Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2001, Side 8
8
Viðskipti__________
Umsjön: Viðskíptablaðiö
304 milljóna tap sam-
stæðu Olíufélagsins
- í takt við spár fjármálafyrirtækjanna
Tap varð af rekstri móðurfélags ol-
íufélagsins Esso, að upphæð 32 m.kr., á
fyrstu sex mánuðum ársins 2001, sam-
anborið við 204 miUjóna króna hagnað
árið áður. Tap af rekstri dótturfélaga
nemur 272 miiljónum króna fyrir sama
tímabil en hagnaður fyrstu sex mánuði
síðasta árs nam 165 milljónum króna.
Tap samstæðunnar nam því 304 miilj-
ónum króna.
Neikvæður viðsnúningur fjár-
isliða nemur tæpum millj-
Hagnaður Olíufélagsins hf. og dótt-
urfélaga þess fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði var 697 milljónir króna á
fyrstu 6 mánuðum þessa árs, saman-
borið við 499 milljónir árið áður, sem
er aukning um 198 miiljónir króna eða
40%. Hins vegar hækkuðu fjár-
magnsliðir verulega milli ára vegna
verulegrar veikingar íslensku krón-
unnar á tímabilinu. Þannig voru fjár-
magnsliðir neikvæðir um 949 milljónir
en voru jákvæðir um 16 milljónir á
sama tíma árið 2000. Gengistap Olíufé-
lagsins hf. á fyrstu sex mánuðum ársins
nam 1.027 milljónum króna en var 23
milljónir króna árið áður. Samtals nam
tap á rekstri félagins fyrri hluta ársins
304 milljónum króna en hagnaður var
369 milijónir á sama tíma árið áður.
Minni eldsneytissala
Heildarsala á eldsneyti minnkaði á
milli ára um 11%, einkum vegna
minnkandi sölu til útgerðar, er rekja
má annars vegar til sjómannaverkfalls
og hins vegar til þess að Útgerðarfélag
Akureyringa hætti í viðskiptum um
áramótin. Hreinar rekstrartekjur Olíu-
félagsins námu 2.245 milljónum króna
og hafa aukist á milli ára um 320 miilj-
ónir, eða 17%. Rekstrargjöld án af-
skrifta hækkuðu um 122 milljónir
króna eða 8%. Rekstrarhagnaður fyrir
afskriftir og fjármagnsliði nam 697
milljónum króna, samanborið við 499
milljónir króna árið áður. Afskriftir
hækkuðu um 14 milljónir og námu 167
milljónum króna. Hagnaður fyrir fjár-
magnsliði var 531 milljón króna sem er
hækkun um 53% milli ára.
Fjármagnsgjöld umfram fjármuna-
tekjur voru 949 milljónir króna en árið
áður voru fjármunatekjur 16 milljónir
umfram íjármagnsgjöld. Sölutap og
niðurfærsla eignarhluta í öðrum félög-
um nam 24,5 milljónum króna en árið
áður var söluhagnaður af eignarhlut-
um i öðrum félögum er nam 165 millj-
ónum króna. Að teknu tilliti til reikn-
aðra skatta var tap Olíufélagsins hf.
304 milljónir króna á fyrra hluta ársins
2001. Þar af var tap af rekstri móðurfé-
lagsins 32 milljónir króna á fyrstu sex
mánuðum ársins 2001 en tap af rekstri
dótturfélaga 272 milljónir króna.
Létt á skammtímaskuldum
Heildareignir Olíufélagsins hf. og
dótturfélaga þess voru þann 30. júní
19.563 milljónir króna. Bókfært verð
hlutabréfa í öðrum félögum var 5.017
miiljónir króna. Þar af var 3.131 millj-
ón króna í félögum sem skráð eru á
hlutabréfamarkaðnum en markaðs-
verð þeirra á sama tíma var 2.712 millj-
ónir, eða 419 milljónum króna lægra
en bókfært verð. Önnur hlutabréf sem
ekki hafa markaðsverð hafa verið met-
in varlega á um 1.500 milljónir króna
umfram bókfært verð. Eigið fé var
6.270 miiljónir króna og hafði minnkað
um 137 milljónir á fyrstu sex mánuð-
um ársins. Eiginfjárhlutfail var 32%. í
upphafi árs tók félagið erlent langtíma-
lán að upphæð 30 milljónir dollara.
Lánið var notað til að greiða niður
skammtímaskuldir og létta á lausafjár-
stöðu Olíufélagsins hf. Veltufjárhlut-
fall félagsins hefur lagast verulega við
þessar ráðstafanir og er nú 1.40 en var
í byrjun árs 1.08.
