Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2001, Page 25
FIMMTUDAGUR 27. SEPTEMBER 2001
37
I>V
Tilvera
„Hugsaðu þér ef
allt fólk gæti lifað
saman í friði“
„Image all the people living life in
peace“. Þannig hljóðaöi textinn i heil-
síðuauglýsingu sem birtist í síðustu
helgarútgáfu New York Times, sem
auðvitað er sóttur í smiðju John
Lennons. Þaö var Yoko Ono, ekkja
Lennons sem lét birta þessa orðsend-
ingu og að sögn talsmanns hennar
ákvað hún að láta textann einan duga
óundirritaðan á heilli síðu. „Þetta er
hennar leið til að tjá tilfmningar sínar
og skiiaboðin er augljós," sagði tals-
maðurinn. Ono hyggst einnig birta
annan texta eftir Lennon á stóru ljósa-
skilti á Times Square, sem auðvitað er:
“Give Peace a change“.
Russel Crow
hleypur í spik
Á meðan gladíatorinn Russel Crow
hefur ferðast um Bandaríkin í sumar,
í hljómleikaferð með hljómsveit sinni
„30 Odd Foot of Grunts", hefur hann
bætt við sig hvorki meira né minna en
einum tíu kílóum. Umboðsmaður
kappans hefur haft af þessu miklar
áhyggjur og hefur nú skipað honum að
fara í megrun og er Crow nú i átaki á
líkamsræktarstöð. Til að minna Crow
á vandamálið hefur umbinn límt upp
myndir af Crow, þar sem hann er í
hlutverki sínu í myndinni „The
Innsider", en þá þurfti Crow að þyngja
sig um ein 20 kiló til að líta út 30 árum
eldri. „Það hefur haft sín áhrif, þvi nú
rennur spikið af Crow, enda eins gott
því annars hefði þann þurft að eyða
drjúgum tíma á heilsuhæli áður en
hann tekur til við næsta hlutverk,"
sagði umboösmaðurinn.
Hjá Ossuri
Joachim og Alexandra heimsóttu einnig Össur hf. þar sem Jón Sigurösson
forstjóri tók á móti þeim.
Hádegisveröur á Apótekinu
Snæddur var hádegisverður á Aþótekinu þar sem boöiö var upþ á tískusýningu með íslenskri hönnun.
I miöborginni
Hinir konunglegu gestir á gangi í
miöborginni með forsetanum og
Dorrit.
Danaprins og Dorrit
Joachim og Dorrit höföu greinilega
nóg aö spjalla viö hádegisveröinn.
Á ferð um höfuðborgina
verður farið að Gullfosi og Geysi,
gróðrarstöðin Espiílöt í Reykholti
heimsótt og komið að býlinu Hross-
haga. Ferðinni um Suðurland lýkur
síðan á Eyrarbakka og Stokkseyri.
-MA
Jóakim Danaprins og Alexandra
prinsessa fóru víða um höfuðborg-
ina í gær til að skoða sig um. Með
þeim í fór voru Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti íslands, og heit-
kona hans Dorrit Moussaieff. Meðal
.þess sem kóngafólkið gerði var að
skoða söfn, fyrirtæki og einnig var
þeim boðið að horfa á tískusýningu
þar sem íslenskir fatahönnuðir
sýndu hönnun sína.
í dag liggur leiöin síðan um Suð-
urland og verður byrjað á að heim-
sækja glerlistamenn í Bergvík. Það-
an verður farið til Þingvalla þar
sem Davíð Oddsson forsætisráð-
herra og frú Ástríður Thorarensen
bjóða til hádegisverðar. Síðdegis
Fræöst um fyrirtæki
Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar erföagreiningar, fræddi gestina um starf-
semi fyrirtækisins.
Hús skáldsins
Sigurhæðir - Davíðshús
Eyrarlandsvegi 3 - 600 Akureyri.
Sími 462 6648; Fax: 462 6649; Net: skald@nett.is
Gott næði orðlistarmönnum:
1. Tvær skrifstofur í Sigurhæðum:
til boða þeim sem sinna vilja hvers konarorðlist í
hvetjandi umhverfi. Leigjast gegnvægu gjaldi
nokkrar vikur eða mánuði í senn.Umsóknarfrestur
vegna afnota á fyrri helmingiársins 2002 er til 26.
október 2001.
2. Listamannaíbúð í Davíðshúsi:
einkum ætluð þeim er fást við skapandi skrif - er
til tímabundinnar dvalar á árinu 2002 gegngreiðslu
þjónustu- og tryggingagjalds sem erendurkræft að
hluta.
Umsóknir þar sem m.a. komifram:
a) stutt kynning á umsækjanda og verkum hans,
b) að hverju umsækjandi hyggst vinna,
c) æskilegt tímabil og tímaskeið dvalar,
sendist forstöðumanni, Erlingi Sigurðarsyni,eða
menningarfulltrúa, Ingólfi Armannssyni,fyrir
26. október 2001.
Nánari upplýsingarmá fá hjá þeim eða í
þjónustuanddyri Akureyrarbœjar - sími 460 1000.