Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2001, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2001, Page 25
ÞRIÐJUDAGUR 21. ÁGÚST 2001 I>V 29 Tilvera J Bíófréttir Rat Race há- stökkvari vikunnar Þrjár nýjar myndir eru á listanum yfir tíu mest sóttu myndirnar í Bandaríkjunum um síðustu helgi. Myndin Rat Race hoppar beint upp í þriðja sæti en myndin þykir bæði í senn yfirgengilega vit- laus og drepfyndin. Myndin sem er með þeim Cuba Good- ing Jr. og Jon Lovitz í aðal- hlutverkum þykir í anda gamanmynda eins og Mad, Mad, Mad World og Airplane. Captain Coreelli¥s Mandol- in sem gerð er eftir skáldsögu Louis de Bernieres fór í sjötta sæti og American Outlaws í það áttunda. Að öðru leyti er litið að gerast á listanum, American Pie og Rush Hour 2 eru í fyrsta og öðru sæti American Pie 2 Myndin byggist á sömu formúlu og fyrri myndin en þykir iakari aö öllu leyti. eins og um síðustu helgi. Apa- plánetan og aðra myndir færast neðar. -Kip HELGIN 17.-19. ágúst ALLAR UPPHÆÐIR I ÞUSUNDUM SÆTI FYRRI VIKA titill INNKOMA HELGIN: INNKOMA ALLS: FJÓLDI BÍÓSALA O 1 American Pie 2 21.104 87.280 3072 e 2 Rush Hour 2 19.024 164.656 3080 o - Rat Race 11.662 11.662 2550 o 4 The Other 10.906 32.468 2153 o 3 The Princess Dlaries 9.614 70.241 2726 o - Capt. Corelli's Mandolin 7.209 7.209 1594 o 5 Planet of the Apes 7.142 161.238 3059 o - American Outlaws 4.855 4.855 2348 o 6 Jurassic Park III 4.440 168.327 2516 © 9 Legaliy Blonde 2.575 83.345 1770 © 7 Osmosis Jones 2.504 10.256 2305 © 8 America's Sweethearts 2.308 87.761 1948 © 11 The Score 1.820 65.516 1148 © 10 Original Sin 1.112 15.113 1279 © 15 Dr. Dolittle 2 776 109.910 730 © 12 Spy Kids 764 110.844 1202 © 13 Cats and Dogs 692 90.920 924 © 14 The Fast and the Furious 681 140.434 671 © 33 The Deep End 641 984 58 © 16 Shrek 538 260.444 561 Brúðkaupsráög j af- inn á toppnum Rómantíska gamanmyndin The Wedding Planer fór alla leið í efsta sæt- ið sína fyrstu viku á myndbandalistan- um og ýtti því stórmyndinni Traffic nið- ur í annað sætið. Myndin segir frá Mary Fiore sem er einn snjallasti og færasti brúðkaupsráðgjafinn í San Francisco. Mary eyðir öllum tíma sín- um í vinnuna og gleymir því í leiðinni að hugsa um sitt eigið einkalíf. Smáó- happ verður hins vegar til þess að hún brýtur grundvallarreglu brúðkaupsráð- gjafans og verður ástfangin af brúðgum- anum. Það eru þau Jennifer Lopez og Matthew McConaughey sem fara með aðalhlutverkin í myndinni. Cast Away Tom Hanks situr enn sem fastast í þriðja sætinu og 15 minutes sem var í öðru sæti í síð- ustu viku hrapar alla leið í sjöunda sætið. The Wedding Planer er ekki eina nýja myndin á listanum því fjórar aðra kom- ast á topp tuttugu. Ein þeirra er Remem- ber the Titans sem skartar stórleikaran- um Denzel Was- hington í aðalhlut- verki og fór hún beint í sjötta sætið. Aðrar nýjar myndir á listan- um eru State and Main, Dungeons and Dragons og The Boondock Saints. Meðal þeirra mynda sem féllu út af listan- um eru myndirnar Bless the Child og Family Man. -MA FYRRI VIKUR SÆTl VIKA TITILL (DREIFINGARAÐILI) Á USTA o Ný The Wedding Planer imyndformi 2 e 1 Traffic (sam myndbönd) 3 © 3 Cast Away (Sam myndbönd) 3 © 8 Memento isam myndbónd) 2 © 4 Dude, Where's My Gun (skIfanj 4 © Ný Remenber the Titans (sam myndbönd) 6 o 2 15 Minutes imyndform) 4 0 9 Findlng Forrester (Skífan) 1 © 5 Billy EllÍOt (SAM MYNDBÖND) 1 © Ný State and Main (háskólabIó) 8 © 7 Way of the Gun (sam myndböndi 5 © 6 Vertical Limit (skIfan) 8 © 10 Meet the Parents (sam myndbönd) 7 © Ný Dungens and Dragons iskIfan) 3 © Ný The Boondock Saints (bergvíki 8 © 11 Pay it Forward isam