Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2001, Page 23

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2001, Page 23
27 MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2001 X>v Tilvera Ben Affleck 29 ára Kvikmyndaleikar- inn Ben Afíleck, eða Benjamin Geza Af- fleck eins og hann heitir fullu nafni, er 29 ára í dag. Hann fæddist í Berkeley í Kaliforníu og var að- eins átta ár þegar hann fékk fyrsta sjónvarpshlutverkið. Meðal stórmynda sem hann hefur leikið í eru myndirnar Armageddon, Shakespeare in Love og Pearl Harbor. Óskarsverðlaunin fékk Affleck þó fyr- ir handritið að myndinni Good Will Hunting sem hann skrifaði ásamt besta vini sínum, Matt Damon. Gildir fyrir fimmtudaginn 16. ágúst Vatnsberínn (20. ian.-18. febr.l: I Þú þarft að takast á " við fremur erfltt verk- efni í vinnunni i dag. Þér tekst prýöilega að leysa það af hendi. Þú færð mikil- vægt bréf. Rskarnir (19. febr.-20. nnars): Þér er alveg óhætt að lláta í ljósi áhuga á því sem þú hefur raun- verulega áhuga á. Vinur þinn mim standa með þér í ágreiningsmáli. Hrúturlnn (21. mars-19. april): Láttu sem ekkert sé, þó að einhver sé að gera lítið úr því sem þú ert að fást við. Farðu varlega í að gefa ráð. Það er ekki vist að þau dugi vel. Nautið t?0. anril-?Q. mai): Athugaðu vel alla málavexti áður en þú tekur mikilvæga ákvörðun eða ein- hverju gylliboði sem þér berst. Happatölur þínar eru 3. 14 og 26. Tvíburarnir (21. maí-2i. iúní>: . Þú gerir einhverjum greiða og uppskerð þakklæti fyrir. í heild er þetta góður dagur þó að hann sé ekkert sértstaklega spennandi. Krabbinn (22. iúní-22. iúin: 1 verður afar áber- í lifi þínu á næst- . Þú þarft að ætla ú tíma og leyfa í rólegheitum en ekki ana að neinum ákvörðunum. henni að þróast Norsk bæjarstjórahjón Sidsel Sodejed og Per Eivind Johansen, bæjarstjórahjón frá Stokke, voru heiðursgestir hátíðarinnar. Hér eru þau stolt með heiðurspening Önfirðingafélagsins. Kiddi sleggja heiöraður Hér hefur Björn Ingi Bjarnason, formaður Önfirðingafélagsins, hengt oröu á Kristin H. Gunnarsson þungavigtarþingmann. Hann er kominn af hvalföngur- um og hefur reynst félaginu betri en enginn. Eldmessa á Flateyri: Lyftum glösum drottni til dýrðar „Við skulum lyfta glösum drottni til dýrðar, það getur varla orkað meira tvímælis en sauðaslátrun eða kristnitökuhátíðin. Drekkum í okkur smáhita áður en sjálf athöfnin hefst. Hver sem skilur við konu sína, nema að baki liggi hórsök, verður þess vald- andi að hún drýgir hór og hver sem gengur að eiga fráskilda konu drýgir hór. Með öðrum orðum, við verðum að fækka boðorðunum um eitt,“ sagði Lýður Árnason héraðslæknir þar sem hann, ásamt Ólafi Ragnarssyni poppresti, þjónaði fyrir altari við eld- messu á Flateyri um verslunarmanna- helgina. Messan var liður í hátíð sem Önflrðingafélagið í Reykjavik gekkst fyrir á staðnum og var hún flutt í garði mannlífs- og menningarseturs félagsins á Sólbakka og komu yfir 300 gestir til að meðtaka guðsorðið og verða vitni að þeim einstæða atburði er þeir félagar gáfu saman brúðhjónin Dodda og LöUu sem búið hafa saman um árabil. Lýöur læknir og Oli popp Lýður Árnason héraðslæknir og Ólafur Ragnarsson, poppari og skipstjóri, þjónuðu fyrir altari við eldmessu á Sólbakkahátíðinni. Liónið (23. iúlí- 22. ágústi: Þú hefur komið ár þinni vel fyrir borð að undanfömu. Mikil vinna hefur treyst stöðu þína umtalsvert og nú ættir þú að geta notið þess að slaka á. Mevian (23. ágúst-22. sept.): Einhver ruglingur eða seinkun á sér stað, einkanlega hjá þeim sem eru á ferðalagi. Nauðsynlegt er að skipuleggja vel það sem gera þarf. Vpgin (23. sept.-23. okt.): Samvinna sem þú tekur þátt í er sérstaklega gef- andi og nýjar hugmynd- ir fæðast. Einhverjar þeirra verða meira að segja að veruleika áöur en langt um Uður. Sporödreki (24. okt.