Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2001, Qupperneq 25
61
MIÐVIKUDAGUR 22. AGUST 2001
DV
Tilvera
Áratugadraumur loks að verða að veruleika, - Skaftfellingur kominn heim:
Bjargaði 52 skipbrotsmönn-
um af þýskum kafbáti
DV, SUÐURLANDl:
Flutningur mótorbátsins Skaft-
fellings frá Vestmannaeyjum til
Víkur í Mýrdal hefur lengi staöið
til. Eigandi bátsins, Sigrún Jóns-
dóttir kirkjulistakona, sem hefur
um áratugi barist fyrir því að
„elskhugi" hennar, eins og hún
nefndi bátinn eitt sinn i sjónvarps-
viðtali, kæmist til Víkur, sá
draum sinn verða að veruleika á
áttræðisafmælinu sínu um helg-
ina.
Örlátir á hlutaféð
Skaftfellingur kom fyrst til Vík-
ur 15. maí 1918. Áður en ráðist var
í kaup á Skaftfellingi hafði staðið
umræða í allmörg ár um nauðsyn
þess að kaupa mótorbát til flutn-
inga austur í Skaftafellssýslu. Þá
voru samgöngur á landi lítt komn-
ar á veg og sýndist mönnum að
besta flutningsleiðin væri á sjó.
Frá árunum 1908 til 1910 eru til
heimildir um að þvi hafi verið
slegið fram á málfundum að Skaft-
fellingar ættu að kaupa skip til
flutninga og sjósóknar. 1 mars 1915
var kosin sérstök millifundanefnd
af Sýslunefnd V-Skaftfellinga til að
fjalla um samgöngur á sjó og gera
tillögur til úrbóta. í fundargerð
sýslunefndar frá 13. mars 1913
kemur fram að þá hafi verið hafin
hlutafjársöfnun meðal V-Skaftfell-
inga til kaupa á „bifbát“ sem verði
í eigu íbúa sýslunnar. Hlutafjár-
söfnunin gekk vel, alls söfnuðust
30.225 kr. í hlutafé.
V-Skaftfellingar sjálfir sýndu þá
eindæma samstöðu um að ná sam-
eiginlegu markmiði sinu og lögðu
fram 25.000 krónur, eða um 63
krónur að jafnaði á hverja fimm
manna fjölskyldu. Til samanburð-
ar var tímakaup við slátrun í Vík
árið 1916 40 aurar. Miðað við 10
stunda vinnudag voru heimilisfeð-
ur því 16 daga að vinna fyrir fram-
lagi hverrar fimm manna fjöl-
skyldu;
Formlegur stofnfundur hlutafé-
lagsins Skaftfellings var haldinn
að Flögu í Skaftártungu 7. febrúar
Fluttu bátinn
Þeir önnuðust um flutning Skaftfellings frá Þorlákshöfn til Víkur, erfíða sjó- og landleið. Frá vinstri Eiríkur Gunnarsson,
Kristján Eggertsson skipasmiður, sem tylgdi skipinu alla leið frá Eyjum til Víkur, og lengst til hægri Trausti Gunnars-
son en hann og Eiríkur starfa hjá GG-flutningafyrirtækinu.
1917. Þá þegar var hafin smíði
Skaftfellings í Troense á Fjóni i
Danmörku. Samkvæmt mælingar-
vottorði frá 17. desember 1917 var
Skaftfellingur 60,46 brúttólestir.
Lengd hans var 21,60 metrar og
breidd 5,53 metrar. Skaftfellingur
var smíðaður úr eik og beyki. Upp-
haflega var hann með 48 hestafla
vél, sem var skipt út fyrir 90 hest-
afla vél árið 1926.
Bjargaði 52 þýskum
kafbátsmönnum
Skaftfellingur var í ferðum fyrir
Vestur-Skaftfellinga til ársins 1939
þegar samgöngur á landi voru
orðnar allt aðrar en á upphafsár-
um útgerðar Skaftfellings og flutn-
ingar á landi leystu af siglingar.
Árið 1940 var Skaftfellingur seldur
Helga Benediktssyni í Vestmanna-
eyjum. Þar tók viö ekki síður
merkur kafli í sögu skipsins, þeg-
ar það var i fiskflutningum til
Bretlands í síðari heimsstyrjöld-
inni. Meðal annars bjargaði 7
manna áhöfn bátsins 52 þýskum
kafbátssjómönnum um borð í
Skaftfelling eftir loftárás 19. ágúst
1942 eftir að flugbátur varð að
snúa frá vegna veðurs.
