Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2001, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2001, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2001 DV Fréttir Kleifarvatn hefur minnkað mikið á rúmu ári: Vatnið fossar nið- ur um sprungur - orsakirnar raktar til þjóðhátíðarskjálftans í fyrra Vatnsborð Kleifarvatns hefur stöðugt verið að lækka allt frá jarð- skjálftunum 17. júní í fyrra. Hefur yfirborð vatnsins nú aldrei mælst lægra í hundrað ár. í fyrstu var talið að þurrkatíð í fyrra og lítill snjóavetur gætu skýrt lækkað vatnsborð. Þegar líða tók á þetta ár urðu menn hins vegar varir við sprungur við norðurenda Kleifar- vatns þar sem vatn fossaði niður. Virðast þær hafa opnast í Suður- landsskjálftunum síðastliðið sumar. Síritandi vatnshæðarmælir Vatnamælinga Orkustofnunar hef- ur skráð vatnshæð Kleifarvatns síð- an 1964, fram að því eru til stakir álestrar frá 1930 og frásagnir um vatnsstöðu frá byrjun síðustu aldar. Samkvæmt upplýsingum frá vatna- mælingum Orkustofnunar er vatns- borðsstaða Kleifarvatns háð breyti- leika í veðurfari og hefur hún verið notuð til að sýna langtímabreyting- ar í grunnvatnsstöðu svæöisins og þar með úrkomu. Ekkert rennsli er frá vatninu á yf- irborði en leki um botn vatnsins hefur verið tæpur einn rúmmetri á sekúndu undanfarin ár. Þessi leki tvöfaldaðist fyrsta hálfa árið eftir Suðurlandsskjálftana í júní 2000. Síðan þá hefur vatnsborð Kleifar- vatns farið stöðugt lækkandi. Þannig hafði yfirborðið í júlí á þessu ári lækkað um tæpa fjóra metra og var þá í 136,7 metrum yfir sjó. Síðan hefur rennsli úr vatninu haldið áfram niður um sprungur og vinna starfsmenn Orkustofnunar nú að úrvinnslu nýrra gagna. Rign- ingar seinnihluta sumars hafa þó hægt nokkuð á lækkun vatnsyfir- borðsins. Samkvæmt upplýsingum frá Orkustofnun virðist samt enn ekk- ert lát á vatnsrennsli niður um sprungurnar. -HKr. DV-MYND GVA Kleifarvatn minnkar stööugt - en rigningartíö eftir mitt sumar hefur þó heidur hægt á lækkun vatnsyfirborösins. Miðbæjarsamtökin á Akureyri vilja bílaumferð í göngugötuna: Framkvæmdaráð segir nei - mun líflegri verslun í næstu götum, segir formaður Miðbæjarsamtakanna Göngugatan Hafnarstræti á Akureyri Verslunarmenn þar vllja fá bílaumferð um götuna strax. Mesta veltan Samherji hf. er meö mesta veltu allra sjávarútvegsfyrirtækja. Velta sjávarútvegsfyrirtækja: Norðlensku risarnir stærstir Norðlendingar eiga þrjú stærstu sjávarútvegsfyrirtækin á landinu, ef miðað er við veltu þeirra. Þetta kemur fram í samantekt Frjálsrar verslunar. Samherji hf. trónir þar i efsta sæt- inu með 7.011 milljóna króna veltu en Útgerðarfélag Akureyringa hf. er í 2. sæti með veltu upp á 6.143 miUjónir króna. Þessi fyrirtæki eru í 30. og 32. sæti á lista yfir öU fyrirtæki landsins hvað varðar veltu. í þriðja sæti yfir fyrirtækin í sjáv- arútvegi er Þormóður Rammi - Sæ- berg hf. á Siglufirði með 4.992 miUjón- ir en síðan koma Haraldur Böðvars- son hf. á Akranesi með 4.547 mUljón- ir, Grandi hf. með 3.895 miUjónir og SR-Mjöl hf. með 3.666 miUjónir. -gk Framkvæmdaráð Akureyrarbæj- ar hefur hafnað erindi frá Miðbæj- arsamtökunum, þess efnis að gerðar verði ráðstafanir til að hleypa um- ferð bifreiða á götuna með bráða- birgðaaðgerðum þar til endurbótum á götunni lýkur á næsta ári. Ingþór Ásgeirsson, formaður Mið- bæjarsamtakanna, segir að samtök- in hafi ekki lagt fram fuUmótaða til- lögu um á hvaða hátt breytingar til bráðabirgða yrðu gerðar á götunni en telur að það ætti ekki að vera mikið mál að koma þessu á. „Hins vegar hefur málið einnig farið fyrir umhverfisráð sem sam- þykkti að Hafnarstrætið yrði gert að vistgötu þar sem umferð megi fara um götuna á vissum tíma, frá 10 á morgnana til