Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2001, Page 9
9
ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2001
J>V____________________________________________________________________________________________________Neytendur
Fallegt skart
Nikkel er oft notað í málmblöndur þar sem það eykur styrk þeirra og veitir
vörn gegn tæringu. Einnig er það mikið notað til að húða skartgripi undir
aðra húð, svo sem guiihúð.
Amerískar
brauðbollur
Nú er sumarið að verða búið og
haustið nálgast. Því vilja fylgja
djúpar haustlægðir sem bera með
sér rok og rigningu. Á slíkum dög-
um er fátt notalegra en vera inni í
hlýju og notalegu eldhúsi og baka
brauð. Og þegar börnin koma vot
heim úr skólanum bíða þeirra heit-
ar bollur og kakó í bolla. Hér er
uppskrift að amerískum bollum sem
eru hreint frábærar nýbakaðar og
ilmandi.
í bollurnar þarf:
1 tsk. sykur
250 ml volgt vatn
2 tsk. þurrger
400 g hveiti
1 tsk. salt
25 g bráðið smjör
Aðferð:
Leysið sykurinn upp i volgu vatn-
inu og hellið yfir gerið. Haflð á hlýj-
þörf er á. Hnoðið deigið á hveiti-
stráðum fleti í 10 mínútur eða þar
til það er mjúkt og teygjanlegt.
Leggið það síðan í skál og hyljið
með rökum klút og látið standa þar
til þaö hefur stækkað um helming.
Því næst er deigið hnoðað létt og
það flatt út þar til það er um 6 mm
þykkt. Að því loknu er deigið látið
standa undir rökum klút i 5 mínút-
ur. Þá eru skomar út hringlaga kök-
ur sem eru um 8 cm í þvermál. Það
sem eftir verður af deiginu er flatt á
ný og skorið og ferlið þannig endur-
tekið þar til ekkert er eftir. Leggið
bollurnar á hveitistráða bökun-
arplötu og stráið hveiti yfir þær.
Leggið rakan klút yfir þær og látið
standa þar til þær hafa stækkað um
helming. Bakið í ofni við 230° C í 5
mínútur. Takið þær úr ofninum og
snúiö þeim á hvolf með hníf og bak-
ið í aðrar 5 mínútur. Þegar bera á
um stað í um 10 mínútur eða þar til
gerið fer að freyða. Sigtið saman
hveiti og salt. Bætið gervökvanum
og smjörinu út í hveitiblönduna og
hnoðið þar til deigið er mjúkt. Bæta
má örlitlu af volgu vatni i deigið ef
bollurnar fram eru þær skornar í
sundur í miðju, ristaðar í brauðrist
í augnablik, smurðar með smjöri,
settar saman aftur og bornar fram
heitar. Uppskriftin dugar í u.þ.b. 14
bollur.
Mikil aukning á
nikkelofnæmi
- ný reglugerð t£ikmarkar notkun þess
Talið er að allt að 10% evrópskra
kvenna hafi ofnæmi fyrir nikkeli og
fer þetta hlutfall hækkandi. Þessar
upplýsingar koma fram í fréttatil-
kynningu frá Hollustuvernd ríkis-
ins í tilefni þess að umhverfisráðu-
neytið hefur gefið út reglugerð um
takmörkun á notkun nikkels. Reglu-
gerðin tók gildi í byrjun júní sl. og
takmarkar hún notkun nikkels í
málmhlutum sem geta komist í
beina snertingu við hörund, og er
hún sett til að koma í veg fyrir of-
næmi af völdum þess.
Nikkel má finna víða í náttúr-
unni, m.a. í flestum loftsteinum og
öllum dýrum og plöntum. Það er
notað í málmblöndur vegna þess
hve hart það er og því eykur það
styrk málmblandna auk þess sem
nikkel veitir viðnám gegn tæringu.
Einnig er það mikið notað í ódýra
skartgripi sem undirhúð undir gull-
húð. Mikil aukning hefur orðið á
notkun þess og hafa rannsóknir
sýnt að það hefur farið saman við
aukna tíðni ofnæmis.
Nikkelofnæmi getur komið upp
fyrirvaralaust og varað ævilangt.
Þeir sem eru með nikkelofnæmi
geta fengið exem í hvert skipti sem
þeir snerta nikkel og getur tekið
tíma að ná því niður.
Ákveðin skilyrði
Dæmi um hluti þar sem nikkel-
notkun er takmörkuð með reglu-
gerðinni eru skartgripir af ýmsum
toga, svo sem eyrnalokkar, háls-
men, armbönd, keðjur, ökklakeðjur,
hringir, armbandsúr, ólar og sylgj-
ur; hlutir á fatnaði, eins og hnapp-
ar, smellur, hnoð, rennilásar, málm-
merki og krækjur á brjóstahöldum.
Einnig er óheimilt að nota nikkel í
vörur sem koma í beina og langvar-
andi snertingu við húð nema þær
uppfylli ákveöin skilyrði svo nikkel-
innihaid þeirra valdi ekki óþægind-
um.
