Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2001, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2001, Blaðsíða 4
Fréttir Seðlabankinn sammála Halldóri um vaxtastigið: Nauðsynlegt að fá lægri vexti - en ekki tímabært. Samtök atvinnulífsins vona að Seðlabankinn forherðist ekki Már Halldór Guömundsson. Ásgrímsson. Arl Edwald. Sveinn Hannesson. Már Guðmundsson, aðalhagfræð- ingur Seölabankans, segist sammála Halldóri Ásgrímssyni um að æski- legt væri að lækka vexti. Fyrirtæki og einstaklingar eiga í vandræðum vegna vaxtastigsins og hefur for- maður Framsóknarflokksins sagt opinberlega að um eitt helsta vanda- mál efnahagslifsins sé að ræða. „Ég myndi gjaman vilja sjá lægri vexti en spurningin er hins vegar hvort vaxtalækkun sé möguleg í augnablikinu. Það er nauðsynlegt að fá lægri vexti almennt séð en ef við ætlum að ná okkar verðbólgu- markmiðum þá verðum við að herða ólina eða a.m.k. halda ólinni," segir Már. Hann bendir einnig á að Seðla- bankinn ákveði bara skammtíma- nafnvexti. Bankinn hafi ákaflega lít- il áhrif á langtíma verðtryggða vexti. í byrjun ágúst gaf Seðlabankinn út rit um stefnu sína og segir Már litlu við það að bæta nú. Forsendur séu nánast þær sömu og þá en stað- an sé augljóslega endurmetin reglu- lega. í ritinu segir: „Bankinn sér ekki tilefni til að lækka vexti frekar í bráð. Hann mun hins vegar nú sem endranær vaka yfir öOum þeim vís- Rannsókn lögreglunnar í Vík i Mýrdal stendur yfir á meintum um- hverfisspjöllum hestamanna við Lakagíga um verslunarmannahelg- ina. Eins og DV hefur greint frá fældist stóð með þeim afleiöingum að jörð traðkaðist út en Lakagígar eru friðlýst svæði. Rannsóknin er umfangsmikil og þarf lögreglan að ræða við mikinn fjölda vitna. Björn Ægir Hjörleifsson, aðstoðarvarð- stjóri hjá lögreglunni í Vík, segir aö skýrslutaka standi yfir en ekki sé búið að kæra. „Þetta gæti tekið einhverjar vik- Vegir landsins Allar upplýsingar um færð og ástand vega, vegalokanir, vegaframkvæmdir og ýmislegt annað sem tengist vegum Iandsins má fá á heimasíðu Vega- geröarinnar eöa í þjónustusíma hennar. Vegfarendum er bent á aö víða um landið er unniö að vegaframkvæmdum og er þeim því bent á aö sýna tillitssemi. bendingum sem varpað geta ljósi á horfur í efnahagsmálum." Augljós samdráttur Vextir eru aflt að 20% hér á landi og þótt erlend lán hafi þótt skárri en innlend, flnna menn einnig veru- lega fyrir þeim vegna lækkunar krónunnar í sumar. Samtök at- vinnulífsins hafa krafist vaxtalækk- unar í allt sumar og Ari Edwald, framkvæmdastjóri SÁ, segist fagna framlagi Halldórs. Aukin dæmi séu um vanda fyrirtækja í seinni tíð og þar sé vaxtabyrðin drjúgur hluti vandamálsins. Ari telur að lækkun vaxta nú þurfi ekki að standa i veg- inum fyrir verðbólgumarkmiðum Seðlabankans. „Okkar mat er einfaldlega að vaxtalækkun sé ekki líkleg til að ur. Það er verið að klára yfir- heyrslur yfir þeim sem búa hér fyrir austan en síðan verður málið sent til Reykjavíkur," seg- ir aðstoðarvarðstjórinn í Vík. Landvörður hjá Náttúru- vernd ríkisins lét lögregluna vita af atburðinum en ekki er enn ákveðið hvort NR muni leggja inn kæru vegna málsins. Hins vegar er vel mögulegt að málið fari áfram þótt NR hafi ekki frekari afskipti. „Það er hugsanlegt að sýslumaður kæri sjálfur en það verður ekki fyrr skapa hættu á verðbólgu. Það er augljóst að það er samdráttur hjá fyrirtækjum - það dregur mjög úr neyslu. Fyrirtæki standa frammi fyrir því aö þurfa að hagræða í rekstrinum og við höfum gert ráð fyrir að atvinnustig versni heldur á næstu mánuðum. Mörg fyrirtæki eiga í verulegum erfiðleikum þannig að það eru ýmis merki þess að áfram muni hægja á,“ segir Ari. Forherðist vonandi ekki Gildistaka nýlegra laga um Seðla- bankann þýðir að sá tími er liðinn að pólitíkusar ráði vaxtastiginu. Nú er stjórn bankans alfarið i höndum seðlabankastjóranna en ýmsir stjómmálamenn hafa kaflað eftir vaxtalækkunum, þ.