myndböndi 1 © 16 Replicant (myndformi 5 © Ný The Yards iskífan) 11 © 13 Unbreakabie isam myndbönd) 7 © 12 CCrouching Tiger, Hidden ... iskIfan) 12 DV-MYNDIR EINAR 1. Smakkað á verðlaunasultu Ýmsar uppákomur eru á markaönum um hverja helgi til aö krydda tilveruna. Nú um helgina fór fram sultu- geröarkeppni og gafst gestum og gangandi tækifæri til aö smakka á verölaunasultunum. Slakað a Búiö er aö koma upp borðum og stólum á markaöin- um svo að fólk geti sest niöur og hvílt lúin bein og jafnvel fengiö sér eitthvaö gott í gogginn. Markaðsstemning í Mosskógum Síðastliðin fjögur ár hefur verið starfræktur útimarkaður í Mosskóg- um í Reykjadal rétt fyrir utan Mos- fellsbæ. Þar er hægt að kaupa græn- meti og aðrar matvörur, svo sem franskar matarolíur og reyktan flsk. Grænmetið er allt ræktað í næsta ná- grenni og er því alltaf nýtt og ferskt. Markaðurinn lætur ekki mikið yfir sér en dregur engu að síður tO sín fjölda gesta um hverja helgi. Að sögn Jóns Jónassonar sem sér um rekstur- inn hefur markaðurinn lítið verið auglýstur én þetta hafi spurst út og fastur kjarni viðskiptavina hafi myndast. Markaðurinn í Mosskógum er starf- ræktur hverja helgi frá þvi í lok júli fram í miðjan september ef kostur er. Segir Jón það fara eftir hvenær það frysti hversu lengi markaðinum sé haldið opnum. Sjálfur er Jón á kafi í grænmetisrækt og sölu á sumrin en á veturna vinnur hann sem glerlista- maður. Laugardaginn 1. september næstkomandi ætla markaðsmennimir í Mosskógum að halda sína árlegu uppskeruhátíð og verður þá mikið um dýrðir að sögn Jóns. „Það verður stór bálköstur hérna og síðan fáum við Brak og bresti, frægustu lúðrasveit í Mosfellsbæ, til að spila fyrir okkur,“ segir Jón og bætir við að í fyrra hafi ekki ómerkari hljómsveit en Skíta- mórall skemmt á uppskeruhátíðinni. „Þeim fannst svo gaman hér að þeir nenntu ekki upp á Akranes þar sem þeir áttu að spila seinna um kvöldið,“ segir Jón og lofar ekki minna stuði í ár. -EÖJ I kálgarðinum Dísa á Skeggjastööum og Jón Jónasson, umsjónar- maöur markaöarins i Mosskógum, glöö og ánægö i kátgaröinum þrátt fyrir úrkomuna. Selja lífrænt Kristján Ingi Jónsson og Fjóla Guðmundsdóttir selja lif- rænt ræktað krydd og grænmeti undir nafninu Lífrænt viö iækinn. Þau hófu aö selja vörur sínar á markaðin- um í fyrrasumar og láta vel af. Myndlistarmenn opna gallerí í Keflavík Listakonur Ásta Árnadóttir og Soffía Þorkelsdóttir, myndiistarkonur í Keflavík, önnuö- ust um sýninguna þegar Ijósmyndara bar aö garöi. DV. SUDURNESJUM:__________________ Myndlistamenn á Suðumesjum hafa opnað listagallerí í Svarta pakkhúsinu við Hafnargötuna í Keflavík í þeirri viðleitni að fá ferðamenn til að staldra við í bæn- um. Ásta Árnadóttir listmálari seg- ir að sýningin, sem 12 myndlistar- menn í bænum standa að, höfði til útlendinga á hótelum bæjarins, sem hafa kannski fátt við að vera, og einnig til fólks af flugvellinum, sem nú er orðinn vinabær Keflavíkur. Á Ljósanótt í Keflavík 1. septem- ber verður skipt um sýningu í pakk- húsinu. íbúar bæjarins bíða spennt- ir eftir þeim degi, sem tókst svo yel í fyrra. Ásta segir að verk eftir Ás- mund Sveinsson, sem var komið á kaf á milli skólabygginga bæjarins, hafi verið flutt og verði vígt að nýju á viðeigandi stað þar sem verkið mun njóta sín. Ásta segir að áhugi á myndlist sé mikill og þakkar það Eiríki Smith, listmálara. „Ég lærði fyrst hjá Kurt Zier og Þorvaldi Skúlasyni hérna í Hand og mynd. Svo kom Eiríkur hingað í hverri viku suður eftir og hann var frábær kennari og þykir alltaf vænt um okkur," sagði Ásta Árnadóttir. -JBP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.