Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2001, Page 20
32
FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001
Kvikmyndir
I>V
Hearts in Atlantis frumsýnd vestanhafs á morgun:
Mjúkur Stephen King
What the Worst That Could Happen:
Þjófur stelur frá þjóf
í What the Worst That Could Happen leiöa þeir
laman hesta sína gamanleikaramir Martin Lawrence
og Danny DeVito. DeVito leikur milljónamæring sem
kemur aö þjófi (Martin Lawrence) brjótast inn hjá sér
eina nótt. Til aö jafna um fyrir sig rænir hann dýr-
mætum lukkuhring af innbrotsþjófinum og segir lögg-
unni aö hann eigi hringinn. Þjófurinn veröur gjörsam-
lega vitstola án lukkuhringsins og upphefst nú mikið
ævintýri þegar innbrotsþjófurinn byijar að beita öll-
um brögðum og gera allt til þess að ná hringnum aft-
ur.
Martin Lawrence og Danny DeVito þykja fara á
kostum í myndinni. Meðleikarar þeirra eru John
Leguizamo, Glenne Headly, Larry Milier, William
Fitchner. Leikstjóri er Sam Weisman sem leikstýrði
hinni vinsælu mynd, George of the Jungle.
What the Worst That Could Happen verður fmm-
sýnd á morgun í Laugarásbíói, Stjörnubiói og Borgar-
bíói, Akureyri.
Viðskiptaþrjóturinn
Danny DeVito í hlutverki Max Lawrence sem
kannski er enn meirí þjófur en atvinnumað-
urinn.
Metsölurithöfundur
Bette Midler í hlutverki Jacqueline
Susann.
Isn’t She Great:
Rithöfund-
ur í sviös-
ljósinu
í Isn’t *She Great leikur Bette
Midler metsöluhöfundinn Jacqueline
Susann, sem varð heimsfræg þegar
skáldsaga hennar Valley of the Dolls
var gefin út. Rithöfundarferill hennar
var ekki glæsilegur í upphafi og kom
íljótt í ljós að hæfileikar hennar voru
ekki miklir. Þetta skipti Susann samt
ekki máli. Það sem skipti hana máli
var að vera í sviðsljósinu og var hún
duglegri við að sækja samkvæmislífið
neldur en að sitja við skriftir. í mynd-
nni segir aðallega frá skrautlegu lífi
hennar og sambandi hennar við útgef-
ndann Irving Mansfield (Nathan
ane) sem ekki aðeins elskaði hana
leldur sá um að hún væri alltaf í
■viðsljósinu og hvernig það kom til að
hún gat þó skrifað eina bók sem eftir
var tekið, en í Valley of the Dolls nýt-
ir hún sér reynslu sína í sam-
kvæmislífinu, skrifaði um það sem
hún sjálf þekkti.
Auk Bette Midler og Nathan Lane
leika í myndinni John Cleese,
Stockard Channing, David Hyde Pi-
erce og Amanda Peet. Leikstjóri er
Andrew Bergman (Honeymoon in Ve-
gas, Striptease).
Isn’t She Great verður frumsýnd í
Háskólabíói á morgun.
Atvinnuþjófurinn
Martin Lawrence í hlutverki Kevin Caffrey sem lendir
hjá lögreglunni.
^The In-Crowd:
I klíkunni
Aðalpersónan í
The In-Crowd er
Adrian Williams
(Lori Heuring) sem
á að baki erfiða for-
tíð og hefur verið á
geðveikrahæli.
Þegar hún sleppur
út fær hún vinnu í
sveitaklúbbi sem
Klíkan í sveita- er mikið sóttur af
klúbbnum veit fólki sem gerir út á
hvernig á aö það að vera áber-
skemmta sér. andi í sam-
kvæmislífinu. f
klúbbnum hefur myndast klíka
ungra og ríkra sem lýtur forystu
Brittany Foster (Susan Ward). Adri-
an er falleg stúlka og þó að hún hafi
ákveðið að lifa kyrrlátu lifi stenst
hún ekki freistinguna þegar Britt-
any tekur hana undir sinn verndar-
væng. Þetta verður hinn skemmti-
legasti tími fyrir Adrian þar til einn
í klíkunni, Matt Curtis (Matthew
Settle), sýnir Adrian áhuga, en
Brittany hefur mikinn áhuga á hon-
um. Skipast nú fljótt veður í lofti.
The In-Crowd, sem leikstýrt er af
Mary Lambert, sem á að baki Pet
Sematary og Siesta, svo eitthvað sé
nefnt, verður frumsýnd á morgun í
Sam-bíóunum.
Vinir á raunastund
Anthony Hopkins og Anton Yelchin í
hlutverkum sínum.
inum heldur en forgrunni og er
Hearts in Atlantis slik kvikmynd, í
ætt við The Green Mile, Shawshank
Redemptions og Stand by Me svo ein-
hverjar séu nefndar.
Það var því vel við hæfi að ástr-
alski leikstjórinn Scott Hicks skyldi
vera fenginn til að leikstýra Hearts in
Atlantis. Hicks, sem varð heimsfræg-
ur þegar hann sendi frá sér Shine, er
leikstjóri leikaranna og önnur kvik-
mynd hans Snow Falling On Cedars
staðfesti það. í Hearts in Atlantis fær
hann stórleikarann Anthony Hopkins
til liðs við sig og verður fróðlegt að sjá
hvernig honum tekst að koma þeirri
dularfullu persónu Ted Brautigan
tilskila. í hlutverki drengsins er
Anton Yelchin sem þegar hefur leik-
ið í nokkrum kvikmyndum. -HK
Um helgina verður frumsýnd í
Bandaríkjunum Hearts in Atlantis
sem gerð er eftir skáldsögu Stephens
Kings. Það er William Goldman sem
skrifar handritið upp úr bókinni sem
samanstendur af fimm sögum sem all-
ar tengjast stríðinu í Víetnam. Styðst
hann aðallega við tvær sögurnar í
bókinni, Low Men in Yellow Coats og
Why We’re in Vietnam. Goldman, sem
þekktastur er fyrir að hafa skrifað
handritin að Butch Cassidy and the
Sunshine Kid og All the President’s
Men, hefur áður breytt skáldsögu
Kings yfir í kvikmynd, var það hin
rómaða Misery.
