Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2001, Page 24
36
FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001
Tilvera
DV
í f iö
Seiðandi
tónleikar
Sutaras
Litháenska þjóðlagasveitin
Sutaras heldur seiðandi tónleika
á Kringlukránni í kvöld. Þetta
er ein þekktasta
þjóðlagahljómsveit Litháens og
hún á sér aðdáendur um víða
veröld, enda sameinar hún
notkun upprunalegra
hjarðmannahljóðfæra og sígildra
hljóðfæra á snilldarlegan hátt.
Tónleikamir hefjast kl. 21.00 og
aðgangur er ókeypis.
Krár
1 NIRVANA I kvöld verö'a hái'dnir *
tónleikar til heiöurs hljómsveitinni
Nirvana í tilefni af því aö tíu ár eru
liðin frá útkomu plötunnar Never-
mind. Tónleikarnir veröa á Gauknum.
Bubbi Morthens heldur tónleika á
veitingastaönum „Salka" á Húsavík í
kvöld. Þeir hefjast kl. 23.00.
Klassík
■ kÖNGÚR-KJÁNI-ILLMÉNNÍÍ
SALNUM I kvöld veröa tónleikar
undir yfirskriftinni „Kóngur-kjáni-ill-
menni“ og leikur Bjarni Thor Krist-
insson á bassa og Franz Carda á pí-
anó. Efnisskráin er tileinkuö bassan-
um og hans ólíku hlutverkum í óper-
unni.
Djass
■ PJASS A VIPAUN
Djasskvintettinn Búgalú leikur á
Vídalín í kvöld. Á efnisskránni eru
nýir og gamlir djassstandardar í
bland viö frumsamda tónlist.
Kvintettinn skipa: Snorri
Sigurðarson, trompet, Steinar
Siguröarson, saxófónn, Ásgeir
Ásgelrsson, gítar, Þorgrímur
Jónsson, bassi, og Eric Qvick á
trommur. Tónleikarnir byrja kl.
22.30. Aögangur er ókeypis.
Sýningar
■ LISTSYNING Á LINDARGÖTU
Guöný Magnúsdóttir opnar í dag
sýningu á verkum sínum aö
Undargötu 14, í tilefni af flutningi
vinnustofu sinnar. Sýningin veröur
opin miövikudaga til sunnudaga kl.
14 -18, eða eftir samkomulagi, til
14. október.
■ VATNAPÍSIR. SÖNGUR OG UÖS
Vatnadíslrnar sýna listir sínar og
stúlknakór syngur í
Laugardalslauginni ! kvöld.
Sýningin er haldin á vegum
Orkuveitu Reykjavíkur og íþrótta- og
tómstundaráös Reykjavikur.
Vatnadísirnar eru stulkur á aldrinum
13-15 ára og ætla þær aö sýna
listdans í vatni. Þá mun stúlknakór
laöa fram töfrandi tóna undir stjórn
Margrétar Pálmadóttur og Ijósadýrð
mun auka á áhrifamátt
sýningarinnar. Áhorfendur eru beðnir
aö koma vel klæddir því dagskráin
fer fram utandyra. Sýningin hefst kl.
20 og aðgangur er ókeypis.
Fyrirlestrar
■ MÁLSTQFA í LÆKNADEILD
Afkomendarannsókn Hjartaverndar
nefnist erindi sem Margrét Bima
Andrésdóttir flytur í sal
Krabbameinsfelags Islands í dag kl.
16.15 á vegum málstofu
læknadeildar.
■ MALÞING UM STÆRÐFRÆÐI
Þurfa allir aö læra stæröfræöi? er
yfirskrift málfundar Flatar, samtaka
stæröfræöikennara. Fundurinn er
haldinn í Odda, stofu 101, og hefst
kl. 17.15.
SJá nánar: Lífiö eftlr vlnnu á Vísi.ls
Þórey Bergsdóttir datt í lukkupottinn:
Listmálari einn dag
Hún Þórey Bergsdóttir datt í
lukkupottinn nýlega er hún fékk aö
kynnast starfi listmálara einn dag
og læra ýmislegt um liti og list.
Hana dreymir nefnilega um að
verða myndlistarmaður þegar hún
verður stór. Við tókum hús á
Þóreyju og báðum hana að segja frá
þessu ævintýri sínu. „Ég fór með
mömmu í Pennann að kaupa skóla-
dót og þá sáum við kassa með aug-
lýsingu fyrir ofan. Þar var svokall-
aður Pennaleikur í gangi. Maður
átti að skrifa hvað maður vildi
verða þegar maður yrði stór og
stinga svo miðanum i kassann. Ég
skrifaði myndlistarmaöur og fór svo
bara heim. Nokkru seinna hringdi
kona í mömmu og sagði henni að
nafnið mitt hefði verið dregið úr
bunkanum, ásamt þremur öðrum og
ég mætti kynnast þessu uppáhalds-
starfi í einn dag. Ég varð auðvitað
svakalega ánægð.“
Aldrei mikið fyrir dúkkur
Þórey er átta ára og gengur í
Hvassaleitisskóla. Hún kveðst hafa
haft áhuga á myndlist alveg síðan
hún var lítil. Móðir hennar staðfest-
ir það. „Þórey var aldrei mikið fyr-
ir dúkkur heldur var hún alltaf að
teikna, lita og mála,“ segir hún. Þær
kannast þó ekki við að listafólk sé í
Maður Irfandi
MYNDIR: ANNA MARIA
í myndlistardeildinni er margt aö sjá
Þórey mátar puttapensla í Pennanum.
Frasier snýr aftur
Kolbrún
Bergþórsdóttir
skrifar.
Sköpun í gangi
Þórey málaói litríkan sjó, litríkan himin og fugla á flugi.
