Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2001, Page 22
58
íslendingaþættir
Jmsjön: Kjartan Gunnar Kjartansson
85 ára_______________________
Hulda Stefánsdóttir,
Hliðarvegi 45, Siglufiröi.
Sveinsína Jónsdóttir,
Brekkugötu 7, Ólafsfirði.
Sölvína Jónsdóttir,
Sjávargötu 20, Njarðvík.
75 ára_______________________
Brynhildur H. Jóhannsdóttir,
Hjallaseli 55, Reykjavík.
Matthías Pétursson,
Öldugerði 8, Hvolsvelli
70 ára_______________________
Erla Stefánsdóttir,
Skólabraut 4, Grindavík.
Hulda Sigurðardóttir,
Lerkigrund 7, Akranesi.
Jón Erlendsson,
Birkihvammi 9, Kópavogi.
Matthías Andrésson,
Lækjasmára 6, Kópavogi.
60 ára________________________
Berta Sigtryggsdóttir,
Heiðarási 26, Reykjavík.
Birgir Oddsteinsson,
Breiðumörk 16, Hveragerði.
Hákon Jóhannes Antonsson,
Hverfisgötu 28, Siglufiröi.
Margrét Ingvarsdóttir,
Nóatúni 27, Reykjavík.
Matthías Eiösson,
Möðrufelli, Eyjaf.
50 ára________________________
Antonio Maria Ferrao Grave,
Laugarásvegi 58, Reykjavík.
Barbára Hlíðdal,
Litlageröi 13, Hvolsvelli.
Björg Sigurjónsdóttir,
Njálsgerði 16, Hvolsvelli.
Halla Þuríður Hannesdóttir,
Kársnesbraut 86, Kópavogi.
Helena Duda,
Sigtúni, Kópaskeri.
Hjalti Kristinsson,
Skipholti, Vogum.
Kristín Jónsdóttir,
Neshaga 12, Reykjavík.
Viðar Þórarinsson,
Kambaseli 29, Reykjavík.
Þorkell Pétur Ólafsson,
Ásbúð 80, Garðabæ.
Þórunn Sigurðardóttir,
Háhæð 9, Garöabæ.
40 ára________________________
Ágúst Hjörtur Ingþórsson,
Álagranda 23, Reykjavík.
Diðrik Jóhann Sæmundsson,
Friðarstöðum, Hveragerði.
Jón Ingi Guðmundur Jónsson,
Arnarheiöi 21, Hverageröi.
Þóra Sólveig Jónsdóttir,
Hátúni 17, Eskifirði.
Ægir Pétur Ellertsson,
Merkilandi 8, Selfossi.
Ævar ísak Sigurgeirsson,
Ásbyrgi, Kópaskeri.
Karl Árnason, Kambi 1, Króksfjarðar-
nesi, varð níræður síðastliðinn mánu-
dag. Kona hans, Unnur Halldórsdóttir,
varð 85 ára 10. ágúst síðastliðinn. Karl
veröur að heiman á afmælisdaginn en í
tilefni af afmælunum verða þau hjónin
með heitt á könnunni fyrir vini og vanda-
menn í Jónsbúð, Akursbraut 13, Akra-
nesi, laugardaginn 25. ágúst næstkom-
andi eftir klukkan 15.00.
Siguröur Jónsson og Eva María Sigurð-
ardóttir, Fjallalind 105, Kópavogi, létust
af slysförum sunnudaginn 19. ágúst.
Björgvin Þór Jóhannsson, Bræðratungu
20, Kópavogi, varð bráðkvaddur á heim-
ili sínu laugardaginn 18. ágúst sl.
Guðjón Sigurjónsson, fyrrv. bóndi,
Grímsstööum, Vestur-Landeyjum, síðast
til heimilis á Króktúni 3, Hvolsvelli, lést
á Landspítalanum Hringbraut föstudag-
inn 17. ágúst sl.
Örn Sigurbergsson aðstoðarskólameist-
ari, Beykihlíð 19, lést af slysförum
sunnudaginn 19. ágúst.
Stefán Steindórsson, hjúkrunarheimilinu
Ási, Hveragerði, áður til heimilis í Aust-
urhlíð, Gnúpverjahreppi, lést laugardag-
inn 18. ágúst.
Anna Margrét Magnúsdóttir, tónlistar-
fræöingur og semballeikari, Hjarðarlandi
10, Mosfellsbæ, andaðist að morgni
föstudagsins 17. ágúst.
MIDVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2001
DV
Níræður
Guðmundur Geir Ólafsson
fyrrverandi kaupmaður
Guðmundur Geir Ólafsson, fyrr-
verandi kaupmaður, Grænumörk 5,
Selfossi, er níræöur í dag.
