Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2001, Qupperneq 12
12
Útlönd
MIÐVIKUDAGUR 3. OKTÓBER 2001
DV
REUTER-MYND
Róttamenn í Islamabad
Afganskir flóttamenn sitja viö skrif-
stofu flóttamannahjálpar SÞ í
Islamabad í Pakistan.
Flugfarmur af
hjálpargögnum
fyrir Afganistan
Bresk flugvél fór í gær til írans
með hjálpargögn fyrir afganska
flóttamenn eftir að leyfi fékkst að
lenda henni í borginni Mashad,
nærri afgönsku landamærunum.
Um borð i vélinni voru fjörutiu
tonn af tjöldum.
Tjöldunum er ætlað að veita af-
gönskum flóttamönnum eitthvert
skjól í vetur og eru þau hluti af
þeirri aðstoð sem bresk stjórnvöld
lofuðu í síðasta mánuði.
Rússnesk flugvél með á þriðja
þúsund ábreiður, tjöld og fimm tonn
af sykri lenti i Tadsjikistan í gær,
nágrannaríki Afganistans.
Berlusconi hleð-
ur íslamstrú lofi
Silvio Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, reyndi í gær að bæta
fyrir ummæli sem fóru mjög fyrir
brjóstið á múslímum með því að
hlaða íslamstrú lofi og segja hana
hafa gegnt mikilvægu hlutverki í
siðmenningunni.
Berlusconi olli miklu írafári í síð-
ustu viku þegar hann sagði að vest-
ræn menning væri íslamstrú æðri.
Hann hefur neitað að taka þau orð
sín aftur og staðhæfir að vinstri-
sinnaðir andstæðingar hans hafi
skrumskælt það sem hann sagði.
Italski forsætisráðherrann bauð
sex háttsettum stjórnarerindrekum
múslíma á sinn fund í gær þar sem
hann viðhafði hin iofsamlegu orð
um trú þeirra.
Uppboö
Eftirtaldir munir verða boðnir
upp að Hafnarbraut 27 v/lög-
regiustöð, laugardaginn 13.
október 2001 kl. 14.00:
Janmar B. 17 smágrafa og Massey
Ferguson dráttarvél, árg. 1978, nr. Z-
9.________________________
Avísanir ekki teknar gildar sem
greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera. Greiðsla
við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN Á HÖFN
Uppboö
Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar
upp að Hafnarbraut 27 v/lög-
reglustöð, laugardaginn 13.
október 2001 kl. 14.00:
BR-640 LU-800 1893 R
EI-681 MZ-289 78765 SK-
GG-012 MZ- 824 771 UD-
HM-783 HX-098 NJ-208 381
IÞ-013 NR- 746 Y18054
JS-283 OL- 711 YF- 714
JT- 361 OP- 684 ÖT-145
LH-790 PL-111 R
Greiðsla við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN Á HÖEN
Donald Rumsfeld varnarmálaráðherra kominn til Miðausturlanda:
Sérsveit á leiðinni til
landamæra Afganistans
Donald Rumsfeld, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, hélt í gærkvöldi
í opinbera heimsókn til Miðaustur-
landa þar sem hann mun ræða við
stjórn- og hernaðaryfirvöld í Sádi-Ar-
abíu, Óman, Egyptalandi og Úsbekist-
an um hugsanlega samvinnu land-
anna í aðgerðum gegn hryðjuverkum
og yfirvofandi aðfór að bin Laden sem
eftirlýstur er vegna árásanna í Banda-
ríkjunum.
Þegar Rumsfeld var spurður að því
á fréttamannafufndi i gær af hverju
hann færi í þessa ferð en ekki Colin
Powell utaríkisráðherra, sagði hann
að þau málefni sem rædd yrðu i ferð-
inni sneru beint að vamarmálaráðu-
neytinu og væru í beinu framhaldi af
fyrri viðræðum.
Fyrir brottförina til Riyadh, höfuð-
borgar Sádi-Arabíu, sem er fyrsta
stoppistöð Rumsfelds i ferðinni, skip-
aði hann þúsund manna sérsveit úr
10. fjallaherdeild Fort Drum í New
York að halda þegar til Úsbekistans
og Tadsjikistans, en bæði liggja þau
Donald Rumsfeld
Donald Rumsfeld, varnarmálalráðherra
Bandaríkjanna, er nú kominn til
Miðausturlanda þar sem hann ræöir
hugsanlega samvinnu við vinveitt
arabaríki í baráttunni gegn hryðjuverkum.
að landamærum Afganistans og er
talið að sveitinni sé ætlað að vera í
fararbroddi hugsanlegrar innrásar í
Afganistan verði talibanastjórnin
ekki við óskum Bandaríkjamanna um
að framselja bin Laden og menn hans.
Samkvæmt síðustu fréttum frá
Afganistan er nú mikil spenna í búö-
um talibana og hafa þeir nú ítrekað
farið fram á samningaviðræður við
Bandarikjamenn, sem Bush hefur
ekki tekið í mál, nema framsal bin
Ladens fari fyrst fram.
Rumsfeld heldur í ferðina til Mið-
austurlanda í kjölfar yfirlýsingar
Bush Bandaríkjaforseta um að alltaf
hafi verið gert ráð fyrir sjáfstæðu ríki
Palestínumanna fyrir botni Miðjarð-
arhafs í friðarferlinu, svo framarlega
sem réttur ísraels verði virtur og er
þetta er í fyrsta skipti sem Bush opin-
berar það í ræðu. Mun yfirlýsingin ef-
laust auðvelda Rumsfeld viðræðurnar
í ferðinni, en stefna Bandaríkjanna í
málefnum Palestíu hefur lengi verið
þyrnir í augum vinveittra arabaríkja.
