Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2001, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2001, Blaðsíða 16
16 Menning Óli G. Jóhannsson heldur stóra einkasýningu í Listasafninu á Akureyri og er vinsæll hjá Dönum: Heppni að sleppa inn DV-MYND GK Óli G. Jóhannsson listmálari „ Uppreisnarseggir eru yfirleitt í útkantinum. “ 011 G. Jóhannsson: I fylgsnum viö hamranna bak Myndfletir hans iöa af lífi jaöranna á milli. Gáskafullir leikir á myndfletinum I sýningarskrá eru greinar um list Óla eftir listfræðingana Hannes Sigurðsson, forstöðu- mann Listasafnsins á Akureyri, og Aðalstein Ingólfsson þar sem þeir tengja list hans við ýmis fræg nöfn í listasögunni - þar eru m.a. Cézanne, Svavar Guðnason, Kandinsky, Poll- ock og Kirkeby nefndir sem hugsanlegir áhrifamenn á listsköpun hans, auk COBRA- hópsins sem hann mun vera náskyldur, og þar má lesa setningar eins og þessa: „Það vakti einnig athygli að listamaðurinn notaði teikningu bæði konstrúktíft og frjálslega, það er til að byggja upp og halda utan um liti sina og til gáskafullra leikja á myndfletinum. Að sönnu örlaði fyrir stífni í nokkrum þessara verka, en ásetningurinn var ljós, nefnilega að brjóta til mergjar hið séða og skapa úr því „al- þekjandi" málverk, myndfleti sem iöuðu af lífi jaðranna á milli.“ Hvernig flnnst Óla að lesa svona setningar? „Ég tek þessu með jafnaðargeði eins og yfir- um. Minn vettvangur hin síðari ár með mál- verkin hefur verið í Danmörku. þar hef ég haldið einkasýningar og tekið þátt í allt að fjórum samsýningum á ári og er bókaður þar næstu þrjú ár. Þetta málverk mitt hefur feng- ið mjög góðan hljómgrunn hjá Dönum enda myndlistarhefðin rík fyrir afstrakt-ex- pressjónisma, eins og þeir flokka mig, fræð- ingarnir. Þar hef ég sloppið inn í sali með afar virtum málurum." - Og hefurðu selt vel? „Já, umhverfíð er allt öðruvisi en hér heima. Þar eru ýmiss konar „kunstforen- inger“ og listaverkasjóðir hjá fyrirtækjum, og opinberir aðilar eru miklu friskari i kaupum á málverkum. Þar eins og hér er heppni að sleppa inn, því framboðið er svo gífurlegt, en ég slapp inn um nálaraugað hjá Dönunum og núna er ég að fóta mig hér á Norðurlandi." Sýningar þeirra Óla og Kristjáns Davíðssonar standa til 16. desember. Nánari upplýsingar eru á vefsíöu Listasafnsins á Akureyri: www.artak.strik.is. Á morgun kl. 15 veröa opnaöar sýningar á verkum Óla G. Jóhanns- sonar og Kristjáns Davíössonar í Listasafninu á Akureyri. Kristján þekkja allir áhugamenn um mynd- list en Óli er þekktari sem blaöamað- ur og sjómaöur. Hann kemur óvenju- lega leiö aö listinni, hefur ekki form- lega myndlistarmenntun en hefur vakiö sífellt meiri athygli fyrir myndverk sín á undanförnum árum, bœöi hér heima og erlendis, og þessa mánuöina er hann bœjarlistamaöur Akureyrar. í frétt frá safninu segir að þetta sé stœrsta einkasýning hans fram til þessa. Er þetta lika í fyrsta skipti sem hann sýnir í viröulegri stofnun? „Það er alltaf spurning hvað er virðulegt og hvað ekki,“ segir Óli og glottið heyrist gegn- um símalínurnar alla leið að norðan, „en þetta er í fyrsta skipti sem ég held einkasýn- ingu á listasafni." - Hvemig tilfinning er það? „Hún er vissulega góð, sérstaklega að sýn- ingin skuli vera hér í heimahögunum." - Mér skilst að þú hafir gagnrýnt þetta lista- safn á árum áður. „Já, ég hef haldið uppi gagnrýni á myndlist- arvettvanginn hér á Akureyri gegnum tíðina og oft á tíðum jafnvel verið með læti!