Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2001, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 2001
DV
Utlönd
n
Kofi Annan hvetur Bandaríkjamenn til að sækja ráðstefnu:
Kynþáttahatur
kemur öllum við
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, bættist í gær í
hóp þeirra sem hvetja bandarísk
stjórnvöld til að taka þátt í ráð-
stefnu SÞ um kynþáttahatur. Sagði
Annan að málið snerti allar þjóðir.
„Ég vona að Bandaríkjamenn
verði með og að þeir muni setjast
niður með öðrum ríkisstjómum til
að þoka málinu áfram,“ sagði Ann-
an á fundi með fréttamönnum í
Austurríki í gær þar sem hann var
í heimsókn. Annan heldur í dag til
Durban í Suður-Afríku þar sem ráð-
stefnan verður haldin.
Bandaríska utanríkisráðuneytið
tilkynnti á mánudag að Colin
Powell utanríkisráðherra myndi
ekki taka þátt í ráðstefnunni vegna
móðgandi ummæla í garð ísraels-
ríkis í sumum skjölum ráðstefnunn-
ar. Talsmaður ráðuneytisins sagði
að svo kynni að fara að Bandaríkin
sendu engan fulltrúa sinn til Suður-
Afríku.
Mótmæli gegn ísrael
Mótmælendur líktu síonisma viö
kynþáttahatur í Höföaborg.
Bandarísk stjórnvöld óttast að
ráðstefnan, sem hefst á föstudag,
muni setja samasemmerki milli sí-
onisma og Israelsríkis annars vegar
og kynþáttahaturs og aðskilnaðar-
stefnu hins vegar.
John Manley, utanríkisráðherra
Kanada, tók í gær undir áhyggjur
Bandaríkjamanna af gagnrýni á
Ísraelsríki og sagði fréttamönnum í
Ottawa að hann hefði ekki enn
ákveðið hvort hann færi til Suður-
Afríku.
„Við höfum þungar áhyggjur af
textanum," sagði Manley.
Kofi Annan sagði að það væri
hverju ríki í sjálfsvald sett hvort
það sendi fulltrúa á ráðstefnuna eð-
ur ei. Hann lagði hins vegar mikla
áherslu á mikilvægi ráðstefnunnar í
baráttunni gegn kynþáttafordóm-
um. „Ekkert land er ónæmt fyrir
kynþáttafordómum og óvild í garð
útlendinga," sagði framkvæmda-
stjóri SÞ.
Laus úr klóm mannrænlngja
Brasilíski fjölmiölakóngurinn Silvio Santos fagnar dóttur sinni Patriciu Abravanel eftir að mannræningjar iétu hana
lausa gegn lausnargjaldi í gær. Patricia var heila viku í haldi ræningjanna eftir aö þeir námu hana á brott af heimili
fööur hennar í Sao Paulo í Brasilíu.
Lögreglan hættir rannsókn á meintu kynferðisofbeldi:
Neil Hamilton og frú
ætla í meiðyrðamál
Neil Hamilton, fyrrum ráðherra
breska ihaldsflokksins, og
Christine, eiginkona hans, hafa
ákveðið að fara í meiðyrðamál við
konu sem sakaði þau um gróft kyn-
ferðislegt ofbeldi.
Breska lögreglan Scotland Yard
hætti í gær rannsókn sinni á
meintri kynferðisárás á Nadine Mil-
roy-Sloan í ibúð einni í Ilford þar
sem ekki fannst neitt sem studdi
fullyrðingar konunnar. Konan hélt
því fram að hjónin hefðu haft eins
konar mök við hana á sama tíma og
annar karl nauðgaði henni.
Hamilton-hjónin hafa ávallt neit-
að því að nokkuð væri hæft í ásök-
ununum og hafa nú höfðað mál.
Hjónin fengu því framgengt að dóm-
stóll frysti eigur Milroy-Sloan, sem
Hamilton-hjónin glöö
Neil Hamilton og Christine,
eiginkona hans, eru ánægö meö aö
lögreglan hætti rannsókn á meintu
kynferöisafbroti þeirra.
metnar eru á meira en fimmtíu
milljónir króna, þar til niðurstaða
hefur fengist.
Lögmenn Milroy-Sloan ætla að
reyna að fá þeirri ákvörðun dóms-
ins hnekkt. Henni var að sögn
brugðið þegar hún frétti af
ákvörðun lögreglunnar.
Christine Hamilton sagði að at-
burðirnir undanfarið hefðu tekið
mjög á hana og að allt hefði málið
verið sóun á tíma lögreglunnar.
