Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2001, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2001, Blaðsíða 6
6 ____________________________FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2001 Fréttir DV Vangoldin vörslugjöld hjá Úrvalsvörum: Eldhúsið gjaldþrota - léttir fyrir starfsmenn Forsvarsmenn veitingastaðarins Eldhússins i Kringlunni óskuðu eft- ir gjaldþrotaskiptum á þriðjudag í síðustu viku. Héraðsdómur Reykja- víkur samþykkti beiðnina á fimmtudag og úrskurðaði Úr- valsyörur gjaldþrota. Þar með kem- ur Ábyrgðasjóður launa til skjal- anna og greiðir laun starfsmanna og lífeyrisiðgjöld. „Þá fær fólkið launin sin fyrr en ella. Þetta leysir því ákveðinn vanda,“ segir starfsmaður Eflingar sem fer með málefni starfsmanna Eldhússins í Kringlunni. Eins og fram kom í DV var Eldhúsinu skyndilega lokað um miðjan júli og starfsfólkið fékk engin laun útborg- uð i ágústbyrjun. Þá kom í ljós að fyrirtækið Úr- valsvörur ehf., sem rak Eldhúsið, hafði dregið skatta og lífeyrisgjöld af launum starfsfólks án þess að skila gjöldunum til réttra aðila. Sumir starfsmanna fengu því skell þegar álagningarseðill skattsins Starfsmennlmir Erna María Þrastardóttir og Margrét Manda Jónsdóttir fengu ekki launin sín. Margrét Manda var rukkuö um skatta sem þegar höföu veriö dregnir af launum hennar. Slokknaö undir pottunum Eldhúsinu í Kringlunni var lokaö um miöjan júlí vegna greiösluerfiöleika. Nú er Ijóst oröiö aö fyrirtækiö er gjaldþrota. kom og þeim var gert að greiða stór- ar fúlgur í vangreidda skatta. Meðal þeirra var Margrét Manda Jónsdótt- ir þjónustustjóri sem gert var að greiða 110 þúsund krónur en einn samstarfsmanna hennar fékk bak- reikning upp á 300 þúsund. Margrét Manda hafði reynt að fá upplýsing- ar hjá fyrirtækinu um laun sín og hve mikið hefði verið dregiö af henni en það tókst ekki fyrr en hún braust inn á skrifstofu þess með ostaskera og náði afritum af pappír- um sínum. Eigendur Eldhússins eru Viggó Sigursteinsson, Þórður Bragason og Þorsteinn Hjaltested. Viggó 'sagði í samtali við DV á dögunum að unn- ið væri að lausn þessara mála en skömmu síðar óskaði lögmaður þeirra eftir gjaldþrotaskiptum. Ólafur Sigurgeirsson hefur verið skipaður skiptastjóri. -rt Heiti potturinn Umsjón: Hörður Kristjánssou netfang: hkrist@if.is í upphafi var orðið ... Viðtal við Baltasar Kormák, sem birtist í Politiken fyrir skömmu, hefur vakið mikla athygli. íslendingar eru auðvitað ánægðir með athyglina sem „strákurinn okkar“ fær, en annað hefur ekki vakið minni athygli og það eru orð Baltasars varðandi titil skáldsög- unnar 101 Reykjavík eft- ir Hallgrím Helgason og skírskotun hennar tii lífs Baltasars. Kvikmyndaleikstjórinn ungi segir nefnilega að hann eigi titil skáldsögunnar og auk þess geti öll sag- an átt við lífshlaup hans, nema hvað móðir hans sé ekki samkynhneigð. Bókmenntalega sinnaðir gárungar hafa eftir Politiken-viðtalið tileinkað sér nýj- an frasa: í upphafi var orðið og orðið var hjá Balta... Björn prentari? Guðjón Ólafur Jónsson, formaður Fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í Reykjavík, segir í pistli á Hriflu, að harður vetur sé fram undan hjá ör- magna og villtri íhaldshjörð. í heita I pottinum hafa menn ™ ♦ •-I áður velt fyrir sér for- ystuhlutverki Ingu Jónu Þórðardóttur og talið var líklegt að Björn Bjarnason myndi sækjast eftir því hlutverki. Enn bólar ekkert á framboðstilkynn- ingu Björns. Ýmislegt bendir þó til að hann sé alvarlega að íhuga málið. Hann hafi verið duglegur að láta sjá sig við ýmis tækifæri í borginni. Nú síðast við gangsetningu á nýrri prentvél Prentmets í Skeifunni í fyrradag - nema Bjöm hafi kannski verið ráðinn prentari...?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.