Viðsnúningur í rekstri Granda
- 82 milljóna tap miðað við 176 milljóna hagnað í fyrra
Tap Granda hf. og dótturfyrirtækis
þess, Faxamjöls hf., á fyrstu 6 mánuð-
um ársins 2001 nam 82 milljónum
króna en á sama tíma árið 2000 var
hagnaðurinn 176 milljónir króna.
Þetta er töluvert betri afkoma en spár
fjármálafyrirtækjanna í Viðskipta-
blaðinu gerðu ráð fyrir en þau spáðu
að meðaltali 333 milljóna króna tapi.
Rekstrartekjur samstæðunnar á
Ballett
Bytjendur (yngst 4ra ára)
og framhaidsnemendur.
Innritun í sima
567 8965
Ballettskóli
Sigríðar Ármann
Laugardal, Reykjavík og
Smáranum, Kópavogi
tímabilinu námu 2.292 milljónum
króna en voru 2.103 milljónir króna á
sama tíma á síðasta ári og jukust um
9%.
Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsgjöld var 635 milljónir króna,
eða 28% af rekstrartekjum, saman-
borið við 502 milljónir króna á sama
tíma árið áður. Veltufé frá rekstri
nam 520 milljónum króna sem er tæp-
lega 23% af rekstrartekjum, en var
402 milljónir króna á sama tíma árið
áður.
Aukinn hagnaður af eigin
starfsemi
Rekstrarhagnaður Granda hf. og
Faxamjöls hf. af eigin starfsemi var
335 milljónir króna en var 240 millj-
ónir króna á sama tíma árið áður.
Hrein fjármagnsgjöld námu 305 millj-
ónum króna, samanborið við 99 millj-
óna króna gjöld á sama tíma árið
2000. Hagnaður af sölu hlutabréfa í
Bakkavör Group hf. nam 558 milljón-
um króna og er hann bókaður sem
fjármunatekjur meðal fjármagns-
gjalda. Gengistap félagsins af erlend-
um skuldum nam um 1.000 milljónum
króna fyrstu 6 mánuði ársins. Gengis-
lækkun krónunnar mun hafa jákvæð
áhrif á útflutningstekjur Granda hf. í
framtíðinni. Tap varð á rekstri Faxa-
mjöls hf., að fjárhæð 143 milljónir
króna. Afkoma flestra hlutdeildarfé-
laga var ekki viðunandi og nam hlut-
deild Granda hf. í tapi þeirra um 120
milljónum króna en þau skiluðu fé-
laginu 52 milljóna króna hagnaði á
sama tíma árið 2000.
í mars 2001 gerði Grandi hf. samn-
ing um sölu á öllu hlutafé sínu í
Bakkavör Group hf. og nam söluverð-
ið um 911 milljónum króna. Félagið
fjárfesti í hlutabréfum í Haraldi
Böðvarssyni hf. í apríl sl. og nam fjár-
festingin um 480 milljónum króna.
Eignarhlutur Granda hf. í Haraldi
Böðvarssyni hf. er nú 19,5%.
Eigið fé Granda hf. var þann 30.
júní sl. 4.002 milljónir króna og hefúr
það hækkað um 10 milljónir frá árs-
byrjun 2001. Eiginfjárhlutfall er 32%.
Arðsemi eigin fjár var neikvæð um
2,0% á tímabilinu. Á tímabilinu
greiddi félagið 9% arð til hluthafa að
ijárhæð 133 milljónir króna.
Heildaraflinn 13 þúsund
tonnum minni
Heiidarafli togara Granda hf. var
tæplega 13 þúsund tonn sem er minni
afli en á sama tíma árið áður, en þá
var aflinn tæplega 17 þúsund tonn.
Meginskýringin á minni afla er sjó-
mannaverkfallið sem stóð í 50 daga,
frá mars til maí sl. í landvinnslu var
unnið úr tæplega 7 þúsund tonnum.
Nótaskip Faxamjöls hf. voru með um
40 þúsund tonna afla á tímabilinu,
samanborið við um 35 þúsund tonn á
sama tíma árið áður. Tæplega 300
manns vinna að meðaltali hjá Granda
hf. og Faxamjöli hf.
Horfur eru á að afkoma félagsins á
síðari hluta ársins verði betri en á
fyrri helmingi ársins, en það er háð
því að veiði á úthafskarfa gangi vel
og að gengisvísitala íslensku krón-
unnar verði stöðug það sem eftir er af
árinu.
Atvinnuleysi milli
ára hefúr minnkað
- atvinnuleysid í júlí 1,1%
Síðastliðna 12 mánuði voru um
1821 manns að meðaltali atvinnulaus-
ir, eða um 1,3%, en árið 2000 voru
þeir um 1865, eða um 1,3%. Atvinnu-
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
leysi hefur því minnkað örlítið milli
ára.
