Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2001, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2001, Side 4
MIÐVIKUDAGUR 22. AGÚST 2001 Fréttir I>V Hörð átök heilbrigðisnefndar og heilbrigðisfulltrúa Suðurlands: Hjartakast í kjölfar áreitis - framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlitsins lenti á sjúkrahúsi Matthías Garðarsson, fram- kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, fékk hjartakast í kjöl- far áreitis Heilbrigðisnefndar Suð- urlands, sem staðið hefur undan- famar vikur og mánuði, að hans sögn. Matthías hefur átt við alvar- leg veikindi aö stríða og hefur verið í árs veikindaleyfi. Engu að síður hefur Heilbrigðisnefnd Suðurlands krafið hann ítrekað um skriflegar skýringar vegna viðtals er birtist við hann í DV 25. maí sl. Þá hefur nefndin boðað hann á fund vegna málsins. Eins og fram kom í DV í gær standa enn hörð átök milli heil- brigðisnefndarinnar og Heilbrigðis- eftirlits Suðurlands um tjáningar- frelsi heilbrigðisfulltrúanna í fjöl- miðlum. Viðtal við Birgi Þórðarson heilbrigðisfulltrúa vegna átaksverk- efnis landbúnaðarráð- herra, „Fegurri sveitir 2000“, varð tilefni til þess að heilbrigðisnefnd- in hóf ítrekaðar bréfa- skriftir til hans og bók- aði um málið á hverjum einasta fundi sínum um langa hrið. Var Birgir krafinn svara um á hvaða heimild ákvörðun hans um að veita DV viðtal hafi grundvallast. Þegar Matthías lýsti síðan yfir fullum stuön- ingi við starfsfélaga sinn í viðtali við DV 25. maí sl. hóf nefndin þegar að krefja hann skýringa og boða hann á fund þrátt fyrir að hann væri að jafna sig eftir mikið áfall. í kjölfarið fékk hann hjartakast, eins og áður sagði, og var fluttur á sjúkrahús og neyðar- móttöku. þurfti Matthías í aðra stóra höfuð- aðgerð vegna þessa. Við þetta lam- aðist hann algerlega hægra megin og missti málið. Þegar hann var farinn að jafna sig eftir aðgerðirnar var hann flutt- ur á sjúkrahús Selfoss. Hann var rétt útskrifaður þaðan þegar hann fárveiktist. Reyndist um að ræða salmonellusýkingu, tiphymurium. „Þetta voru ólýsanlegar kvalir,“ seg- ir Matthías, sem var hafður í ein- angrun um skeið og léttist um ein 20 kíló. I desember sl. komst hann svo loks í endurhæfingu á Grensási. Umsjónarlæknir hans þar fyrirskip- aði árshvild til þess að Matthias næði sér að fullu eftir aðgerðirnar og veikindin. Hann yrði að passa sérlega vel að lenda ekki í streitu né áreiti af neinu tagi. DV-MYNDIR HILMAR ÞÓR Fundargeröir á Netínu Heilbrigöisnefnd Suöurlands birtir fundargeröir sínar á Netinu þar sem allir eiga greiðan aögang aö þeim. Góöur vinur Matthías stundar gönguferöir til, aö efla heilsuna. ísienska tíkin sem hann á tekur virkan þátt í þeim Alvarlegt höfuðmein Það var um miðjan september í fyrra sem Matthías kenndi alvar- legs meins í höfði. Var hann fluttur meö hraði á sjúkrahús í Reykjavík þar sem gerð var mikil aðgerð á honum. Reyndist um að ræða hæg- fara blæðingu