Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2001, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2001, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2001 Fréttir iDV Árnamálið teygir anga sína víða og fyrirgreiðsla rannsökuð: Héraðshöfðinginn var heimsóttur af lögreglu - reikningur fyrir uppgerðan forlátaofn skrifaður á Istak sem næst verður komist bókfærði ístak reikninginn vegna Þjóðleik- hússins. Á kaffistofu Böðvars er ofninn nú helsta stássið þar sem hann gleður augu gesta, sem og eigenda, ryð- hreinsaður og stíflakkaður í svört- um lit. Böðvar segir að ofninn hafi ekki verið tengdur en hann ætlar að koma fyrir í honum ljósi. „Við ætl- um að láta setja í hann flöktandi rafmagnsljós. Það verður gaman að því,“ segir hann. Hann segist auðvitað ekki vera ánægður með að dragast blásaklaus inn í mál Árna Johnsens. „Ég ímyndaði mér að Árni heföi einhvern sjóð sem hann hefði frjáls- ar hendur með líkt og gerist með ráðherrana. Við munum greiða reikninginn ef þess verður krafist," segir Böðvar. Hann segir Áma hafa vitað að þeir væru ekki flokksbræður. „En ég gerði það af skömm minni aö hjálpa Eggerti Haukdal þegar hann var upp á sitt besta en ég hef aldrei kosið Árna Johnsen. En þing- menn mega eiga það að þeir eru hjálpsamir við aðra en flokksbræð- ur sína,“ segir Böðvar. Jón H. Snorrason, yfirmaður efnahagsbrotadeildar ríkislögreglu- stjóra, sagði í samtali við DV í gær að hann gæti ekki sagt til um það hvenær rannsókn Árnamálsins lyki. -rt DV-MYND E.ÓL Böðvar og ofninn Árni Johnsen sótti forlátaofn aö Borg í Grímsnesi og lét gera hann upp, eig- endum aö kostnaöarlausu. Nú er lögreglan komin í máliö því Þjóöleikhúsiö borgaöi fyrir skveringuna. „Menn frá efna- hagsbrotadeild lög- reglunnar komu austur og báðu mig að segja sér allt um þennan ofn. Ég vissi þá ekki að neitt væri óeðlilegt á ferðinni en þeir höfðu áreiðanlega vísbendingu úr ein- hverju bókhaldi," segir Böðvar Pálsson, héraðshöfð- ingi á Búrfelli og eigandi kaffihúss að Gömlu-Borg í Grímsnesi, sem nú bíður þess að vera kallaður fyrir dóm vegna máls Árna Johnsens, fyrrverandi alþingismanns, sem lét gera upp gamlan ofn. Viögerðin átti að vera Böðvari að kostnaðarlausu þar sem þingmaðurinn sagðist gera þetta í greiðaskyni við hann. Nú er málið orðið lögreglumál og allar lík- ur til þess að Böðvar á Búrfelli verði sjálfur að greiða kostnaðinn vegna skveringar á ofninum. Upphaf málsins var að Árni John- sen tók hús á Böðvari á Gömlu-Borg ásamt Sturlu Böðvarssyni sam- gönguráðherra sem var á yfirreið um Suðurland. Árni sá þá myndir af umræddum ofni sem lá í hirðuleysi. „Árni bauðst þá til að láta sand- blása ofninn og gera hann upp okk- ur að kostnaðarlausu," segir Böðv- ar. Hann segir að þingmaðurinn hafi ekki hafist handa strax við að upp- fylla loforðið. Mánuður leiö áður en hann birtist aftur. Þá fékk hann lán- aða kerru til að flytja ofninn til Reykjavíkur. „í vor kom hann svo aftur á jepp- anum með ofninn uppgerðan. Ég kallaði eftir burðarmönnum og við vorum fjórir sem bárum ofninn inn á kafíistofuna þar sem hann er nú, glansandi fínn. Árni sagði bara „gjörið þið svo vel“ og við vissum ekki meira fyrr en lögreglan hafði samband og sagði okkur að við mættum eiga von á að vera kölluð fyrir dóm vegna málsins," segir Böðvar. Samkvæmt heimildum DV kost- aði viðgerðin á ofninum 32.800 krón- ur. í upphafi var reikningurinn skrifaður á þingmanninn en seinna kom hann með beiðni frá ístaki sem greiddi reikninginn sem bar yfir- skriftina „viðgerð á ofni“. Eftir þvi Árni