Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2001, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2001________________________________________________________________________________
DV Fréttir
Reiturinn umdeildi á Akureyri
Gerðahverfi á Akureyri:
Misskilin
mótmæli?
Umhverfisráð Akureyrarbæjar
hefur ákveðið að boða til fundar
með óánægðum íbúum í Gerða-
hverfi. 70-80 manns hafa mótmælt
formlega að grænu svæði við
Hraungerði verði fórnað undir ein-
býlishús og sagði talsmaður
óánægðra í samtali við DV fyrir
skömmu að grænu svæðin ættu
undir högg að sækja í seinni tíð i
bænum.
Þessu er Vilborg Gunnarsdóttir,
nefndarmaður í umhverfisráði og for-
maður skipulagsnefndar bæjarins,
ósammála og hefur hún þá trú að mis-
skilnings af hálfu íbúa gæti í málinu.
Aðeins sé um hluta svæðisins að ræða
og allur undirbúningur hafi farið
fram á faglegan hátt. „Við teljum
þetta hverfi alveg ágætlega sett varð-
andi græn og opin svæði en við eigum
eftir að fara betur yfir málið með íbú-
unum og sýna þeim betur uppdrætti,"
segir Vilborg.
íbúarnir telja að nánast ekkert leik-
svæði verði eftir fyrir börnin í hverf-
inu eftir að einbýlishúsin rísa. -BÞ
Akureyrarflugvöllur:
Nýr slökkvi-
bíll í flotann
Slökkviliðið á Akureyrarflug-
velli fékk í gær afhentan nýjan
glæsilegan slökkvibíl. Reyndar
var það Slökkviliðið á Akureyri
sem fékk bílinn afhentan, en liðið
sér um slökkvi- og björgunarmál
á flugvellinum samkvæmt sér-
stökum samningi við Flugmála-
stjórn.
Bíllinn er af gerðinni MAN /
ROSENBAUER af árgerðinni 2001
með 410 hestafla vél. Billinn er
búinn öllum hugsanlegum búnaði
og er einn fullkomnasti og best
búni slökkvibíll landsins. Það er
fyrirtækið Ólafur Gíslason & Co
hf. sem flutti bílinn til landsins.
Annar sams konar slökkvibíll
verður afhentur í næstu viku og
fer sá á Reykjavíkurflugvöll og á
næstu tveimur árum verða keypt-
ir aðrir tveir eins bilar. Hver
þeirra kostar um 30 milljónir
króna. -gk
Grafiö í Hlíðarfjalli.
Starfsmenn Árfells hófu vinnu viö
undirstööur nýju lyftunnar í gær.
Nýja stólalyftan:
Byrjað að grafa
Starfsmenn fyrirtækisins Árfells
ehf., sem átti lægsta tilboðið í jarðvegs-
vinnu og uppsteypu undirstöðu fyrir
nýju stólalyftuna í Hlíðarijalli, hófú í
gær að grafa fyrir undirstöðum
lyftumastranna. Tilboð Árfells, sem var
lægsta tilboðið af 6 sem bárust í verkið,
nam 17,2 milljónum króna eða 82% af
kostnaðaráætlun.
Framkvæmdaráð Akureyrarbæjar
ákvað í fyrri viku að ganga til samn-
inga við Árfell og um leið var lögð fram
endurskoðuð kostnaðaráætlun fyrir
verkið í heild. Hún hljóðar upp á 156,5
milljónir króna.
Lyftan verður sú langfullkomnasta
og afkastamesta hér á landi og getur
flutt rúmlega 2000 manns á klukku-
stund. Lyftan á að vera tilbúin til notk-
unar fyrir áramót. -gk
Áttu von á 10% fjölgun en fá 30% nemendaf jölgun í Háskólanum á Akureyri:
Leigumarkaður-
inn að springa
- því miður erfitt að fá skammtímahúsnæði í bænum, segir rektor háskólans
Metfjölgun nem-
enda við Háskól-
ann á Akureyri á
þátt í því að leigu-
markaðurinn er
nánast sprunginn.