Kafbáturinn hafði laskast í or-
ustu á Atlantshafi milli þýskra og
breskra flugvéla, áhöfn kafbátsins
hafði bjargað þýsku flugmönnun-
um um borð en báturinn var svo
illa laskaður að hann var að
sökkva þegar Skaftfelling bar að.
Skaftfellingur hélt með skipbrots-
mennina áleiðis til Fleetwood en
breskur tundurspillir tók skips-
brotsmennina um borð utan við
höfnina en leyfði íslensku sjó-
mönnunum að halda áfram ferð
sinni. Bretarnir voru afar tor-
tyggnir á aö aðeins sjö islenskum
sjómönnum hefði tekist að bjarga
52 mönnum úr sjónum, en leyfðu
áhöfn Skaftfellings samt að halda
áfram ferð sinni. í júlí 1999 heiðr-
aði þýski sjóherinn áhöfn Skaft-
fellings fyrir björgunarafrekið.
Samþykkt var að leggja niður
hlutafélagið um Skaftfelling 15.
júni 1942.
Þrátt fyrir að Vestur-Skaftfell-
ingar réðust stórhuga í kaup á
Skaftfellingi var enginn staður í
sýslunni þar sem báturinn gat
lagst að bryggju frekar en i dag.
Eina leiðin til að koma vörum til
og frá Skaftfellingi upp á land var
með árabátum sem lentu í fjör-
unni, oft við erfiðar aöstæður. Það
má því með sanni segja að Skaft-
fellingur sé nú að koma i fyrsta
skiptið alla leið til Víkur í Mýrdal
því skipið lá alltaf fyrir akkerum
úti á sjó þegar hann kom þangað á
árum áður.
Stofnað hefur verið áhugafélag
um Skaftfelling, sem hefur nú
fengið húsnæði í Vik yfir bátinn
þar sem stefnt er að því að hann
verði til sýnis þegar lokið hefur
verið við endurbætur á honum.
Sigrún Jónsdóttir sagði að það
hefði verið dásamlegt að sjá Skaft-
felling loksins koma til Víkur.
Hún eignaðist bátinn fyrir um
þrjátíu árum og hefur alltaf haft
það að markmiði að koma honum
til Víkur.
Gott áheitaskip, segir
listakonan
„Það var dásamlegt að sjá hann
birtast hér út úr þokunni, það var
eins og yfir honum væri einhver
ljómi, engu líkara en yfir honum
væri krossmark þegar hann var að
koma hér niður fjallið,“ sagði Sig-
rún. Hún segir að Skaftfellingur
hafi alla tíð verið hið mesta
happafley. „Hann hefur alltaf
reynst vel, hann er líka gott
áheitaskip, það veit ég, en það hef-
ur líka ekki farið vel fyrir öllum
sem hafa reynt að leggja stein í
götu Skaftfellings," sagði Sigrún
Jónsdóttir.
Fyrir þá sem hafa áhuga á að
leggja endurbyggingu Skaftfellings
lið er bent á reikning í Lands-
banka íslands, nr 0101-18-465946.
Fólk er hvatt til að láta nöfn sín
fylgja svo að skrá megi gefendur í
sérstaka skrautskrifaða bók.
-NH
Meginheimild:
Verslunarsaga Vestur-Skaftfellinga,
annaó bindi.
Ný sending Frábært verd
Verð frá
35.500
Allar stærðir
Grensásvegi 3
s: 533 1414
ílílllÍSSl®
A leiöinni heim
Skaftfellingur er hér á leið til Víkur.
ÐV-MYND NJORÐUR HELGASON.
/• OKU
KOyNN
VSí/ I MJODD
Þarabakka 3,109 Reykjavík
Kennsla á leigu-, vöru- og hópbifreið og vörubifreið með
eftirvagn.Hægt er að hefja nám alla miðvikudaga. (Áfangakerfi)
Endurbætt kennsluaðstaða.
Reyndir kennarar og góðir kennslubílar.
Aukið við atvinnumöguleikana.
Hringið eða komið og leitið upplýsinga
E-mail okusk.mjodd@simnet.is