Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2001, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2001, Side 20
ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2001 L j'jJyJíJj1 Fujitsu rekur 16400 Þrívíddarmynd á stærð við blóðkorn Vísindamenn sýndu á dög- unum hversu langt leysitækn- in hefur náð. Þeir teiknuðu þrívíddarmynd af nauti sem var einungis á stærð við rautt blóðkorn. Þetta er lang- minnsta teikning heimsins. Visindamennirnir notuðu tvö leysitæki sem tengd voru við tölvuforrit. Þeir notuðu plastfilmu sem efnivið í lista- verkið. Vonast er til að hér sé fundinn smjörþefurinn af því sem koma skal í örtækni. Slík- ir leisergeislar gætu hæglega framleitt örsmá tæki í framtið- inni. Þau væru meðal annars hægt aö senda inn í blóðrásar- kerfi líkamans, með tilheyr- andi framforum í læknavísind- um. Reiði vegna andlitsmynda- véla Almenningur í Bandaríkj- unum er sárreiður yfir notkun háþróaðra andlitsmyndavéla á Super Bowl, úrslitaleik banda- j rísku ruðningsdeildarinnar. Myndavélin er notuð á þann hátt að myndir sem hún aflar eru færðar inn í forrit sem greinir andiitsdrættina. Ætl- unin var að finna glæpamenn á meðal áhorfendafjöldans. Ekki kom í ljós fyrr en eftir leikinn að myndavélin hefði ; verið notuð. Er þetta aflvakinn ; að nýjustu orustunni þess sem nefnt hefur verið einkalifsbar- ; áttan. Aðeins ein borg i Banda- ríkjunum notar tæknina enn sem komið er en önnur íhugar að setja myndavélarnar upp. Tampa Bay í Flórída notar þær til þess að fylgjast með næturlífinu og borgarstjóm Virginia Beach veitti nýlega fjárframlag til að koma upp búnaðinum. msn Hotmail Japanski tölvu- og ör- gjörvarisinn Fujitsu hefur til- kynnt um endurskipulagningu á fyrirtækinu sem hefur í för með sér fækkun um 16.400 störf. Forsvarsmenn fyrirtæk- isins segja þetta vera mótað- gerðir til að bregðast við nið- ; ursveiflu í eftirspurn eftir tæknivörum í heiminum. Tvö af hverjum þremur störfum i sem tapast verða utan Japans. Þar munu dótturfyrirtæki Fujitsu í Bretlandi verða fyrir mestum skakkafóllum. Að- gerðirnar koma í kjölfar þess að fyrirtækið tapaði andvirði 180 milljörðum króna á síöasta ársfjórðungi. Reiknað er með að niðurskurðurinn valdi því að Fujitsu dragi sig út úr fram- leiðslu á örgjörvum í Banda- : ríkjunum. •-2 Tölvuleikir skemma heilann Ókunnugir geta lesiö tölvupóstinn: Hakkarar finna leið inn í Hotmail 0 ff'ff Tölvuleikir koma í veg fyrir eðlilegan þroska heilans og geta gert börn hneigðari til of- beldis en ella, samkvæmt nýrri rannsókn. Breska blaðið Observer hefur eftir japanska vísindamanninum Ryuta Kawas- hima frá Tohoku-háskóla að tölvu- leikir sem börn spila valdi misvægi í þroska heilans. Þannig þroskast aðeins svæði, tengd hreyfingu og sjón, þegar tölvuleikir eru spilaðir en önnur lykilsvæði heilans sitja á hakanum. Kawashima gerði rannsókn á tveimur hópum barna. Annar hóp- urinn spilaði Nintendo-tölvuleiki en hinn gerði einfaldar stærðfræði- þrautir í hálfa klukkustund. Jap- anski prófessorinn rannsakaði heila bamanna á meðan þessu fór fram. Andstætt við tölvuleikina auka stærðfræðiþrautir virkni í vinstra og hægra heilahveli ennisblaösins. Þessi svæði eru hvað helst tengd við lærdóm, minni, tilfinningar og stjórnun á hegðun. Kawashima telur rannsóknir sín- ar leiða í ljós að mikil áhætta er á því að upp vaxi kynslóö sem erfitt mun eiga með að stjórna hegðun sinni og verði hneigöari til ofbeldis en foreldrarnir. Hann leggur áherslu á að foreldrar hvetji böm sín til að fara út að leika sér meðal annarra barna. Mikilvægt er að þau eigi samskipti hvert við annað eins mikið og mögulegt er. Þannig muni þau þroskast, virkja sköpunargáf- una og verða að góðu fólki. Tölvuleikir hamla þroska ákveðinna svæöa í heilanum og valda ofbeld- ishneigö, aö þvf er japanskur heila- sérfræöingur segir. rmwnrwMn-rrr rrawmtwKgraigtiOTmiwwH^ Batnandi heilsufar samfara minnkun gróðurhúsaáhrifa Browse the VVeb and get notifíed when you have new