Mikil eftirspurn er
eftir skammtíma-
húsnæði í bænum.
Alls munu um 900
manns stunda nám
við HA í vetur en þar af eru á
þriðja hundrað í fjarnámi. Fjölgun
nemenda mflli ára nemur ríflega
30%. Þeir voru 688 í fyrra.
„Það er mikið auglýst en lítið
húsnæði í boði. Þvl miður er orð-
ið erfitt að fá húsnæði hérna á Ak-
ureyri," segi-r Þorsteinn Gunnars-
son, rektor Háskólans á Akureyri,
og á þar einkum við skammtíma-
dvöl. Hann hyggur þó að stúdent-
ar hafi ekki þurft frá að hverfa
vegna húsnæðismála. Félagsstofn-
un stúdenta býður upp á 60 íbúðir
og 30 einstaklingsherbergi en
margir verða að finná aðrar leiðir.
Vinsældir HA eru rektor fagn-
aðarefni en ljóst er að skólinn
mun lenda í kröppum dansi til að
mæta þeim útgjöldum sem fylgja
nemendafjölguninni. Ekki var
reiknað meö nema 10% fjölgun
nemenda og óljóst er hvort fjár-
veitingar til skólans verða leið-
réttar fyrr en næsta ár. Rektor
hyggst funda með menntamála-
ráðherra vegna þessa máls og
reyna að finna leiðir til hagræð-
ingar og til að auka tekjur.
Mest er fjölgunin í rekstrar-
fræði. Þar fjölgar nemendum úr
168 í 293. Einnig fjölgar nemend-
um í kennaradeild úr 258 í 342 og
svo verður boðið upp á nýja náms-
braut í tölvunarfræðum og upp-
lýsingatækni. „Þessi fjölgun er
langt umfram áætlanir," segir
rektor sem segir þróunina endur-
spegla aukna þörf fyrir háskóla-
menntun í samfélaginu.
Nýnemavika
Kennsla við Háskólann á Akur-
eyri hófst í gær, mánudag, og er
hann þar með fyrstur háskóla í
landinu til að hefja reglulega
kennslu samkvæmt stundaskrá
þetta skólaárið. Fyrsta vikan á
skólaárinu að þessu sinni hefur
fengið nafnið Nýnemavika og er
ástæðan sú að sérstök kynningar-
vika hefur verið skipulögð fyrir
alla nýnema sem skráðir eru við
háskólann. Meginmarkmið með
Nýnemaviku er að kynna nemend-
um tölvukerfi, tölvuumhverfi og
stoðþjónustu skólans og gefa þeim
tækifæri til að kynnast starfsfólki
hans og hvert öðru áður en
kennsla hefst. Einnig hafa nem-
endur tíma til að kynnast hús-
næði og starfsemi háskólans áður
en lengra er haldið. Með þessu
móti er reynt að gera nýnemum
aðlögun að háskólanámi auðveld-
ari og leggja grunn að enn betri
námsárangri. Hugmynd þessi er
fengin að láni frá erlendum há-
skólum þar sem Nýnemavika hef-
ur verið haldin árlega með góðum
árangri.
I lok vikunnar, eða 24. ágúst,
munu nýnemar heimsækja Skáta-
félagið Klakk í Kjarnaskóg og gera
sér glaðan dag áður en þeir mæta
á háskólaball um kvöldið. -BÞ
Þorsteinn
Gunnarsson.
Vatnskrafturinn prófaður
Nýja slökkvibifreiöin er fremst á myndinni og reyndist mun kraftmeiri en gamli btllinn viö hliö hans.
Framhaldsskólarnir á Akureyri:
Nemendagarðar
boðnir út í haust
- seinkun vegna útboðs á Evrópska efnahagssvæðinu
Framkvæmdir við nýbyggingu nem-
endagarða á lóð Menntaskólans á Ak-
ureyri, sem hefjast áttu í sumar, eru
enn ekki hafnar og heíjast að öllum lík-
indum ekki fyrr en undir lok ársins
eða í byrjun næsta árs. Ástæður seink-
unarinnar eru þær að í ljós kom að
bjóða þarf verkið út á Evrópska efna-
hagssvæðinu og þá hafa orðið taflr á
samningsgerð milli ráðuneytanna og
rekstrarfélagsins Lundar sem mun
reka nemendagarðana, en þessir aðilar
þurfa að gera með sér sérstakan þjón-
ustusamning.