Johnsen. — Hættuástandi aflétt dv-mynd karólína Almannavanarnefndin á Seyöisfiröi afréö á fundi sínum snemma í morgun aö aflétta hættuástandi í bænum. Skriöu- föll hafa veriö á Seyöisfiröi síöustu sólarhringa og jafnframt hafa ár og lækir flætt yfir bakka sína í kjölfar mikillar rign- ingar, sem nú hefur slotaö. Á myndinni steypist Fjaröará fram af hamraveggnum sunnan fjaröarins, en nær stendur gamla rafstööin í Fjaröarseli. Veöurspáin gerir ráö fyrir hæglætisveöri eystra á næstu dögum. Hælisleitendum hér fjölgar um meira en helming milli ára: Fimm fjölskyldur hingað - í síðasta mánuði - samfélagskerfið vanbúið til móttöku Húsaleigumarkaður: Útburöarmálum hefur stórfjölgaö Útburðarmálum á húsaleigu- markaði hefur stórflölgað á síðustu vikum í kjölfar mjög vaxandi van- skila leigjenda. Að sögn Sigurðar Helga Guðjónssonar, formanns Hús- eigendafélagsins, hafa komiö 1-2 vanskilamál á degi hverjum til lög- fræðinga félagsins að undanfórnu. Bæði er um að ræða vanskil á ný- gerðum samningum og eins á eldri leigusamningum. „Þetta segir manni að þaö sé að haröna í ári,“ sagði Sigurður Helgi við DV. Hann sagði að mikil spenna hefði verið á húsaleigumarkaðinum upp á síðkastið, Framboð væri lítið en eftirspurn mikil. Leiga hefði al- mennt farið nokkuð mikið hækk- andi síðasta árið. Sigurður Helgi sagði enn fremur að útburðarmál og innheimtumál vegna leiguskulda reyndust oft kostnaðarsöm og tímafrek. Þar sem ekki væri trygging fyrir hendi reyndust innheimtuaðgerðir árang- urslausar. Húseigendafélagið byði nú upp á þjónustu til að auka öryggi í leiguviðskiptum. Leigusölum og leigjendum væri boðið upp á að kanna skilvísi leigjenda, sem byggð- ist á vanskilaskrá Lánstrausts ehf. Sá sem sækti um leiguhúsnæði gæti þannig komið til félagsins og fengið skriflega staðfestingu á að hann hefði hreinan skjöld. Sigurður Helgi kvaðst gjarnan vilja sjá hér „öflug og ábyrg leigj- endasamtök sem gerðu eitthvað annað en að hrópa úlfur, úlfur og væla upp leiguverð með óábyrgum fullyrðingum um okurleigu og fantaskap leigusala.“ -JSS Flóttafólki sem leitar eftir pólitísku hæli hér á landi hefur fjölgað um meira en helming það sem af er þessu ári, miðað viö allt árið í fyrra. í lok september hafði samtals 51 sótt um pólitiskt hæli hér á landi en 24 manns allt árið i fyrra. í síðasta mánuði ein- um komu 23 hælisleitendur hingað til lands, þar af 5 fjölskyldur með samtals tíu börn og eitt á leiðinni. „Mynstrið er að breytast mikið með tilkomu fjölskyldufólksins," sagði VO- dís Guðmundsdóttir hjá Rauða krossi íslands sem tekur á móti því fólki sem leitar eftir hæli hér. „Hingað til hafa þetta mest verið einstaklingar, karl- menn, sem hafa komið í þessum er- indagjörðum. Einungis tvær fjölskyld- ur höfðu leitað hér hælis áður en þessi hrina kom í síðasta mánuði." Vildís sagði að flestir hælisleitenda í ár kæmu frá Austur-Evrópu, eða 28 manns. Þar á meðal væri fólk frá Al- baníu, Kosovo, Rúmeníu, Makedóníu og Slóvakíu. Einnig hefði komið hing- að fólk frá íran, írak, Líbíu, Alsír, Ní- geríu og Srí Lanka. Þá hefðu komið 9 manns frá fyrrum Sovétríkjunum. Fjölskyldufólkið kæmi einkum frá Austur-Evrópu. „Með tilkomu Schengen var farið að nota svonefnt Dyflinnar-samkomu- lag,“ sagði Vildís. „Það byggist á því að hver og einn sem biður um hæli fær einungis afgreiðslu í einhverju einu landi. Það er því grennslast fyrir um hvort eitthvert annað land beri ábyrgð á umsókn viðkomandi einstak- lings. Til dæmis eru öll lönd sem gefa þessu fólki visa-áritun ábyrgð fyrir umsóknum þeirra." Nú dvelja 