á m. Davíö Odds- son, formaður Sjálfstæðisflokksins, og nú síðast formaður hins stjórnar- flokksins. Ari var spurður hvort hann teldi að búið væri að lækka.vexti ef stjórnmálamenn réðu slíku. Hann sagði að hægt væri að leiða líkur að því. „Ég vona bara að Seðlabankinn forherðist ekki í afstöðu sinni í því skyni að sýna fram á sjálfstæði sitt þótt stjórnmálamenn hafi lýst þessum viðhorfum. Það gera sér allir grein fyrir því að ákvörðun um þessa hluti liggur hjá Seðlabankanum. Stjórn- málamenn hafa hins vegar eins og aðrir skoðun á þessu málum og ég sé ekkert athugavert við það.“ Of seint? Sveinn Hannesson, framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins, segir í leið- ara á vefsíðu samtakanna að hann sé ekki viss um hvort það sé mótuð stefna Seðlabankans að slaka ekki á klónni fyrr en gjaldþrotahrinan ríður yfir. Þar á bæ tali menn um að vextirn- ir eigi að bíta en hvort þeir eigi að drepa sé ekki ljóst. Enginn atvinnu- rekstur þoli þetta vaxtastig til lengd- ar. Það sé orðið meira en tímabært að lækka vexti hér á landi umtalsvert en það sé þó sennilega orðið of seint fyr- ir þau fyrirtæki sem tæpast standi. - BÞ en búið er að taka skýrslur af öllum sem ákvörðun verður tekin um framhaldið," segir Björn Ægir. 20-30 manns voru með hesta- hópinn og búa þeir vitt og breitt um landið að sögn lögreglunnar í Vík. Atburðurinn varð um verslunarmannahelgina og urðu orðahnippingar milli landvarð- arins og eins fulltrúa hesta- mannanna skv. öruggum heim- ildum DV. Umferð hesta er sögð mjög illa séð á þessu viðkvæma svæði eða beinlínis bönnuð. -BÞ FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2001 DV Lyfjastuldurinn á FSA: Málið enn hjá saksóknara Embætti ríkissaksóknara hefur enn til skoðunar niðurstöður rann- sóknar á máli er upp kom í vor og varðaði lyfjastuld á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri. Talið er fullvíst að lyfjum hafi i flórgang verið stolið á tveimur deild- um sjúkrahússins áður en þjófnaður- inn uppgötvaðist í marsmánuði. Þá strax hófst umfangsmikil lögreglu- rannsókn sem lauk í síðasta mánuði. Björn Jósef Arnviðarson, sýslumað- ur á Akureyri, segir málið þess eðlis að það hafi farið beint til saksóknara enda varði það m.a. brot í opinberu starfi og slík mál heyri undir emb- ætti saksóknara ríkisins. Samkvæmt heimildum DV liggur einn aðili sterklega undir grun í mál- inu en óvíst er hvort nægar sannan- ir þyki liggja fyrir að nægt geti til málshöfðunar. Maðurinn sem um ræðir hefur látið af störfum á sjúkra- húsinu. -gk Blönduós og Skagafjörður: „Aðkomulöggur" sektuðu menn Lögreglumenn frá Ólafsfirði og Siglufirði brugðu sér bæjarleið í upphafl vikunnar og könnuðu sér- staklega notkun bílbelta á Blöndu- ósi og á Sauðárkróki. Á annan tug ákæra voru gefnar út í ferðinni til þeirra sem voru staðnir að því að nota ekki bílbeltin. Var haft á orði að það „færi betur á því að aðkomulögreglumenn" sekt- uðu fyrir þessa vanrækslu í umferð- inni en heimamenn. -gk ísland viöurkennt: Upprunaland ís- lenska hestsins Þó að einhverjum kunni að finn- ast það undarlegt hefur ekki gengið þrautalaust að fá ísland viðurkennt sem upprunaland íslenska hestsins. Þar ræður flókið samspil strangi'a alþjóðlegra reglna og ræktunarsið- fræði þeirra sem vinna með íslensk hross. Nú er lokið áralangri baráttu og hefur Guðni Ágústsson landbún- aðarráöherra skrifað undir reglu- gerð um uppruna og ræktun ís- lenska hestsins. Landbúnaðarráðuneytið, Bænda- samtök íslands og embætti yfirdýra- læknis hafa unnið saman að þessu verkefni. Ræktendur íslenska hests- ins innan alþjóðasamtakanna FEIF gangast nú undir sömu skuldbinding- ar og reglurnar eru þannig gerðar að þær verða samþykktar af öðrum ríkj- um og ríkjabandalögum. -GG AKUREYRI léttskýjaö 6 BERGSSTAÐIR þoka 6 BOLUNGARVÍK léttskýjaö 7 EGILSSTAÐIR léttskýjaö 6 KIRKJUBÆJARKL. úrkoma 9 KEFLAVÍK skýjaö 8 RAUFARHÖFN skýjað 6 REYKJAVÍK léttskýjaö 8 STÓRHÖFÐI úrkoma 10 BERGEN skýjað 16 HELSINKI hálfskýjaö 14 KAUPMANNAHÖFN skýjaö 17 ÓSLÓ alskýjaö 16 STOKKHÓLMUR 15 ÞÓRSHÖFN súld 11 ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 10 ALGARVE heiðskírt 19 AMSTERDAM þokumóöa 20 BARCELONA þokumóöa 22 BERLÍN heiðskírt 18 CHICAGO alskýjaö 22 DUBLIN léttskýjað 10 HALIFAX þoka 17 FRANKFURT léttskýjað 18 HAMBORG léttskýjaö 17 JAN MAYEN LONDON skýjaö 18 LÚXEMBORG hálfskýjaö 18 MALLORCA þokumóöa 19 MONTREAL heiðskírt 21 NARSSARSSUAQ léttskýjaö 6 NEWYORK heiösktrt 26 ORLANDO heiöskírt 25 PARÍS skýjaö 17 VÍN þokumóða 20 WASHINGTON skýjað 21 WINNIPEG heiðsklrt 16 Sýslumaöur kærir e.t.v. sjálfur meint umhverfisspjöll hestamanna: Vitnin dreifð út um allt land - Lakagígamálið sent til Reykjavíkur Lakagígar eru friölýst svæöi. Veörið í kvöld : - . . . . Sölargangur og sjavarföll H | Veörið á morgun % - n Víða skúrir og dálítil rigning Austlæg átt, 3 til 8 m/s, en norðaustan 5 til 10 m/s norðvestan til á landinu í kvöld. Hvessir heldur í nótt. Skýjað verður með köflum og víöa skúrir eða dálítil rigning, einkum suðaustanlands. Hiti 9 til 17 stig, hlýjast noröaustanlands. REYKJAVIK AKUREYRI Sólariag í kvöld 21.15 21.11 Sólarupprás á morgun 05.46 05.23 Síðdegisf!ó& 21.45 02.18 Árdegisflóð á morgun 10.14 14.47 Skýfmgas' á ve&urtáknum ..Kvindátt 10°—h.ti tx -10° '^VINDSTYRKUR i metrum á sekóndu rnuu i HE'DSKiRT 43 O IÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAO SKÝJAD ALSKÝJAO "W/ Q RIGNING SKURIR SLYDDA SNJÓKOMA Q & ÉUAGAN6UR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR FOKA Ástand fjallvega Æt’-.Æ: M Halsj ! Uwgjokofl Vafllr é •kyggðum tvaAum Myrdal»)oknli •ru lokaðlr þar III annab ver&ur mgiýet www.vegag.Is/faerd Hlýjast suðvestanlands Norðaustan 10-15 m/s á Vestfjörðum á morgun, en annars austlæg átt, 8-13. Skýjað með köflum og víöa skúrlr eða dálítil rigning, einkum suðaustanlands. Hiti 9 til 17 stig, en hlýjast suðvestanlands á morgun. máííúti wm Vindur: C X—X ov"* \ Hiti 8° til 16° Norðlæg e&a breytlleg átt og víða bjart ve&ur, en stöku skúrir norðaustan tll. Sunnudn^ur Vindur: C vÁ—\ 5-10 m/» \ ■ý3!' \ Hiti 8° til 15° 0/0 Vindur: í vf—, 8-13mK Hiti 8° til 16° 1 Norðvestan 8 tll 13 m/s Nor&tæg átt, 5 tll 10 m/s og skúrir á Nor&ur- og og víða rignlng eða súld Austurlandi, en annars með kóflum en styttlr upp skýjað með köflum og sunnanlands. Hitl 8 til 15 þurrt. Hlti 8 til 16 stlg, stlg, hlýjast sunnanlands. hlýjast sunnan tll. BYGGT A UPPLYSINGUM FRA VE(

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.