Hotmail or your friends are online. Get rnore fromthe Web wííh MSN Explorer! FREE downtoad aí http:tfexolorer rosn com Takmörkun á bílaumferö er tvíeggja sverö sem vinnur meö betri heilsu manna og hamlar gegn gróöurhúsaáhrifum. Auk þess myndu aðgeröirnar fækka tillfellum með krónískt lungnakvef um 65 þúsund og skjóta loku fyrir 37 milljón tapaða vinnudaga fram til 2020. „Við fundum fyrir raunveru- legum og skjótvirkum ábata fyrir heilsu almennings," hefur tímaritið New Scientist eftir Devru Davis. Bandaríska teymið vonast til þess að niðurstöðurnar muni gera al- menningi og stjórnmálaleiðtogum ljós skammtíma heilsufarsleg áhrif þess að draga úr útblæstri gróður- húsalofttegunda auk langtímaáhrifa á loftslagsbreytingar. Samkvæmt upplýsingum frá Al- þjóðaheilbrigðismálastofnuninni, WHO, á loftmengun sök á einu af hverjum tíu örorkutilfellum í heim- inum. Og nærri 700 þúsund dauðs- foll á hverju ári eru tengd óhreinu lofti. verið að fyrirtækið hefði þegar komið í veg fyrir hann. Það er hið alræmda Microsoft sem sér um hugbúnað Hotmail. Microsoft hef- ur verið tengt við fiöldann allan af öryggisvandamálum á Netinu. Hakkarar hafa beint spjótum sín- um að Windows-stýrikerfinu, Out- look-póstforritinu, Intemet Ex- plorer-vafranum og fleiru sem Microsoft á heiðurinn að. New to HoOuail? Sion Ud for a FREE E-Mail Account! Already liave a Hotmail account? Sign-ln Hame l......... fWhvSiqn UúD Password liotmail.com ^ [ [ Sign in | Security Options fwhafsthis?!: O Pubfic/shared computer (Increased securitvl. O Keep me signed in to this and all other Passport sites unless I sign out. <S) Neither ©2001 Microsott Corporafion. All rights reserved. TERMS OF USE TRUSTe Aooroved Privacv Statement MSH Hotmail has a new look! MSM Hotmail has a brand new tace...and it's easierto use. You’il find it easier to create and rnanage your folders, see which of your Méssenger buddies is online, arid quickly choose names from your Address Book when composing e-mail. All About Hotmail Frequeritl v Asked Questions Virus Protected E-mails Secure Siqn-ln How To Link To Hotmaii Contact Us http://lc2.lav/5.hotmail.pásspört.com/cgi~bin/login p) U» Honw Pigt © Applv Computír © 1787 Applo Support @ Applo Storo @ Mierosoft MscTopia Minnkandi gróð- urhúsaáhrif myndu hafa í för með sér stór- batnandi heilsu mannkyns, sam- kvæmt rann- sóknum bandariskra vísindamanna. Teymi visindamanna rannsökuðu fiórar borgir i Norður- og Suður- Ameríku og gerðu könnun á því hverju ná mætti fram meö nærtæk- um úrbótum í átt til minnkandi út- blásturs gróðurhúsalofttegunda. Nærtækustu úrbæturnar fælu í sér að takmarka umferö og lagfæra mengandi orkuver á næstu 20 árum. Þessar aðgerðir myndu draga úr gróðurhúsaútblæstri um 13 prósent og koma í veg fyrir 64 þúsund ótímabær dauðsfóll, segja Devra Lee Davis og teymi hennar í Carnegie Mellon-háskólanum í Pittsburgh. Hakkarar hafa komið upp um öryggisgalla sem gerir þeim kleift að lesa tölvupóstinn hjá hverjum þeim sem notar póstþjóninn Hot- mail. Meira en 110 milljónir manna eiga tölvupóstfang hjá Hot- mail og er um að ræöa vinsælasta póstþjón á veraldarvefnum. Upplýsingar um hvernig megi öðlast aðgang að tölvupóstinum á Hotmail er að finna á heimasíðu hakkarahópsins Root Core. Lykill- inn er að nýta sér aðferðina sem póstþjónninn notar við að raða skilaboðunum. Sérhver tölvupóst- ur hefur ákveðið snið og er merkt- ur með sama fiölda tölustafa. Til þess að opna tölvupóst hjá ákveðnum einstaklingi þarf aö vita notendanafn hans og geta sér til um töluna á póstinum. Root Core-hópurinn hefur notað forrit til þess að finna töluna en það giskar á eitt númer á sekúndu. Taka ber fram að hakkararnir geta ekki fengið aögang að póst- hólfinu, þ.e. inbox. Root Core seg- ist vera hópur sem einblínir á að upplýsingaflæðið valdi ekki tjóni. Á heimasíðu hópsins segir að hann hafi gert Hotmail viðvart um öryggisgallann og því gæti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.