Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2001, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2001
I>V
Fréttir
Brúin yfir Noröfjarðará löskuð vegna vatnavaxta
Norðfirðingar einangraðir, án
farsíma og vatnsból skemmt
Gífurlegt úrfelli og vatnavextir í
ám á Austurlandi hefur valdið
miklum skriðuföllum á veginn um
Eskifjarðarströnd og var vegurinn
þar lokaður í morgun sem og frá
Neskaupstað allt suður á Breiðdals-
vík. Skriöa féll á veginn á Eski-
íjarðarströnd á sama stað og stór
spýja féll fram fyrir þremur árum
en alls féllu 5 skriður á veginn
milli Eskiíjarðar og Reyðarfjarðar.
Nokkrar kindur drukknuðu í
vaxtavöxtunum á Skriðdal, en í
morgun var búið að opna veginn
þar sem um Fagradal, en veginum
þar var lokað um tíma vegna grjót-
hruns á hann, en var opnaður í
morgun. Lögreglan á Egilsstöðum
stóð í nótt vakt við brúna yfir Ey-
vindará þar sem grafið haföi undan
einum stöplinum en brúin stóðst
átökin, en yfirborð árinnar hækk-
aði um 4 metra þegar mest var.
Mikill vöxtur í Noröfjarðará gróf
undan stöplum undir brúnni yfir
ána og seig hún um a.m.k. 80 cm og
var henni lokað fyrir umferð þar
sem hún var öll orðin undin og
skökk. Um er að ræða gamla brú
sem lagðir voru járnbitar á, og að
sögn talsmanns Vegagerðarinnar
DV-MYNDIR HELGI GARÐARSSON
Miklir vatnavextir og aurskriður
Vatnavextir í ám og lækjum á Austurlandi voru gríðarlegir í
kjölfar mikils úrhellis. Alls féllu flmm aurskriður á veginn milli
Eskifjarðar og Reyðarfjarðar. Fleiri vegir lokuðust einnig vegna
vatnavaxtanna.
er óvíst að brúin þoli frekara
hnjask og kann að vera ónýt. Von
var á brúarverkfræðingi austur í
morgun með fyrstu áætlunarflug-
vél, en hann kemst ekki til Norð-
fjarðar nema vegur-
inn um Eskifjarðar;
strönd opnist. í
morgun hafði stytt
upp fyrir austan en
regnsvæðið er að ganga norður yflr
landið.
Norðfirðingar eru því innilokað-
ir meðan Norðfjarðará er úr leik,
og ef ekki tekst að gera við brúna
og leggja þarf ræsi í ána gæti það
ástand ríkt í nokkra daga því áin
er það vatns-
mikU að ekki er
hægt að aka
hana á vaði.
Leiðigarðar við
vatnsból Norð-
flrðinga gáfu
sig einnig og
sópuðust algjör-
lega burt, en
þeir eru til að
auka vatns-
rennsli í tjöm.
Vatnsmálin
kunna því
einnig að vera í
hættu auk þess
sem ljósleiðar-
inn til Neskaup-
staðar fór í
sundur og ekk-
ert samband er
þar í farsíma.
-GG
Sigurður G. hættur hjá Skógræktinni:
Félagið starfar
eftir nýju skipuriti
og starfslýsingu
Sigurður G. Tómasson hefur
látið af störfum sem fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags
Reykjavíkur vegna skipulags-
breytinga hjá félaginu í kjölfar
endurskoðunar á starfi félags-
ins sem unnin var af Endur-
skoðun Deloitte & Touche.
Ákvörðunin var byggð á því
skipuriti og starfslýsingu sem
frá þeim kom. Sigurður hafði
starfað hjá félaginu um tveggja
ára skeið. Að hans ósk tóku starfslok-
in þegar gildi. Þórður Þórðarson lög-
fræðingur er stjórnarformaður Skóg-
ræktarfélagsins. Hann segir að ekki
hafi verið um samstarfsörðugleika
milli hans og Sigurðar að ræða. Ekki
hefur verið ráðinn nýr framkvæmda-
stjóri en Vignir Sveinsson hefur verið
settur framkvæmdastjóri en hann hef-
ur verið umsjónarmaður
Heiðmerkursvæðisins til
margra ára.