klukkan 22. Þar er gert ráð fyrir lítils háttar breyting- um á götunni sem myndi þýða að umferð bifreiða gæti farið um. Þessi afgreiðsla umhverfisráðs á eftir að fara fyrir bæjarráð og bæjarstjóm og ég er bjartsýnn á að þessu máli ljúki farsæhega," segir Ingþór. Hann segir málið snúast í raun- inni um það hvort eitthvert líf sé í Hafnarstræti og fólk þar á ferli. „Við sjáum að það er ágæt staða á verslununum í Skipagötu, Strand- götu og í Glerárgötu, allt önnur og betri staða en í Hafnarstrætinu. Þetta er ekkert flóknara en það að fólkið fer þangað að versla þar sem aðgengið er best,“ segir Ásgeir. -gk (Jmsjön: Birgir Guömutidsson netfang: birgir@dv.is Reðurtáknið í Kópavogi Smáralind hefur slegð í gegn á margvíslegan hátt síðustu daga og telja pottverjar greinOegt að viðtök- umar við þessari nýju verslunarmið- stöð hafi farið langt fram úr björtustu vonum aðstandenda. Það er ekki nóg með að kvartmilijón íslendinga hafi lagt leið sina í verslunarmiðstöðina á meðan á opnunarhátíðinni stóð held- ur hefur komið í ljós að menn eru al- veg sáttir við aðgengi að verslunar- húsnæðinu og telja að nóg sé af bíla- stæðum. Þá hafa margir talað um að Smáralind sé vel heppnuð hönnunar- lega en margir hafa tekið eftir því síðustu daga að séð úr lofti er versl- unarmiðstöðin nokkuð reðurtáknsleg og raunar hefur talsvert verið um það rætt að hún minni á mannsreður í mikilli reisn. Þessi hlið Smáralindar hefur nú náð athygli um víða veröld því loftmynd af Smáralind prýðir nú vefsíðu CJ vefsins eða „Consum- ption Junction“ sem er þekktur fyr- ir að vera fyrst og fremst með eró- tískt efni eða það sem flestir myndu kalla klámfengið efni... Ellert áttundi Mikið af kenningum er nú í gangi um framboðsmál sjálfstæðismanna vítt um land eftir landsfundinn en þar gafst mönnum gott ráðrúm til að : bera saman bækur 1 sínar og skiptast á skoðunum. Einn þeirra sem talsvert áberandi var á fundinum, einkum í sjávarútvegsum- ræðunni, var Ell- ert Schram. Ein kenningm sem heyrst hefur eftir fundinn er sú að hópur flokksmanna sé spenntur fyrir því að fá Ellert i framboð i Reykjavík en ekki endilega stilla honum upp gegn Ingu Jónu Þórðardóttur. Þvert á móti yrði honum stillt upp í 8. sæti þar sem hann yrði settur til höfuðs Ingibjörgu Sólrúnu sem verður væntanlega í 8. sætinu hjá Reykjavíkurlistanum. Telja menn að Ellert muni höfða til margra frjáls- lyndra Reykvíkinga og hann sé líka hæfilega „ferskur" eftir langa fjar- veru úr pólitík... Kurteis við VG Mörgum þykir sérkennilegt hversu mikla athygli Davíð Oddsson veitti Össuri Skarphéðinssyni í setningar- ræðu sinni á landsfundinum. Að sama skapi var að- eins einu sinni vikið að Stein- grími J. og Vinstri grænum en þeir þá að vísu kallaðir „veruleikafirrtir". Nú gera menn því skóna að Davíð vilji ekki styggja VG um of því hann gæti þurft á þeim að halda við stjórnarmyndun eftir tvö ár, eða í það minnsta þurfl hann að láta líta svo út að það komi til greina að sjálfstæðismenn og Vg færu sam- an í stjórn. Með því móti heldur Dav- ið opnum fleiri en einum möguleika á stjórnarsamstarfl og hefur betri samningsstöðu gagnvart Halldóri Ásgrímssyni þegar þar að kemur... Treysta Þórði Það vekur athygli á hriflu.is, vef reykvískra framsóknarmanna, að fé- lagsmenn virðast bera meira traust til þjóðhagsspárinnar sem Þjóðhagsstofn- un kynnti en þeirr- ar sem notuð var í fjárlagafrumvarpi Geirs H.Haarde. Er greinilegt að framsóknarmenn- irnir telja Þórð Friöjónsson trú- verðugri en fjár- málaráðherra, þrátt fyrir að þar fari samstarfsmaður í rik- isstjórn. Annars sögðust 19% taka meira mark á spá Geirs Haarde en 81% greiddu Þjóðhagsstofnun atkvæði sitt...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.