Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2001, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2001, Qupperneq 24
28 ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2001 Tilvera X>V í f iö Kvöldganga í Viöey í kvöld, þriðjudaginn 21. ágúst, verður farið í næstsíðustu kvöldgönguna í Viðey í sumar. Farið verður um vesturenda eyjunnar sem hefur að geyma listaverk Richards Serra, merks myndhöggvara frá Ameríku. Er verk hans voru sett niður á sínum tíma fundust steinar með áletrunum á frá því búið var á eynni á 19. öld, en Jónas Hallgrímsson hafði á sínum tíma skrifað að eyjan hefði þannig steina að geyma. Áður en í gönguna er haldið verður farið með ferju frá Sundahöfn kl. 19.30 og hefst sjálf gangan í eynni við Viðeyjarkirkju. Ekkert gjald er tekið fyrir leiðsögnina, en hins vegar er ferjutollur, aðeins 400 kr. fyrir fullorðna og 200 kr. fyrir böm. Fólk er beðið um að búa sig vel eftir veðri og er brýnt að vera í góðum skóm. Klassík SUMARTONLEIKAR I LISTASAFNI SIGURJONS OLAFSSONAR A næstsíöustu sumartónleikum í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar þriðjudaginn 21. ágúst nk. klukkan 20.30, koma fram þau Kristín Mjöll Jakobsdóttir fagottleikari og Jón Slgurðsson píanóleikari. Þau munu leika Rómönsu eftir Robert Schumann, Fagottssónötu eftir Ríkarö Örn Pðlsson, Sonatensatz eftir Mikhail Glinka, Rapsódíu fyrir fagott eftir Willson Osborne og verkið La Muerte del Angel eftir Astor Piazzolla. Myndlist ANDLEGT FÓÐUR FRÁ FÆREYJUM Sýning á steinþrykksblöðum frá Grafiska Verkstaðnum í Listasavni Foroya í Þórshöfn Færeyjum, var opnað í sal félagsins íslensk grafík á menningarnótt í Reykjavík í Hafn- arhúsinu. Sýnendur eru listamenn- irnir Bárður Jákupsson, Rannvá Kunoy, Olivur við Neyst, Torbjprn 01- sen, Kári Svensson og Hansina Iver- sen frá Færeyjum, Paul Anker Bech, Jesper Christiansen og Per Kirkeby frá Danmörkuog Roj Friberg frá Sví- þjóö.Sýningin stendur til 9. september og er opin frá klukkan 14 til 18 fimmtudaga til sunnudaga. HREINN FRIÐFINNSSON SÝNIR í UOSAKLIFI I HAFNARFIRÐI Mynlistarsýning Hreins Friöfinnssonar, Eitthvað hvítt, eitthvaö svart og eitthvað hvorki hvítt né svart stendur nú yfir í Ljósaklifi í Hafnarfirði. Sýningin er opin föstudaga, laugardaga og sunnudaga frð kl. 14 til 18 til 3. september. Aögangur er ókeypis. HELGI ÞORGILS í BORGARNESI Um þessar mundir stendur yfir sýning Helga Þorgils í Listasafni Borgarness sem ber yfirskriftina Landslag. Þar sýnir listamaðurinn í fyrsta skipti á sínum ferli landslagsmyndir einvöröungu og er myndefniö einkum sótt til náttúrufegurðar Borgarfjaröar og Dala. Listasafn Borgarness er til húsa í Safnahúsi Borgarfjarðar, Bjarnabraut 4-6, Borgarnesi, og verður sýningin opin a sama tíma og safnið, þriðjudaga- og fimmtudaga frá kl. 13-20 en alla aðra daga frá kl. 13 til 18, fram til 25. ágúst en aö þeim tíma liðnum er lokað um helgar. Sýningin stendur til 7. september. Sjá nánar: Lífið eftir vinnu á Vísi.is DV-MYNDIR EINAR J. Söngelskir bræður Otsen-bræöur léku á als oddi á Broadway um helgina, sungu, spiluöu og spjölluöu viö gesti. Olsen Olsen á Broadway Hilmar -w-t- S 1 f* 1 • • S "pv / Karlsson Kinversk ofurlogga 1 Paris Upprennandi Olsen-bræður Þessir ungu menn sátu hugfangnir á fremsta bekk og nutu tóniistarinnar. Þaö fytgir ekki sögunni hvort þeir eru bræöur en kannski eiga þeir ein- hvern tíma