„Rekstur Skógræktarfélags
Reykjavíkur gengur mjög vel
en hins vegar hefur það skipu-
lag sem verið hefur við lýði
ekki fallið að hlutverki félags-
ins eins og það er í dag eftir
að samkeppnisráð úrskurðaði
að félaginu væri óheimilt að
framleiða skógarplöntur og
garðplöntur. Skipulag félagsins hefur
ekki verið endurskoðað frá þeim tíma
svo endurskoðun Deloitte & Touche
var orðin aðkallandi. Það má segja að
félagið hafi verið orðið ofmannað og
þetta kallaöi á annars konar mann í
starfið. Ekki verður auglýst eftir
framkvæmdastjóra að sinni,“ segir
Þórður Þórðarson. -GG
Ekið hjá öldruðum dv-mynd hari
Framkvæmdir standa nú yfir við mislæg gatnamót á Reykjanesbraut. Lögð
hefur veriö akbraut til bráöabirgða fram hjá íbúðum aldraðra í Mjódd meðan
þessar framkvæmdir standa yfir, eins og myndin sýnir. Göturnar verða færö-
ar í fyrra horf að framkvæmdum loknum.
Aðgerðir ríkisstjórnar tryggja öllum sauðfjárbændum grundvallarverð:
Byggðastofnun tryggir öllum
afurðastöðvum afurðalán
Ríkisstjórnin
fjallaði á fundi sín-
um í gærmorgun
um rekstrarerfið-
leika sláturleyfis-
hafa en starfshópur
sem landbúnaðar-
ráðherra skipaði
hefur skilað skýrslu
um málið. Starfs
hópurinn átti m.a
að fjalla um íjár
mögnun birgða og lækkun vaxta
kostnaðar og tryggja öllum sauðfjár
bændum slátrun fyrir sitt fé. Ríkis
stjórnin samþykkti vegna þessa
gríðarlega vanda og óvissu í sauð-
Qárslátrun að fela Byggðastofnun að
koma að afurðalánamálum slátur-
leyfishafa með baktryggingu í
bankakerfinu. Það þýðir að afurða-
lánakjör verða miklu betri og við
Guðni
Ágústsson.
það sparast miklir fjármunir án þess
að tekin sé mikil áhætta, að mati
Guðna Ágústssonar landbúnaðar-
ráðherra, því það sé óþekkt að bank-
amir séu að tapa á afurðalánum
gagnvart lambakjöti. Þetta réttir af
stöðu sauðfjárræktarinnar og von-
andi sé þama fundin leið til framtíð-
ar. Goði fékk ekki afurðalán haustið
2000 og þá hlupu m.a. Kaupfélag
Héraðsbúa og Kaupfélag Austur-
Skaftfellinga undir bagga og fengu
afurðalán fyrir sína viðskiptavini
sem slátruðu hjá Goða.
Ráðherra segir að þama sé fyrst
og fremst verið að tryggja að fyrir-
tækin í sauöfjárslátrun, sem eru illa
stödd, fái þessi afurðalán. Þessari
vinnu þurfi að ljúka fljótt en fram-
kvæmdastjóri Byggðastofnunar,
Theodór Bjarnason, var í nefndinni
og auk þess fylgdust byggðamálaráð-
herra, Valgerður Sverrisdóttir, og
stjórn Byggðastofnunar náið með
málinu.
Þýðir þetta aó sauófjárslútrun,
sem hefur víða verið í mikilli óvissu,
sé komin á þann grundvöll sem
bœndur geti verið sáttir við?
„Ég vona það og að hægt verði að
slátra í fleiri húsum og heima í flest-
um héruðum svo hvergi verði um
langan flutning aö ræða á sláturfé.
Enn fremur þýðir þetta það að þeir
bændur sem voru að fá mjög slæmt
tilboð um verö á lambakjötinu t.d.
frá Goða, nú Kjötumboðinu, geti
greitt úr því með mun lægri vöxtum
svo grundvallarverð fáist fyrir af-
urðina til allra sauðfjárbænda í
landinu. Ég get auðvitað ekki fullyrt
að Kjötumboðið eða aðrir greiöi
svipað verð og Sláturfélag Suður-
lands en Kjötumboðiö, sem var mjög
illa statt og var með mjög háa af-
urðalánavexti miðað við sína stöðu,
fær það góð kjör að bændur fá sitt. ’
Þetta snýr aðeins að afurðalánun-
um. Það er ekki verið að lækka vext-
ina hjá Kjötumboðinu, t.d. hvað
varðar fjárfestingar þess fyrirtækis.
