Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2001, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001
Fréttir
DV
Bann við akstri á kvartmílubrautinni í Kapelluhrauni virt að vettugi:
ítrekað reynt að loka
- en allt komið fyrir ekki, segir varaformaður Kvartmíluklúbbsins
DV-MYND
Kalkúnar á flótta
DV, HORNAFIRDI:_____________
Kalkúnarækt er ört vaxandi búgrein
í landinu enda kjötið af þeim hnoss-
gæti hið mesta. Sigurður Bjamason á
Klettabrekku í Homafirði keypti 10
kalkúnaunga í vor og fékk hann ung-
ana frá Reykjum. Ekki hefur kalkúna-
eldið verið erfiðislaust því þetta em
hinir mestu strokufuglar og það sem
merkilegra er, segir Sigurður, þeir
strjúka alltaf í sömu áttina, það er í
vestur. Það hefur oft þurft að elta þá
uppi og koma þeim heim því þeir fara
ekki í austur og því er ekki til í dæm-
inu að þeir snúi við og komi sér heim
af sjálfsdáðum._-Júlia Imsland.
Þrettánfaldur
ýsukvóti
Óli H. Ólason, útgerðarmaður í
Grímsey, segir það koma sér mjög illa
fyrir krókabátana á Norðurlandi að
búið sé að kvótasetja ýsuna, en sjómenn
á Norðurlandi, t.d. i Hrísey og Grimsey,
hafa kvartaö mjög undan því að undan-
fómu að þriðjungur afla línubáta á hefð-
bundinni veiðislóð sé ýsa, þar sem ýsan
hefúr ekki haldið sig áður.
„Þetta kemur mjög illa út fyrir okk-
ur. Hér var engin ýsa á viðmiðunar-
árunum en nú er hún komin á miðin
hér. Við fengum 1500 kílóa ýsukvóta
sem við tókum á tveimur dögum, en
við höfum bara í september fengið um
20 tonn af ýsu. Við verðum að skipta
úr þorski fyrir ýsuna og þetta er alls
ekki gott mál,“ segir Óli. -gk
Ekkert bólar á
hugbúnaðarhúsi
Samningur um um byggingu hugbún-
aðarhúss íslenskrar erfðagreiningar á
lóð Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
var undirritaður með viðhöfn fyrir
síðustu jól. Við þá athöfn kom fram að
húsið yrði a.m.k. 1600 fermetrar að
stærð og yrði tekið i notkun árið 2002.
„í samningnum eru engin tímamörk
og ekki hefur verið farið í það að hrinda
þessu ákvæði samningsins í fram-
kvæmd enn þá. Meira er ekki um málið
að segja á þessu stigi,“ segiri Páll Magn-
ússon hjá íslenskrar erfðagreiningu.
Samningsaðilar stefndu einnig að
því að lokið yrði við frágang þriggja
hæða í svokallaðri „nýbyggingu" FSA.
Eina hæðina átti að taka í notkun sl.
vor, aðra á næsta ári og þá þriðju árið
2003. Þar eru verklegar framkvæmdir
ekki hafnar en samkvæmt heimildum
DV er stefnt að því að ftágangi hæðanna
þriggja verði lokið árið 2003. -gk
Sameiningarkosningar í Þingeyjarsýslum:
Kynningarherferö að hefjast
Það styttist í sameiningarkosn-
ingar í Þingeyjarsýslum en tvennar
kosningar fara fram 3. nóvember
nk. Annars vegar verður kosið um
sameiningu Húsavíkur, Tjörnes-
hrepps, Skútustaðahrepps, Reykja-
hrepps, Aðaldælahrepps, Keldunes-
hrepps, Öxarfjarðarhrepps og
Skútustaðahrepps. Hins vegar verð-
ur kosið í svokölluðu Norðvestur-
bandalagi um sameiningu Reyk-
dælahrepps, Ljósavatnshrepps,
Hálshrepps og Bárðdælahrepps.
