Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2001, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2001, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 3: OKTÓBER 2001 Fréttir I>V Mildari tónn í stefnuræðu forsætisráðherra en stundum áður: Vill skattalækkun - á fyrirtaeki - EES-samningurinn virkar eins og til var aetlast og engin rök fyrir ESB-aðild Forsætisráðherra, Davíð Odds- son, hóf stefnuræðu sina á Alþingi í gær með þvi að ræða hryðjuverkin í Bandaríkjunum og afleiðingar þeirra. Hann sagði að íslensk stjórn- völd hefðu brugðist við af festu og sagði óhjákvæmilegt að uppræta hryöjuverkamennina. „Okkur er skylt að taka þátt í að refsa þeim sem bera ábyrgð á hryllilegum glæp og neyta allra úrræða til að koma í veg fyrir fleiri ódæði. Önnur afstaða kemur ekki til greina, ef vært á að vera í heiminum. Að öðrum kosti er niðurstaðan sú, að enginn verður óhultur nema glæpamennirnir og hjálparkokkar þeirra,“ sagði Davíð. Dulbúningar bannaðir Lagabreytingar eru fram undan til að bregðast við hryðjuverka- mönnum. „Samhliða öðrum breyt- ingum á refsilöggjöfinni vegna hryðjuverka er stefnt að lagabreyt- ingum sem miða að því að banna notkun dulbúninga á mótmælafund- um. Er hér litið til þeirra upphlaupa og óeirða sem blásið hefur verið til í tengslum við alþjóðlega fundi þar sem hettuklæddir atvinnumenn í of- beldi hafa staðið fyrir árásum og skemmdarverkum. Einnig verður í samvinnu við nágrannaþjóðir okkar hugað að breytingum á lögum og reglum í tengslum við framsal manna fyrir alvarlegustu brot eins og hryðjuverk," sagði Davíð. Enginn skaöi í Landssímamálinu Forsætisráðherra kom víða við en minna var um gagnrýni en stundum áður. Hann hrósaði m.a.s. stjómarandstöðunni fyrir aðkomu hennar að bráðabirgðalögum fyrir íslensku flugfélögin en hvessti sig á hinn bóginn vegna Landssímasöl- Samkvæmt frumvarpi til fjárlaga mun það kosta ríkissjóð rúmlega 2,2 milljarða að starfrækja Alþingi á næsta ári og byggja upp á Alþingisreitnum. Fyrirhugað er að ljúka framkvæmdum við þjónustuskála Alþingis á næsta ári og taka hann í notkun þá um haustið. Áætlaður kostnaður er 580 m.kr. Til staöar em 120 m.kr. fjárheimildir frá fyrri árum og er því gert ráð fyrir 440 m.kr. framlagi á fjárlögum ársins í ár. Það mun hins vegar kosta tæplega 1,5 milljarð að reka Alþingi og er það um 178 milljóna króna hækkun frá því unnar. „Nokkurt veður hefur verið gert út af þeirri sölu og dræmari undirtektum almennings og stofn- fjárfesta en vænta heföi mátt, þegar haft var í huga um hve gott fyrir- tæki var að ræða. Gengu sumir jafn- vel svo langt að fullyrða að útkom- unni yrði jafnað við stóráfall! Það er reyndar alþekkt, að í dægurumræð- unni hafa orð fallið mjög í verði. Fréttastofur kalla sérhvert smá- verkfall í opinberum rekstri „neyð- arástand", en það er sama orðið og notað var til að lýsa ástandinu á Manhattan í New York eftir árásina miklu. Vissulega hefði salan á bréf- um í Landssíma íslands mátt ganga greiðar fyrir sig, en enginn skaði er orðinn, ekkert áfall varð.