Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.2001, Side 7
7
ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2001 _______________________________________________
DV Norðurland
SÁÁ hefur úr minna að spila til meðferðarmála:
Starfsemin á
Akureyri í hættu
SÁÁ
Ljóst er aö starfsemi SÁÁ á Akureyri er nú í mikilli hættu vegna fjárskorts
samtakanna.
„Það sem liggur
fyrir hjá okkur er
að sníða meðferð-
ina að þeim pening-
um sem við höfum
til að verja í með-
ferð. Það er okkar
verkefni og stað-
reyndin er sú að
við höfum minni
peninga til þeirra
hluta en áður
þannig að við verðum að draga sam-
an í meðferðarumfanginu á næsta
ári,“ segir Þórarinn Tyrfingsson,
formaður SÁÁ, en á fundi á Akur-
eyri um helgina gat hann þess að
svo gæti farið að starfsemi samtak-
anna á Akureyri yrði lögð niður
vegna Qárskorts.
Þórarinn segir að til ýmissa hluta
sé hægt að grípa í sparnaðarskyni
og einn möguleikinn sé að loka
göngudeildinni á Akureyri. „Við
lokuðum Staðarfelli og höfum haft
lokað þar í Qóra mánuði en opnum
þar aftur um næstu mánaðamót,
enda aldrei ætlunin að loka þar var-
anlega. Við breyttum meðferðinni á
Vík þannig að hún var stytt í tvær
vikur en það gafst afskaplega illa.
Við reiknuðum með að fólk myndi
leita inn í göngudeildina og kaupa
sér aukalega meðferð en það varð
ekki eins mikið og við höfðum von-
ast til.“
Þórarinn segir að starfsemin á
Akureyri hafi ekki verið á fjárlög-
um Alþingis, fyrir utan árið 2000, og
SÁÁ hafi því kostað starfsemina þar
af sjálfsaflafé. „Það er auðvitað áfall
fyrir okkur að þurfa að vera að
skera niður þá meðferðarmöguleika
sem við höfum haft og það er allt
annað en skemmtilegt að þurfa að
velja þar á milli. Það er t.d.
óskemmtilegt að þurfa að vera að
ræða það hvort starfsemin á Akur-
eyri verður þar áfram. Þetta er eina
göngudeildin utan Reykjavíkur. í
öðru lagi hefur starfsemin þarna
gefist afskaplega vel og skilað mjög
góðum árangri og í þriðja lagi teng-
ist göngudeildin sambýli sem við
erum með á Akureyri. Við sjáum
ekki hvernig fara myndi fyrir þeim
rekstri ef við legðum niður göngu-
deildina í bænum. Og ekki má
gleyma því að fólk lætur mjög vel af
þeirri þjónustu sem veitt hefur ver-
ið á göngudeild okkar á Akureyri,
það varð ég mjög vel var við þegar
ég var fyrir norðan um helgina,“
segir Þórarinn. -gk
Þórarinn
Tyrfingsson.
Jólatákniö 2001
Jólagarðurinn:
Jólatáknið 2001
Það er orðinn fastur liður ár
hvert hjá Jólagarðinum í Eyjafjarð-
arsveit að valinn handverks- eða
listamaður búi til tákn komandi
jólahátíðar. Að þessu sinni er lista-
maðurinn málmlistakonan Elínborg
Kjartansdóttir. Elinborg er fædd í
Reykjavík 1960 og hefur starfað sem
hönnuður og málmlistakona frá ár-
inu 1989, bæði hérlendis og erlendis.
Hún hefur unnið að veggskúlptúr-
um, skartgripum, koparristum, gler-
listaverkum og ýmsum nytjahlut-
Afrakstur af samstarfi Svars og Þekkingar-Tristans á Akureyri vekur athygli:
Samruni gagna í
símum og tölvum
Ör þróun
Nýja tæknin gerir fyrirtækjum kleift aö senda síma- og tölvugögn eftir
sömu línunni. Meö því geta símstöövar þeirra tengst saman.
Á undanförnum
mánuðum hafa fyrir-
tækin Svar hf. á Ak-
ureyri og Þekking-
Tristan á Akureyri
verið í samstarfi um
uppsetningu á síma-
og tölvukerfum sem
gera fyrirtækjum
kleift að senda síma-
og tölvugögn eftir
sömu línunni. Þessi
tækni sparar fyrir-
tækjum umtalsverða
fjármuni þar sem nú
er hægt að nýta eina
línu fyrir bæði tal og
gögn.
