Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2001, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 2001
DV
Fréttir
Mikil óánægja Samfylkingarmanna á Austurlandi vegna raforkumálanna:
Þrýst á Einar Má að segja
sig úr þingflokknum
„Menn eru búnir að fá alveg upp
í kok af framkomu flokksforustunn-
ar í raforkumálunum, bæði því sem
snýr að virkjunarmálunum og eins
hvað varðar álversmálið," segir
einn af forkólfum Samfylkingarinn-
ar á Austurlandi, um samskipti al-
mennra flokksmanna á Austurlandi
við flokksforustuna, sem eru ekki á
innilegu nótunum þessa dagana.
DV hefur fyrir þvi öruggar heim-
ildir að talsvert hafi verið um fund-
arhöld almennra flokksmanna fyrir
austan að undanfomu þar sem rætt
hefur verið um hugsanlegar hóp-
uppsagnir úr Samfylkingunni og
menn muni að öllum líkindum láta
til skarar skríða í þeim málum á
Skötufjörður:
Beltin björguðu
Bandarískir ferðamenn veltu bíl
sínum við fyrir botni Skötufjarðar í
ísafjaröardjúpi siðdegis i gær. Öku-
maðurinn mun hafa misst stjóm á
bílnum í lausamjöl með þeim afleið-
ingum að hann endastakkst og valt
síöan ofan í fjöm. Að sögn lögregl-
unnar á ísafirði er mikil mildi að
fólkið skyldi ekki slasast alvarlega
og trúlegt að beltin hafi bjargað því
sem bjargaö varð. Bíllinn, sem er
bílaleigubíll, er mikið skemmdur og
mun fólkið ekki ferðast frekar á
honum. -aþ
næstu vikum. Þá
hefur blaðið
einnig öruggar
heimildir fyrir
því að mikill
þrýstingur sé
gagnvart Einari
Má Sigurðssyni,
þingmanni Sam-
fylkingarinnar á
Austurlandi, að
segja skilið við
þingflokkinn þar
sem hann er nán-
ast eini talsmað-
ur þess að virkja
fyrir austan og koma á fót álveri á
Reyðarfirði.
Einar Már
Sigurösson
Þrýst á hann aö
seg/'a sig úr þing-
flokki Sam fyik-
ingarinnar.
„Ég get ekki
tjáð mig mikið
um þetta mál á
þessu stigi á ann-
an hátt en þann
að segja að fólk af
þessum væng
hefur verið að
stinga saman
nefjum að undan-
förnu og ræða og
skoða sína
stöðu,“ sagði
Smári Geirsson,
samfylkingar-
maður og for-
maöur bæjarstjórnar Fjarðabyggð-
Smári
Geirsson
,,Fólk er aö
ræöa og
skoöa sína
stööu. “
Annar samfylkingarmaður sem
rætt var við sagði að samfylkingar-
menn á Austurlandi væru upp til
hópa mjög óánægðir með flokksfor-
ustuna vegna orkumálanna eystra
og hvernig helstu talsmenn flokks-
ins hafi haldið á því máli. „Það er
sama hvort það er formaðurinn eða
einhverjir aðrir úr forustunni, þeir
berjast allir gegn hagsmunum okk-
ar í þessum málum og við sjáum
ekki að við eigum samleið með
þessu liði,“ sagði viðmælandi blaðs-
ins.
Ekki náðist í Einar Má Sigurðs-
son, þingmann Samfylkingarinnar á
Austurlandi, sem er staddur erlend-
is. -gk
Smáralind í DV á
morgun
Bygging verslunar- og afþreying-
armiðstöðvarinnar Smáralindar er
nú að komast á lokastig. Þetta er
stærsta og umfangsmesta mann-
virki einkaaðila á íslandi og fáar
framkvæmdir stærri nema þá
kannski stóriðjur og virkjanir. Sem
dæmi um stærðina gæti hver ein-
asti íslendingur fengið þama pláss
sem nemur 1,4 rúmmetrum en bygg-
ingin er um 400 þúsund rúmmetrar
og 63 þúsund fermetrar að stærð.
