Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2001, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001
Fréttir
x>v
Réttarhöld í máli fjársvikakonu á sjötugsaldri hófust fyrir héraðsdómi í morgun:
Sveik um 56 milljónir
út úr tíu karlmönnum
- beitti skipulögðum blekkingum, segir í ákæru ríkislögreglustjóra
DV-MYND HIIMAR ÞÓR
Konan fyrir dómi í vor
Aðalmeöferö í máli konu á sjötugsaldri hófst
fyrir héraösdómi Reykjavíkur í morgun. Konan
er ákærö fyrir aö svíkja tugi milljóna króna út
úr níu karimönnum.
Réttarhöld í máli konu á sjötugs-
aldri sem ákærð er fyrir tugmilljóna
fjársvik hófust fyrir héraðsdómi
Reykjavíkur í morgun. Ákæra á hend-
ur konunni var fyrst gefin út í maí síð-
astliðnum og var henni þá gefið að sök
að hafa svikið um 52 milljónir út úr
átta rosknum karlmönnum sem bú-
settir eru víða um landiö. Konan kom
þá fyrir héraðsdóm og svaraði öllum
ákæruatriðum játandi. Hún kvaðst þó
ekki hafa blekkt neinn visvitandi og
ekki notfært sér bágindi mannanna -
þeir hefðu einfaldlega viijað hjálpa sér
og það kæmi engum við.
Upphæðirnar sem konan hafði af
mönnunum eru misháar, allt frá 150
þúsund krónum og upp í rúmar 23
miiljónir. í öllum tilvikum
utan einu hafði konan sam-
band við mennina og með
skipulögðum blekkingum
fékk hún þá til að lána sér
fé. t tilfeÚi mannsins þar
sem konan hafði 23 milljón-
ir upp úr krafsinu skýrir
hún peningana sem endur-
gjald vegna heimilisverka á
ijögurra ára tímabili, frá
1996 til 2000.
Eftir að mál konunnar
var þingfest siðastliðið vor
hefur hún orðið uppvís að
tveimur öðrum fjársvika-
málum og verður einnig
réttað í þeim nú. Annars
vegar mun konan hafa haft
1.500.000 af manni í Reykja-
vík og hins vegar nýtt sér
bágindi, einfeldni og fá-
kunnáttu aldraðs einstæð-
ings með því að fá hann til
að samþykkja veðsetningu á íbúðar-
herbergi sínu vegna láns að upphæð
1.250.000 krónur - sem var í nafni son-
ar hennar.
Sonur konunnar, fæddur 1972, er
einnig ákærður fyrir fjársvik og yfir-
hylmingu. Honum er meðal annars
gefið að sök að hafa tekið við tæpum
níu milljónum af ávinningi móður
sinnar. Áttmenningarnir sem eiga í
hlut í fyrri ákærunni gera bótakröfur
á hendur konunni að upphæð rúmar
56 milljónir króna auk vaxta frá tjóns-
degi í hverju tilviki.
Konan, sem er átta bama móðir, var
tekin til gjaldþrotaskipta árið 1986 en
engar eignir fundust í búinu. Tveimur
árum síðar hefst fjársvikaferiil kon-
unnar og var hún árið 1991 dæmd í
þriggja ára skilorðsbundið fangelsi.
Konan hélt skilorðiö en hins vegar er
nú ákært fyrir brot sem áttu sér stað
ári áður en sá dómur var kveðinn upp.
Þess er vænst að karlmennimir tíu
beri vitni fyrir réttinum í dag en sök-
um umfangs málsins standa réttar-
höldin í tvo daga, í stærsta dómsal hér-
aðsdóms. -aþ
Fjársvik víöa um landiö
Karlmennirnir sem konan hefur svikiö um tugi milljóna á síöastliönum áratug
búa viös vegar um landiö. í ftestum tilvikum var konan i sambandi viö menn-
ina um nokkurra ára skeið.
Ný tilraun með stinningarlyf gegn æðasjúkdómi:
Viagra gegn sjúkdómum í lungnaslagæðum
- tveir til þrír sjúklingar taka lyfið reglulega að læknisráði
Mislæg gatnamót á Reykjanesbraut:
Risaframkvæmd
tekin í gagnið á
sunnudag
- verklok áætluð 1. júlí 2002
Umferð verður hleypt á hin nýju
mislægu gatnamót Reykjanesbrautar,
Breiðholtsbrautar og Nýbýlavegar á
sunnudaginn ef fram fer sem horfir.
