Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2001, Side 9
FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2001
DV
9
Fréttir
Málefni flugvélar Flugmálastjórnar rædd á Alþingi:
Segja óþarfa leynd
vekja tortryggni
- veriö aö gera eðlilegan hlut tortryggilegan, segir ráðherra
Sturla Böðvarsson samgöngu-
ráðherra sagði á Alþingi í gær að
enn á ný væri Gísli S. Einarsson
að reyna að gera eðlilega starfsemi
tortryggilega með því að biðja um
utandagskrárumræðu um málefni
flugvélar Flugmálastjórnar. Gísli
kvaddi sér hljóðs utan dagskrár í
gær og viidi fá að vita hvað sam-
gönguráðherra hygðist gera í því
aö Flugmálastjóm hafi ekki farið
að lögum varðandi geymslu á far-
þegalistum. Gísli spurði einnig um
hvort ekki bæri að leita tilboða hjá
þeim flugfélögum sem eru starf-
andi i þá flutninga sem Flugmála-
stjómarvélin hefur sinnt.
Sturla Böðvarsson, eins og raun-
ar ýmsir fleiri stjórnarliðar sem
komu upp, töldu einsýnt að regl-
umar um Flugmálastjómarvélina
væru skýrar og þar væri beinlínis
skilgreint sem eitt af verkefnum
hennar að flytja æðstu stjórn ríkis-
ins. Sturla upplýsti að 12% af
notkun vélarinnar færu í það að
flytja ráðherra og þeir flutningar
færu fram þegar vélin væri ekki í
annarri notkun. Hann sagði það
gamaldags þráhyggju að telja að
það að ferðast með flugi væri mun-
aður.
Bryndis Hlöðversdóttir, Gísli S.,
Jóhanna Sigm-ðardóttir og Ög-
mundur Jónasson undirstrikuðu
að málið snerist fyrst og síðast um
upplýsingagjöf stjómvalda og að
þegar hún væri slök skapaðist
óhjákvæmilega tortryggni. Það
væri það sem hafi gerst í þessu
máli, þar sem einungis eitt emb-
ætti, forsetaembættið, hafi svarað
þeim spumingum sem fyrir það
var lagt. Sverrir Hermannsson
gerði þessa tregðu framkvæmda-
valdsins til að svara eðlilegum
spurningum einnig að umtalsefni
og orðaði það svo að stundum virt-
ist sem hér rikti stjórnbundið þing
en ekki þingbundin stjórn. Páll
Pétursson félagsmálaráðherra
taldi hins vegar sjálfsagt að flug-
vélin væri notuð af æðstu stjórn
ríkisins þótt hann notaði hana
ekki sjálfur og hefði ekki gert sl. 3
ár. Hins vegar sagði hann það taka
út yfir allan þjófabálk að ætla aö
krefjast þess að farþegalistar úr
ferðum vélarinnar yrðu geymdir á
Þjóðskjalasafninu, bókhaldið í
ráðuneytunum væri í það góðu
lagi að Ríkisendurskoðun gæti
hæglega séð hvort þarna væri ekki
um eðlilega notkun að ræða.
-BG
Karl Ólafur Ragnar
Sigurbjörnsson. Grímsson.
Flugmálast j órnarvél:
Forseti greiðir
fullt gjaid
Frá árinu 1997 hafa þær reglur
gilt um Flugmálastjórnarvélina,
TF-FMS, að biskupinn yfir íslandi
og forseti íslands greiði fullt verð
eins og ákveðið er í verðskrá Flug-
málastjómar. Stefán Lárus Stef-
ánsson forsetaritari segir að emb-
ættið greiði sama gjald og aðrir.
Áður fengu þessir aðilar frítt með
vél Flugmálastjórnar. Ekki eru til-
tæk dæmi um að biskupinn hafi
leigt vélina en forseti íslands hefur
notað hana í nokkrum tilfellum.
Embætti forsetans svaraði af ná-
kvæmni spurningum DV um það
hvert hafi verið farið og hverjir
hafi ferðast með vélinni. Eins og
fram hefur komiö í DV höfðu sum
ráðuneytanna ekki upplýsingar
um farþegalistana og Flugmála-
stjóm hafði fleygt þeim. En bók-
haldið á forsetaskrifstofunni
reyndist í fullkomnu lagi. -rt
Gæsluvarðhald
vegna innbrots
Ólafsfirðingur er í gæsluvarð-
haldi á Akureyri vegna rannsóknar
á innbroti í Ólafsfirði í haust. Hann
tengist öðru af tveimur innbrotum í
tvö fyrirtæki í bænum í haust, en i
þeim var m.a. stoliö tölvubúnaði, tó-
baki og peningum. Enn er unnið að
rannsókn málsins og maðurinn
tengist einnig innbroti eða innbrot-
um á Akureyri.
Þá er annar Ólafsfirðingur í
gæsluvarðhaldi á Akureyri. Sá er sí-
brotamaður sem bíður afplánunar
dóms en hann tengist m.a. innbroti
á Dalvík í haust. -gk
HVER E R ARTEMIS FOWL?
TEfflÍS FOWL
BræÖraborgarstíg 7
101 Reykjavík
Sími 575 5600
jpvOjpv.is
www.jpv.is
^ Fiskeldi Eyjafjarðar hf.:
Olafur hættir sem
framkvæmdastjóri
Ólafur Halldórsson, framkvæmda-
stjóri Fiskeldis Eyjafjarðar hf., hefur
óskað eftir því við stjóm félagsins að
láta af störfúm. Ekki liggur fyrir á
þessari stundu
hvenær starfslok
Ólafs verða en
unnið er að því að
finna eftirmann
hans.
Fiskeldi Eyja-
fjaröar var stofhað
á Hjalteyri við
Eyjafjörð í maí
1987. Að loknum
undirbúnings-
rannsóknum
ákvað stjórn fé-
lagsins að byggja
upp aðstöðu og
hefja fjöldafram-
leiðslu á lúðuseiðum og hófst þegar
handa við að þróa aðferðir til þess.
Fyrstu seiðin vom framleidd árið 1990
og var félagið með þeim allra fyrstu í
heiminum til að ná tökum á slíkri
starfsemi. Á undanfomum árum hefur
Fiskeldi Eyjaijarðar verið stærsti
framleiðandi lúðuseiða í heiminum.
Félagið hefúr þannig verið frumkvöð-
ull á sinu sviði, þ.e. í rannsóknum og
eldi á lúðu, og uppbygging félagsins
hefur verið hröð.
Ólafur Halldórsson var einn af
hvatamönnum að stofnun Fiskeldis
Eyjafjarðar og hefur verið fram-
kvæmdastjóri félagsins frá upphafi.
„Þetta hafa verið afar lærdómsrík og
Olafur
Halldórsson:
„Þetta hafa veriö
afar lærdómsrík
og skemmtileg
ár.“
skemmtileg ár. Ég lít svo á að nú sé
rannsóknarstarfi og uppbyggingu að
mestu lokið og starfsemin að komast í
fastari skorður. Ég tel því tímabært að
snúa mér að öðrum verkefnum," segir
Ólafur.
Þótt Ólafúr hafi ekki látið af störfum
framkvæmdastjóra Fiskeldis Eyja-
fjarðar viil stjóm félagsins nota þetta
tækifæri til að þakka honum mjög gott
og farsælt starf í þágu félagsins og
óska honum velfamaðar á nýjum vett-
vangi. -gk
Fiskeldi Eyjafjarðar
Stærsti framleiöandi lúöuseiöa í heiminum.