Smáralind verður til umfjöllunar í
DV á morgun og verður fram-
kvæmdum þar gerð ítarleg skil í
máli og myndum. -HKr.
DV-MYND HARI
Meö baukinn til berja
Höfuödagur er í dag og senn hallar sumri. Jafnt háir sem lágir eru byrjaöir aö fara til berja, svo sem þessi táta í
Hafnarfiröi í gærdag. Hún leitaöi mærunnar í hrauninu sunnan viö golfvöll bæjarbúa í Hvaleyrarholti.
Ríkislögreglustjóri:
Varar við eitruðum e-töflum
Ríkislögreglu-
stjóri varar við
þremur tegundum e-
taflna sem þegar
hafa valdið dauðs-
föllum í Evrópu.
Töflumar eru auð-
þekkjanlegar; ein
tegundin er hvít
með merki Mitsubis-
hi, önnur gulbrún merkt sportvörufyrir-
tækinu Nike og sú þriðja er ljósbrún
merkt xTc.
Eitruöu töflurnar.
A heimasíðu ríkislögreglustjóra seg-
ir að viðvörunin hafl borist frá
Europol en jafhframt að ekki sé vitað
að umræddar e-töfl-
ur hafi komist í
umferð hérlendis.
Lögregla hefur þeg-
ar lagt hald á um 30
þúsund e-töflur það
sem af er árinu.
Þrátt fyrir al-
þekkta almenna
skaðsemi e-taflna
er að mati lögreglu tflefni til að vara
sérstaklega við þessum pillum, enda
eru þær taldar geta valdið dauða. -aþ
Almenningssamgöngur í ísafjarðarbæ:
Forseti bæjarstjórnar fékk aksturinn
- þrátt fyrir næstlægsta tilboð
Nokkur kurr mun á ísa-
firði í kjölfar þess að bæjar-
yfirvöld ákváðu að taka til-
boði Ferðaþjónustu Mar-
grétar og Guðna ehf. í al-
menningssamgöngur og
skólaakstur í Skutulsfirði.
Það er Guðni Geir Jóhann-
esson, forseti bæjarstjórnar
og fulltrúi framsóknar-
flokks í bæjarstjórn ísa-
fjarðarbæjar, sem er annar
eigenda Ferðaþjónustu Margrétar
og Guðna.
Þrír sóttu um aksturinn í heild
sinni og var tilboð Stjömubíla ehf.
lægst, eða upp á tæpar 86 milljónir.
Næstlægsta tilboöið átti Ferðaþjón-
usta Margrétar og Guðna, upp á
rúmar 93 milljónir. Sophus Magnús-
son skilaði hæsta tilboðinu sem
Guöni Geir
Jóhannesson
hljóðaði upp á tæpar 111
mifljónir. Um er að ræða
akstur næstu þrjú árin eða
til ársloka 2004.
„Þetta eru auðvitað
ákveðin vonbrigði. Ég hef
reyndar ekki fengið skila-
boð um eitt eða neitt frá
bæjaryfirvöldum enn þá
heldur sá ég þetta á Net-
inu,“ sagði Trausti M.
Ágústsson hjá Stjömubilum
en hann átti lægsta tilboðið, eins og
fyrr segir.
Trausti kveðst ósáttur við frest
bæjaryfirvalda eftir að tilboð voru
opnuð 15. ágúst síðastliðinn. „Við
fengum aðeins fjóra heila daga til að
afla aukaupplýsinga og leggja fram
rekstrartryggingu," segir Trausti en
honum tókst ekki að leggja trygg-
i á rekstri almenningsvagna
Tilboöi Feröaþjónustu Margrétar og
Guöna ehf. hefur veriö tekiö í al-
menningssamgöngur og skólaakstur
í Skutulsfiröi.
inguna fram í tæka tíð. Hann segir
tímamörkin einkennileg, ekki síst i
ljósi þess að bæjaryfirvöld tóku
ekki ákvörðun um málið fyrr en 27.
ágúst.
