Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2001, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2001, Page 7
ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2001________________________________________________________________________________ DV Fréttir Reiturinn umdeildi á Akureyri Gerðahverfi á Akureyri: Misskilin mótmæli? Umhverfisráð Akureyrarbæjar hefur ákveðið að boða til fundar með óánægðum íbúum í Gerða- hverfi. 70-80 manns hafa mótmælt formlega að grænu svæði við Hraungerði verði fórnað undir ein- býlishús og sagði talsmaður óánægðra í samtali við DV fyrir skömmu að grænu svæðin ættu undir högg að sækja í seinni tíð i bænum. Þessu er Vilborg Gunnarsdóttir, nefndarmaður í umhverfisráði og for- maður skipulagsnefndar bæjarins, ósammála og hefur hún þá trú að mis- skilnings af hálfu íbúa gæti í málinu. Aðeins sé um hluta svæðisins að ræða og allur undirbúningur hafi farið fram á faglegan hátt. „Við teljum þetta hverfi alveg ágætlega sett varð- andi græn og opin svæði en við eigum eftir að fara betur yfir málið með íbú- unum og sýna þeim betur uppdrætti," segir Vilborg. íbúarnir telja að nánast ekkert leik- svæði verði eftir fyrir börnin í hverf- inu eftir að einbýlishúsin rísa. -BÞ Akureyrarflugvöllur: Nýr slökkvi- bíll í flotann Slökkviliðið á Akureyrarflug- velli fékk í gær afhentan nýjan glæsilegan slökkvibíl. Reyndar var það Slökkviliðið á Akureyri sem fékk bílinn afhentan, en liðið sér um slökkvi- og björgunarmál á flugvellinum samkvæmt sér- stökum samningi við Flugmála- stjórn. Bíllinn er af gerðinni MAN / ROSENBAUER af árgerðinni 2001 með 410 hestafla vél. Billinn er búinn öllum hugsanlegum búnaði og er einn fullkomnasti og best búni slökkvibíll landsins. Það er fyrirtækið Ólafur Gíslason & Co hf. sem flutti bílinn til landsins. Annar sams konar slökkvibíll verður afhentur í næstu viku og fer sá á Reykjavíkurflugvöll og á næstu tveimur árum verða keypt- ir aðrir tveir eins bilar. Hver þeirra kostar um 30 milljónir króna. -gk Grafiö í Hlíðarfjalli. Starfsmenn Árfells hófu vinnu viö undirstööur nýju lyftunnar í gær. Nýja stólalyftan: Byrjað að grafa Starfsmenn fyrirtækisins Árfells ehf., sem átti lægsta tilboðið í jarðvegs- vinnu og uppsteypu undirstöðu fyrir nýju stólalyftuna í Hlíðarijalli, hófú í gær að grafa fyrir undirstöðum lyftumastranna. Tilboð Árfells, sem var lægsta tilboðið af 6 sem bárust í verkið, nam 17,2 milljónum króna eða 82% af kostnaðaráætlun. Framkvæmdaráð Akureyrarbæjar ákvað í fyrri viku að ganga til samn- inga við Árfell og um leið var lögð fram endurskoðuð kostnaðaráætlun fyrir verkið í heild. Hún hljóðar upp á 156,5 milljónir króna. Lyftan verður sú langfullkomnasta og afkastamesta hér á landi og getur flutt rúmlega 2000 manns á klukku- stund. Lyftan á að vera tilbúin til notk- unar fyrir áramót. -gk Áttu von á 10% fjölgun en fá 30% nemendaf jölgun í Háskólanum á Akureyri: Leigumarkaður- inn að springa - því miður erfitt að fá skammtímahúsnæði í bænum, segir rektor háskólans Metfjölgun nem- enda við Háskól- ann á Akureyri á þátt í því að leigu- markaðurinn er nánast sprunginn. Mikil eftirspurn er eftir skammtíma- húsnæði í bænum. Alls munu um 900 manns stunda nám við HA í vetur en þar af eru á þriðja hundrað í fjarnámi. Fjölgun nemenda mflli ára nemur ríflega 30%. Þeir voru 688 í fyrra. „Það er mikið auglýst en lítið húsnæði í boði. Þvl miður er orð- ið erfitt að fá húsnæði hérna á Ak- ureyri," segi-r Þorsteinn Gunnars- son, rektor Háskólans á Akureyri, og á þar einkum við skammtíma- dvöl. Hann hyggur þó að stúdent- ar hafi ekki þurft frá að hverfa vegna húsnæðismála. Félagsstofn- un stúdenta býður upp á 60 íbúðir og 30 einstaklingsherbergi en margir verða að finná aðrar leiðir. Vinsældir HA eru rektor fagn- aðarefni en ljóst er að skólinn mun lenda í kröppum dansi til að mæta þeim útgjöldum sem fylgja nemendafjölguninni. Ekki var reiknað meö nema 10% fjölgun nemenda og óljóst er hvort fjár- veitingar til skólans verða leið- réttar fyrr en næsta ár. Rektor hyggst funda með menntamála- ráðherra vegna þessa máls og reyna að finna leiðir til hagræð- ingar og til að auka tekjur. Mest er fjölgunin í rekstrar- fræði. Þar fjölgar nemendum úr 168 í 293. Einnig fjölgar nemend- um í kennaradeild úr 258 í 342 og svo verður boðið upp á nýja náms- braut í tölvunarfræðum og upp- lýsingatækni. „Þessi fjölgun er langt umfram áætlanir," segir rektor sem segir þróunina endur- spegla aukna þörf