Að sögn Magnúsar Einarssonar hjá
Vegagerðinni var farið yfir fram-
kvæmdir á fundi hjá Vegagerðinni eft-
ir hádegið í gær. Þar kom fram að
verktaki taldi gerlegt að hleypa umferð
á meginhluta mannvirkisins um helg-
ina ef veður héldist gott. Taka átti end-
anlega ákvörðun með fulltrúum sveit-
arfélaganna og yflrstjóm Vegagerðar-
innar á fundi nú í morgun.
Það er ístak sem framkvæmir verk-
ið sem kostar um 1.200 milijónir króna.
Þar af munu Kópavogsbær og Reykja-
víkurborg greiða um 100 milljónir
hvort sveitarfélag. Þama hefur verið
mikið jarðrask á undanfómum mán-
uðum og um að ræða gríðarmikla jarð-
vegsflutninga. Þá vora steyptar tvær
brýr, ein stór yfir Reykjanesbrautina
og önnur minni brú þar við hliðina og
nær Breiðholtinu. Út frá þeim era síð-
an vegtengingar með slaufum og
akreinum inn á aðliggjandi vegi. Sam-
hliða akvegatengingunum era gerðar
ráðstafanir fyrir gangandi fólk og um-
ferð reiðhjóla.
Samkvæmt samningum er gert ráð
fyrir endanlegum verklokum 1. júlí
2002, en ráðgert er að umferð verði
komin á mannvirkið í heild 15. október
DV-MYND ÞÓK
Framkvæmdir á lokastigi
Langþráö mislæg gatnamót á mótum Reykjanesbrautar, Breiöholtsbrautar og
Nýbýlavegar eru nú aö komast í gagniö.
nk. Verkið hefur verið unnið af ógnar-
hraða, en framkvæmdir hófust í febrú-
ar á þessu ári.
Magnús Einarsson segir að mann-
virkið verði tekið í notkun í þremur
áföngum. Um næstu helgi, eða sunnu-
daginn 30. september, verði opnað fyr-
ir alla megin-umferðastrauma. Þó
verður enn lokuð afrein fyrir umferð
sem kemur af Nýbýlavegi og inn á
Reykjanesbraut í norður. Sú afrein
verður opnuð fyrir umferð 8. október.
Þann 15. október verður umferð hleypt
á síðasta áfanga mannvirkisins. Þar er
um að ræða umferð undir brú á Álfa-
bakka og með tengingu við Árskógana
og Mjódd. Þá er eftir lokafrágangur en
jarðvegur verður grófjafnaðui' fyrir
veturinn og verkið endanlega klárað 1.
júlí á næsta ári. -HKr.
Lyfið viagra, sem þekkt hefur verið
sem stinningarlyf fyrir karlmenn, er
nú notað til að slá á ákveðinn sjúkdóm
sem einkennist af háþrýstingi í
lungnasiagæðum. 2-3 slíkir sjúklingar
hér á landi taka lyfið nú að staðaldri,
að læknisráði. Tilraunin með notkun
lyfsins gegn þessum sjúkdómi er á
byrjunarstigi.
„Viagra virkar á þann hátt að það
víkkar æðar,“ sagði Eyþór Björnsson,
lungnasérfræðingur á Vífilsstöðum, í
samtali við DV. „Það er eitt af mörgum
lyfjum sem reynt er aö nota til að
víkka lungnaslagæðar og hefur í stöku
tilviki gefist vel. Þetta lyf er reynt ef
önnur lyf hafa bragðist. Þá er fylgst
mjög náið með hvort einhver áhrif
verða. Þessi lyíjameðferð er í höndum
fárra einstaklinga sem sinna sérstak-
lega þessum sjúklingum sem era mjög
fáir.“
Eyþór sagði að fólk fæddist ekki
með þrengsli í lungnaslagæðakerfi,
heldur kæmi sjúkdómurinn oft upp á
snemmfúllorðinsárum. Konur þjáðust
oftar af þessum sjúkdómi heldur en
karlar og hann gengi stöku sinnum í
ættir. í þeim mjög fámenna sjúklinga-
hópi sem hefði verið gefið viagra til að
víkka út lungnaslagæðar væri fólk af
báðum kynjum.
