Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2001, Blaðsíða 23
27
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2001
X>v Tilvera
Ben Affleck 29 ára
Kvikmyndaleikar-
inn Ben Afíleck, eða
Benjamin Geza Af-
fleck eins og hann
heitir fullu nafni, er
29 ára í dag. Hann
fæddist í Berkeley í
Kaliforníu og var að-
eins átta ár þegar
hann fékk fyrsta sjónvarpshlutverkið.
Meðal stórmynda sem hann hefur
leikið í eru myndirnar Armageddon,
Shakespeare in Love og Pearl Harbor.
Óskarsverðlaunin fékk Affleck þó fyr-
ir handritið að myndinni Good Will
Hunting sem hann skrifaði ásamt
besta vini sínum, Matt Damon.
Gildir fyrir fimmtudaginn 16. ágúst
Vatnsberínn (20. ian.-18. febr.l:
I Þú þarft að takast á
" við fremur erfltt verk-
efni í vinnunni i dag.
Þér tekst prýöilega að
leysa það af hendi. Þú færð mikil-
vægt bréf.
Rskarnir (19. febr.-20. nnars):
Þér er alveg óhætt að
lláta í ljósi áhuga á því
sem þú hefur raun-
verulega áhuga á.
Vinur þinn mim standa með þér í
ágreiningsmáli.
Hrúturlnn (21. mars-19. april):
Láttu sem ekkert sé,
þó að einhver sé að
gera lítið úr því sem
þú ert að fást við.
Farðu varlega í að gefa ráð. Það
er ekki vist að þau dugi vel.
Nautið t?0. anril-?Q. mai):
Athugaðu vel alla
málavexti áður en þú
tekur mikilvæga
ákvörðun eða ein-
hverju gylliboði sem þér berst.
Happatölur þínar eru 3. 14 og 26.
Tvíburarnir (21. maí-2i. iúní>: .
Þú gerir einhverjum
greiða og uppskerð
þakklæti fyrir. í heild
er þetta góður dagur
þó að hann sé ekkert sértstaklega
spennandi.
Krabbinn (22. iúní-22. iúin:
1 verður afar áber-
í lifi þínu á næst-
. Þú þarft að ætla
ú tíma og leyfa
í rólegheitum en
ekki ana að neinum ákvörðunum.
henni að þróast
Norsk bæjarstjórahjón
Sidsel Sodejed og Per Eivind Johansen, bæjarstjórahjón frá Stokke,
voru heiðursgestir hátíðarinnar. Hér eru þau stolt
með heiðurspening Önfirðingafélagsins.
Kiddi sleggja heiöraður
Hér hefur Björn Ingi Bjarnason, formaður Önfirðingafélagsins, hengt oröu á
Kristin H. Gunnarsson þungavigtarþingmann. Hann er kominn af hvalföngur-
um og hefur reynst félaginu betri en enginn.
Eldmessa á Flateyri:
Lyftum glösum
drottni til dýrðar
„Við skulum lyfta glösum drottni
til dýrðar, það getur varla orkað
meira tvímælis en sauðaslátrun eða
kristnitökuhátíðin. Drekkum í okkur
smáhita áður en sjálf athöfnin hefst.
Hver sem skilur við konu sína, nema
að baki liggi hórsök, verður þess vald-
andi að hún drýgir hór og hver sem
gengur að eiga fráskilda konu drýgir
hór. Með öðrum orðum, við verðum
að fækka boðorðunum um eitt,“ sagði
Lýður Árnason héraðslæknir þar sem
hann, ásamt Ólafi Ragnarssyni
poppresti, þjónaði fyrir altari við eld-
messu á Flateyri um verslunarmanna-
helgina. Messan var liður í hátíð sem
Önflrðingafélagið í Reykjavik gekkst
fyrir á staðnum og var hún flutt í
garði mannlífs- og menningarseturs
félagsins á Sólbakka og komu yfir 300
gestir til að meðtaka guðsorðið og
verða vitni að þeim einstæða atburði
er þeir félagar gáfu saman brúðhjónin
Dodda og LöUu sem búið hafa saman
um árabil.
Lýöur læknir og Oli popp
Lýður Árnason héraðslæknir og Ólafur Ragnarsson, poppari og skipstjóri,
þjónuðu fyrir altari við eldmessu á Sólbakkahátíðinni.
Liónið (23. iúlí- 22. ágústi:
Þú hefur komið ár
þinni vel fyrir borð að
undanfömu. Mikil
vinna hefur treyst
stöðu þína umtalsvert og nú ættir
þú að geta notið þess að slaka á.
Mevian (23. ágúst-22. sept.):
Einhver ruglingur eða
seinkun á sér stað,
einkanlega hjá þeim
sem eru á ferðalagi.
Nauðsynlegt er að skipuleggja vel
það sem gera þarf.
Vpgin (23. sept.-23. okt.):
Samvinna sem þú tekur
þátt í er sérstaklega gef-
andi og nýjar hugmynd-
ir fæðast. Einhverjar
þeirra verða meira að segja að
veruleika áöur en langt um Uður.
Sporödreki (24. okt.-21. nóv.):
Kynslóðabilið alræmda
'tfVX gerir vart við sig í dag.