Starfsferill
Guðmundur Geir er fæddur á
Litla-Hrauni á Eyrarbakka og ólst
upp á Eyrarbakka frá 8 ára aldri.
Hann vann i Apótekinu á Eyrar-
bakka frá 1926 til 1935 og flutti þá til
Vestmannaeyja og vann þar í Apó-
tekinu til 1941. Guðmundur Geir
fluttist þá á Stað á Selfossi og gerð-
ist meðeigandi S.Ó. Ólafssonar og
Co. hf. sem síðar varð Höfn hf.
Hann var formaður UMF Selfoss,
formaður Sjálfstæðisfélagsins Óðins
og einn af stofnendum Bridsfélags
Selfoss. Guðmundur Geir er heið-
ursfélagi í öllum þessum félögum.
Hann gekk í Öddfellowregluna
Herjólf í Vestmannaeyjum árið 1936
og er heiðursfélagi stúkunnar Há-
steins á Selfossi. Guðmundur Geir
er einnig heiðursfélagi í Lions og
heiðursfélagi í félagi eldri borgara á
Selfossi en í því síðarnefnda var
hann gjaldkeri í 17 ár.
Fj'ölskylda
30. október 1937 giftist Guðmund-
ur Geir Elínborgu Sigurðardóttur
frá Skuld í Vestmannaeyjum, f. 25.8.
1913, d. 5.11. 1993. Foreldrar Elín-
borgar voru Sigurður Oddsson, út-
gerðarmaður frá Heiði í Rangár-
vallasýslu og Ingunn Jónasdóttir frá
Helluvaði í Rangárvallasýslu. Þau
bjuggu í Skuld í Vestmannaeyjum.
Börn Guðmundar Geirs og Elín-
borgu eru:
1) Erla Guðmundsdóttir, f. 9. 12.
1938, maki Gunnar Guðnason, böm
þeirra eru: a) Guðmundur Geir,
maki Rósa Traustadóttir og eiga
þau þrjú böm. b) Elínborg, maki
Guðmundur Kr. Ingvarsson og eiga
þau flögur böm. c) Jónína, maki
Friðrik R. Friðriksson og eiga þau
þrjú böm. d) Hafdís, maki Skjöldur
Hilmarsson og eiga þau tvö böm.
2) Ólafur Þorbjörn Guðmunds-
son, f. 26.4. 1947, maki Hrafnhildur
Guðmundsdóttir, börn þeirra eru: a)
Magnús Már, maki Bylgja Matthías-
dóttir og eiga þau tvö böm. b) Bryn-
dís, maki Heinz Ollesch. c) Hugrún,
maki Jónas Páll Birkisson og eiga
þau þrjú börn. d) Arnar Freyr, maki
Helga Böðvarsdóttir og eiga þau eitt
bam.
3) Ingunn Guðmundsdóttir, f. 12.
10. 1951, maki Sigurður Karlsson,
dóttir Ingunnar er Þórdís Sólmund-
ardóttir, maki Símon Tómasson og
á hún tvö böm.
Systkini Guðmundar Geirs voru:
1) Sigurður Óli; f. 7.10. 1896, d. 15.3.
1992; 2) Sigurgeir, f. 21.8.1898, f. 15.6.
1910; Hans Jörgen, f. 17.2. 1900, d.
16.11. 1983; Sigríður Guðmunda, f.
28.9. 1902, d. 14.11. 1972; Arilíus, f.
20.4. 1904, d. 6.9. 1949, endurskoð-
andi í Reykjavík; Gíslína Margrét,
f. 22.8. 1911, d. 22. ágúst 1992.
Foreldrar Guðmundar Geirs voru
Ólafur Sigurðsson, f. 7.11. 1869, d.
6.4.1950, b. og söðlasmiður í Nausta-
koti á Eyrarbakka, og kona hans,
Þorbjörg Sigurðardóttir, f. 7.8. 1873,
d. 18.2. 1940, húsmóðir.
Ætt
Ólafur var sonur Sigurðar, snikk-
ara á Syðri-Steinsmýri og á Breiða-
bólsstað, Sigurðssonar, b. á Ein-
túnahálsi, Jónssonar, b. á Fossi á
Síðu, bróður Nikulásar, langafa
Sveins í Völundi, afa Leifs lögfræð-
ings og Sveins verkfræðings Sveins-
sona. Móðir Ólafs söðlasmiðs var
Gyðríður Ólafsdóttir, b. á Syðri-
Steinsmýri, Ólafssonar. Móðir Gyð-
ríðar var Margrét Gissurar, b. á
Rofabæ, Jónssonar.