Þingeyingar hafa margir kvartað
yfír því að kynning á sameiningu,
kostum hennar |
og göllum, hafi
verið í nokkru I
skötulíki_ til
þessa. Ástæðan |
er einkum sú að Wk
sameiningar-
nefndunum mun I
hafa verið ráð- |
lagt að leggja Reinhard
áherslu á kynn- Reynisson.
ingarherferð til-
tölulega stuttu fyrir kosningar frem-
ur en að dreifa henni á lengri tíma.
Að sögn Reinhards Reynissonar,
bæjarstjóra og formanns stóru sam-
einingarnefndarinnar, hefur við-
komandi sveitarstjórnum verið
send skýrsla nefndarinnar með
sameiningartillögu og greinargerð
og í vikunni verður síðan blaða-
mannafundur þar sem skýrslan
verður kynnt. Hún verður síðan
send inn á hvert heimili í sveitarfé-
lögunum og í framhaldinu haldnir
opnir kynningarfundir í öllum
sveitarfélögunum.
Ásvaldur Þormóðsson, formaður
sameiningarnefndar Norðvestur-
bandalagsins, segir að þeir séu
sömuleiðis í startholunum. í byrjun
október verði dreift kynningarbæk-
lingi inn á hvert heimili í hreppun-
um fjórum og í framhaldinu haldnir
fundir í hverjum hreppi. Um viku
fyrir kjördag verði síðan haldinn
einn sameiginlegur kynningarfund-
ur fyrir íbúa allra hreppanna.
Menn eru varkárir í spádómum
um niðurstöður kosninganna en
ýmsir nefna að fréttir um versnandi
skuldastöðu Húsavíkur kunni að
draga úr áhuga íbúa sveitahreppa á
að sameinast Húsavík.
-JS
„Þetta slys var skelfilegt og
slæmt til þess að hugsa að ung-
lingar séu að flækjast á brautinni
í leyfisleysi. Umferð er aö sjálf-
sögðu bönnuð á svæðinu þegar
keppnishaldi sleppir,“ segir Sig-
urjón Andersen, varaformaður
Kvartmíluklúbbsins.
í fyrrakvöld varð alvarlegt um-
ferðarslys á braut klúbbsins í
Kapelluhrauni þegar jeppi og
fólksbíll keyrðu fram af brautar-
endanum á mikilli ferð og höfn-
uðu niðri í djúpri gjótu. Fjögur
ungmenni í bílunum voru flutt á
slysadeild og reyndust tvö þeirra
mikið slösuð.
I kjölfar slyssins hefur það vak-
ið athygli að engar merkingar eru
á svæðinu sem banna óviðkom-
andi umferð. Svo hefur þó ekki
alltaf verið því forráðamenn
Kvartmíluklúbbsins hafa ítrekað
gert sitt besta til að loka svæðinu
en allt komið fyrir ekki. „Við höf-
um beitt öllum tiltækum ráðum
til að loka brautinni fyrir al-
mennri umferð. Margoft höfum
við sett upp áberandi skilti, auk
þess sem við höfum lokað með
hliðum og keðjum. Það virðist al-
veg sama hvað gert er, það koma
alltaf einhverjir og brjótast I
gegn. í eitt skiptið settum við
meira að segja vogaraflshlið með
steyptum sökklum en það stóð
ekki nema i nokkra daga og hvarf
svo í heilu lagi,“ segir Sigurjón og
bætir við að lögreglan í Hafnar-
firði hafi á umliðnum árum
vaktað svæðið vel og enginn vafi
að lögregluþjónar hafi komið í
veg fyrir mörg slys.
Sigurjón segir stjórn
Kvartmíluklúbbsins ekki munu
gefast upp að svo stöddu og enn
verði reynt að koma í veg fyrir að
ökumenn noti brautina fyrir
einkakappakstur. -aþ
Kvartmílubrautin í Kapelluhrauni
Ungir ökumenn hafa sótt í brautina þrátt fyrir bann viö umferö.
Veöriö í kvöld
: 6*.