-21. nóv.): Kynslóðabilið alræmda 'tfVX gerir vart við sig í dag. \ Y V^Hætta er á árekstrum ■wlaftn ef ekki er varlega farið en það ætti þó að jafna sig fljótt. Einhver spenna liggur í loftinu. Bogamaður (22. nóv.-2i. des.l: «|Þú áttar þig ekki á \ ^^^yhvað um er að vera w fyrr en undir kvöld. \ Þú átt notalega stund með flölskyldunni. Happatölur þínar era 11, 19 og 23. Stelngeltln (22. des.-19. ian.): Mikilvægt er að þú undh búir vel þær breytingar sem ófyrir- sjáanlegar eru hjá þér á næstunni. Þá verður auðveldara að fást við þær. Elska og virða hvort annað „Þau haf'a elskað og virt hvort ann- að alveg ótrúlega lengi og þau hafa haldið hjúskaparheit sitt lengur en til er hægt að ætlast. Nú er það eindreg- inn vilji beggja að staðfesta trú- og kærleik sinn undir hvolfþaki himins, því eina guðshúsi sem hýsir alla án tillits hneigða og kennda,“ sagði Lýð- ur læknir og lýsti þau hjón, að minnsta kosti fyrir guði. Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá fyrir alla fjölskylduna, meðal annars sandkastalakeppni í Holtsfjöru þar sem flölskyldur sameinast í listsköp- un af ýmsu tagi, og telur séra Stína Gísladóttir, sóknarprestur í Holti, að liðlega 600 manns hafi komið á svæð- ið. Að sjálfsögðu var varðeldur og brekkusöngur þar sem félagar úr Harmoníkufélagi Vestflarða stjórnuðu fiörinu. Hundrað ár frá stórbruna Hátíðin hafði sögulega tengingu til þess að á mánudeginum voru rétt 100 ár frá þvi að hvalveiðistöðin á Sól- bakka brann til kaldra kola. Það var Norðmaðurinn Hans Ellefsen sem átti stöðina og í tilefni þess voru bæjar- stjórahjónin frá Stokke, heimabæ Ellefsens, viðstödd hátíðarhöldin og tilkynntu á hátíðarsamkomu að bæj- aryfirvöld í Stokke myndu styðja þá uppbyggingu sem Önfirðingafélagið stæði að á Sólbakka með myndarlegu flárframlagi, auk þess að færa góðar gjafir. Hvalveiðistöðin á Sólbakka er stærsta hvalveiðistöð sem reist hefur verið í norðurhöfum. Félagið heiðraði marga velunnara sína á hátíðinni og var þar á meðal Kristinn H. Gunnarsson, þungavigtar- maður í þingmannaliði Vestfirðinga, og var hann ánægður með viðurkenn- inguna. „Þessi heiðurspeningur er sá merkasti sem mér hefur hlotnast og það er mikil ánægja að fá þessa viður- kenningu. Það er skemmtilegt aö vera hér þegar verið er að minnast hval- fangarans Hans Ellefsens því afi minn var hvalfangari og starfaði við hval- veiðistöð þessa sama Ellefsens í Sald- anha Bay í Suður-Afríku.“ Kveikt á hundraö kyndlum Eftir að hafa hlýtt á vandaða söngdagskrá Sigríðar Eyrúnar Friðriksdóttur, við undirleik Agnars Más Magnússonar, end- aði hátíðin með því að kveikt var á 100 kyndlum á bökkunum ofan við tóftir gömlu verk- smiðjuhúsanna og brenndir tugir reykblysa á sama tíma og verksmiðjuhúsin stóðu í ljósum logum fyrir nákvæmlega hund- rað árum. Margt var um brottflutta Ön- firðinga á hátíðinni og ánægjan skein úr hverju andliti. „Hátíöin tókst framar öllum vonum og var ánægjulegt að sjá hve margir lögðu leið sína hingað í Önundarflörð til að vera með. Mannlífs- og menn- ingarsetur félagsins hefur fest sig vel í sessi og framtíðin er björt,“ sagði Björn Ingi Bjarnason, formaður Ön- firðingafélagsins, eftir að hátíðarhöld- in voru afstaðin. -GS Reykur í hundrað ár / tilefni þess að rétt ÍOO ár voru liöin frá bruna hvalveiðiverksmiöjunnar á Sólbakka var hátíðinni slitiö með eldi og reyk. z*.OKU /f 5K041NN Þarabakka 3,109 Reykjavík Kennsla hefst að loknu sumarleyfi í dag, miðvikudag. Kennsla á leigu-, vöru- og hópbifreið og vörubifreið með eftirvagn.Hægt er að hefja nám alla miðvikudaga. (Áfangakerfi) Endurbætt kennsluaðstaða. Reyndir kennarar og góðir kennslubílar. Aukið við atvinnumöguleikana. Hringið eða komið og leitið upplýsinga E-mail okusk.mjodd@simnet.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.