Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2001, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2001, Síða 23
27 ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2001 DV Tilvera fmæiisbarnið Kenny Rogers 63 ára Kántrísöngvar- inn Kenny Rogers er 63 ára í dag. Hann er fæddur í borginni Houston í kúrekafylkinu Texas. Hann sló fyrst í gegn með smellinum Crazy Feeling. Hann hef- ur einnig leikið í fjölda kvikmynda og sjónvarps- þátta. Meðal laga sem orðið hafa vinsæl með honum eru lögin Laura, Lucille og Love Lifted Me. Hann er hamingjusamlega giftur og á þrjú uppkomin börn. Tviburarmr 12 h~> Gildir fyrir miövikudaginn 22. ágúst Vatnsberinn 120. ian,-18. febr.l: ■ Mundu að ekki er allt gull sem glóir. Athug- aðu vel alla málavexti áður en þú byrjar á einhverju sem sýnist færa skjót- fenginn gróða. Rskarnir C19. fRbr.-20. mars): Fólk í þessu merki getur Iveriö hamhleypa til verka en svo koma dagar dagdraumanna þar sem það kemur engu í verk. Þannig er ástandið núna og þú þarft að vakna. Hrúturinn (2í. mars-19. anrih: . Þú hefur samúð með > einhverjum, jafhvel þó að hann sé ekki tengd- ur þér á nokkum hátt. Farðu varlega með upplýsingar eða skjöl í þinni vörslu. Nautið (20. annl-20. mail: Þér var farið að leiðast tilbreytingarleysi hvers- dagslífsins og eru þessir dagar þvi mjög til að kæta þig þar sem þeir eru harla óvenjulegir. Kvöldið verður notalegt. Tvíburarnir 121. maí-?i. iúni): Velgengni þín í dag ' byggist á þvi hvemig þú kemur fram við aðra. Þar tekst þér sérlega vel upp. Happatölur þinar em 9, 18 og 33. Krabbinn (22. iúní-22. iúiíi: Ekki láta vorkenna 1 þér og ekki leita eftir ' hjálp nema veruleg ____ nauðsyn sé á. Þú munt eiga rólegt og gott kvöld. Samvinna skilar góðum árangri. Liónlð (23. íúlí- 22. ágústl: Þú færð frábæra hug- mynd og getur varla beðið með að hrinda henni í framkvæmd. Ekki taka að þér meiri vinnu en þú ert fær um. Mevian (23. áeúst-22. sept.i: Þér gengur ekki vel í viðskiptum eða samn- '».ingagerð í dag og væri * f því betra að láta slíkt bíða betri tima. Ungum og öldn- um kemur vel saman. Vogin (23. sept.-23. okt.): Geröu þér far um að vanda orð þin og eins ef þú lætur eitthvað frá þér fara í rituðu máh. Þá5 verðrn- virkilega tekið mark á þvi hvað þú hefur fram að færa. Sporðdreki (24. okt.-21. nóv.l: Þér finnst tími til kom- inn að breyta til í fé- (lagslifinu og gerðir jkannski rétt í að finna þér nýtt tómstundagaman. Kvöld- ið verður spennandi. Bogamaður (22. nóv.-21. des.l: |Þú þarft að fara gæti- rlega i umgengni við erfitt fólk. Þú lendir í undarlegum kringum- stæðum. Happatölur þínar eru 11, 20 og 36. Steingeitin (22. des.-19, ian.l: Frétt innan fjölskyld- unnar kemur algerlega á óvart og ekki munu allir verða hrifnir. Fé- lagslífið er hins vegar fjörugt og gefandi. DV-MYNDIR EINAR J. I svörtum fötum á sviðinu Hljómsveitin í svörtum fötum sá um að haida uppi fjörinu á lokahátíð sumarbúðanna í Reykjadal. Taminn af f imm ára dóttur sinni Rapparinn Eminem segir að nú hafi loks tekist að temja hann. Það er eng- in önnur en fimm ára gömul dóttir hans sem hefur tekist að róa hann. Eminem átti dótturina Hailie með fyrrverandi eiginkonu sinni, Kim. í textum sínum fer hann miður fógrum orðum um glötuðu ástina sína og hót- ar jafnvel morði. „Þegar ég segist ætla að myrða barnsmóður mína vil ég það kannski en ég gerði það ekki,“ segir hann. Rapparinn virðist ekki taka orð sín of alvarlega og býst við hinu sama af öðrum. „Hver sem tekur þetta al- varlega er tíu sinnum sjúkari en ég,“ segir hann. Blaðberar óskast í eftirfarandi götur Grettisgata Njálsgata Hverfisgata Laugavegur 50-105 Austurbrún Norðurbrún Laugarásvegur Langholtsvegur Kópavogur Marbakkabraut Sæbólsbraut Upplýsingar í síma 550 5000 / 550 5777 Lokahátíð í Reykjadal Dansað í hjólastól / Reykjadal geta fötluð börn notið sín í leik