Tryggvi Gíslason, skólameistari
Menntaskólans á Akureyri, segir að í
sjálfu sér sé ekki hægt að tala um
bakslag varðandi framgang málsins.
„Það hefur þó dregist að ganga frá þjón-
ustusamningnum sem felur í sér
rekstrarleyfi fyrir Lund að reka nem-
endagarðana en þær tafir hafa orðið
vegna sumarleyfa og anna í stjómar-
ráðinu. Þetta á sér eðlilegar skýring-
ar,“ segir Tryggvi.
Þörfin fyrir aukið heimavistarrými
fyrir nemendur framhaldsskólanna á
Ákureyri er mjög mikil, en í heimavist
Menntaskólans hefur verið rými fyrir
um 100 nemendur. I Menntaskólanum
og Verkmenntaskólanum, sem einnig á
aðild að nýju nemendagörðunum, hafa
verið um 600 aðkomunemendur og hef-
ur meginþorri þeirra þurft að sækja á
almennan leigumarkað. Nýja bygging-
in mun innihalda 120 tveggja manna
smáíbúðir þannig að þegar byggingin
hefur verið tekin í notkun munu um
340 nemendur skólanna tveggja geta
fengið inni í heimavistinni.
Vegna reglna um útboð verksins á
Evrópska efnahagssvæðinu hefur út-
boðinu seinkað. Tryggvi segir að það
verði boðið út með haustinu og sam-
kvæmt því sé gert ráð fyrir að verkleg-
ar framkvæmdir hefjist öðru hvorum
megin við áramótin og verklok sam-
kvæmt því árið 2003.
Nýja byggingin verður um 5 þúsund
fermetrar og kostnaður við bygginguna
er áætlaður um 600 milljónir króna.
Þar við bætast um 50 milljónir króna
vegna lóðarframkvæmda og breytinga
á núverandi heimavist. -gk
7
Toyota Avensis Terra 1800,
ssk., árg. 1999, ek. 59.000 km,
dgrænn, vindskeið, cd.
Verð: 1395.000
Bílasprengja: 1250.000
Musso 2900 tdi, ssk. ek. 71.000,
tvílitur blár/grár, driflæsing aftan,
drkrókur o.fl. Verð: 1890.000
Bílasprengja: 1690.000
M.Benz s-420, árg. 1996, ek.
143.000, vel útbúinn.
Verð: 3.400.000, áhv. 1700.
Renault 19 RT 1800, ssk., ek.
93.000 silfurgrár, álf. o.fl.
Verð:650.000.
Bílasprengja: 500.000
Daewoo Lanos sx 1600, ssk.
ek. 14.000, árg 00. Álf.,
vindskeið, rafm. í öllu o.fl.
Verð: 1.170.000
Bílasprengja: 1.065.000
Dodge Caravan 5 dyra, árg '97,
ek. 80.000, 7 manna bíll, 3 I vél.
Verð: 1.690.000
Bílasprengja:1.490.000
Daewoo Nubira II stw 1600,
árg. 00, dblár, litað gler, álf.,
spoiler. cd, o.fl.
Verð: 1.490.000
Daewoo Nubira sx sedan, árg.
00, ekinn 25.000, leður, cd,
topplúga, álf. o.fl.
Verð: 1650.000.
Greiðslukjör, Visa/Euro
raðgreiðslur.skuldabréf, öll skipti
möguleg, ódýrari. Komdu með bílinn,
skráð'ann og við auglýsum hannfrítt
á Netinu með mynd.
BÍLASALAN <3S> SKEIFAN
. BILDSHOFÐA 10 •
S: 577 2800 / 587 1000
Akuruyri: Bil.is.il.in Os H|iilteyrargötu 10 Simi 462 1430