Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2001, Side 25
29
MIÐVIKUDAGUR 29. ÁGÚST 2001
X>v Tilvera
Verð frá
35.500 éVWÖ
Allar stærðir "^3
Hafnarfjörður:
Kvistaberg er stjörnugatan
Mæðgurnar Hanna og Angelika Volz hafa varið sumarleyfum sínum á íslandi síðustu sjö árin:
Þjóðlagaplata
tendraði ást á landinu
DV, AKRANESI:________
Hanna Volz og dóttir hennar,
Angelika Volz, hafa tekið ástfóstri
við ísland og íslenska náttúru svo
um munar. Síðastliðin sjö sumur
hafa þær eytt mánaðarsumarfríi
sínu í að ferðast um landið og
þeim finnst alltaf jafn gaman að
koma til landsins. Landið er fal-
legt - en mjög dýrt. DV hitti
mæðgurnar að máli í vikunni.
„Þetta hófst allt með því að
mamma kom hingað árið 1975 til
að vinna. Hún keypti plötu með ís-
lenskum þjóðlögum. Þegar ég var
13 ára gömul fékk ég plötuna og
ákvað að læra íslensku. Þegar ég
var 15 ára gömul, árið 1994, sagði
ég við mömmu að mig langaði til
að fara til íslands og skoða landið
og síðan höfum við komið á
hverju sumri og verið hér í 3 til 4
vikur,“ segir Angelika.
„Við höfum skoðað mestan
hluta landsins og þetta er óneitan-
lega undursamlegt land, fallegt
landslag, fólkið er vingjamlegt og
það er miklu meiri reynsla að
ferðast um ísland heldur en
Þýskaland," segja mæðgurnar.
Þær segjast gjarnan elta uppi
staði þar sem sólin skin. Til að
mynda voru þær að spá í að fara á
Austfírðina þar sem þær voru fyr-
ir nokkrum árum en veðrið þar
var ekki gott svo þær ákváðu að
fara á Vestfirðina og á Vestur-
land.
Mjög dýrt.að
ferðast á Islandi
„Það er hátt verölag á íslandi og
dýrt að ferðast um landið. Það er
svo dýrt að sumir ferðalangar
hrökklast af landi brott áður en
ferð þeirra lýkur, þeir hafa ekki
efni á að ferðast allan tímann,“
segja mæðgurnar. Þær segjast
hafa keypt tvær kökusneiðar um
daginn, fyrir þann pening hefði
mátt kaupa fjórar sneiðar í Þýska-
landi. Verðið á tjaldsvæðunum
hefur rokið upp úr öllu valdi, það
væri kannski ekki dýrt í Reykja-
vík miðað við hvað boðið er upp á,
en á sumum stöðum úti á landi
væri dýrara eða sama verð og í
Woody
Allen í
uppáhalds-
borg
Háðfuglinn og klarinettuleikar-
inn Woody Allen er svo hrifinn af
Feneyjum og lái honum hver sem
vill að hann hefur ákveðið að Evr-
ópufrumsýning nýjustu myndar
hans, Bölvun ljósgræna sporð-
drekans, verði á kvikmyndahátíð-
inni þar í borg.
Þótt unnendur kvikmyndalist-
arinnar hafi nánast tekið Woody
Allen í guðatölu er leikstjórinn
sjálfur ekki i neinum vafa um
hvað honum þykir skemmtilegast
að gera. „Að leika tónlist," segir
hann í viðtali við ítalska blaðið
Corriere della Sera.
Allen fékk að velja á milli þess
að skrifa kvikmyndahandrit, leik-
stýra kvikmyndum, leika í kvik-
myndum og leika tónlist.
Sem kunnugt er leikur Allen
djass á klarinettu með nokkrum
vinum sínum.
DV-MYND DANÍEL V. ÓLAFSSON.
Rott steinasafn
Mæögurnar Angelika Volz og Hanna Volz í steinasafninu á Akranesi sem þær segja aö sé tilkomumesta steinasafn
sem þær hafa séö.
Reykjavík en enga þjónustu að fá.
Má ekkl spílla landinu
Mæðgurnar segja að búið sé að
spilla mörgum góðum ferða-
mannastöðum með átroðningi
ferðamanna. Búið sé að breyta
svæðunum og vegunum bara tU
þess að taka við fleiri og fleiri
ferðamönnum og þetta hefur orðið
til þess að þær fara frekar á þá
staði þar sem er lítið er um ferða-
manninn og náttúran er óspiUt.
„Við getum tekið sem dæmi að
það er erfítt að fara yfir Krossá,
bæði fyrir bUa og meim, þar sem
að hún er straumþung og líka
erfltt að brúa hana. Ef Krossáin
yrði hins vegar brúuð yrði ekkert
spennandi lengur að fara inn í
Þórsmörk," segir Angelika.
Þær mæðgur sögðust hafa hitt
ferðalang í Borgarnesi sem sagði
þeim að það væri nýtt og flott safn
á Akranesi en það sem var erfið-
ast var að finna safnið á Akranesi
þar sem það var svo Ula merkt en
þær fundu það að lokum og sáu
ekki eftir því að hafa skoðað
Steinaríkið.
„Þetta steinasafn er svo flott og
þar er svo mikið af fallegum
steinategundum að við höfum
aldrei séð svona tilkomumikið
safn, ekki einu sinni í Þýskalandi.
Hér er aUt svo skipulagt og öðru-
vísi en í Þýskalandi þar sem aUir
steinarnir eru geymdir í glerköss-
um. Hér getum við þreifað á stein-
um og fræðst um þá og tilurð
þeirra með textunum sem þeim
fylgja og það er svo mikið líf í
þessu safni,“ sögðu þær Angelika
Volz og Hanna Volz í samtali við
DV.
-DVÓ
DV, HAFNARFIROI:___________________
Fegrunamefnd Hafnarfjarðar
veitti viðurkenningar sínar fyrir
árið 2001 með viðhöfn á fostudag-
inn. Úr vöndu var að ráða þar sem
mikið er af faUegum görðum í
Hafnarfirði. Meðal garða sem
fengu verðlaun vom garðar við
Ölduslóð 19, Sævang 10, Heiðvang
38, Jófríðarstaðaveg 10, Erluhraun
1, Grænukinn 6, Birkiberg 4, Eini-
berg 17, Birkiberg 32, Traðarberg
7 og 9, Norðurbraut 23, Lækjar-
hvamm 18, Suðurgötu 86-88. Á
myndinni má sjá fongulegan hóp
fólks sem hugsar vel um garðana
sína og fær verðlaun fyrir.
-DVÓ/JGR
DV-MYND JGR.
Grænir puttar
Þessir Hafnfiröingar hafa ræktaö garöinn sinn í sumar þannig aö sómi er aö, enda voru þeir verölaunaöir af fegrunar-
nefnd á föstudaginn.
5DYRA
HÁTTOGLÁGTDRIF
Meðaleyðsla 9,31 *
2.390.000,- 1
SUZUKI BILAR HF
Skeifunni 17. Simi 568 51 00.
Blaðbera vantar
í Keflavík - IMJarðvílc.
►I Upplýsingar í síma 421 3466