I myndinni, sem er á mjúkum nót-
um miðað við önnur afrek Kings á rit-
vellinum, segir frá virtum ijósmynd-
ara, Robert Garfield, sem kemur til
æskustöðvanna í smábænum Har-
wich í Connecticut til að vera við jarð-
arfór æskuvinar sem látist hafði í
Vietnam-stríðinu. Minningarnar hell-
ast yfir hann og staðnæmist hann við
atburði sem gerðust er hann var ellefu
ára gamall og bjó með móður sinni,
ekkju sem er bitur út i lífið. Dag einn
birtist ókunnugur maður, Ted
Brautigan, og flytur á efri hæðina.
Fljótt verður drengnum og Brautigan
vel til vina. Brautigan borgar drengn-
um einn dollara á viku fyrir að láta sig
vita þegar dularfullir menn koma og
spyrja um hann. Ekki lætur hann uppi
hvers vegna hann vill fá að vita um
komu þeirra fyrir fram.
Það hefur sýnt sig að bestu kvik-
myndirnar eftir skáldsögum Stephens
Kings sem gerðar hafa verið á síðustu
árum hafa verið þær sem eru á mann-
legum nótum, það er að segja að dul-
rænir atburðir eru meira í bakgrunn-
Leikstjórinn og leikarinn
Leikstjóri Hearts in Atlantis og Anthony Hopkins kynna myndina.
rmmæm
Bridget Jones's Diary
★★★i Bridget Jo-
nes er persóna sem
skríður beint inn í
hjartað á manni og
maður bæði hlær og
finnur til með henni.
Handritið er eins og
best verður á kosið:
bæði hnyttið og róm-
antískt og það er ekki nóg með að að-
alpersónurnar þrjár séu vel úr garði
gerðar, með þeim er heill hópur af
vel heppnuðum og vel leiknum auka-
persónum, nokkuð sem aðeins virðist
geta gerst í breskum myndum. -SG
A.t. Artificiai lnteltigence
★★★ Framtíðarsýn
Stevens Spielbergs er
ekki björt fyrir
mannkynið. Smátt og
smátt mun maðurinn
missa tilverurétt sinn
á jörðinni og útrým-
ing hans er óumflýj-
anleg. A.I. er þó langt
í frá að vera köld framtíðarsýn.
Myndin er þvert á móti hlý og gef-
andi. Ef farið væri í saumana á sög-
unni yrðu mótsagnirnar margar. Að
því frádregnu er hún kvikmyndagerð
eins og hún gerist best þar sem ótrú-
leg kvikmyndatækni og stórfengleg
kvikmyndataka er umgjörð utan um
heillandi framtiðarævintýri. -HK
The Tailor of Panama
★★★ Vel ofin saga
þar sem áhorfandinn
er lengi í vafa um
hver sé í raun og
veru að nota hvern.
Hún sjokkerar ekki
með sprengingum,
morðum og eltinga-
leikjum heldur
græðgi, yfirhylmingum og svikum
því að hér er hver sjálfum sér næst-
ur. Boorman er í finu formi og hefur
gert stemningsríka svarta kvikmynd
um „alvöru njósnir" í stað „kvik-
myndanjósna”; það bjargar enginn
heiminum hér, honum er ekki við
bjargandi. -SG
Tillsammans
★★★ Lukas
Moodysson leikstýrði
Fucking Ámál.
Tillsammans er ekki
eins áhrifamikil eða
eins þétt kvikmynd
og Fucking Ámál án þess að hún
valdi vonbrigðum. Um er að ræða
skemmtilega úttekt á frjálslyndi í lok
hippatímabilsins á áttunda áratugn-
um og hvaða áhrif skoðanir og gerðir
foreldra hafa á bömin sem þeir ala
upp í umhverfi sem þau eru ekkert
sérlega hrifin af. -HK
Skrekkur
★★★ Skrekkur er
ein af þessum örfáu
bamamyndum sem
fullorðnir hafa líka
gaman af. Persónum-
ar í Skrekk eru
kannski ekki raun-
verulegar (enda hvað væri skemmti-
legt við það?) en svo lifandi og hver
andlitsdráttur svo listilegur, hver
hreyfing svo ekta að það út af fyrir
sig er ævintýralegt. En ef tæknin
væri það eina sem gerði myndina at-
hyglisverða hefði hún ekki haldið
manni jafn hugfóngnum og hún
gerði. Sagan er einfaldlega skemmti-
leg og afskaplega vel skrifuð. -SG
A Knight’s Tale
★★ Er að hluta til
frumleg tilraun til að
nálgast þá kynslóð
sem mest fer í bíó.
Sú kynslóð er lítt
hrifin af miðaldaróm-
antík með hugdjörf-
um riddurum og hreinum aðalsmeyj-
um. Þetta veit leikstjórinn og hand-
ritshöfundurinn Brian Helgeland. Til
að ná til fjöldans lætur hann allt
raunsæi lönd og leið og poppar upp
miðaldarómantíkina með húmor upp
á nútímann, farsakenndum uppákom-
um og þekktum rokklögum. Tekst
honum bærilega að sjóða úr þessum
kokkteil. -HIÍ
M>
JAJ 10