Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2001, Side 23
59
MIÐVIKUDAGUR 22. ÁGÚST 2001
I>V Tilvera
wAmmrnm
Tori Amos 38 ára
Söngkonan
Tori Amos er af-
mælisbarn dags-
ins en hún er 38
ára í dag. Tori
naut mikilla vin-
sælda víða um
heim fyrir
nokkrum árum
en að undanförnu
hefur dregið úr vinsældum hennar.
Hún heimsótti meðal annars ísland
í einni tónleikaferð sinni og hélt
tónleika á Hótel Borg. Lögin Cruci-
fy og Comflake Girl eru tvö af þeim
lögum sem enn heyrast spiluð með
söngkonunni.
nauuu izu. du
cr í
niourstöðu 1
Gildir fyrir fimmtudaginn 23. ágúst
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.i:
■ Það verður mikið um
að vera fyrri hluta
dagsins. Láttu ekki
freistast þó að fólkið í
knngum þig sé kærulaust. Haltu
þig við áætlun þína.
Fiskarnirnö. fehr.-?0. mars>:
Þú færð einhverjar
lóvæntar fréttir og
veist líklega ekki alveg
' livernig þú átt að
túlka þær. Þú ættir bara að bíða
og sjá hvað verður.
Hrúturinn (21. mars-19. apriH:
. Ákveðin manneskja
f gerir eitthvað sem þér
gremst og þú átt erfitt
með að sætta þig við.
Astandiðbatnar með kvöldinu.
Happatölur þínar eru 3, 15 og 31.
Nautið (20. april-20. mail:
Það er óróleiki í kring-
um þig sem stafar af
óleystu deilumáh.
Reyndu að komast að
. um breytingar sem
fyrst.
Tvíburarnir (21. mai-21. iúní):
V Nú er gott tækifæri til
að koma hugmyndum
_ / / þínum á framfæri, sér-
staklega varðandi
nýjungar. Happatölur þínar
eru 7, 13 og 34.
Krabbinn (22. iúní-22. iúii>:
Einhver persóna, sem
I hefur verið þér ofar-
lega í huga, kemur þér
mjög á óvart. Það
verður breyting á einhverju
heima fyrir.
Llónið (23. iúlí- 22. áeúst);
Dagurinn verður
skemmtilegur og þú
tekur þátt í áhugaverð-
um umræðum. Eitt-
hvað sem þú hefur beðið eftir
lengi gæti gerst í dag.
Mevian (23. áeúst-22. sepU:
Morgunninn verður
annasamur og þú átt
jfcfullt i fangi með að
' r ljúka verkefnum
sem þér eru fengin.
Happatölur þínar eru 8, 17 og 29.
Vogin (23. sept.-23. okt.l:
J Viðskipti ættu að
Oy ganga vel og þú ert
V f heppinn í samningum.
r f Andstæðingur þinn
ber mikla virðingu fyrir þér.
Happatölur þinar eru 6, 10 og 30.
Sporðdreki (24, okt.-21. nóv.>:
Vertu á verði gagnvart
\ manneskjum sem eru
\\ V^þér ósammála. Þær
ffiSÉlft g®tu reynt að beita
brögðum til að fá sínu framgengt.
Happatölur þinar eru 1, 8 og 28.
Bogamaður (22. nóv.-21. des.l:
—^Fjölskyldan kemur
mikið við sögu i dag.
w Þú ættir að eyða meiri
\ tíma með henni og
huga að loforði sem þú gafst fyrir
stuttu.
Stelngeitin (22. des.-19. ian.l:
. Þú færð efasemdir um
heiðarleika eða ein-
lægni einhvers. Þú átt
rétt á að fá skýringu á
því sem þú áttar þig ekki á.
Happatölur þínar eru 7,18 og 35.