Með þessu geta
símstöðvar einstakra
deilda fyrirtækja tengst saman eins
og um eina símstöð væri að ræða
sem gefur möguleika á umtalsverð-
um spamaði. Auk þess geta fyrir-
tæki, sem hafa rekið tvö eða fleiri
skiptiborð, látið alla símsvörun fara
í gegnum sama skiptiborðið. Með
þessari tækni er mögulegt að flytja
símtöl áfram yfir gagnalínurnar
eins og um innanhússsímtöl sé að
ræða. Sparnaður i mannahaldi og
símakostnaði, auk ýmissa nýrra
möguleika við notkun símakerfis-
ins, gerir þessa tækni að mjög
áhugaverðri lausn.
Tölvan og síminn að renna
saman
Skilin á milli stafrænnar sim-
tækni og tölvusamskiptatækni
verða sífellt óskýrari þar sem tölv-
an og síminn eru að renna saman.
Þetta mætti kalla
eins konar samruna
hljóðs og gagnaflutn-
inga. Með slíkum
samruna heyra hefð-
bundnir símar og
símstöðvar sögunni
tii en við tekur sam-
tvinnað heildamet
með mörgum nýjum
möguleikum í nýt-
ingu tölvukerfa. Há-
hraðatengingar hafa
rutt þessari tækni
braut á síðustu miss-
erum og fyrirtæki
víða um heim sjá
augljósa kosti þess að
fjárfesta í IP-símkerf-
um.
Drifkrafturinn í þessari öru þró-
un er Internetið og IP-samskipta-
staðallinn. Gögnum er beint út á IP-
netið með svokölluðum beinum
(router) þar sem bæði hljóð og gögn
fara eftir sömu línu samtímis.
Meðal þeirra fyrirtækja sem hafa
tekið upp þessa nýju tækni eru
Norðlenska matborðið á Akureyri
og Húsavík og Samherji Dalvík og
Árskógssandi.
Akureyri:
Líkur á framboði fólksins
um.
Hennar tákn, „jólatré", er, eins og
nafnið gefur til kynna, jólatré sem
unnið er í kopar með messing-
skreytingu og stendur á korkstöpli.
Að mati forsvarsmanna Jólagarðs-
ins mætast í verkinu á notalegan
hátt formið annars vegar og styrkur
og útgeislun efnisins hins vegar.
Jólatáknið 2001, segja þeir, er þvi i
senn glæsilegur gripur og verðugur
fulltrúi málmlistarinnar - fallegt ís-
lenskt handbragð sem er hvalreki á
fjörur unnenda þess.
Jólatáknið er sem fyrr aðeins í
110 tölusettum eintökum og því
hvert um sig einstakt.
„Ég er að hugsa
málið. Endanleg
ákvörðun liggur þó
ekki fyrir enda
nægur tími til
stefnu til að ákveða
þetta en ég met
stöðuna þannig að
það séu góðar líkur
á að af framboði
verði,“ segir Oddur
Helgi Halldórsson,
bæjarfulltrúi Lista fólksins á Akur-
eyri, um möguleikana á því að Listi
fólksins verði með framboð í bæjar-
stjórnarkosningunum í vor.
Listi fólksins, sem varð til fyrir
kosningamar 1998, varð til í kring-
um Odd Helga, en hann sagði skilið
við Framsóknarflokkinn i aðdrag-
anda kosninganna þá og fór í sér-
framboð og náði inn manni þrátt
fyrir ýmsar hrakspár.
„Ég held að af framboði í vor geti
alveg eins orðið. Það hefur ótrúlega
mikið verið talað við mig um þessi
framboðsmál að undanförnu en auð-
vitað á maður eftir að kortleggja og
mæla stöðuna endanlega. Það er að
ýmsu að huga eins og t.d. þvi að ég
er í sjálfstæðum atvinnurekstri en
ekki í pólitískt vemduðu vinnuum-
hverfi eins og sumir sem eru að fást
við þessi sveitastjórnarmál."
Oddur Helgi segir að ef hann
flnni eindreginn vilja fólks á að
hann haldi áfram í bæjarmálunum
þá geri hann það. „Ég er í þessu fyr-
ir fólkið og það er það sem á að ráða
ferðinni. Ég tel að mín rödd hafi
heyrst vel og reyndar finnst mér
sem meirihlutinn i bæjarstjórn Ak-
ureyrar sé að vinna mörg þau verk
sem ég ætlaði mér að berjast fyrir.
