Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2001, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.2001, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 23. ÁGÚST 2001 Skoðun I>V Grettistak í skógrækt á Austurlandi I Hallormsstaöarskógi Könglasöfnun. Spurning dagsins Hver er uppáhalds- liturinn þinn? Elva Rún Valgeirsdóttir, 5 ára: Gulur, því hann er svo rosalega sumarlegur. Anna Hannesdóttir, 4ra ára: Rauður, eins og er í uppáhaldspeys- unni minni. Hann er mjög fallegur. Arna Guömundsdóttir, 5 ára: Bleikur, ég á líka mjög mikið af bleikum fötum því mér finnst hann svo fallegur. Starkaöur Pétursson, 4ra ára: Svartur er uppáhaldsliturinn minn. Karen Sif Axelsdóttir, 2ja ára: Grænn er uppáhaldsliturinn minn, ég á líka græna rosalega fallega peysu í þeim lit. Darri Davíösson, 4ra ára: Blár er flottasti liturinn af því aö þaö er strákaliturinn. Helgina 10.-12. ágúst sl. var hald- inn á Hallormsstað aðalfundur Lands- samtaka skógareig- enda. Þeim sama stað og þessi sam- tök voru stofnuð fyrir fjórum árum. Þessi ungu samtök hafa nú þegar lyft grettistaki í undir- stöður að öílugri skógrækt um allt land, sem nýrri búgrein, viðurkenndri til stuðnings og til viðbótar breyttra búskapar- hátta og tekjuöílunar bænda, með lögum um landshlutabundin skóg- ræktarverkefni. Aðalfundir Lands- sambandsins hafa til þessa verið haldnir til skiptis í landshlutunum. - Nú í boöi Austfirðinga með slík- um höfðingsbrag, að ég vil koma á framfæri hjartans þökkum fyrir þær ógleymanlegu móttökur. Siglingin með Lagarfljótsormin- um, landtakan á Húsatanga, viðtök- urnar þar og galakvöldverðurinn í Víðistaðaskógi á laugardagskvöldið eru viðburðir sem engin orð fá lýst, né þakkað að verðleikum. - En vöktu vonir og vissu fyrir þvi að í Austfirð- ingum eru þeir innviðir, að þeir bæði kunna og geta lifað af og með landi sínu, fái þeir til þess frið fyrir „verk- smiöjuveldinu" og landið grið fyrir unturnaræði „virkjunarvaldsins". Ég hef áður gist við Snæfell, greint aðeins rönd Eyjabakkajökuls við iljar, farið um Austuröræfi, Arnardal, nágrenni Kárahnjúka, og komið að Eyjabakkafossi, undir leiðsögn staðkunnugs öðlings, með enskum hreim í máli, en svo sjá- andi, að hann „notaði opin augu til/ auðnar töfra að finna“. Og sannaði Oiafur Magnússon skrifar: Eftir menningarnóttina, sællar minningar, um sl. helgi var sagt frá gangi mála daginn eftir í þeim fjöl- miðlum sem þá voru tiltækir. Flest fór þar vel fram, en ekki var sömu sögu að segja um eftirlegukindurn- ar fimm þúsund sem urðu til vand- ræða þegar líða tók á nóttina. Mik- ið var um líkamsárásir og ölvun í borginni. í útvarpsfréttum daginn eftir var rætt við yfirlögregluþjóninn í Reykjavík og hann inntur eftir gangi mála. Hann gat þess sem hér er nefnt að ofan og skýrði frá því að erlendir starfsbræður hans heföu orðið vitni „Þessi ungu samtök hafa nú þegar lyft grettistaki í undirstöður að öflugri skóg- rœkt um allt land, sem nýrri búgrein, viðurkenndri til stuðnings og til viðbótar breyttra búskaparhátta og tekjuöflunar bœnda, með lögum um landshlutabund- in skógræktarverkefni. “ þar með, að „útlendingar" hrífast innilega af landinu okkar, harð- geröa hálendisgróðrinum og dulúðgi sköpunarsögunnar, sem lesa má hvarvetna. Um Krepputungur, Kverkfjöll, Öskju, Víti og slóðir Fjalla-Eyvindar fór ég annað sinn undir leiðsögn ís- lensks fagmanns sem skilaöi sínu með ágætum, en lét landið sjálft um lýsingarorðin á tign og eðli náttúr- „Það er hins vegar spum- ing sem mér finnst alveg mega rœða, hvort ekki eigi að grípa til róttœkra að- gerða af lögreglu. Að sprauta vatni til að rýma miðborgina af óaldarlýð er ekki slíkt voðaverk að úti- loka þurfi með öllu. “ að ófremdarástandinu sem ríkti um nóttina. Yfirlögregluþjónninn gat þess að hinir erlendu