Þorbjörg var systir Svanhildar,
móður Sigurgeirs biskups, föður
Péturs biskups. Þorbjörg var dóttir
Sigurðar, b. og formanns í Nausta-
koti á Eyrarbakka, Teitssonar. Móð-
ir Sigurðar var Guðrún, systir
Ólafar, langömmu Jóns, föður
Hannesar Jónssonar sendiherra.
Guðrún var dóttir Sigurðar, b. á
Hrauni í Ölfusi, Þorgrímssonar, b. i
Holti í Stokkseyrarhreppi, Bergs-
sonar, b. í Brattsholti, Sturlaugsson-
ar, ættföður Bergsættarinnar. Móð-
ir Guðrúnar var Ólöf Jónsdóttir,
hálfsystir Þorkels, langafa Salome
Þorkelsdóttur fyrrum alþingis-for-
seta.
Guðmundur Geir verður að heim-
an á afmælisdaginn en tekur á móti
ættingjum og vinum á Stað á Eyrar-
bakka, föstudaginn 24. ágúst næst-
komandi frá klukkan 20 til 22.30.
Sextug i Sjötugur
Sesselja Eiríksdóttir
forstöðumaður
Hreiðar Aðalsteinsson
bifreiðarstjóri
Sesselja Eiríksdótt-
ir, forstööumaður
ræstingadeildar Land-
spítala Háskóla-
sjúkrahúss, Fossvogi,
Logafold 24, Reykja-
vík, er sextug í dag.
Starfsferill
Sesselja er fædd og
uppalin í Stykkis-
hólmi en flutti til
Reykjavíkur 1960.
Sesselja hefur unnið á Borgarspít-
alanum (Landspítala Háskóla-
sjúkrahúsi) siðan 1978 sem yfir-
maöur ræstingadeildar.
Fjölskylda
Sesselja giftist 29.5. 1960 Óla
Bjama Jósefssyni bifreiðarstjóra
hjá Reykjavikurborg, f. 1.8.1938, d.
10.7. 1991.
Börn Sesselju og Óla Bjama em:
1) Unnur Óladóttir, f. 26.3. 1961,
hárgreiðsumeistari, Ólafsvík, gift
Jóni Aðalbirni Kratsch sjómanni,
böm þeirra eru Ólöf Birna og Dav-
íð Örn; 2) Katrín Óladóttir, f. 2.10
1962, grunnskólakennari og versl-
unareigandi, gift Hafliða Sívertsen,
útsendingarstjóra,
börn þeirra eru Grétar
Már, Atli Rafn og
Hulda Sesselja; 3)
Kristján Ólason, f. 14.3.
1964, byggingameistari,
giftur, Kristínu Höllu
Þórisdóttur grunn-
skólakennara, böm
þeirra eru Þórir og
Helena Ósk.
Seinni maður Sess-
elju er Hjalti Ásgeirs-
son, f. 18.4. 1939, tækni-
fulltrúi hjá Vinnueftirliti ríkisins.
Foreldrar Sesselju voru Eiríkur
Helgason rafvirkjameistari, Stykk-
ishólmi, f. 14.12. 1907, d. 24.10. 1983,
og Unnur Jónsdóttir húsmóðir, f.
10.8. 1912, d. 19.6. 1984.
Sesselja mun verða að Stakka-
hlíð 17 (Drangeyjarsal) í dag, af-
mælisdaginn, milli kl. 17 og 19.
Hún vonast til að sem ílestir ætt-
ingjar, vinir og vinnufélagar sjái
sér fært að koma og gleðjast með
henni á þessum tímamótum.
Hreiðar Aðalsteinsson,
bifreiðarstjóri, Ægisgötu 14,
Akureyri, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Hreiðar er fæddur á Ein-
hamri í Hörgárdal og ólst
upp í Hörgárdal og á Akur-
eyri.
Hann gekk í barnaskóla
og tvo vetur i Alþýðuskól-
ann á Laugum í Reykjadal. Hreiðar
vann sveitastörf til tvítugs og við
vegagerð. Hann hóf vörubílakstur ár-
ið 1953 á Akureyri og hefur starfað við
það síðan. Hann hefur búið á Akur-
eyri frá því 1953.
Hreiðar hefur gegnt trúnaðar- og
stjómunarstörfum í vörubílafélaginu
Val og verið bæði formaður og vara-
formaður. Hann hefur verið söngmað-
ur í Karlakór Akureyrar 1953 til 1990
og frá 1990 í Karlakór Akureyrar-
Geysi.
Fjölskylda
Þann 25. október 1953 giftist Hreið-
ar Hermínu Stefánsdóttur húsmóður,
f. 5.3. 1934. Foreldrar hennar eru Stef-
án Guðjónsson verkamaður og Bene-
dikta Sigvaldadóttir húsmóðir.
Hermína er borin og barnfædd á Ak-
ureyri.