fyrir háskóla- menntun í samfélaginu. Nýnemavika Kennsla við Háskólann á Akur- eyri hófst í gær, mánudag, og er hann þar með fyrstur háskóla í landinu til að hefja reglulega kennslu samkvæmt stundaskrá þetta skólaárið. Fyrsta vikan á skólaárinu að þessu sinni hefur fengið nafnið Nýnemavika og er ástæðan sú að sérstök kynningar- vika hefur verið skipulögð fyrir alla nýnema sem skráðir eru við háskólann. Meginmarkmið með Nýnemaviku er að kynna nemend- um tölvukerfi, tölvuumhverfi og stoðþjónustu skólans og gefa þeim tækifæri til að kynnast starfsfólki hans og hvert öðru áður en kennsla hefst. Einnig hafa nem- endur tíma til að kynnast hús- næði og starfsemi háskólans áður en lengra er haldið. Með þessu móti er reynt að gera nýnemum aðlögun að háskólanámi auðveld- ari og leggja grunn að enn betri námsárangri. Hugmynd þessi er fengin að láni frá erlendum há- skólum þar sem Nýnemavika hef- ur verið haldin árlega með góðum árangri. I lok vikunnar, eða 24. ágúst, munu nýnemar heimsækja Skáta- félagið Klakk í Kjarnaskóg og gera sér glaðan dag áður en þeir mæta á háskólaball um kvöldið. -BÞ Þorsteinn Gunnarsson. Vatnskrafturinn prófaður Nýja slökkvibifreiöin er fremst á myndinni og reyndist mun kraftmeiri en gamli btllinn viö hliö hans. Framhaldsskólarnir á Akureyri: Nemendagarðar boðnir út í haust - seinkun vegna útboðs á Evrópska efnahagssvæðinu Framkvæmdir við nýbyggingu nem- endagarða á lóð Menntaskólans á Ak- ureyri, sem hefjast áttu í sumar, eru enn ekki hafnar og heíjast að öllum lík- indum ekki fyrr en undir lok ársins eða í byrjun næsta árs. Ástæður seink- unarinnar eru þær að í ljós kom að bjóða þarf verkið út á Evrópska efna- hagssvæðinu og þá hafa orðið taflr á samningsgerð milli ráðuneytanna og rekstrarfélagsins Lundar sem mun reka nemendagarðana, en þessir aðilar þurfa að gera með sér sérstakan þjón- ustusamning. Tryggvi Gíslason, skólameistari Menntaskólans á Akureyri, segir að í sjálfu sér sé ekki hægt að tala um bakslag varðandi framgang málsins. „Það hefur þó dregist að ganga frá þjón- ustusamningnum sem felur í sér rekstrarleyfi fyrir Lund að reka nem- endagarðana en þær tafir hafa orðið vegna sumarleyfa og anna í stjómar- ráðinu. Þetta á sér eðlilegar skýring- ar,“ segir Tryggvi. Þörfin fyrir aukið heimavistarrými fyrir nemendur framhaldsskólanna á Ákureyri er mjög mikil, en í heimavist Menntaskólans hefur verið rými fyrir um 100 nemendur. I Menntaskólanum og Verkmenntaskólanum, sem einnig á aðild að nýju nemendagörðunum, hafa verið um 600 aðkomunemendur og hef- ur meginþorri þeirra þurft að sækja á almennan leigumarkað. Nýja bygging- in mun innihalda 120 tveggja manna smáíbúðir þannig að þegar byggingin hefur verið tekin í notkun munu um 340 nemendur skólanna tveggja geta fengið inni í heimavistinni. Vegna reglna um útboð verksins á Evrópska efnahagssvæðinu hefur út- boðinu seinkað. Tryggvi segir að það verði boðið út með haustinu og sam- kvæmt því sé gert ráð fyrir að verkleg- ar framkvæmdir hefjist öðru hvorum megin við áramótin og verklok sam- kvæmt því árið 2003. Nýja byggingin verður um 5 þúsund fermetrar og kostnaður við bygginguna er áætlaður um 600 milljónir króna. Þar við bætast um 50 milljónir króna vegna lóðarframkvæmda og breytinga á núverandi heimavist. -gk 7 Toyota Avensis Terra 1800, ssk., árg. 1999, ek. 59.000 km, dgrænn, vindskeið, cd. Verð: 1395.000 Bílasprengja: 1250.000 Musso 2900 tdi, ssk. ek. 71.000, tvílitur blár/grár, driflæsing aftan, drkrókur o.fl. Verð: 1890.000 Bílasprengja: 1690.000 M.Benz s-420, árg. 1996, ek. 143.000, vel útbúinn. Verð: 3.400.000, áhv. 1700. Renault 19 RT 1800, ssk., ek. 93.000 silfurgrár, álf. o.fl. Verð:650.000. Bílasprengja: 500.000 Daewoo Lanos sx 1600, ssk. ek. 14.000, árg 00. Álf., vindskeið, rafm. í öllu o.fl. Verð: 1.170.000 Bílasprengja: 1.065.000 Dodge Caravan 5 dyra, árg '97, ek. 80.000, 7 manna bíll, 3 I vél. Verð: 1.690.000 Bílasprengja:1.490.000 Daewoo Nubira II stw 1600, árg. 00, dblár, litað gler, álf., spoiler. cd, o.fl. Verð: 1.490.000 Daewoo Nubira sx sedan, árg. 00, ekinn 25.000, leður, cd, topplúga, álf. o.fl. Verð: 1650.000. Greiðslukjör, Visa/Euro raðgreiðslur.skuldabréf, öll skipti möguleg, ódýrari. Komdu með bílinn, skráð'ann og við auglýsum hannfrítt á Netinu með mynd. BÍLASALAN <3S> SKEIFAN . BILDSHOFÐA 10 • S: 577 2800 / 587 1000 Akuruyri: Bil.is.il.in Os H|iilteyrargötu 10 Simi 462 1430

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.