Neil Hamilton var miðpunktur
hneykslismáls sem kom upp árið
1994 og skók þáverandi ríkisstjóm
íhaldsflokksins, undir forystu
Johns Majors. Hamilton var á þeim
tíma sakaður um að hafa þegið fé
fyrir að bera fram fyrirspurnir á
breska þinginu.
M.Benz A 140 Classic, 04/00, ek.
11 þús., 5 gíra, geislasp., álfelgur,
vindskeið, samlæs.rafm. o.fl.
Verð 1.790 þús. Tilboð 1.590 þús.
BMW 316i COMPACT, 04/00,
ssk., ek. 26 þús., geislasp., ABS,
16“ álfelgur, rafm. o.fl.
MMC PAJERO, langur, dísil, turbo,
04/95, 2800 cc, ssk., ek. 161 þús„
álfelgur.aksturstölva, dráttarkrókur,
vindskeið.intercooler, rafm. o.fl.
Níssan Almera GX 1,4. 09/99, ek.40
þús., 5 gíra, samlæs., rafm. o.fl.
Verð 980 þús. Tilboð 850 þús.
Mazda 626 GLXi 2000 STW. 07/98,
disil, 5 gíra, ek.93 þús., geislasp.,
ABS.álfelgur, þjófavörn, rafm. o.fl.
Verð 1.490 þús. Tilboð 1.390 þús.
M.Benz SLK 230 Kompresor.
11/99,ssk., ek. 19 þús., geislasp.,
ABS, leður.álfelgur, rafm. o.fl.
Verð 4.390 þús. Tílboð 3.850 þús.
Subaru Forester 2,0 STW, 02/99,
ssk., ek. 29 þús., 4x4, geisli, ABS, þjófavöm,
dráttarkrókur, vindskeið, rafm. o.fl.
Verð 1.990 þús. Tilboð 1.850 þús.
Subaru Impreza sedan 4wd. 6,00,
ek. 23 þús., 2000 cc, ssk., geislasp.,
ABS.álfelgur, vindskeið, vetrardekk,
DODGE RAM 2500 Cummings TD, árg.
99, ssk., ek. 59 þús., geislasp., ABS, leður,
hraðastiilir, rafm. o.fl.
Vetrardekk, hús og brettakantar fylgja.
Verð 3.900 þús. Tilboð 3.600 þús.
Subaru Legacy GL 2,0 Wagon,
04/99,ek, 43 þús., ssk., ABS, dráttar-
krókur, rafm. o.fl. Verð 1.790 þús.
Mazda 323 sedan, 04/99, ek. 62
þús, 1300 cc, 5 gíra, ABS, rafm. o.fl
Verð 985 þús. Tilboð 850 þús.
Nissan Micra GX 1300,16 v„ árg.
glra, ek. 22 þús., geislasp., álfelgur,
vindskeið, sumar- og vetrardekk.
Verð 810 þús. Ákv. 330 þús.
M.Benz A 160 CLASSIC, 02/00,
5 gíra, ek.17 þús., geislasp., ABS,
vindskeið, sumar- og vetrardekk,
rafm. o.fl.
Verð 1.770 þús. Áhv. 1.400 þús.
Toyota Carina XL 06/88, ek.217
þús.,5 gíra, 1600 cc, dráttarkrókur.
Verð 220 þús.
Nissan Trede 100 07/99, ek. 14 þús.
5 gíra, dísil, 3000 cc, vsk-bíll.
Verð 1.690 þús.
Mazda 323 GLXi sedan 1500,
07/97, ssk., ek. 59 þús., geislasp.
álfelgur, rafm. o.fl.
Verð 890 þús. Tilboð 750 þús.
Nissan Almera SLX.'96. ek. 40 þús.
ssk., 1600 cc, rafm., samlæsingar,
Verð 890 þús. Áhv.400 þús.
Mazda 323 GLXi, 4WD, STW, 02/95.
ek. 230 þús, 5 gíra, 1600 cc.
Verð 290 þús.
Mazda 323F GLXi 1500, 04/00, ek.
14 þús.,5 gíra, geislasp., ABS,
vindskeið, rafm. o.fl.
Mazda 626 GLXi 2000, 03/99,
5 gíra, ek. 75 þús., geislasp.,
ABS, rafm. o.fl.
Verð 1.590 þús. Tilboð 1.390 þús.
Yfir 1000 bílar á
skrá hjá okkur á
www.bilahollin. is
Mazda 626 GLXi 2000, 02/00,
ssk., ek. 13 þús., geislasp., ABS,
rafm. o.fl. Verð 1.870 þús.
Vísa- og Euro-raðgr.
Löggild bílasala.
Vantar bíla á skrá og á
staðinn með 100% lánum
JJIIllllllllIIIIIIIIII