The Fast and the Furious:
Hraðskreiðir bílar
og ósvífnir ökumenn
Spennutryllirinn The Fast and
the Furious fjallar um Brian, unga
löggu sem laumar sér inn í undir-
heima Los Angeles til að rannsaka
fjölda bílrána sem orðið hafa að
undanfórnu í borginni. Þar kynnist
hann nýjum heimi þar sem
hraðaksturskeppnir á götunum eru
daglegt brauð. Leiðtoginn þar á bæ
er Dominic Toretto sem er fyrrum
tugthúslimur og ekur um eins og
hann eigi allar götur bæjarins. Bri-
an nær góðum tengslum við Domin-
ic og systur hans, Miu, enda hafa
þau ekki hugmynd um að hann sé
lögga. Helsti óvinur Dominic er
hinn ósvífni Johnny Tran og grunar
Brian þá báða um að hafa óhreint
mjöl í pokahorninu. Málið verður
því sífellt flóknara þegar vinátta
hans við Dominic verður sterkari
og hann uppgötvar að hann er að
verða ástfanginn að Miu.
Leikstjóri myndarinnar er Rob
Cohen sem er einn fjölhæfasti leik-
stjórinn í bransanum og hann sæk-
ist mikið eftir því að gerá ævintýra-
legar myndir. Meðal þeirra mynda
sem hann hefur gert má nefna
Dragon: The Bruce Lee Story, The
Skulls, Dragonheart og Daylights.
Leikarar myndarinnar eru flestallir
ungar og upprísandi stjörnur í kvik-
myndaheiminum. í hlutverki Brian
er Paul Walker sem einnig lék í The
Skulls. Hann ætlaði í fyrstu að
mennta sig í sjávarliffræði en skipti
síðan um skoðun og ákvað að leggja
leiklistina frekar fyrir sig. Vin Dies-
el, sem leikur Dominic, mátti meðal
Aðalpersónurnar
Þau Brian, Dominic og Mia eru aöaipersónur myndarinnar.
annars sjá í myndunum Saving Pri-
vate Ryan og The Pitch Black. Kven-
hlutverkin tvö eru í höndum
Michelle Rodriguez úr Girlfight og
Jordan Brewster sem lék meðal
annars í The Faculty. The Fast and
the Furious verður frumsýnd á
morgun í Sambíóunum og Háskóla-
bíói. -MA
Golfstjörnur fram-
tíðar æfa alla daga
^Smáauglýsingar
byssur, feröaíög, ferðaþjónusta,
DV, AKRANESI:________________________
Máltækið segir að snemma beyg-
ist krókurinn. Það á svo sannarlega
við um unga golfkappa sem DV hitti
við æfingar á Garðsvelli, golfvelli
golfklúbbsins Leynis á Akranesi.
Þeir Bjarki Þór Jóhannsson, 9 ára,
og Hallur Flosason, 8 ára, voru að
æfa golf þegar DV rakst á þá og þeir
eru greinilega efni í golfstjörnur
framtíðarinnar.
Bjarki Þór segir að hann hafi
byrjað að æfa golf vegna þess að
pabbi hans og bróðir voru í golfinu
og honum leist vel á það þegar þeir
voru að spila. Hann er búinn að
taka þátt í nokkrum mótum og hef-
ur bætt forgjöfina úr 36 í 32. Hann
segir að það sé gaman að spila golf
og hvetur jafnaldra sína til að fara á
golfvöllinn og prófa. Hann segir að
þetta sé góð hreyfing og rosalega
gaman að spila og hann æfir sjö
daga í viku. Vinur Bjarka Þórs,
Hallur Flosason, segir að hann hafi
byrjað að æfa golf vegna þess að
mamma hans var i golfinu. Hann
segist vera með 40 í forgjöf en hafi
æft meira í sumar en siðastliðið
sumar og er alveg staðráðinn í að
bæta sig enn meir og komast í röð
þeirra bestu. -DVÓ
DV-MYND DANÍEL V. ÓLAFSSON.
Snemma beygist krókurinn
Bjarki Þór Jóhannesson, 9 ára, og Hallur Flosason, 8 ára, aö pútta á
Garösvelli. Þeir byrja ungir en golfið höföar til allra, ungra sem aldinna.
m
fyrir ferðamenn, fyrir veiðimenn,
gisting, golfvörur, heiisa, hesta-
mennska, Ijósmyndun, líkamsrækt,
safnarinn, sport, vetrarvörur,
útilegubúnaður... tómstundir
Skoöaöu smáuglýsingarnar á VÍSÍl'-ÍS 550 5000
Upplýsingar í síma 550 5000 / 550 5777