Eyþór sagði enn fremur að sjúkdóm-
urinn sem um ræddi væri mjög erfið-
ur. Viagrameðferð væri engin lækn-
ing, en gæti veitt nokkra bót ef vel
tækist til. Meðhöndlunin fælist í því að
gefa sjúklingunum viagra reglulega
eins og hvert annað langvarandi lyf.
Hann sagði það ekki nýja hugmynd að
hægt væri að nota viagra á þennan
hátt. Það væri æðavíkkandi eins og
mörg önnur lyf. Jafnskjótt og það hefði
verið farið að nota það hjá mönnum
heföu æðavíkkanir í lækningaskyni
orðið eitt af hugsanlegum notkunar-
sviðum.
„Þetta er ekki gefið í stórum skala á
nokkum hátt, en eingöngu við þessum
sjaldgæfa lungnasjúkdómi," sagði Ey-
þór. Aðspurður hvort upprunalegur
tilgangur með lyfinu yrði þá eins kon-
ar hliðarverkun sagði hann að svo
væri ekki nema viðeigandi áreiti væri
til staðar. -JSS
500 færri leikskólabörn
Börnum á leik-
skólaaldri, það er 1
til 5 ára, hefur
fækkað um 500 í
Reykjavík í valdá-
tíð Reykjavíkurlist-
ans. Þetta segir
Guðlaugur Þór
Þórðarson, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokks og fulltrúi
í Leikskólaráði Reykjavíkur. Hann
segir þetta vera vegna lóðaskorts í
borginni. - Fréttablaðið greindi frá.
KR fær styrk
Knattspyrnufélag Reykjavíkur
mun fá 50 milljónir króna úr borg-
arsjóði á næstu þremur árum.
Um er að ræða styrk sem borgar-
ráð hefur samþykkt að veita KR
vegna framkvæmda við mannvirki
og svæði og lokauppgjör vegna lóð-
ar og byggingar íþróttahúss.
Miklar skemmdir í íbúö
Eldur kom upp í fjölbýlishúsi við
Suðurhóla síðdegis í gær.
Slökkviliði gekk vel að ráða niður-
lögum eldsins en upptökin eru rak-
in til potts sem húseigandi hafði
gleymt á eldavél. íbúðin er mikið
skemmd eftir brunann.
Eldur á Flúðum
Eldur kom upp í veitingahúsi á
Flúðum um sjöleytið í gærkvöld.
Slökkviiið Hrunamanna ásamt lög-
reglumönnum frá Selfossi fór á stað-
inn og gekk greiðlega að ráða niður-
lögum eldsins. Ekki urðu miklar
skemmdir af völdum eldsins en
þeim mun meiri af reyk og vatni.
Veitingahúsið var mannlaust þegar
eldurinn kviknaði.
Vínveitingaleyfi afturkallað?
íbúar hússins á Rauðarárstíg 33
hafa krafist þess að leyfi til veit-
ingarekstrar á jarðhæð hússins
verði afturkallað. í húsinu hefur
verið rekinn veitingastaður frá ár-
inu 1992, nú síðast undir nafninu
Kaffi Stígur.
Þrír íbúar hússins kvarta fyrir
hönd húsfélagsins vegna ónæðis af
völdum gesta Kaffi Stígs.
Sannfærandi upplýsingar
Halldór Ásgríms-
son, sem situr
óformlegan fund
varnarmálaráð-
herra Atlantshafs-
bandalagsins í
Brussel, segir upp-
lýsingar Banda-
ríkjamanna sann-
færandi um að Osama bin Laden sé
sekur um ódæðisverkin í Bandaríkj-
unum 11. september síðastliðinn og
að Rússar séu á sömu skoðun.
Brátt sektað
Kópavogslögreglan stöðvaði og
áminnti 230 ökumenn í gær fyrir að
gefa ekki stefnuljós þar sem þeir
voru að beygja út úr hringtorgum.
Um eitt hundrað ökumenn voru
teknir fyrsta klukkutímann sem lög-
reglan var með eftirlit. Innan
skamms mun lögreglan beita 5000
króna sektum við stefnuljósabrot-
um.
Jarðhitasamstarf
Valgerður Sverr-
isdóttir, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra,
undirritaði í dag í
Búdapest samning
milli íslands og
Ungverjalands um
samstarf landanna
á sviði jarðhita-
mála. Valgerður er í opinberri
heimsókn í Ungverjalandi í boði
Györgys Matolcsys, efnahagsmála-
ráðherra Ungverjalands. -HKr/aþ