Guðni Geir Jóhannesson sagði í
samtali við DV að hann hefði ekkert
endilega átt von á tilboði sínu yrði
tekið. Hann segist ekki hafa tekið
þátt í störfum bæjarstjómar að und-
anfornu og verið víðs fjarri þegar
ákvörðun um rekstur almennings-
vagna í bænum var tekin. „Ég
skipti mér að sjálfsögðu ekkert af
þessu máli og var staddur í Reykja-
víku þegar fundurinn fór fram. Satt
að segja átti ég ekkert frekar von á
að mínu tilboði yrði tekið. Ég hef
sótt um áður og þá ekki fengið. Nú
er næsta skref að semja við bæjaryf-
irvöld og ef þau mál ganga upp ætti
aksturinn að hefjast innan
skamms," segir Guðni Geir Jóhann-
esson, forseti bæjartjómar og eig-
andi Ferðaþjónustu Margrétar og
Guðna ehf. -aþ
Innheimtumálum VR fjölgar
Launakröfur um
500 félagsmanna
Verslunarmannafé-
lags Reykjavíkur
eru í innheimtu.
Það er um 40%
aukning miðað við
fyrstu sex mánuði
ársins I fyrra. Ým-
ist er um að ræða innheimtu vegna
vangoldinna launa eða ágreinings
um kaup og kjör. - Fréttablaðið
greindi frá.
Bær Þorfinns karlsefnis?
Vísindamenn frá Kaliforniuhá-
skóla hafa hugsanlega fundið bæ
Þorfinns karlsefnis og Guðríðar
Þorbjarnardóttur við Glaumbæ í
Skagafirði sem þau reistu við heim-
komu frá Vínlandi á öðrum áratug
11. aldar. Bærin fannst undir ösku-
lögum úr Heklugosi frá árinu 1104. -
RÚV greindi frá.
Meira brottfall
Töluvert var um fall hjá fram-
haldsskólanemum á síðasta skólaári
og rekja skólamenn það til verkfafls
kennara sem stóð frá nóvemberbyrj-
un fram yfir áramót. Deilan hafði
áhrif á skólastarf yfir 19 þúsund
framhaldsskólanema.
Ósamræmt brunabótamat
Brunabótamat á tveimur eins
íbúðum í sama húsi getur verið mis-
munandi, allt eftir því hver metur
eignirnar. Fasteignamat ríkisins
tók við gerð brunabótamats af dóm-
kvöddum matsmönnum fyrir tveim-
ur árum. Þeir sem vilja kæra bruna-
bótamat hafa frest til 15. september.
- RÚV greindi frá.
Þurfa meðferð hjá sálfræðingi
Gunnar I. Birgis-
son, formaður bæj-
arráðs Kópavogs-
bæjar, er harðorður
í garð borgaryfir-
valda í Reykjavík
vegna gagnrýni um-
hverfis- og heil-
brigðisnefndar
Reykjavíkur gegn áformuðu at-
hafnasvæði í norðvestasta hluta
Vatnsendasvæðisins. Hann segist
halda að þetta fólk þurfi að fara í
sérstaka meðferð hjá sálfræðingi,
enda sé það alltaf nöldrandi út í
Kópavogsmenn. - Fréttablaðið
greindi frá.
Össur kaupir eigin bréf
Það er yfirlýst stefna félagsins að
athuga fjárfestingarkosti, og við
metum það einfaldlega svo að fjár-
festing í bréfum Össurar sé mjög
vænleg um þessar mundir,“ segir
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar,
vegna kaupa félagsins á eigin bréf-
um.
ASÍ vill vaxtalækkun
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ, ítrekar nú það
álit sem kom fram hjá forsvars-
mönnum ASÍ í sumar að löngu
tímabært sé að lækka vexti. Gylfi
telur hættulegt að halda vöxtum
háum þegar stefnir í samdrátt í
efnahagslífinu.
Mistök hjá VG
Margt bendir til
þess að þingmenn
Vinstri grænna hafi
fyrir mistök sam-
þykkt frumvarp til
laga á þingi í vetur
sem heimilaði Hita-
veitu Suðurnesja að
breyta rekstrar-
formi sínu í hlutafélag. Við at-
kvæðagreiðslu voru hvorki Stein-
grimur J. Sigfússon né Ögmundur
Jónasson viðstaddir. - Fréttablaðið
greindi frá. -HKr.