Sauðfjárræktin hefur átt erfitt en
býr við þá sérstöðu að hún er eina
kjötgreinin sem þarf að slátra öllu
sínu fé á einum til tveimur mánuð-
um og geyma það í allt að einu ári.
Þetta réttlætir þá stöðu. Meö þessari
aðgerð eru fyrirtækin beitt þrýstingi
til að ná sömu hagkvæmni og aðrar
búgreinar en til þess verður m.a. að
lengja sláturtímann til muna.
Ég vona að nú geti menn farið að
líta til bjartari tíma þegar þetta erf-
iðleikatímabil er að baki og hér hefj-
ist ný þróun,“ segir Guðni Ágústs-
son landbúnaöarráðherra. -GG
Byggt á nýrri veiðireynslu
í nýjum kvótalög-
um er byggt á veiði-
reynslu áranna
2000-2001. „Þeir
sem hafa verið að
róa síðasta ár fá að-
stoð með auknum
kvóta. Það er ekki
hægt að hjálpa
þeim meira í gegnum fiskveiði-
stjórnunarkerfið." Aðstoð á t.d.
byggðargrundvelli er þó líka hægt
að skoða, segir Ámi M. Mathiesen
sjávarútvegsráðherra. - Fréttablað-
iö greindi frá.
Salmonella í kjúklingum
Könnun Hollustuverndar á
salmonellusýkingum í kjúklingum á
matvælamarkaði leiddi í ljós að 8%
sýnanna voru menguð af salmon-
ellu. Þrjú sýni af 37 reyndust sýkt.
Uppselt hjá Carreras
Uppselt er á tónleika spænska
tenórsins José Carreras, sem haldn-
ir verða í Laugardalshöll í október
nk., en miðar hafa selst fyrir 40-50
milljónir króna. Búist er við 3.800
tónleikagestum en ódýrustu mið-
amir kosta 5.500 krónur, þeir dýr-
ustu 25 þúsund krónur. - Sjónvarp-
ið greindi frá.
Merkur fornleifafundur
Rústir húss og beinagrind fund-
ust við fornleifauppgröft við bæinn
Hrísbrú í Mosfellsdal í fyrradag.
Virðist vera um kirkju og grafreit
að ræða, jafr.vel frá því um kristni-
töku. Hópur bandarískra og norskra
fræðimanna, undir stjórn Jesses
Byocks, prófessors í fornnorrænu
og fornleifafræði við Kaliforníuhá-
skóla, vinnur að uppgreftrinum.
Sekt vegna landhelgisbrots
Héraðsdómur Vestfjarða úrskurð-
aði í gær að skipstjórinn á togskip-
inu Aðalvík SH 344, sem var í fyrra-
dag tekið að meintum ólöglegum
veiðum innan 12 mUna fiskveiðilög-
sögu út af Barða, skyldi greiða
1.200.000 króna sekt í Landhelgis-
sjóð. Einnig voru afli og veiðarfæri
gerð upptæk.
Björk slær í gegn
Björk Guðmunds-
dóttir er á tónleika-
ferðalagi um þessar
mundir og hélt
fyrstu tónleika ferð-
arinnar í Grand
Rex-leikhúsinu í
Montmartre í
Frakklandi í gær.
tónleikunum og var
Skemmdir I göngum
Töluverðar skemmdir urðu í
Ólafsfjarðargöngum i gær þegar bíll
sem var yfir leyfilegri hæð ók í
gegnum göngin. Bíllinn eyðilagði
klæðningu i lofti og járn sem bind-
ur hana. Lofthæð í göngunum er 4,3
metrar en hámarkshæð bíla sem í
gegnum göngin aka er 4,2 metrar.
Skotfæraleit lokiö
Leit að vopnum og skotfærum i
flaki E1 Grillo er lokið. Danskir kaf-
arar og starfsmenn Landhelgisgæsl-
unnar hafa athafnað sig yfir skips-
flakinu frá varöskipinu Tý en það
hefur nú lagst að bryggju á Seyðis-
firði.
Verðhækkun á mjólk?
Að mati Lands-
sambands kúa-
bænda þarf mjólk-
urverð til framleið-
enda að hækka um
6% en stjórn sam-
bandsins hefur ósk-
að eftir enduskoðun
á verðinu 1. septem-
ber nk. - RÚV greindi frá.
-HKr.
Troðfullt var á
Björk vel tekið.