Kissinger skoöar rústirnar í New York
Rudy Giuliani, borgarstjóri New York, er hér meö Henry Kissinger, fyrrum utanrikisráöherra Bandaríkjanna, og öörum
háttsettum ráöamönnum viö rústir World Trade Center í New York, en Kissinger var þar i heimsókn í gær.
Forsætisráðherrann harðorður á þingi Verkamannaflokksins:
Blair lofaði sigri í barátt-
unni við hryðjuverkamenn
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, varaði talibanastjórnina
í Afganistan við því í gær að hún
fengi ekki mörg tækifæri enn til að
framselja sádi-arabíska hryðju-
verkamanninn Osama bin Laden.
Hann sagði að talibanar yrðu að
búa sig undir árás og uppgjöf.
„Það verður aðeins ein niður-
staða úr þessari orrustu, sigur okk-
ar, ekki þeirra,“ sagði Blair meðal
annars í langri ræðu á landsfundi
breska Verkamannaflokksins í
Brighton í gær. Sumir frétta-
skýrendur telja að þetta hafi jafnvel
verið mikilvægasta ræðan sem
hann hefur haldið á ferli sínum.
I ræðu sinni sneri Blair barátt-
unni gegn hryðjuverkamönnunum
sem gerðu sjálfsmorðsárásimar á
New York og Washington í síðasta
REUTER-MYND
Blair sendir talibönum tóninn
Tony Blair, forsætisráöherra Bret-
lands, var haröorður í garð talibana i
ræöu í gær og hótaöi öllu illu.
mánuði að enn víðtækari baráttu
fyrir nýrri skipan í heiminum þar
sem reisn mannsins og félagslegt
réttlæti „frá fátækrahverfunum á
Gaza til fjallgaröanna í Afganistan"
yrðu í hávegum höfð.
Blair sagði að hernaöaraðgerðir
gegn Osama bin Laden væru nú
óumflýjanlegar og bætti við að það
væri siðferðileg skylda að ráðast til
atlögu gegn hryðjuverkamönnunum
sem bera ábyrgð á árásunum á
Bandaríkin.
Ekki var þó annað að heyra á
Blair en að hann gæfi talibanastjórn-
inni í Afganistan, sem hefur skotið
skjólshúsi yfir Osama bin Laden, eitt
tækifæri enn til að framselja hryðju-
verkamennina eða afsala sér völd-
um. Hann sagði að málamiðlanir
kæmu ekki til greina.
mm
ILU.M
Pútín vill samvinnu
Vladímír Pútín
Rússlandsforseti
ætlar að hvetja leið-
toga Evrópusam-
bandsins í dag til aö
efla samvinnu við
Rússa í öryggismál-
um sem lið í bar-
áttu heimsbyggðar-
innar gegn hryðjuverkamönnum.
Pútín er í Brussel þar sem hann
mun einnig hitta framkvæmda-
stjóra NATO og bandarískan emb-
ættismann.
Vextir lækkaöir vestra
Seðlabanki Bandaríkjanna lækk-
aði vexti í gær um hálft prósentu-
stig til að blása nýju lífi í efnahags-
starfsemina og hafa vextir ekki ver-
ið lægri í 40 ár.
Hollendingar frysta
Hollensk yfirvöld hafa fryst tvo
bankareikninga sem á voru um
fimmtíu milljónir króna. Var það
liður í baráttunni gegn fjármögnun-
arleiðum hryðjuverkamanna.
Bush til skólabarna
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti fer í dag í aðra heimsókn sina
til New York frá því árásirnar voru
gerðar í síðasta mánuði og ætlar
hann meðal annars að heimsækja
skólabörn og reyna að veita þeim
einhverja huggun.
ESB les pistilinn
Yfirmenn utanríkismála hjá Evr-
ópusambandinu ætla að lesa
makedónskum stjórnvöldum pistil-
inn í vikunni fyrir að hafa ekki enn
staðið við sinn hluta friðarsam-
komulagsins sem gert var við al-
banska skæruliða.
Mandela gagnrýnir
Nelson Mandela,
fyrrum forseti Suð-
ur-Afríku, hitti
Gerry Adams, leið-
toga Sinn Fein,
stjórnmálaarms
írska lýðveldishers-
ins, í gær og sagði
það áfellisdóm yfir
öllum viðkomandi að ekki skyldi
hafa tekist að tryggja frið á Norður-
írlandi.
Meira kynlíf
Hryðjuverkaárásirnar á Banda-
ríkin hafa meðal annars leitt til
þess að fólk stundar kynlíf í meiri
mæli en áður og það borðar meiri
rjómaís og sælgæti.
Frakkar til í aö hlusta
Haft var eftir
Hubert Védrine, ut-
anríkisráðherra
Frakklands, í gær
að Frakkar væru
reiðubúnir að
hlusta með opnum
huga á beiðni
bandarískra stjórn-
valda um aðstoð við að hefna
hryðjuverkanna í síðasta mánuði.
NATO vísar í 5. grein
George Robertson, framkvæmda-
stjóri NATO, vísaði formlega til
fimmtu greinar stofnsáttmála þess í
gær eftir að bandarísk stjórnvöld
höfðu lagt fram það sem í herbúðum
NATO var kallað óyggjandi sannan-
ir fyrir sekt Osama bin Ladens í
hryðjuverkaárásunum vestra.