starfsbræður lögregl- unnar hefðu spurt hvers vegna ekki unnar, sem er ólygnust aðferð og áhrifin magnþrungin. Þetta, til sam- ans við kynni mín af fjölgáfuðu lista- fólki í byggðum Austurlands, reisn þess og rausn, fyllir mig bjartsýni á, að góðar vættir firri það þeirri bölv- un að eyðileggja þetta einstæða land sitt með vatnatilflutningum, leirfoki úr uppistöðulónum og sundurgröfn- um hæðum og hólum. Kyotobókun, koltvísýringsbind- ing og matsaðferðir til úrvinnslu verða hér eftir að meta að jöfnu gró- ið land sem bindur einnig kolefni í sinni jarðvegsþekju. Landsvirkjun má ekki líðast að sökkva því áfram i stórum stíl, án mats á bótaskyldu og ábyrgð. Þótt þeir háu herrar sem þar ráða láti pota niður í algróið land niðri í byggð nokkrum trjá- plöntum og flaggi þar með spariand- litinu á tyllidögum. Það er að mínu mati tvöföld fóm og óheiðarlegur loddaraleikur til „vegs og virðing- ar“ í vafasömum kaupskap undan- þágu pólitíkurinnar. hefði verið kallað á óeirðalögreglu eða mannfjöldanum dreift með vatnsslöngum. En eins og allir vita er hér engin óeirðalögregla og ekki er notast við tæki eins og vatns- slöngur líkt og víða er þekkt í er- lendum borgum í Evrópu. Það er hins vegar spurning sem mér finnst alveg mega ræða hvort ekki eigi að grípa til róttækra að- gerða af lögreglu. Að sprauta vatni til að rýma miðborgina af óaldarlýð er ekki slíkt voðaverk að útiloka þurfi með öllu. Borgina þarf að hreinsa hvort eð er eftir svallnætur helganna og það gæti því farið vel saman að koma á vettvang með vatnsslöngurnar eitthvað fyrr ef mikið liggur við. R-listinn hræddur Steinar skrifar: Ég var að horfa á þáttinn Taxa. Gaman var að sjá og heyra í borgar- stjóranum, glað- beittum og hress- um. Borgarstjórinn kom eins og venju- lega mjög vel fyrir, látlaus og með sína eðlislægu yfirveg- un. Eitt stakk þó í augu og eyra; ótt- inn við framboð Björns Bjamasonar. Frúin reyndi að breiða yfir þetta agn sem gæti orðið henni skeinuhætt en það tókst ekki. Það er að mörgu leyti eðlilegt að borgarstjóra finnist sér ógnað með umræðu um framboð menntamálaráðherra, því pólitísku mótlæti eða mótbáram hefir hún ekki þurft að mæta af hálfu minnihlutans í Reykjavík. Hún veit hvað klukkan slær, hún þekkir sína eigin bakhjarla, en veit hversu megnugur Sjálfstæðis- flokkurinn er ef styrk forysta leiðir flokkinn. Það verður gaman að sjá hverjir verða á vetur settir hjá Sjálf- stæðisflokknum. Sjónvarpid klæmist Hallfríður skrifar: Enn heldur sjónvarp ríkisins sínu striki. Við sem heima sitjum og eram í nauðungaráskrift hjá RÚV fengum skammt númer tvö af sænskri upplýs- ingamynd um vændi og klám i Aust- ur-Evrópu. Ekki vora sparaðar rass- bera stúlkurnar, sem dilluðu bossan- um á götum úti og í gluggum tékk- neskra borga. Svíinn, síðhærður sögumaður, var áhugasamur og leyndi sér ekki hræsnin í rödd hans, líkt og hjá þeim sem lifa og hrærast í að horfa á og gera svona soramyndir. En ég segi; Ríkisstofnun eins og Sjón- varpið á að skammast sín fyrir að bjóða okkur þessa svívirðu sem sjón- varps- og afþreyingarefni. Nóg er nú að vera hlekkjaður í nauðungar- greiðslum við það eitt að hafa keypt sér sjónvarpstæki. Flugfélagiö Jórvík og einn eigenda Og én ríkisstyrkja. Frumherjar í fluginu Bjami Ólafsson hringdi: Það er gleöilegt til þess að vita að alltaf eru einhverjir tilbúnir til þess að gerast frumheijar í flugmálum lands- manna. Á nokkurra ára fresti koma fram dugnaðarforkar, eins konar ofur- hugar, sem hafa trú á því að flug hér á landi geti blómgast og dafnað og verða svo smám saman uppteknir af því að gera hluti sem ganga. Þetta gerðist þegar Loftleiðir vora stofnaðar, Is- landsflug og flugfélagið Atlanta - og nú er í gangi flugfélagið Jórvík, þar sem menn virðast ætla að láta sverfa til stáls um flugsamgöngur á þeim