\ Y V^Hætta er á árekstrum
■wlaftn ef ekki er varlega farið
en það ætti þó að jafna sig fljótt.
Einhver spenna liggur í loftinu.
Bogamaður (22. nóv.-2i. des.l:
«|Þú áttar þig ekki á
\ ^^^yhvað um er að vera
w fyrr en undir kvöld.
\ Þú átt notalega stund
með flölskyldunni.
Happatölur þínar era 11, 19 og 23.
Stelngeltln (22. des.-19. ian.):
Mikilvægt er að þú
undh búir vel þær
breytingar sem ófyrir-
sjáanlegar eru hjá þér
á næstunni. Þá verður auðveldara
að fást við þær.
Elska og virða hvort annað
„Þau haf'a elskað og virt hvort ann-
að alveg ótrúlega lengi og þau hafa
haldið hjúskaparheit sitt lengur en til
er hægt að ætlast. Nú er það eindreg-
inn vilji beggja að staðfesta trú- og
kærleik sinn undir hvolfþaki himins,
því eina guðshúsi sem hýsir alla án
tillits hneigða og kennda,“ sagði Lýð-
ur læknir og lýsti þau hjón, að
minnsta kosti fyrir guði.
Boðið var upp á fjölbreytta dagskrá
fyrir alla fjölskylduna, meðal annars
sandkastalakeppni í Holtsfjöru þar
sem flölskyldur sameinast í listsköp-
un af ýmsu tagi, og telur séra Stína
Gísladóttir, sóknarprestur í Holti, að
liðlega 600 manns hafi komið á svæð-
ið. Að sjálfsögðu var varðeldur og
brekkusöngur þar sem félagar úr
Harmoníkufélagi Vestflarða stjórnuðu
fiörinu.
Hundrað ár frá stórbruna
Hátíðin hafði sögulega tengingu til
þess að á mánudeginum voru rétt 100
ár frá þvi að hvalveiðistöðin á Sól-
bakka brann til kaldra kola. Það var
Norðmaðurinn Hans Ellefsen sem átti
stöðina og í tilefni þess voru bæjar-
stjórahjónin frá Stokke, heimabæ
Ellefsens, viðstödd hátíðarhöldin og
tilkynntu á hátíðarsamkomu að bæj-
aryfirvöld í Stokke myndu styðja þá
uppbyggingu sem Önfirðingafélagið
stæði að á Sólbakka með myndarlegu
flárframlagi, auk þess að færa góðar
gjafir. Hvalveiðistöðin á Sólbakka er
stærsta hvalveiðistöð sem reist hefur
verið í norðurhöfum.
Félagið heiðraði marga velunnara
sína á hátíðinni og var þar á meðal
Kristinn H. Gunnarsson, þungavigtar-
maður í þingmannaliði Vestfirðinga,
og var hann ánægður með viðurkenn-
inguna.
„Þessi heiðurspeningur er sá
merkasti sem mér hefur hlotnast og
það er mikil ánægja að fá þessa viður-
kenningu. Það er skemmtilegt aö vera
hér þegar verið er að minnast hval-
fangarans Hans Ellefsens því afi minn
var hvalfangari og starfaði við hval-
veiðistöð þessa sama Ellefsens í Sald-
anha Bay í Suður-Afríku.“
Kveikt á hundraö
kyndlum
Eftir að hafa hlýtt á vandaða
söngdagskrá Sigríðar Eyrúnar
Friðriksdóttur, við undirleik
Agnars Más Magnússonar, end-
aði hátíðin með því að kveikt
var á 100 kyndlum á bökkunum
ofan við tóftir gömlu verk-
smiðjuhúsanna og brenndir
tugir reykblysa á sama tíma og
verksmiðjuhúsin stóðu í ljósum
logum fyrir nákvæmlega hund-
rað árum.
Margt var um brottflutta Ön-
firðinga á hátíðinni og ánægjan skein
úr hverju andliti.
„Hátíöin tókst framar öllum vonum
og var ánægjulegt að sjá hve margir
lögðu leið sína hingað í Önundarflörð
til að vera með. Mannlífs- og menn-
ingarsetur félagsins hefur fest sig vel
í sessi og framtíðin er björt,“ sagði
Björn Ingi Bjarnason, formaður Ön-
firðingafélagsins, eftir að hátíðarhöld-
in voru afstaðin.
-GS
Reykur í hundrað ár
/ tilefni þess að rétt ÍOO ár voru liöin frá
bruna hvalveiðiverksmiöjunnar á Sólbakka
var hátíðinni slitiö með eldi og reyk.
z*.OKU
/f 5K041NN
Þarabakka 3,109 Reykjavík
Kennsla hefst að loknu sumarleyfi í dag, miðvikudag.
Kennsla á leigu-, vöru- og hópbifreið og vörubifreið með
eftirvagn.Hægt er að hefja nám alla miðvikudaga. (Áfangakerfi)
Endurbætt kennsluaðstaða.
Reyndir kennarar og góðir kennslubílar.
Aukið við atvinnumöguleikana.
Hringið eða komið og leitið upplýsinga
E-mail okusk.mjodd@simnet.is