“ sem gert er ráð fyrir í fjárlögum fyrir árið í ár. Almennur rekstur verður tæplega 1,4 milljarðar sem er um 135 milljónum meira en Qárlögin í ár kveða á um. Meira en helmingur þess- arar aukningar er til kominn vegna verðlags og launabreytinga. Af einstök- um liðum öðrum sem verða til hækk- unar má nefna 27 milljónir sem settar eru í að mæta auknum þingfararkostn- aði vegna stærri kjördæma. Viðhaldskostnaður er áætlaður 47 m.kr. og hækkar um 21 m.kr. frá fjár- lögum 2001. -BG ísland skattaparadís? Fyrir utan hryðjuverkin voru skattabreytingar rauði þráðurinn í stefnuræðu forsætisráðherra. Von er á skattalækkun á fyrirtæki ef vilji Davíðs nær fram að ganga og tók hann íra sem dæmi, en þar hef- ur orðið mikil breyting á efnahags- ástandi eftir að þeir gerðu landið að skattaparadís. Hátekjuskattur orkar tvímælis að mati Davíðs. EES virkar vel Eins og DV hefur greint frá ligg- ur ekki fyrir Landsfundi Sjálfstæð- isflokksins að setja ESB-málin í öndvegi og Davíð staðfesti þann tón i stefnuræðunni. „Ekkert hef- ur komiö fram sem gefur tilefni tU að huga nú að aðild að ESB. Sú Framlög til embættis forseta ís- lands munu samkvæmt nýju fjár- lagafrumvarpi hækka um 10,5 mUljónir frá því sem var á fjárlög- um í ár. Útgjöld til embættisins verða rétt tæpar 125 miUjónir króna. Hækkunin sem verður fer mest í að dekka launa- og verðlags- breytingar, eða sem nemur um 8,5 milljónum króna. Aðrar breytingar á framlögum til forsetaembættisins eru þær að framlag tU opinberra heimsókna er hækkað frá því sem nú er um 2 milljónir króna og staðreynd að enginn stjórnmála- flokkanna hefur gert umsókn um aðild að Evrópusambandinu að stefnumáli segir mikla sögu um hvernig þessi mál snúa að íslend- ingum. Þetta má skýra með þvi að samningurinn um hið evrópska efnahagssvæði virkar eins og til var ætlast og tryggir alla helstu viðskiptahagsmuni íslands i Evr- ópusambandinu. Það breytir ekki því að huga þarf að tæknilegri að- lögun samningsins að samruna- þróuninni í ESB á öðrum sviðum en lýtur að viðskiptum. Þá má stækkun sambandsins til austurs ekki skaða íslenska viðskiptahags- muni í umsóknarríkjunum, sem vissulega eru til staðar, en það mál ber að leysa samkvæmt grundvallarreglum Alþjóðavið- skiptastofnuná'rinnar," sagði Dav- íð. Keilusláttur ekki til góös Forsætisráðherra kom víða við og taldi bjart yfir sjávarútvegi og efnahagsmálunum almennt. Hann taldi það þó mikinn skaða fyrir þjóðarbúið ef Kárahnjúkavirkjun yrði ekki að veruleika. Um sjávarútveginn sagði Davíð að á grundvelli endurskoðunar- nefndarinnar tæki nú við meðferð málsins í ríkisstjórn og þingflokk- um og loks hér á Alþingi sjálfu. „... er óskandi að sem flestir rfsi und- ir því að horfa fremur til heildar- hagsmuna í málinu en að hengja sig fasta í smærri atriði, sem sag- an sýnir að vonlítið er að ná meirihluta um. Pólitískur keilu- sláttur hefur gert íslenskum sjáv- arútvegi mikinn skaða síðustu ár og áratugi og er mál að linni,“ sagði Davíð. -BÞ einnig eru settar 2,5 milljónir í að endurnýja þjónustubifreið embætt- isins. Hins vegar er skorinn niður liður sem heitir „yfirstjórn" um 2 milljónir króna. Athygli vegur að í þeirri framtíðarsýn til næstu fjög- urra ára um kostnað við yfirstjórn ríkisins er gert ráð fyrir lítilli aukningu í framlögum til forseta- embættisins. Aukningin fram til ársins 2005 nemur um milljón á ári þannig að 2002 verður hún 125 milljónir og er komin í 128 milljón- ir árið 2005. -BG Stjórnarandstaðan: Davíð nýr og betri maður „Þetta var að mörgu leyti prýðileg ræða. Hún var yflr- skyggð af þvi angri sem við erum flest með í sinni vegna hryðjuverkanna í Bandaríkjunum. For- sætisráðherra birtist eins og nýr og betri maður, laus við orð- bragð götustráksins eins og einkennt hefur hann á stundum og auðmjúkur gagnvart stjórnarand- stöðunni," sagði Össur Skarphéðins- son, formaður Samfylkingarinnar, í samtali við DV í'morgun vegna stefnu- ræðu forsætisráðherra. Össur segir að mestu skipti að Dav- íð Oddsson sé laus við þá blindu sem