25 hælisleitendur hjá Rauða krossi íslands, þar á meðal fjór- ar fjölskyldur. Sumir hinna, sem hing- að hafa komið f ár, hafa verið sendir til baka, aðrir hafi horfiö á brott og enn aðrir hafa fengið neitum við um- sókn sinni um hæli. Gagnrýnt hefur veriö að gleymst hafi að gera ráð fyrir menntunar- og heilbrigðisþjónustu fyrir hælisleitend- ur sem óhjákvæmilega myndi fjölga með tilkomu Schengen. Nú eru t.d. stödd hér flóttabörn sem með réttu eiga að vera i skóla. Aðspurö um samfélagslegan aðbún- að á þessu fólki hér sagði Vildís aö samningur milli dómsmálaráöuneytis og Rauða kross íslands væri saminn í öðru umhverfi, fyrir tilkomu Scheng- ensamningsins og byggður utan um einstaklinga. Þá hefði ekki verið búið að opna landið eins mikið og nú. -JSS Rán í Skipholti Tveir menn brutust rinn í verslun 11-11 við Skipholt í Reykjavík um klukk- an ellefu í gærkvöld, 'eða í þann mun sem verið var að loka verslun- inni. Mennirnir tveir, sem voru með einhvers konar grímur fyrir andlit- inu, fóru inn í verslunina um bakdyr og þaðan inn á lager. Tvær konur voru við störf í versluninni þegar þetta var, þeim héldu mennirnir föngnum meðan þeir fóru í af- greiðslukassa þar sem þeir náðu 80 til 100 þúsund kr. Svo hlupu þeir út í næturmyrkrið og fundust ekki, þrátt fyrir talsverða eftirgrennslan lögreglu. Brenndist í andliti Maður brenndist illa í andliti um ellefuleytið í morgun. Að sögn lög- reglunnar á Selfossi var maðurinn, sem er stafsmaður Alpan á Eyrar- bakka, að meðhöndla efni þegar eld- ur kviknaði með fyrrgreindum af- leiðingum. Rotaðist Tilkjmnt var til lögreglunnar í Reykjavík í dag að kona lægi meðvit- undarlaus á götunni við Dverg- hamra. í ljós kom að konan, sem er á fertugsaldri, hafði verið að leika sér á hlaupahjóli og dottið harkalega og vankast við höggið sem hún hlaut. Viðbrögð við hryöjuverkum Halldór Ásgríms- son utanrikisráð- herra mun í dag flytja Alþingi skýrslu um hryðju- verkin í Bandarikj- unum og viðbrögð við þeim. Að lokinni umræðu um skýrsl- una verða tekin til umræðu nýleg bráðabirgðalög um tryggingu á bóta- ábyrgð vegna tjóns er hlýst af notk- un loftfars vegna hryðjuverkaað- gerða eða áþekkra atvika. Fengu rekstrarleyfi á ný Flugmálastjórn afgreiddi í gær- kvöld ný flugrekstrarleyfi handa þrem flugfélögum en þau höfðu þá verið leyfislaus í tæpa 2 sólarhringa. Þetta eru flugfélögin Jórvík, Mýflug og Flugfélag Vestmannaeyja; það síð- astnefnda er þegar byrjað að fljúga. Of hátt verð Of hátt verð var greitt fyrir lóðir í Grafarholti og Bryggjuhverfi, sem hefur leitt af sér hærra íbúðaverð en fasteignakaupendur eru tilbúnir til að greiða. Tugir íbúða seljast ekki nema verðið verði lækkað. - Frétta- blaðið greindi frá. Rafmagnslaust Alvarlegt ástand skapaðist á Land- spítala í Fossvogi (Borgarspítala) þegar rafmagnslaust varð þar í 20 mínútur. Vararafstöð fór ekki í gang svo notast varð við rafhlöður í tækj- um sem sjúklingar eru tengdir við. Milljónatjón á Nesjavöllum Milljónatjón varð við Nesjavalla- virkjun í fyrradag þegar gufupípa, sem var verið að taka í notkun, fór af undirstöðum með þeim afleiðingum að undirstöður og festingar brotn- uðu og klæðning á lokahúsi skemmdist. - Mbl. greindi frá Kaupmáttur minnkar í spá Þjóðhagsstofnunar er gert ráð fyrir að kaupmáttur launa miðað við launavísitölu minnki um 0,5% milli ára vegna verðbólgu. Kaup- máttur hefur aukist jafnt og þétt undanfarin sjö ár sem er lengsta samfellda skeið kaupmáttaraukning- ar frá stríðslokum. -HKr./-sbs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.