Þessum skilyrðum er lýst í reglu-
gerðinni og er um að ræða gerð
málmblöndu, hlutfall nikkels í
henni og hraða losunar á nikkeli af
viðkomandi hlut. Dæmi um slíka
hluti eru t.d. mynt, málmhandfong
og vatnskranar. Bannið gildir hvort
sem um ræðir hreinan málm, málm-
blöndur eða málm húðaðan með
öðrum efnum.
Hollustuvernd ríkisins hefur
beint þeim tilmælum til framleið-
enda, innflytjenda og söluaðila að
þeir fjarlægi vörur, sem ekki upp-
fylla kröfur reglugerðarinnar, úr
verslunum sem fyrst.
Leikskólastjórinn sem skatturinn hirti launin af:
Erfitt
að ná leiðréttingu
- fékk hluta endurgreiddan
Mánaðarlaunin hirt
vegna mistaka
KVtrítútíU* tsóu, Mrgir Arntií* Mí.ttöU, uruir tkutntt iuu
Frétt DV
Skatturinn hirti mánaðarlaunin afArndísi. Hún hefur nú
fengið hluta af peningunum til baka - en ekki allt.
„Ég fékk hluta leið-
réttan með eftirgangssemi
en það stóð á fullri leið-
réttingu vegna þess að
það var bilun í samskipta-
kerfi Skattstofunnar, Toll-
stjórans og Ríkisbók-
halds,“ segir Arndís
Bjarnadóttir leikskóla-
stjóri sem staðið hefur í
stappi við skattinn sem
hirti af henni öll launin í
mánaðarbyrjun. Áætlað
var á Amdísi 650 þúsund-
um of mikið umfram eðli-
lega skattgreiðslu miðað
við laun hennar.
Framtal hennar var
sent á Netinu innan þess
skilafrests sem gefinn er.
Þá var ljóst að starfsmaður skatts-
ins hafði farið um það höndum því
óskað hafði verið eftir ívilnun en
því var hafnað eftir að framtalið var
skoðað.
Skattstofan í Reykjavík hefur
ekki getað gefið neinar haldbærar
skýringar á því hvers vegna skatt-
framtalið týndist. Þar hefur verið
beðist afsökunar á mistökunum og
leiðrétt hefur verið til Ríkisbók-
halds þannig að skattar Amdísar
lækkuðu um 650 þúsund krónur
þann 8. ágúst.
Erfítt er þó að ná til baka mánaö-
arlaununum að fullu þar sem sam-
skiptakerfi skatts og innheimtu er í
ólagi. Fyrir helgi, hálfum mánuði
eftir að launin voru hirt, fékk Arn-
dís greiddar rúmlega 113 þúsund
krónur en þá vantaði enn
hluta af peningunum.
„Enn vantaði tæpar 15 þús-
und krónur," segir Arndís.
„Það er síst meira um leið-
réttingar í ár en í fyrra,
sagði Jónína B. Jónasdóttir,
skrifstofustjóri hjá Skattstof-
unni í Reykjavík, um rafræn
skattframtöl og mál Arndís-
ar. Hún taldi málið vera und-
antekningu og um hefði ver-
ið að ræða mistök.
Sigvaldi Friðgeirsson,
skrifstofustjóri hjá Toll-
stjóraembættinu, segir að
ástæða þess að ekki hafi ver-
ið hægt að leiðrétta að fullu
hafi ekki verið sú að kerfið
hafi brugðist heldur hafi ver-
ið ákveðinn hægagangur í kerfmu
sem orðið hafi til þess að boð bámst
ekki frá Skattstofunni.
„Við greiddum það sem vantaði
upp á inn á reikning strax á föstu-
dagsmorgun en auðvitað er leiðin-
legt þegar svona kemur upp á. Viö
leggjum mikið upp úr því að okkar
viðskiptavinir séu ánægðir," segir
Sigvaldi. -rt
Kolmunnavertíðin:
Nálgast
200 þúsund
tonnin
Afli íslensku skipanna sem stund-
að hafa kolmunnaveiðar á árinu
nam í gær 189 þúsund tonnum frá
áramótum og er þetta langmesta
kolmunnaveiði íslenskra skipa á
einu ári til þessa.
Fyrir utan afla þeirra höfðu ís-
lensku bræðslurnar tekið við 41
þúsund tonni frá erlendum skipum
og hefur því alls um 230 þúsund
tonnum af kolmunna verið landað
hér á árinu.
Aflahæsta skipið í kolmunnanum
er Hólmaborgin frá Eskifirði með
22.512 tonn, en næstu skip þar á eft-
ir eru Börkur NK 20.914 tonn, Jón
Kjartansson SU 17.833 tonn, Ásgrím-
ur Halldórsson SF 17.403 tonn, Faxi
RE 14.465 tonn, Huginnn VE 12.197
tonn, Ingunn AK 11.955 tonn, Þor-
steinn EA 11.336 tonn og Vilhelm
Þorsteinsson EA 11.129 tonn.
Hæstu löndunarstaðir voru Eski-
fjörður meö 53.508 tonn, Seyðisfjörð-
ur 47.4405 tonn, Neskaupstaður
46.201 tonn og Fáskrúðsfjöröur
35.941 tonn. -gk
Hólmaborg SU
Þetta mikla aflaskip frá Eskifirði er meö mestan kolmunnaafla á árinu.