-
skiptabankana og víkkar út hag-
kerfið í gegnum peninga- og skulda-
bréfamarkað.
í yfirlýsingu þar sem bankinn
skýrði aðgerðir sínar sagði hann:
„Þar sem neikvæð þróun og svart-
ari horfur eru varðandi hagvöxt og
verðlag hefur bankanum fundist að
hann þyrfti að styrkja peningalegan
stuðning fyrir uppsveiflu."
Evran styrkist
Evran styktist snarlega í kjölfar
ummæla Alþjóða gjaldeyrissjóðins
um væntanlega veikleika í banda-
ríska hagkerfinu. Evran kostar nú
0,902 dollara. Krónan hefur einnig
styrkst síðasta klukkutímann og
er gengisvísitala nú 137,4 á milli-
bankamarkaöi sem er litlu veik-
ara en var við opnun í morgun og
Bandaríkjadollar kostar 99 krón-
ur, að því er kemur fram í fréttum
frá afleiðudeild Kaupþings. Evran
er nú 0,902 dollarar. Krónan hefur
styrkst síðasta klukkutímann og
gengisvísitalan nú er tæplega
135,4 á millibankamarkaði, sem er
litlu veikara en var við opnun í
morgun, og Bandaríkjadollar er í
99 krónum.