“ - En ertu hættur því núna? „Ég lofa því ekki,“ segir Óli og ekki er laust við ögrun í röddinni. „Það hefur ekki orðið nein karakterbreyting í mér.“ leitt öllum hlutum," segir Óli stillilega. - En eru þeir á réttri línu í sam- bandi við áhrifavalda þína? „Ja, verðum við ekki að treysta fræðingun- um? Ég held raun- ar aö meg- inþemað sé alveg rétt - og lofið er gott. En málið er að ég er að skila af mér sem bæjarlista- maður með þessari sýningu. Það var kærkom- inn vegs- auki, ekki síst af því að ég reikn- aði aldrei með því að komast þar á blað. Svona upp- reisnar- seggir eru yfirleitt í útkantin- Bókmenntir Köflóttir smáprósar í Lakkrísgerð Óskars Árna Óskarssonar eru stuttir prós- ar, allt frá tveimur línum upp í fimm síður. Bókin skiptist i þrjá hluta sem eru nokkuð ólíkir innbyrðis. Hlutarnir bera ekki nöfn heldur einung- is númer, eitt, tvö og þrjú. Sumir textamir eru á mörk- um þess að vera ljóð, örfáir nálgast hefðbundna frásögn. Flestir þeirra eru einhvers konar brot þar sem annað- hvort er brugðið upp mynd eða tengt er milli ólíkra sviða eða hluta. í fyrsta hluta eru prósar sem allir fjalla um ferðalög um ísland eða lýsa stöðum og fólki í fortíð- inni, oft úti á landi. Prósamir í þessum fyrsta hluta hafa á sér svolítið kíminn og angurvær- an blæ og eru best heppnaði hluti bókarinnar. Óvæntar tengingar heppnast oft vel og skemmtilegir eru prósar eins og „Austurleið" og „Sendiferð" þar sem hversdagslegt og fyrir- sjáanlegt líf tekur óvænta stefnu í einu vetfangi. í öðrum hluta eru stystu textarnir, sem sumir eru bara ein setning. Stíllinn er ein- faldur og blátt áfram myndin er látin standa án nokkurs flúrs eða skrauts. Þessir prós- ar eru mjög misjafnir, en sumir eru lúmskt fyndnir eins og „Maður á göngu" og „Tún- in í Meðallandinu": Litil kjallarasjoppa í Þing- holtunum. Eigandinn dottar í lúnum hœgindastól meö sam- anbrotiö dagblaö á hnjánum. Hérna fœst brjóstsykur sem löngu er hœtt aö framleiöa. Þegar þú opnar dyrnar hrekkur hann upp af draumi um strák sem er aö reka kýr í Meóallandinu fyrir sjötíu árum. í þriöja hluta eru samstæðustu brotin. Þetta eru bernskulýsingar úr Skuggahverfinu og Þingholtunum í Reykjavík. Þarna er Tómas Guðmundsson á ferðinni í Lúllabúð og enn einu sinni fáum við frásögn af þrjúbíómenn- ingu ungra drengja fyrir nokkrum áratugum. Fara þessi blessuðu hasarblöö sem menn eru sífellt aö býtta á í íslenskum bókmenntum ekki að verða svolítið velkt? Fleiri prósar í þessum síðasta hluta eru sama marki brennd- ir. Þetta eru skyndimyndir og sumar vel gerð- ar, en þetta hefur allt verið gert svo oft áður. Síðasti prósinn „Regnhlíf eða piparmyntur" er svo slakur endir; óspennandi lýsing á gönguferð skálds um Reykjavík sem reynist vera full af öðrum skáldum. Það eru góðir hlutir í Lakkrísgerðinni, en bókin í heild er alltof átakalaus til að vekja áhuga eða hrifningu. Þótt smáprósar Óskars Árna séu vel skrifaðir eru þeir einhvern veg- inn alveg lausir við átök við form eða efnivið, þeir líða einfaldlega áfram án þess að tala til manns eða vekja áhuga. Jón Yngvi Jóhannsson Óskar Árni Óskarsson: Lakkrísgerðin. Smáprósar. Bjartur 2001. FÓSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2001 DV Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttir Frumflutningur hjá Tríóinu Aðrir tónleikar