Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2001, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2001
I>V
5
Fréttir
Fjárf^stingar í fiskeldi á árinu:
Samherji og UA meö 250 milljónir
- veiðigjald setur nýsköpun í hættu, að mati framkvæmdastjóra ÚA
Veiðigjald kann að hamla veru-
lega gegn nýsköpunarstarfi útgerð-
arfélaganna, að mati Guðbrands
Sigurðssonar, framkvæmdastjóra
Útgerðarfélags Akureyringa. Þetta
kom fram á fundi Verslunarráðs á
Akureyri í liðinni viku þar sem
skýrsla endurskoðunarnefndar um
sjávarútveg var rædd og áhrif á
norðlenskan sjávarútveg.
Guðbrandur sagði að samanlagð-
ar flárfestingar Samherja og ÚA til
fiskeldis á árinu myndu nema
250-260 milljónum á árinu og er
hlutur Samherja ráðandi í þeirri
tölu. Ef veiðigjald verður tekið upp
þurfa þessi félög að greiða tæpar 200
milljónir á ári, miðað við 25% fram-
legð. Fullnusta slíkrar gjaldtöku
miðast við árið 2009 en þessar fjár-
hæðir gætu hækkað verulega eftir
gengi iðnaðarins og gætu áhrifin
orðið veruleg á sjávarútvegsfyrir-
tæki landsins að mati Guðbrands.
Hann benti á að mikil hagræðing
Þjófur með
sýklalyf
Hann hafði ekki heppnina með sér,
þjófurinn sem lagði leið sína í Land-
spítala, háskólasjúkrahús, í Fossvogi
á laugardag, í lyfjaleit.
Manninum tókst að komast inn á
eina af skurðstofum sjúkrahússins og
taka með sér lyf áður en hann freist-
aði þess að komast undan. Öryggis-
vörður á sjúkrahúsinu varð hins veg-
ar var við ferðir hans og hóf eftirför
en missti af þjófnum. Lögreglan kom
hins vegar fljótt til skjalanna og var
maðurinn handtekinn skömmu síðar.
Skurðstofan sem maðurinn braust
inn f er ekki í mikilli notkun og lítið
að hafa þar af lyfjum. Þannig munu
ekki hafa verið nein vanabindandi lyf
þar sem talið er að helst hafi freistað
þjófsins, en hann mun hafa verið með
eitthvað af sýklalyfjum á sér þegar
hann var handtekinn. -gk
Veturinn
minnir á sig
Landsmenn voru sums staðar
minntir á það um helgina að vetur er í
nánd og var það aðallega í umferðinni
sem menn fengu slikar áminningar.
Lögreglan í Keflavík vissi um fjögur
tilfelli á laugardagsmorgun þar sem
bifreiðar enduðu utan vegar, ein á
Grindavíkurvegi en hinar þrjár á
Reykjanesbraut. Fjölmargar aðrar bif-
reiðar munu hafa farið út af þar en
ökumönnum tekist að koma þeim sjálf-
ir inn á veginn aftur.
Á Holtavörðuheiði lentu menn í erf-
iðleikum vegna hálku og snjókomu.
Eitthvað var um að bifreiðum væri
ekið út af og þar valt m.a. bifreið sem
dró hestakerru. Lögreglan f Borgar-
nesi var kölluð til og tókst að koma far-
artækjunum og mönnum og hestum
upp á veginn og engan sakaði. Vegur-
inn um Holtavörðuheiði varð ófær
vegna snjóa aðfaranótt sunnudags.
I Ljósavatnsskarði í S-Þingeyjar-
sýslu missti ökumaður bifreiðar vald á
henni vegna krapa og hálku á vegin-
um. Bifreiðin hafnaði á skilti við veg-
inn og skemmdist nokkuð en maður-
inn slapp ómeiddur. -gk
Bíiveital
Ólafsfirði
Bilvelta varð á gamla veginum í
norðanverðum Ólafsfirði á laugar-
dag. Vegurinn er mjög slæmur og
lítið notaður en ökumaður fólksbíls,
sem var þar á ferð, missti vald á bif-
reiðinni i lausamöl og hafnaði hún
utan vegar. Ökumaður var einn á
ferð og sakaði hann ekki.
