Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2001, Side 23
FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001
35
IDV
Tilvera
m
Meat Loaf
54 ára
Einn vinsælasti rokkari
allra tíma, Meat Loaf, verður
funmtíu og flögurra ára í dag. Meat Loaf
haiði um nokkurt skeið sungið sig hásan
fyrir trylltan múginn þegar plata hans,
Bat out of Hell, kom út árið 1978 og varð
ein söluhæsta rokkplata allra tíma. Nafn-
iö Meat Loaf er að sjálfsögðu listamanns-
nafn. Hans raunverulega nafn er Marvin
Lee Aday. Það var fótboltaþjáifari hans
sem uppnefhdi hann Meat Loaf vegna
stærðar og þyngdar. Meat Loaf hefur á
milli þess sem hann ferðast um heiminn
(meðal annars kom hann við á íslandi og
hélt tónleika) leikið í kvikmyndum.
Gildir fyrir föstudaginn 28. september.
ornuspá
Vatnsberinn (20. ian.-i8. febr.r
I Láttu eftir þér að slaka
' á í dag en gættu þess
að láta ekki nauðsyn-
leg verk sitja á hakan-
lun. Vinur þinn kemur í heim-
sókn í kvöld.
Fiskarnir (19. febr.-20. marsk
Þú veltir fyrir þér að
Ifara í stutt ferðalag. Þér
fmnst þú þurfa á
einhverjum nýjungum
að halda og þyrftir að gefa þér tíma
til að gera eitthvað fyrir sjálfan þig.
Hrúturinn (21. mars-19. apríll:
Þú finnur fyrir breyt-
J^ingum í fari ákveðinn-
ar manneskju og ert
ekki viss um að þér
líki hún þó að aðrir virðist vera
afar ánægðir.
Nautið (20. april-20. maíl:
/ Þú átt ánægjulegan
dag. Rómantíkin gerir
vart við sig og þú ert í
Afcygóðu jafnvægi þessa
dagana. Þú færð hrós fyrir vel
unnin störf.
Tvíburarnir (23. maí-?i. iúni>:
Dagurinn verður
skemmtilegur og þú
f færð eitthvað nýtt að
hugsa um. Kvöldið
verður liflegt og skemmtilegt.
Happatölur þínar eru 3, 14 og 22.
Krabbinn (22. iúní-22. iúii):
Þér gengur vel að ná
k sambandi við fólk og
' átt auðvelt með að fá
það til að hlusta á þig.
Nýttu þér tækifærið til að kynna
hugmyndir þínar.
Uónið (23. iúlí- 22. áeústl:
, Þú rekur þig á ýmsa
veggi í dag. Þér reynist
erfiðara en þú hélst að
nálgast ákveðnar upp-
lýsingar sem þú telur mikilvægar.
Happatölur þínar eru 8,11 og 28.
Mevlan (23. áeúst-22, sept.l:
YW Vinir og fjölskylda
-AYtt skipa stóran sess í dag
V»og þú ferð ef til viU á
' ’ mannamót. Þú kynnist
nýjum hugmyndum varðandi
starf þitt.
Vogin (23. seot.-23. oKt.l:
S Vertu sjálfum þér sam-
Oy kvæmur þegar þú tjáir
V f fólki skoðanir þínar.
r J Þú lendir í vandræð-
um ef þú heldur þig ekki við
sannleikann.
Snofðdrekinn (24. okt.-?i. nnv.>:
Þú verður að sýna
sjálfstæði og ákveðni í
jvinnunni þinni. Taktu
gagnrýni ekki of nærri
þér en hlustaðu á hana og gættu
að því sem betur má fara.
Bogamaðurinn (22. nóv.-2i. des.):
.Þér tekst eitthvað sem
'þú hefur mikið verið
að reyna við undanfar-
ið. Farðu varlega og
íhugaðu vel hvert einasta skref
sem þú tekur í nýju starfi.
Stelngeltin (22. des.-l9. ian.):
"J ~ Það verður auðvelt að
fá fólk til að taka þátt
* Jr\ i breytingum á vissum
sviðum. Vertu þolin-
móður þó ekki gangi allt strax
upp.
Haust- og vetrartískan
Þaö var létt yfir fólkiu á æfingu fyrir kynningu á haust- og vetrartískunni í Borgarleikhúsinu.
Stór tískusýning Kringlunnar:
Tíska, leiklist, tónlist og dans
Haust- og vetrartískan verður kynnt
á stórri sýningu í Borgarleikhúsinu sem
hefst kl. 20.30 í kvöld. Þar verður bland-
að saman tísku, leiklist, dansi og tónlist.
Sýningin er boðssýning og verður tekin
upp og sýnd í Sjónvarpinu innan tíðar.