hann hafi jafnan verið sleginn í efna- hagsmálunum. Þau hafi hann gjarnan skoðað „eins og enskur klár með augn- hlífar". Greinilegt sé að ríkisstjórnin ætli nú að grípa til viðbragða þótt seint sé og reyni að stýra þjóðarskútunni aft- ur á farsælan kúrs. Allt á að vera blúndulegt Sverrir Hermanns- son, formaöur frjáls- iyndra, sagði messu forsætisráðherra lít- ils virði þar sem breitt væri yfir stað- reyndir. „Það á allt að vera blúndulagt þótt við séum í kreppu staddir." Sverrir sagðist gefa þeirri stjóm fall- einkunn sem geröi ekkert til að ná jafn- vægi. Hún væri ábyrg fyrir hruni gjald- miðilsins og stóraukinna skulda vegna viðskiptahalla. Fátt kom á óvart Ögmundur Jónas- son, formaður þing- flokks Vinstri grænna, hafði þetta að segja: „Það sem vakti sérstaka athygli mína er að forsætis- ráðherra skyldi ekki gera neina tilraun til að gera stærstu átakamálum þjóðar- innar skil, s.s. fisk- veiðistjórnunar- og stóriðjumálin. Bæði þessi mál kvað hannn vera i ákjósanlegum farvegi þótt ölium megi ljóst vera að svo er ekki og um þessa málaflokka verði tekist á i þinginu. Einnig fannst mér forsætisráðherra reyna að komast ódýrt út úr efnahags- málunum og sannast sagna var fátt sem kom mér á óvart í þessari ræðu. Hún reis ekki mjög hátt.“ -BÞ 440 milljónir í þjónustuskála Forsetinn fær 125 milljónir Sverrir Hermannsson. Ogmundur Jónasson. Vedriö i kvold ' 4;/S 8?/8 sfs r&r 18.34 07.31 23.34 11.49 Soiargangur 1 REYKJAVIK Sólarlag í kvöld 18.50 Sólarupprás á morgun 07.45 Siödegisflóö 19.01 Árdegisflóö á morgun 07.16 Skýringar á veðurtáknum 3vindátt lOV-nm “í -10° 'WINDSTYRKUR N.CBntT MEIÐSKIRT ! metrum i soktindu 33 33 33 33 LÉTTSKÝJAÐ HÁLF' SKÝJAO ALSKÝJAÐ SKÝJAÐ Hlýjast sunnan til Austlæg átt, 5-10 m/s og dálítil rigning suðvestanlands en annars smáskúrir. Hiti 1 til 12 stig, hlýjast sunnan tii. RIGNING ÉUAGANGUR hsé SKÚRIR SLYDDA SNJÓK0IVIA PRUMU- VEOUR SKAF- RENNÍNGUR Hálka á Fjarðarheiöi Þjóðvegir landsins eru greiöfærir. Hálka var á Fjarðarheiði og Möðrudalsöræfum í morgun en á Fjarðarheiði var unnib að því að sandbera veginn þegar blaðiö fór í prentun. Vætusamt fyrir norðan Noröaustlæg átt, 5-10 m/s og vætusamt noröan- og austanlands. Annars staðar þurrt og víöa bjart. Hiti 10 stig. Vindur: /* vL—, s-K,,^ Hiti °° til 9° ' Vindur: /^ r~' 8—13 m/s ' Hiti 2° «1 11° Noröaustan 5-10 m/s og Noröaustanátt, víöa 8-13 dálitil rigning noröaustan m/s og rigning um noröan- til en annars víöa bjart og austanvert landiö. veöur. Hiti 0 til 9 stig. Hiýnar lítillega. Siijjnú _____ IPSJÍG Vindur: 8—13 m/s Hiti 4“ til 12° Norðaustanátt, víóa 8-13 m/s og rigning um noröan- og austanvert landið. Hlýnar lítlllega. AKUREYRI súld 3 BERGSSTAÐIR skýjað 3 BOLUNGARVÍK alskýjað 5 EGILSSTAÐIR alskýjað 4 KIRKJUBÆJARKL. alskýjaö 7 KEFLAVÍK rigning 7 RAUFARHÖFN skýjaö 5 REYKJAVÍK rigning 6 STÓRHÖFÐI rigning 7 BERGEN skúr 13 HELSINKI skýjað 11 KAUPMANNAHÖFN skýjað 13 ÓSLÓ skýjaö 12 STOKKHÓLMUR 11 ÞÓRSHÖFN skýjað 10 ÞRÁNDHEIMUR skúr 8 ALGARVE skýjað 18 AMSTERDAM skýjað 14 BARCELONA þokumóða 17 BERLÍN skýjaö 16 CHICAGO heiöskírt ■ 19 DUBLIN skúr 12 HALIFAX heiöskírt 12 FRANKFURT skýjað 19 HAMBORG þokumóða 14 JAN MAYEN léttskýjað 3 LONDON léttskýjaö 12 LÚXEMBORG rigning 14 MALLORCA þokumóða 17 MONTREAL léttskýjaö 14 NARSSARSSUAQ skýjað 14 NEWYORK heiöskírt 18 ORLANDO heiöskírt 18 PARÍS rigning 14 VÍN þokumóöa 14 WASHINGTON skýjað 14 WINNIPEG léttskýjaö 5 gnáiaf;i»ga,i.ti.,wii.'.ii:M'ii;,.iid.w»m.-'».i.iffai

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.