i tónleikaröð Tríós Reykjavík- ur og Hafnarborgar verða haldnir í Hafnarborg á sunnudagskvöldið kl. 20. Á dagskrá er meðal ann- ars frumflutningur á nýju verki eftir Jónas Tóm- asson, „Vorvindar að vestan" fyrir fiðlu og selló, sem var samið árið 1999 og er úr röð kammer- verka sem hann nefnir „Úr ýmsum áttum“. Áður hefúr Tríó Reykjavíkur frumflutt verkið „í kyrrð norðursins" sem einnig tilheyrir þessari röð. Auk þess eru tvö píanótríó á efnisskránni, hið fræga Sígaunatríó eftir Joseph Haydn og hið sjald- heyrða tríó Op.lOl í c-moll eftir Johannes Braluns. í Tríói Reykjavikur eru þau Guðný Guðmunds- dóttir fiðluleikari, Gunnar Kvaran sellóleikari og Peter Máté píanóleikari. Sköpun, ljóö og myndverk Sköpun, ljóð og myndverk er sam- vinnuverkefni ljóð- skálda í Ritlistarhópi Kópavogs og myndlist- armanna úr Kópavogi. í bókinni eru 24 ljóð og 24 myndverk í lit, auk myndar á bókarkápu. Ritlistarhópur Kópa- vogs hefur áður gefið út ljóðabækumar Gluggi (1996) og Ljós Mál (1997), ljóð og ljósmyndir. Ritlistarhópurinn er grasrótarhreyfmg sem fór af stað fyrir um það bil 6 árum. Hópurinn kemur saman einu sinni í viku, auk þess sem hann stendur fyrir upplestri síðasta flmmtudag hvers mánaðar kl. 20 á Catalínu, Hamraborg 11 í Kópa- vogi. Lesið verður úr nýju bókinni á næsta upp- lestrarkvöldi, 29. nóvember á Catalínu kl. 20. Schubert og súkkulaðikaka Þriðju Tíbrártónleikar KaSa hópsins í Röð 5 í Salnum eru á sunnudag- inn kl. 16.30. Sem fyrr hefj- ast þeir á tónleikaspjalli og leiðir Mist Þorkelsdótt- ir tónskáld áheyrendur til fundar við Schubert. Að tónleikaspjalli loknu flytja strengjaleikaramir Auður Hafsteinsdóttir, Sif Tulinius, Þómnn Marinós- dóttir og Bryndís Halla Gylfadóttir, og pianóleik- aramir Miklós Dalmay og Nína Margrét Gríms- dóttir fyrst Píanótríó í B-dúr, D 898 og þá hinn víðfræga Silungakvintett Schuberts í A-dúr, D 667. Sérstakur gestur á tónleikunum er Hávarður Tryggvason kontrabassaleikari. Tónleikunum lýkur að venju með veitinga- húsakynningu, að þessu sinni frá veitingastaðn- um Rive Gauche. Faðirinn Faðirinn eftir August Strindberg verður leiklesinn á Litla sviði Borgarleikhússins á morgun kl. 17 undir stjórn Gunnars Gunnsteinssonar. Þegar Strindberg skrifaði verkið í ársbyrjun 1887 var far- ið að hrikta í stoðum hjóna- bands hans og fyrstu eigin- konu hans, Siri von Essen. Forsjá bamanna kom í hennar hlut eftir skilnað- inn en feður höfðu þá algeran lagalegan rétt yfir bömum sínum. Móðirin var réttlaus og því Mýt- ur að vakna sú spuming hvers vegna Strindberg hafi ekki verið falin forsjá bamanna. í Föðumum hafa hjón afar skiptar skoðanir á því hvemig best sé að byggja upp framtíð einka- dóttur þeirra. Faðirinn vill senda hana til borgar- innar þar sem hún fengi menntun sem gæti gagn- ast henni ef hún kysi að giftast ekki. Móðirin vill að stúlkan alist áffam upp á heimilinu en er bent á að um það fái hún engu ráðið. Þá fer hún í stríð þar sem engum er hlíft, allra síst föðumum ... Leikarar sem taka þátt í lestrinum era Sigurð- ur Karlsson, Valgerður Dan, Þorsteinn Gunnars- son, Ámi Pétur Guðjónsson, Edda Björg Eyjólfs- dóttir, Halldór Gylfason, Gísli öm Garðarsson og Soffia Jakobsdóttir. Ritþing Steinunnar Við minnum á ritþing Steinunnar Sigurðar- dóttúr í Gerðubergi. Sjá viðtal við hana á bls. 36 hér í blaðinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.