inn að heila eftir fall sem hann hafði hlotið í júlímánuði þegar hann var á leið til vinnu sinn- ar. Stór blóðgúlpur hafði myndast milli heila og höfuðkúpu og var hann fjarlægður. Tíu dögum síðar Irafár í nefndinni Þegar Matthías hvarf frá störfum vegna veikinda höfðu hann og Birg- ir heilbrigðisfulltrúi átt í langvinnu stríði við heilbrigðisnefndina í kjöl- far umfjöllunar fjölmiðla um campylobactermengun í kjúklinga- búinu að Ásmundarstöðum. „Lengst af fékk ég frið heima,“ segir hann. „En ég hafði alltaf áhyggjur af starfsfélaga mínum sem stóð einn í stríðinu. En eftir að ég lýsti yfir stuðningi við hann i DV varð írafár í heilbrigðisnefndinni. Ég var boðaður á hennar fund með tölvupósti. Upplýsingar um fundar- efni fengi ég hjá formanni hennar. Ég var óneitanlega undrandi á þessu þar sem ég var í veikindaleyfi og nefndin var með vottorð og allar upplýsingar um mig frá læknum. Við Heimir Hafsteinsson, formaður nefndarinnar, töluðum saman í síma. Ég tjáði honum að ég myndi ekki mæta á fundinn þar sem ég væri í veikindaleyfi og ætti að forð- ast allt álag. Þá fór nefndin bréflega fram á skriflegar skýringar mínar á viðtal- inu og jafnframt var ítrekað að ég ætti að mæta á fund hennar. Við Heimir ræddum aftur saman í síma og ég gerði grein fyrir afstöðu minni og orðum í DV. Allt þetta streð reyndi töluvert á mig. En þegar ég svo las fundargerð nefndarinnar eftir þennan fund 23. júli sl. á Netinu varð mér svo um aö ég endaði inni á sjúkrahúsi með eins konar hjartaáfall. í fundargerð- inni stóð að ég hefði verið boðaður á fund en ekki mætt. Einnig, að nefndin hefði ákveðið að ítreka fyrra bréf til mín. Ekkert um veik- indaleyfi mitt. Bara gefið opinber- lega í skyn að ég hefði ekki mætt og væri ekki að standa mig.“ Matthías kvaðst hafa fengið sáran verk fyrir hjartað og út i vinstri höndina þegar honum brá við lest- urinn. Hjartað hafi farið að slá ofsa- lega, en siðan hefði komið eitt og eitt slag á stangli. Hann dvaldi á sjúkrahúsi Suðurlands um nóttina en var síðan fluttur suður á neyðar- móttöku, þar sem hann var rann- sakaður hátt og lágt. „Landsbyggðarvandamár Matthías hyggst hefja störf um leiö og læknar leyfa honum það. En fyrst liggur leið hans á Grensás- deild, þar sem hann fer í eins konar stöðumat. „Ég vona bara að heilbrigðis- nefnd beri gæfu til þess að beina kröftum sínum einungis í þágu þeirra sem hún á að starfa fyrir, þ.e. fólksins í landinu," segir hann. „Ég hef fengið það framan í mig að ég sé „landsbyggðarvandamál" og sé að reyna að koma óorði á Suðurland, enda hef ég aldrei látið hagsmuna- gæslu í héraði ráða ferðinni. Ég er opinber starfsmaður og starfa sam- kvæmt minni bestu samvisku. Ég leitast við að benda á úrbætur þar sem þeirra er þörf og koma upplýs- ingum og hvatningum til almenn- ings er efla heilbrigði og hollustu- hætti. Þaö er skylda mín og þannig mun ég starfa í framtíðinni.