Nokkuð var um of hraðan akstur
í umdæmi lögreglunnar í Ólafsfirði
um helgina og sömu sögu er að
segja af Ólafsfjarðarvegi en Dalvík-
urlögreglan stöðvaði þar 6 ökumenn
fyrir of hraðan akstur. -gk
hefði orðið i greininni og nefndi
sem dæmi að árið 1971 hefði ÚA ver-
ið með 16 togara og báta á sínum
snærum í stað fjögurra togara nú.
Sjávarútvegurinn hefði þurft að
komast af án aðstoðar undanfarið
og hvað rækjulandvinnslu varðaði
tók Guðbrandur sem dæmi að einn
starfskraftur skilaði nú því sama
við pillunarvélar sem áður hefði
kallað á 16 manns. Aflamarkskerfið
væri nauðsynlegt i rekstri sjávarút-
vegarins. Metþorskveiði hefði verið
á árunum fyrir hrunið 1983 en á
Jónasdóttir.
Guðbrandur
Sigurðsson.
sama tíma hefði verið stórtap í
greininni.
Guðbrandur taldi ijarlægt að sjá
fyrir sér breiðpólitíska sátt um sjáv-
arútveg en sagði að átökin milli sjó-
manna og útvegsins hefðu skaðað
ímynd greinarinnar. Svanfríður
Jónasdóttir, þingmaður Samfylking-
arinnar, flutti framsöguerindi
ásamt Guðbrandi og var hún ósam-
mála honum í meginatriðum fyrir
utan það að þau voru á einu máli
um að áfram yrði deilt. Svanfríður
sagði að svo yrði um ókomna tíð
meðan Sjálfstæðisflokkurinn færi
með lyklavöldin í sjávarútvegsráðu-
neytinu. Flokkurinn væri vanhæfur
til að sætta þjóðina vegna hags-
munatengsla við greinina og einnig
vantaði sjálfstæðismenn sannfær-
ingu í málinu.
Svanfríður telur einsýnt að meiri-
hlutaálit endurskoðunarnefndar-
innar dugi ekki. Breytingar á sjáv-
arútvegi hafi þýtt gjörbyltingu sam-
félagsins sem jafnvel mætti líkja við
áhrif iðnbyltingarinnar áður í
byggðalegu tilliti. Svanfríður sagði
misskilning að meirihlutaálitið
væri samhljóma skýrslu auðlinda-
nefndarinnar. -BÞ
# SUZUKI
SUZUKIBÍLAR HF
Skeifunni 17. Sími 568 51 00.
www.suzukibilar.is
Grand Vitara XL-7 er nýjasti og stærsti jeppinn frá Suzuki.
Hann er byggöur á traustum grunni og áratuga reynslu Suzuki í smíði rúmgóðra og sparneytinna jeppa. Grand
Vitara XL-7 er byggður á heilli grind og er með háu og lágu drifi, sem gefur frábæra aksturseiginleika jafnt á
vegum sem vegleysum. Til að auka öryggi ökumanns og farþega er XL-7 með öryggispúða, styrktarbita í
hurðum og ABS hemlalæsivörn með tölvustýrðri jöfnun sem staðalbúnað. Þarfir manna eru mísjafnar, því eru
sæti fyrir 7 en mjög einfalt er að breyta farþega og farangursrými eftir þörfum hvers og eins.
Vélin í XL-7 er 2,7 litra DOHC V6, 173 hestöfl og meðaleyðslan er aðeins 10,8 lítrar á hundraðið.
SAMANBURÐARTAFLA:
Tegund lengd breidd hæð hjólahaf
Mercedes Benz M 4587 1833 1776 2820
Pajero Sport 4610 1775 1735 2725
Grand Cherokee 4611 1858 1805 2690
Musso 4656 1864 1755 2630
Grand Vitara XL-7 4685 1780 1740 2800
Terrano !i 4697 1755 1850 2650
Discovery 4705 1855 1883 2540
Landcruiser 90 LX 4730 1730 1860 2675
Pajero 4775 1845 1855 2780
Trooper 4795 1835 1840 2760
*DV. 25.8.01
Verð: Aðeins
Beinsk. 2.980.000
Sjálfsk. 3.180.000