Böm Hreiðars og
Hermínu eru: 1) Stefán
Haukur Hreiðarsson, f. 7.7.
1953, tæknifræðingur í
Reykjavík, kona hans er Sig-
rún Gunnlaugsdóttir, f. 27.6.
1951, og em þeirra börn Sól-
ey B., f. 21.10. 1973, og Davíð
Hreiðar, f. 21.1.1979; 2) Stein-
unn Benna, f. 18.2. 1956,
nuddari á Akureyri, hennar
maki er Júlíus Kristjánsson, sjómað-
ur, f. 27.12. 1947, börn þeirra era
Gunnur Lilja, f. 5.9. 1988, Berglind, f.
5.8. 1990, og Herdís Júlía, f. 6.6.1994.
Systkini Hreiðars eru: 1) Hersteinn,
f. 1920, d. 1970; 2) Helgi, f. 1922, d. 1955;
3) Jóhanna Petersen, f. 1923; 4) Guð-
mundur Halldór, f. 1925; 5) Ragna, f.
1926; 6) Hermann, f. 1927; 7) Jónheiður
Eva, f. 1929; 8) Heimir, f. 1930; 9) Hauk-
ur O. Hested, f. 1933; 10) Haukur, f.
1940, 11) Sigurrós, f. 1941.
Foreldrar Hreiðars voru Aðalsteinn
Tómasson, bóndi og verkamaður, f.
10.5. 1899, f. 7.11. 1980, og Steinunn
Guðmundsdóttir, húsmóðir og verka-
kona, f. 29.7. 1901, d. 29.7. 1990. Þau
bjuggu lengst af í Öxnadal, Hörgárdal
og á Akureyri.
Hreiðar tekur á móti gestum á
föstudagskvöldið, 24. ágúst, í Lóni,
húsi Karlakórsins, klukkan 19.
Merkir íslendingar
Sigurður Greipsson skólastjóri var fædd-
ur 22. ágúst 1897 í Haukadal í Biskupstung-
um. Foreldrar hans voru Greipur Sig-
urðsson hreppstjóri og kona hans,
Katrín Guðmundsdóttir.
Sigurður varð búfræðingur frá Hól-
um 1917 og hélt síðan til Noregs til að
stunda nám við Lýðskólann í Voss.
Þegar hann kom heim frá Noregi fór
hann að kenna í Biskupstungum og
kenndi einnig eitt ár í Laugardals-
skóla. Árið 1926 fór Sigurður til Dan-
merkur og var þar við nám í íþrótta-
skóla Niels Bukhs í Ollerup í eitt ár. Við
heimkomuna stofnað hann iþróttaskóla í
Haukadal og var skólastjóri þar síðan og
gestgjafi.
Sigurður Greipsson
Sigurður starfaði að íþróttamálum og var for-
maður íþróttasambands Skarphéðins (Hér-
aðssambands Skarphéðins frá 1922) frá
1921. Einnig var hann í stjórn Sambands
UMFÍ 1927 til 1930.
Sigurður var glímukappi íslands i
fimm ár og tók þátt í tveimur glímuför-
um til Danmerkur og Noregs. Hann
ferðast víða á vegum UMFÍ og ÍSÍ til að
fræða fólk um íþróttir og bindindsmál.
Eiginkona Sigurðar var Sigrún
Bjarnadóttir, bónda á Bóli í Biskups-
tungum, Guðmundssonar og konu hans,
Maríu Eiríksdóttur.
Sigurður lést 19. júlí 1985.
Smáauglýsingar
allt fyrir heimilið
550 5000
Skoðaðu smáuglýsingarnar á VISII’.I
Eyjólfur K. Sigurjónsson, löggiltur endur-
skoðandi, Sunnubraut 21, Kópavogi,
veröur jarðsunginn frá Hallgrímskirkju
fimmtudaginn 23. ágúst kl. 15.00. Þeim
sem vilja minnast hans, er bent á Hjúkr-
unarheimili aldraðra, Sunnuhlíö I Kópa-
vogi.
Bergþór Bergþórsson, Fífuhvammi 5,
Kópavogi, verður jarösunginn frá Víði-
staðakirkju, Hafnarfirði, í dag, 22.
ágúst, kl. 15.00. Þeim sem vilja minn-
ast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Sigríður Methúsalemsdóttir. Boðageröi
1, Kópaskeri, verður jarösungin frá
Snartarstaðakirkju laugardaginn 25.
ágúst kl. 16.30.
Rútur Snorrason frá Vestmannaeyjum
veröur jarðsettur frá Grensáskirkju föstu-
daginn 24. ágúst kl. 15.00. Blóm og
kransar eru vinsamlegast afþakkaöir en
þeim sem vilja minnast hins látna er
bent á langveik eða krabbameinssjúk
börn.