Það er nokkur samhljómur i þessu,
helst að Framsóknarflokkurinn vilji
stíga fastar á bremsuna en aðrir,“
segir Oddur. -gk
Akureyri:
Framsókn í
kvennaleit
„Sérstök nefnd
sem skipuð var er að
vinna að tillögu um
uppstillingu á list-
ann og mér skilst að
niðurstöðu sem verð-
ur síðan lögð fyrir
fulltrúaráð flokksins
sé að vænta fyrir
áramót," segir Jakob
Björnsson, oddviti
framsóknarmanna i
bæjarmálunum á Akureyri.
Fúndur fulltrúaráðs flokksins sam-
þykkti í vor að skipa nefnd til að gera
tHlögu um skipan listans og starfar
nefndin undir stjórn Hákonar Hákon-
arsonar, formanns fulltrúaráðsins.
Ljóst er að miklar breytingar verða á
skipun í efstu sæti lista Framsóknar-
flokksins frá því í kosningunum 1998
en þá fékk flokkurinn 3 bæjarfulltrúa
kjöma. Jakob, sem þá var í 1. sæti, gef-
ur kost á sér áfram en þrjár konur
sem skipuðu 2.-4. sætið verða ekki
með að nýju. Ásta Sigurðardóttir, sem
var í 2. sæti, hættir í vor, Sigfríður
Þorsteinsdóttir sem var í 3. sæti er
flutt úr bænum og sömuleiðis Elsa
Friðfinnsdóttir sem var í 4. sæti. Guð-
mundur Ómar Guðmundsson, sem var
í 5. sæti, gefur kost á sér áfram.
Jakob Björnsson sagöi ljóst að mik-
il endurnýjun yrði í efstu sætum list-
ans og því væri ekki að leyna að m.a.
væi leitað að hæfum konum til að
skipa sæti ofarlega á listanum. -gk
N orðausturk j ördæmið:
Þórarinn formað-
ur hjá Framsókn
Þórarinn E. Sveinsson frá Akur-
eyri var kjörinn formaður Kjör-
dæmisráðs Framsóknarflokksins í
hinu nýja norðausturkjördæmi, en
stofnfundur kjördæmisráðsins var
haldinn í Mývatnssveit um helgina.
Kjördæmisráðið var það fyrsta sem
kosið er í Framsóknarflokknum
miðað við nýja kjördæmafyrir-
komulagið.
Talsvert á annað hundrað fulltrú-
ar sóttu fundinn í Mývatnssveit og
komu þeir af svæðinu frá Siglufirði
í norðri til Djúpavogs í suðri. Fund-
arhaldið hófst reyndar á því að
fundað var í gömlu kjördæmasam-
böndunum og þau formlega lögð
niður, en síðan hófst stofnfundur-
inn og var Halldór Ásgrímsson, for-
maður flokksins, meðal ræðu-
manna.
Auk Þórarins voru kjörin í stjórn
Eyþór Elíasson, Egilsstöðum, Bogi
Sigurbjörnsson, Siglufirði, Alrún
Kristmannsdóttir, Eskifirði, Ás-
grímur Viðar Ásgeirsson, Hallorms-
stað, Sigurgeir Aðalgeirsson, Húsa-
vík, og Pétur Snæbjörnsson, Mý-
vatnssveit. -gk
Ey j af j arðarsveit:
Vel mætt á hag-
yrðingakvöld
Um 500 manns sóttu hagyrðinga-
kvöld sem haldið var í iþróttahúsinu í
Hrafnagili í Eyjaijarðarsveit um helg-
ina en það voru Lionsklúbburinn Vit-
aðsgjafi í Eyjafjarðarsveit og Lions-
klúbbur Akureyrar sem stóðu að sam-
komunni.
Hagyrðingakvöld Lionsmanna var
nú haldið fjórða árið í röð og er að-
sókn ávallt mjög mikil. Á hverju ári er
hagnaði af kvöldinu varið tfl að
styrkja ákveðið málefni og að þessu
sinni rennur hagnaðurinn til tækja-
kaupa fyrir Heilsugæslustöðina á Ak-
ureyri. Áður hefur hagnaðurinn m.a.
farið til uppbyggingar þjálfunarsund-
laugar í Kristnesi og til að kaupa og
greiða fyrir þjálfun fíkniefnahunds á
Akureyri.
Hagyrðingarnir sem skemmtu fólki
að þessu sinni voru Pétur Pétursson,
Hjálmar Freysteinsson, Stefán Vil-
hjálmsson, Björn Ingólfsson og Jó-
hannes Sigfússon en Birgir Svein-
bjömsson stjórnaði af röggsemi eins
og undanfarin ár.
-gk