ættinni. Þórey kveðst sækja mynd-
listartíma í Gerðubergi vikulega,
eins og hún hafi gert tvo síðastliðna
vetur. Svona lýsir hún þriðjudögun-
um hjá sér: „Ég er í skólanum til
klukkan eitt og syng í kór til hálf-
þrjú. Þá kemur mamma og keyrir
mig upp í Gerðuberg. Þar er ég í
myndlist til fjögur. Síðan kem ég
heim og læri en sem betur fer eru
ekki mjög mikil heimaverkefni á
þriðjudögum."
Lærði að blanda svartan lit
En hvernig leið dagurinn sem
hún fékk að kynnast myndlistinni?
„Fyrst fór ég að hitta fólkið á skrif-
stofu Pennans," hefur Þórey frá-
sögnina og heldur áfram: „Þaðan fór
ég í heimsókn til listmálara sem
heitir Georg Guðni. Hann sýndi mér
vinnustofuna sína og myndir sem
hann hefur gert. Meðal þeirra voru
tvær sjálfsmyndir og ég sagði hon-
um hvor mér fyndist betri. Svo
leyfði hann mér að mála á striga og
ég málaði litríkan sjó, litríkan him-
in og fugla á flugi.“ Þórey segist
hafa lært ýmislegt nytsamlegt um
listina þarna hjá Georgi Guðna.
„Hann kenndi mér til dæmis að
blanda svartan lit...“ segir hún..og
síðan blanda ég liti út i eitt.“ Að
þessu loknu kveðst hún hafa farið í
listadeild Pennans og spjallað við af-
greiðslufólkiö. „Það sýndi mér alls-
konar dót fyrir listamenn og gaf
mér pensla, akrýlliti og sérstaka
blokk fyrir svoleiðis liti.“ Að síð-
ustu kveðst hún hafa skoðað lista-
verk úr safni Gunnars Dungal og
þar með var þessi dýrðardagur á
enda. En aðrir dagar koma. Gun.
Ég biðst afsökunar á þráhyggj-
unni en Frasier er kominn aftur og
ég get ekki látið eins og það hafi far-
ið fram hjá mér. öll þriðjudags-
kvöld næsta hálfa árið verða góð
kvöld vegna Frasiers - huggun í
þessum vonda heimi. Ég er ekki ein
um að finna gleði í Frasier. Það eru
fleiri sem hafa náð þeim þroska að
fara ekki fram á miklu meira í til-
verunni en hálftíma skemmtun einu
sinni í viku.
Ég veit til þess að heimilishald í
Kópavogi fór úr skorðum en árum
saman hefur fjölskyldan sameinast
við kvöldverðarboröið. Þetta fyrsta
Frasierkvöld „druslaðist" (orðalag
eiginkonunnar) eiginmaðurinn ekki
til að ljúka eldamennsku fyrr en um
það leyti sem Frasier-þátturinn
hófst. Hún Amdís mín er kona sem
veit hvað skiptir máli í lífinu. Hún
neitaði vitanlega að borða inni í
sjónvarpslausu eldhúsi og fór með
diskinn sinn inn í stofu. Ég veit að
framvegis verður matur á réttum
tíma á þriðjudagskvöldum á þessu
myndarheimili.
Jóhann vinur minn hringdi æva-
reiður þetta sama kvöld. Þau hjónin
höfðu misst af fyrsta Frasier-þættin-
um í þessari seríu þar sem þau
höfðu gert ráð fyrir að þátturinn
yrði sýndur á fimmtudagskvöldum
hafa fengið Frasier aftur á dagskrá
að ég hafði engan áhuga á að lenda
í deilum við RÚV; gerði bara það
sem maður gerir þegar fólk í upp-
námi á í hlut: leyföi Jóhanni að
röfla og talaði svo róandi til hans.
Loks sljákkaði í honum þegar ég
bauðst til að lána honum upptöku
mina á þættinum. Ég skildi vel van-
líðan hans; mér hefði líka liðið illa
hefði ég misst af fyrsta Frasier-þætt-
inum. Þessi sýningardagur var
reyndar vandlega merktur í dagbók
mína og ekkert hefði getað dregið
mig frá sjónvarpinu þetta kvöldið.
RÚV er þó ekki alsaklaust í Frasi-
er-málinu. í Bandaríkjunum er víst
sú venja þegar ný þáttaröð hefst að
sýna tvöfaldan þátt. Samkvæmt því
hefðum við íslendingar átt að fá tvo
Frasier-þætti í röö. Þaö hefði verið
fullkominn klukkutími. Þessi fyrsti
þáttur var alltof stuttur. En nægur
efniviður sýnist vera til. Hinn blið-
lyndi Niles, sem dýrkar Daphne,
þarf að þykjast vera hamingjusam-
ur með gribbunni sem hann asnað-
ist til að giftast. Þetta verður erfitt
fyrir vesalings Daphne sem þarf ást
og umhyggju. Maður hefur sannar-
lega hæfni til að lifa sig inn í þessar
tilfinningaflækjur og ekkert skal fá
að trufla mann við þá iðju.
„Öll þriöjudagskvöld næsta hálfa áriö veröa góö kvöld vegna Frasiers - hugg-
un í þessum vonda heimi. Ég er ekki ein um að finna gleöi i Frasier. Þaö eru
fleiri sem hafa náö þeim þroska aö fara ekki fram á miklu meira i tilverunni
en hálftíma skemmtun einu sinni í viku. “
eins og áöur var. Hann nöldraði og
skammaðist og sagði Sjónvarpið
hafa brugðist með því að breyta um
sýningarkvöld og krafðist þess að ég
skrifaði harðorða skammargrein
um RÚV. Hann hringdi alls þrisvar
til að gefa mér setningar í greinina.
Ég var hins svo þakklát fyrir að