leiöum sem Flugfélag íslands skilur við. Svo heppilega vill til að ávallt koma fram nýir frumherjar í fluginu hér á landi. Kringlan og Smárinn Kolbrún hringdi: Ég hef trú á samkeppninni og tel hana eina ráðið til að hemja óhóflegar verðhækkanir. Ég trúi þvi hins vegar ekki að tveir risamarkaðir, líkt og Kringlan og nýja Lindin í Smáranum, geti komist af Makklaust. Annað hvort fyrirtækið hlýtur að lúta í lægra haldi. Mér finnst Kringlan fin og flott, og mátulega stór. Getur verslunarsam- stæöa orðið flnni? En ef eitthvað getur bjargað þá er það samkeppnin. BV Lesendur Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eða sent tölvupóst á netfangiö: gra@ff.ls Eöa sent bréf til: Lesendasíöa DV, Þverhotti 11, 105 Reykjavík. Lesendur eru hvattir til aö senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang. • • Lýst er eftir Ossuri Garri getur ekki á heilum sér tekið þessa dag- ana. Það gerir söknuðurinn. Áður hefur Garri staðið upp á þessum vettvangi og sagt eins og hinir fíklarnir: Ég heiti Garri. Ég er stjórn- málafíkill. Áhugi Garra á pólitík er sem sé yfir- lýstur og skjalfestur og það er einmitt af þeim meiöi sem depurð Garra þessar vikurnar er sprottin. Svið stjórnmálanna á íslandi er það sem mestu skiptir fyrir sálartetrið og þegar eitt- hvað er að þessari mikilvægu leikmynd þá skilar það sér umsvifalaust inn í sálarlíf Garra. Nú má ekki skUja þetta sem svo að Garra þyki miður að í pólitíkinni sjálfri séu illindi og að menn rífist þar og skammist. Síður en svo. Það sem veldur Garra depurð er einmitt fjarvera átaka og Ul- deUna, því samkvæmt hans kokkabókum þýðir það að þá sé eitthvað að. Og söknuöurinn sem heltekið hefur Garra síöustu vikur er einmitt af þessum toga, þaö vantar eitthvað, það er eitt- hvað fjarverandi sem ætti að vera tU staðar. Og það er þess sem Garri saknar. í gönguskóm Þegar Össur Skarphéöinsson kom í örstutt sjónvarpsviðtal þar sem hann var gripinn í hné- buxum og gönguskóm einhvers staðar á hálend- inu í kringum Kárahnjúka áttaði Garri sig á því hvað hefur vantað í íslenska pólitík síðustu vik- ur og mánuði. Það hefur vantað Össur Skarphéð- insson. Össur er einn af uppáhaldsstjórnmála- mönnum Garra ásamt Davíð og því er ekki skrýtið að söknuðar gæti þegar Össur hverfur svona alveg af sjónarsviöinu. Það að fá að sjá hann í örskotsstund við Kárahnjúka ærir auðvit- að bara upp í fólki hungrið eftir þvl að fá að sjá og heyra meira af þessum mikla stjómmálaleið- toga sem velgt hefur stjómarliðum undir uggum og haldið uppi slíku fjöri í pólitíkinni að jafnvel fíklamir eru ánægðir. Fjölskipuð forustusveit En hvar er Össur. Garri hefur nánast ekkert séð til hans í þeim stórmálum sem upp hafa komið í sumar. Kárahnjúkamál, sjávarútvegs- mál, og síðast en ekki sist Árnamálin. Nánast undantekningarlaust eru það einhverjar Sam- fylkingardrottninganna sem eru málsvarar flokksins og talsmenn. Þær eru auðvitað ágætar út af fyrir sig en þær eru náttúrlega ekki Össur. Össur er einstakur og því illskiljanlegt ef honum er haldið í felum. Er það kannski gert í nafni einhvers flokkslýöræðis þar sem fjölskipuð for- ustusveit á að fá að njóta sín? Spyr sá sem ekki veit! Össur er foringinn og foringjar eiga auðvit- að að vera sýnilegir. „Hvar hafa dagar lífs míns lit sínum glatað / og ljóðin sem þutu um mitt blóð frá degi til dags?“ Þannig hefur Garri þulið ljóð í söknuði sínum. Nú er svarið komið og að- eins eitt ráð til að dagarnir öðlist lit sinn á ný. Að Össur komi strax úr felum. Því er lýst eftir formanni Samfylkingarinnar - . sálarheill fíkils er í húfi! GctlTI Guöríöur B. Helgadóttir skrifar fré Blönduósi: Hvar var óeirðalögreglan? Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Finnst sér ógn- að í umræðunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.