^0] -:V /®
# 0 ,rf.
0:' 0 >r* fo
F
10“
Stöku skúrir víða á landinu
Austan 5 til 10 m/s, en 8 til 13 allra syðst
undir kvöld. Dálltil súld viö noröurströndina í
fyrstu, en annars stöku skúrir. Hiti 5 til 13 stig
að deginum, hlýjast sunnan- og vestanlands.
REYKJAVIK AKUREYRI
Sólarlag I kvöld 19.13. 18.57
Sólarupprás á morgun 07.28 07.13
Síftdegisflóó 15.42 20.15
Árdegisflóft á morgun 04.08 08.41
Skýringar á veðurtáknum
:4tt IOV-Hiti
VINDSTYRKUR
m«trum á siikiindu
-10;
Nfrost heiðskírt
ó o
LETTSKYJAÐ HALF-
SKÝJAÐ
SKYJAÐ AISKYJAÐ
RIGNING
SKÚRIR
SUYDDA SNJÓKOMA
'•V/
ÉUAGANGUR ÞRUIYIU-
VEÐUR
SKAF-
RENNINGUR
Allir vegir greiðfærir
Allir helstu vegir landsins eru
greiðfærir þessa dagana. Vegfarendur
eru þó beðnir að sýna tillitssemi því
víöa er unnið að vegavinnu. Einnig
getur verið hætta á steinkasti á
einstökum leiöum. Hálendisvegir eru
flestir aöeins færir fjallabílum.
Austan og suðaustan
Austan 10 til 13 með suöurströndinni á morgun en annars suðaustan 3
til 8. þokuloft suöaustantil en annars skýjaö meö köflum og þurrt aö kall.
Hiti 5 til 13 stig aö deginum, hlýjast sunnan- og vestanlands.
mmmv
Vindur;'^^ r~' Vindur; /^ /— Vindur: /■r'
10-20 ,»/» ' \ j 10-15«/* \ 10-15 m/s \ f
Hiti 7° til 12° óW j Hiti 7° tii 12° óVa6 Hiti 7° til 12°
Austan 10 tll 20, hvassast Norftaustan 10 til 15 og
allra syftst. Rlgnlng meft rigning á norðan- og
sufturströndlnnl en annars Norftaustan 10 til 15. austanverftu landinu en
skýjaft meft köflum og Rlgning austanlands en annars úrkomulitift. Hlti 5
úrkomulaust að kalla. Hiti annars úrkomulítiö. Hiti 7 til 10 stlg.
7 til 12 stig. til 12 stlg.
AKUREYRI súld 6
BERGSSTAÐIR
BOLUNGARVÍK hálfskýjað 5
EGILSSTAÐIR skýjaö 5
KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 9
KEFLAVÍK skýjaö 9
RAUFARHÖFN alskýjað 5
REYKJAVÍK skýjaö 8
STÓRHÖFÐI léttskýjað 9
BERGEN
HELSINKI skúrir 9
KAUPMANNAHÖFN rigning 11
ÓSLÓ alskýjað 8
STOKKHÓLMUR þokumóða 6
ÞÓRSHÖFN ÞRÁNDHEIMUR skýjaö 7
ALGARVE skýjaö 19
AMSTERDAM þokumóöa 13
BARCELONA þokumóða 15
BERLÍN þoka 7
CHICAGO hálfskýjaö 11
DUBLIN rigning 14
HALIFAX þoka 19
FRANKFURT þokumóða 13
HAMBORG skúrir 9
JAN MAYEN alskýjaö 2
LONDON þokumóða 15
LÚXEMBORG þokumóða 12
MALLORCA skýjaö 20
MONTREAL alskýjað 12
NARSSARSSUAQ alskýjaö 5
NEWYORK léttskýjað 15
ORLANDO alskýjaö 23
PARÍS þokumóöa 12
VÍN skýjaö 10
WASHINGTON heiöskírt 10
WINNIPEG heiðskírt 8
IKS