og starfi. - fötluð börn skemmta sér ásamt vinum og fjölskyldu í Reykjadal rétt fyrir utan Mosfells- bæ rekur Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra sumarbúðir fyrir fótluð börn og ungt fólk. Búðirnar eru starfrækt- ar í 11 til 12 vikur hvert sumar og dvelja þar alls um 200 fatlaðir einstak- lingar á þeim tima. Á sumrin dvelur hver einstaklingur yfirleitt eina til tvær vikur í senn í Reykjadal en á vet- urna er boðið upp á helgardvalir. Engu að síður komast færri að en vilja, að sögn Öldu Róbertsdóttur, for- stöðumanns sumarbúðanna. „Það þyrfti annan jafnstóran stað hér við hliðina til þess að við gætum reynt að svara eftirspurn," segir Alda og bætir við að það þurfi að vísa um það bil jafnmörgum börnum frá á hverju ári og komast inn. Eins og gefur að skilja er öll að- staða í Reykjadal sérhönnuð með þarf- ir fatlaðra í huga. Því er yfirleitt ekki að heilsa í hefðbundnum sumarbúð- um sem Alda segir að séu ekki vel í stakk búnar til að taka á móti fótluð- um börnum. „Það hentar kannski ákveðnum fötluðum einstaklingum en alls ekki öllum," segir Alda og bætir við að vissulega sé blöndun fatlaðra og ófatlaðra af hinu góða upp að vissu marki. Fjölmargt stendur börnunum til boða í Reykjadal svo sem útreiðartúr- ar, bátsferðir, sund, íþróttakeppnir, fóndur, leiklist og kvöldvókur. Segir Alda enn fremur að börnin geti sjálf mótað dagskrána eftir getu og áhuga. Hún er ekki í vafa um að dvölin hafi mikið gildi fyrir börnin. „Þau eru alltaf í minnihluta í þjóðfélaginu og þurfa að berjast fyrir sínum tilveru- rétti. Aðstaðan skiptir máli hvert sem þau fara, þau komast ekki hvert sem er. Þau geta ekki labbað inn á hvaða veitingahús sem er og fengið sér að borða. Eins geta þau ekki farið út að skemmta sér hvar sem er. Þetta hefur því gríðarlegt gildi, ekki síst félags- lega, að geta hitt sina jafningja og vera númer eitt,“ segir Alda. Velvild og stuðningur í þjóðfélaginu Alda segir að sumarbúðimar njóti mikillar velvildar úti í þjóðfélaginu og meðal annars hafi mörg fyrirtæki styrkt þær með gjöfum. „Foreldrafé- lögin hjálpa til við að kaupa rúm fyr- ir okkur og annað sem við þurfum. Það þarf til dæmis að kaupa mikið af hjáipartækjum ár hvert. Það er nátt- úrlega mikið þjösn á öllum húsgögn- um og öllum eigum þannig að það þarf að endurnýja mjög reglulega á stað eins og þessum sem tekur 200 börn á sumrin og annað eins á vet- uma,“ segir Alda og bætir við að ef sumarbúðirnar nytu ekki þessarar velvildar fyrirtækja og samtaka væri ekki hægt að halda þessu gangandi. Á laugardaginn var haldin árleg lokahátíð í Reykjadal og komu þá saman flestir þeir sem dvöldu þar í sumar ásamt foreldrum, systkinum eða öðrum aðstandendum. Telur Alda að um 350 manns hafi mætt á hátíðina í þetta sinn. Salurinn var skreyttur hátt og lágt, boðið upp á gómsætar veitingar og þjóðþekktir skemmti- kraftar á borð við Ástu í Stundinni okkar, Pál Óskar Hjálmtýsson og í svörtum fótum komu fram. Allir gáfu vinnu sina og var ekki erfitt að fá þá til að líta inn þrátt fyrir miklar annir, meðal annars vegna dagskrár menn- ingamætur. -EÖJ Vipp-menningin er grunn Iggy Pop slær hvergi af þótt hann sé búinn að fyila ein 54 ár. Hann er nýbúinn að gefa út plötuna Beat Em Up og er kominn langa leið frá dópruglinu frá árunum með The Stoogies. Reglulega er Iggy boðið í veislur hjá fræga, ríka og fallega fólk- inu enda er maðurinn ekki bara rokk- guð heldur fyrirsæta fyrir Reebok-fyr- irtækið. Iggy segist þó ekki gefa mik- ið fyrir þann VlP-lifsstíl og þykir þess- ar glysveislur og fólkið sem þær sæk- ir ekki gefa lífinu mikla fyllingu. Hann segist þó mæta öðra hverju. Hann tekur hins vegar sjálfan sig mátulega alvarlega og getur gert grín að þessu öllu saman. Verð frá 35.500 Allar stærðir EVRÖ Grensásvegi 3 s: 5331414

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.