“ Heimir Hafsteinsson, formaður heilbrigðisnefndarinnar, hefur neit- að að tjá sig um þetta mál við DV. Veðríö í kvöld HH9HI bi£ sJíi/ii/iidJ Veðriö á morgun REYKJAVIK Sólariag í kvöld 21.19 Sólarupprás á morgun 05.43 Síbdegisflób 20.57 Árdeglsfióö á morgun 09.24 Skýring&Y á vsburtéknum k VINDÁTT 10V-HITI -10“ VINDSTYRKUR 1 metrum á sekúndu r AKUREYRI 21.14 05.18 01.30 13.57 110 ^FROST Skúrir öðru hverju sunnanlands Sunnan kaldi, 8 til 10 m/s, en lægir síðdegis norðanlands. Skýjaö með köflum norðan-lands en skúrir eöa rigning öðru hverju sunnan til. Hiti 10 til 18 stig aö deginum, hlýjast norðanlands. ÁD £3 ö IETTSKÝJAÐ HÁLP- SKÝJAÐ SKÝJAÐ AISKÝJAO í'Ql Q 4 4Í*5A 1 kJ % & RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓKOMA OV V o °w W = ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR POKA r4TíVí# -tjg, Æ. 10^ Ástand fjallvega OrMúókult Ófært í Breiðdal -"'■hh: Ófært er í Breiödal við Höskuldsstaöi og um Öxi, fært er frá Reyöarfirði M suður um Suðurfjarðaveg. Unniö er að UnöokBlf hreinsun á vegi frá Reyöarfirði til »: t’/s > #' VBömjokiiH Eskifjarðar og Noröfjarðar. Fært er um . aðra helstu þjóðvegi landsins, víða um mm 1 fúrá j^Wl, landið er unnið aö vegagerö og eru vegfarendur beðnir að sýna tillitsemi. V®ö)r á tkyggöum sva»óum íýnUiaJofcoil •ru lokiftlr þar til annaft vwsur Bugiyst www.vogag.ls/faard Austlæg átt ríkjandi Austlæg átt, 8 til 10 m/s vestast og með suöurströndinni en annars hægari. Skýjaö með köflum noröanlands en skúrir eða rigning öðru hverju sunnan til. Hiti 10 til 18 stig að deginum, hlýjast noröanlands. Vindur:' 3-8 m/% Hiti 10“ til 16” Austlæg átt, 3 tll 8 m/s. Súld eða rignlng meft köflum suöaustan- og austanlands en annars skúrlr. Hltl 10 tll 16 stlg, hlýjast vestanlands. Laugar Vindur. 3-5 nv's’ý Hiti 8° til 16° Fremur hæg norölæg átt. Rignlng eöa súld noröan- og austanlands en léttlr tll syöra. Hltl 8 til 16 stig, hlýjast sunnanlands. Hiti 8° til 16° Hæg norölæg átt, skúrlr noröaustan tll en annars skýjaö meö köflum eöa léttskýjaö. Hitl 8 tll 16 stlg aö deglnum, hlýjast sunnanlands. -JSS AKUREYRI skýjaö 12 BERGSSTAÐIR alskýjaö 12 BOLUNGARVÍK rigning 10 EGILSSTAÐIR skýjaö 13 KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö 9 KEFLAVÍK skúrir 10 RAUFARHÖFN léttskýjaö 9 REYKJAVÍK úrkoma 10 STÓRHÖFÐI úrkoma 10 BERGEN skýjaö 12 HELSINKi skýjað 14 KAUPMANNAHÖFN léttskýjaö 18 ÓSLÓ skýjaö 12 STOKKHÓLMUR þokumóöa 16 ÞÓRSHÖFN léttskýjaö 12 ÞRÁNDHEIMUR súld 10 ALGARVE heiöskírt 18 AMSTERDAM skýjaö 18 BARCELONA þokumóða 22 BERLÍN skýjað 19 CHICAGO hálfskýjaö 21 DUBLIN léttskýjaö 9 HALIFAX þoka 19 FRANKFURT heiðskírt 17 HAMBORG heiðskírt 17 JAN MAYEN súld 7 LONDON léttskýjað 17 LUXEMBORG heiöskírt 18 MALLORCA léttskýjaö 22 MONTREAL heiöskírt 19 NARSSARSSUAQ léttskýjaö 6 NEW YORK léttskýjaö 24 ORLANDO heiöskirt 22 PARÍS léttskýjaö 15 VÍN skýjaö 20 WASHINGTON heiöskírt 17 WINNIPEG heiöskfrt 16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.