Atvinnuleysisdagar í júlí jafngilda
því að 1705 manns hafi að meðaltali
verið á atvinnuleysisskrá í mánuðin-
um. Þessar tölur jafngilda 1,1% af
áætluðum mannafla á vinnumarkaði
samkvæmt spá Þjóðhagsstofnunar,
eða 0,7% hjá körlum og 1,7% hjá kon-
um. Það er að meðaltali 115 færri at-
vinnulausir en í síðasta mánuði en
um 28 fleiri en i júli í fyrra.
Atvinnulausum fækkar í heild að
meðaltali um 6,3% frá júnimánuði en
hefur hins vegar fjölgað um 1,8% mið-
að við júlí í fyrra. Atvinnuástandið
batnar í samræmi við árstíðarsveiflu
milli júní og júlí.
Atvinnuástandið batnar miðað við
siðasta mánuð alls staðar á landinu,
nema á höfuðborgarsvæðinu, þar sem
það eykst lítils háttar. Atvinnuleysi
er nú hlutfallslega mest á höfuðborg-
arsvæðinu og á Norðurlandi eystra
en minnst á Vesturlandi.
Atvinnuleysi kvenna minnkar um
4% milli mánaða og atvinnuleysi
karla minnkar um 10,6% milli mán-
aða.
Búast má við að atvinnuleysi í
ágúst verði á bilinu 0,9% til 1,3%.
MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2001
DV
Þetta helst ___|
HEILDARVIÐSKIPTi 4100 m.kr.
- Hlutabréf 800 m.kr.
- Húsbréf 1500 m.kr.
MEST VIÐSKIPTI
Q.Össur 345 m.kr.
© Kaupþing 153 m.kr.
©íslandsbanki 116 m.kr.
MESTA HÆKKUN
© Húsasmiðjan 6,7%
© Hraðfrystihús Eskifjarðar 4,8%
© Opin kerfi 3,6%
MESTA LÆKKUN
© Össur 6,1%
© Landsbankinn 1,7%
© Búnaðarbankinn 1,3%
Úrvalsvísitalan 1021 stig
- Breyting o -1%
Hagvöxtur
0,5% í Kóreu
Kórea
náði að
halda sig
frá efna-
hagslægð-
inni sem
kom til á
öðrum ársfjórðungi þessa árs með
því að auka landsframleiðsluna
sina um 0,5% á ársgrundvelli.
Þessi hagvöxtur kom mikið til
vegna aukinnar neyslu almenn-
ings en þrátt fyrir það kemur
meiri hagvöxtur en vænst var á
öðrum ársfjórðungi ekki í veg fyr-
ir að útflutningur muni snar-
minnka á þriðja ársfjórðungi.
Þetta er aðeins meiri hagvöxtur
en á fyrsta ársfjóröungi en þá var
hann 0,3%. Hagfræðingar höfðu
búist við 0,2% hagvexti á öðrum
fjárfestingum.
Þessi uppsveifla þarf ekki að
endast mikið þar sem minnkandi
eftirspurn eftir útflutningi gæti
neytt fyrirtæki til uppsagna starfs-
manna og niðurskurðar kostnaðar.
Samdráttur útflutnings sló öll met
í júlí þegar hann dróst saman um
20% miðað við júlí í fyrra.
4?
Fjárfestingar
aukastá
Bretlandi
Fjárfest-
ingar fyrir-
tækja í
þjónustu-
greinum á
Bretlandi
hafa aukist
á öðrum ársfjórðungi en fjárfesting
I framleiðslufyrirtækjum hefur
dregist mikið saman samkvæmt
óendurskoðuðum tölum frá hagstof-
unni í Bretlandi.
Gögnin sýna vel tvískipt hagkerfi
Bretlands nú um stundir sem lýsa
má með töluverðum vexti þjónustu-
geirans en samdrætti í framleiðslu-
geiranum.
EaZHa 22.08.2001 kl. 9.15
KAUP SALA
B; iPollar 97,940 98,440
S13Pund 142,720 143,450
ll*SKan. dollar 63,240 63,630
; Dönsk kr. 12,1280 12,1950 i
j-j—jNorsk kr 11,1280 11,1900 '
S 3 Sænsk kr. 9,5200 9,5720 :
I>4—|Fi. mark 15,1906 15,2819
8 Fra. franki 13,7691 13,8518
1 1 ÍBelfe franki 2,2390 2,2524
EL«j Sviss. franki 59,4400 59,7700 j
CShoIÍ. gyllini 40,9851 41,2314
^Þýsktmark 46,1796 46,4571 :
! IJ H. lira 0,04665 0,04693 j
jQQAust. sch. 6,5638 6,6032 j
Port. escudo 0,4505 0,4532 |
;IÁ. Isoá. peseti 0,5428 0,5461
[ # jjap. yen 0,81930 0,82420
j| j jírskt pund 114,682 115,371
SDR 126,0300 126,7900
1 @ECU 90,3194 90,8621