eftir aö troöa upp sjálfir meö kassagítar aö vopni. Olsen-bræðumir dönsku heilluðu gesti skemmtistaðarins Broadway upp úr skónum um helgina. Bræð- urnir knáu, sem sigruðu glæsilega í Söngvakeppni evrópskra sjónvarps- stöðva um árið með laginu Fly on the wings of love, héldu tvenna tón- leika í borginni og var fullt út úr dyrum i bæði skiptin og stemningin eftir því. Áhorfendur voru á öllum aldri, allt frá bömum til gamal- menna. Húsmæður á besta aldri voru þó sérstaklega áberandi í áhorfendahópnum enda eiga hjartaknúsaramir auðvelt með að töfra þær með söngvum sínum. Sam-bíóin - Kiss of the Dragon Kínversk lögga í Paris Jet Li sýnir hvaö i honum býr í vel útfæröri slagsmálamynd. Á síðustu árum hafa Jackie Chan og Jet Li tekið við af Steven Seagal og Jean Claude Van Damme sem of- urhetjur slagsmálanna og er ástæð- an fyrst og fremst þeirra útfærsla á austurlenskum sjálfsvamaríþrótt- um þar sem þeir nánast gera atrið- in að ballett. Þeir félagar Chan og Li eru þó sama marki brenndir og Seagal og Van Damme að of mikið er um endurtekningar að ræða í myndum þeirra. Til að losna út úr viðjum vanans hóf Jackie Chan far- sælt samstarf við Chris Tucker sem sjá má í Rush Hour myndunum tveimur og Jet Li færði sig til Frakklands þar sem Luc Besson tók honum opnum örmum og saman unnu þeir handritið að Kiss of the Dragon, sérlega líflegri og oft á tíð- um skemmtilegri slagsmálamynd þar sem allt raunsæi er látið liggja milli hluta og eingöngu hugsað um að hafa hraðann sem mestan, stíl- færa slagsmálatriði og gera stóran greinarmun á þvi góða og hinu illa. Segja má að Kiss of the Dragon sé í útfærslu byggð upp eins og teikni- mynd í anda Supermans og Bat- mans, svo einhverjar ofurhetjur teiknimyndanna sé nefndar. Við höfum ofurhetjuna, kínverskan lög- regluþjón, Liu (Jet Li), sem kemur til Parísar til að aðstoða frönsku lögregluna við að leysa sakamál sem tengist Kína. 1 París kemur í ljós aö versti óvinurinn er franski lögregluforinginn, Richard, (Tchéky Karyo) sem er miskunnarlaust fól (þó aldrei komi almennilega í ljós af hverju hann hefur snúið sér að glæpum í stað þess aö sinna lög- reglustörfum) og hefur hann alla frönsku lögregluna á bak við sig. Og þar sem Liu getur reynst honum hættulegur þá er ekki sökum að spyrja að hann er hundeltur um alla París og áður en yfir lýkur er hann búinn að fækka lögreglunni í París að minnsta kosti um helming. Skemmtangildi Kiss of the Dragon felst í hinum íjölmörgu slagsmálaatriðum sem krydduð eru með húmor sem stundum er nokkuð dökkur. Dæmi um góðan húmor og listilega vel útfært bardagaatriði er þegar Liu ræðst til inngöngu á lög- reglustöðina í París og lendir óvænt í sal þar sem um þrjátíu franskir lögreglumenn eru í júdókennslu. Að sjálfsögðu liggja þeir allir í valnum þegar Liu hefur lokið sér af. Þetta atriði og önnur álíka gera það að verkum að Kiss of the Dragon er bíóferðarinnar virði. Á móti kemur væmin saga um góðu melluna sem kínverska löggan vorkennir og bjargar hann henni og barni hennar úr klónum á Richard. Sú ágæta leik- kona Bridget Fonda á ekki góðan dag i þessu litlausa hlutverki. Lelkstjóri: Chris Nahon. Handrit: Robert Mark Kamen og Luc Besson, eftir hug- mynd Jet Lis. Kvlkmyndataka: Thierry Arbocast. Tónlist: Craig Armstrong. ABal- hlutverk: Jet Li, Bridget Fonda og Tchéky Karyo.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.