Það eru 23 verslariir í Kringlunni sem
standa að tískusýningunni og inn í hana
verður blandað stuttum atriðum úr sýn-
ingum Borgarleikhússins, auk þess sem
dansarar úr íslenska dansflokknum
koma fram. Alls taka 26 módel frá
Eskimo þátt í sýningunni og átta leikar-
ar og dansarar írá Borgarleikhúsinu.
„Þetta verður heilmikil tísku- og lista-
veisla,“ segir Margrét Einarsdóttir, einn
af stílistum sýningarinnar. „Þama verð-
ur alhliða fatnaður íyrir flesta aldurs-
hópa, allt frá nærfótum til útivistarfatn-
aðar,“ bætir hún við.
Sýningin í kvöld markar upphaf að
svokölluðum tískudögum í Kringlunni
sem standa til 30. september. Þar verð-
ur sýningarfólk títt á ferðinni næstu
daga, bæði í verslununum og utan við
þær, og kynnir það nýjasta í haust- og
vetrartískunni. Auk þess verða kynnt-
ar þar nýjungar í rafmagnstækjum og
snyrtivörum. -Gun.
Paul
McCartney
syngur í
veislu
Bítillinn fyrrverandi, Paul
McCartney, hefur alltaf náið sam-
band við ættingja Lindu heitinnar,
fyrrum eiginkonu sinnar. Nýlega
fór Paul með unnustu sína, fyrir-
sætuna Heather Mills, í brúðkaups-
veislu hjá frænda Lindu á Martha’s
Vineyard, leikvelli fína, ríka og
fræga fólksins. Þrjú hundruð gestir
duttu heldur betur í lukkupottinn
því Paul tók að sér að skemmta
þeim um stund. Hann lék til dæmis
á trompet í frægum negrasálmi um
dýrlingana marsérandi. Paul slútt-
aði svo með því að syngja gamalt
bltlalag, I Saw Her Standing There,
fyrir brúðgumann og brúðina.
Btaöberar óskast:
- Espigerði Furugerði -
- Skipholt Stangarholt Stórholt -
- Álfaland Árland Búland -
Upplýsingar í síma 550 5000
Skrifað undir skipulagsskrá
styrktarsjóðsins
Bent Scheving Thorsteinsson skrif-
ar undir. Honum til hvorrar handar
eru Margaret Thorsteinsson og
Páll Skúlason háskólarektor.
Gaf Háskóla íslands
ellefu milljónir króna
Nýtist til
rannsóknar
á einelti
Einn helsti velunnari Háskóla ís-
lands, Bent Scheving Thorsteinsson,
og eiginkona hans, Margaret, af-
hentu Háskóla íslands í fyrradag 11
milljónir króna til stofnunar sjóðs
sem hefur það markmið að standa
fyrir rannsóknum á einelti og
kanna allar lagalegar og siðferðileg-
ar leiðir til að fyrirbyggja einelti og
bæta fyrir afleiðingar þess.
Þetta er þriðji sjóðurinn sem Bent
Scheving Thorsteinsson hefur stofn-
að við Háskóla íslands. Tveir hinir
fyrri voru annars vegar verðlauna-
sjóður i minningu Óskars Þórðar-
sonar, barnalæknis og fósturföður
Bents, sem styrkir rannsóknir á
sviði barnalækninga, og hins vegar
verðlaunasjóður Bergþóru og Þor-
steins Schevings Thorsteinssonar,
fóður Bents, tfl styrktar á rannsókn-
um á sviði lyfjafræði.
Samtals nema gjafir Bents til Há-
skóla íslands á síðastliðnu ári rúm-
lega 30 miUjónum króna.
-HK
Samfylkingin
Hokksstjómarfundiir
SamfylMngariimar
Flokksstjóm Samfylkingarinnar kemur
saman tíl fundar laugardaginn 29.
september, kl. 13.00, á Hótel
Loftleiðum.
Dagskrá:
1. Flokkur til framtíðar
Össur Skarphéðinsson, formaður
Samfylkingarinnar, flytur framsögu og
kynnir nýjan stjómmálabækling
flokksins.
2. Sveitarstjómarkosningar í vor
Jóhann Geirdal, formaður
sveitarstjómarráðs Samfylkingarinnar,
flytur framsögu og fjallar um
undirbúning kosninganna í vor.Að
loknum framsögum er umræða.
3. Landsfundur í nóvember
Ása Richardsdóttir, formaður
undirbúningsnefndar landsfundar,
kynnir fyrirkomulag fyrsta landsfundar
Samfylkingarinnar 16.-18. nóvember
nk.
4. Önnur mál.
Fundurinn er opinn öllu
samfylkingarfólki.