Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2001, Síða 26
30
FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2001
Tilvera
George Harrison
þungt haldinn
Bítillinn George Harrison liggur nú
þungt haldinn á sjúkrahúsi í New
York eftir að hafa gengist undir erfiða
krabbameinsaðgerð fyrr í vikunni.
Hann gengst nú undir eftirmeðferð
sem byggist á nýrri tækni sem verið
er að þróa.
Harrison, sem áður var mikill reyk-
ingamaður, greindist fyrst með
krabbamein í hálsi árið 1997, þá ný-
hættur að reykja og gekkst þá undir
meðferð á sjúkrahúsi i Sviss. í maí sl.
greindist hann svo með æxli í lungum
og var það fjarlægt með skurðaðgerð.
Harrison hefur orðið fyrir fleiri áfóll-
um því í desember árið 1999 varð
hann fyrir árás geðveiks aðdáanda
sem stakk hann tiu stungusárum á
heimili hans í New York.
Dahl líkar glampinn
Glæsipían Sopnie Danl, sem
þekktari er fyrir sýningarstörf en
leiklist, er nýjasta nafnið í kapp-
hlaupinu um hlutverk næstu Bond-
gellu að sögn breskra blaða. Dahl,
sem þessa dagana leikur í leikritinu
The Vagina Monologues á West
End, er æst í aö komast í kvik-
myndirnar og telur eins og þær
Kelly Brook og Anna Kournikova,
sem einnig hafa verið nefndar, að
hlutverkið gæti fleytt henni inn á
rétta braut. Þessi 24 ára gamla
ljóska segist mjög hrifin af Pierce
Brosnan. „Ég hef hitt hann og hann
er mjög ljúfur og ákaflega fyndinn.
Það er glampi í augunum á honum
og mér líkar vel við karlmenn með
glampa." Eins gott að núverandi
kærasti komist ekki að því, en hann
er enginn annar en Mick Jagger.
Erfitt hlutverk
Titanic-stjaman Leonardo DiCaprio
er þekktur fyrir að vera vandlátur þeg-
ar kemur að hlutverkavali og er þá
gjarnan óhræddur við að taka að sér
krefjandi verkefni. Það litur út fyrir að
næsta hlutverk kappans sé einmitt í
þeim dúr, því það er aðalhlutverkið í
myndinni Johnny Eck, sem fjallar
um fatlaðan leikara sem fæddist
fótalaus og gekk um á höndunum.
Hlutverkinu er líkt við hlutverk
Tom Hanks í Forrest Gump, en
DiCaprio mun einnig fara með hlutverk
eineggja bróður Johnnys, sem gerist
umboðsmaður hans. Þetta er átakanleg
ástarsaga tveggja bræðra, þar sem sá
sem virðist heilbrigður er sá sem hefur
við næg vandamál að stríða.
Eftir endurbætur
Þegar komið er inn í húsið sést greinilega aö haldið hefur verið í upprunaleg-
an stíl og húsið gert upp á smekklegan hátt.
Horft yfir salinn
Þeir eru ófáir sem nú eru komniryfir miðjan aldur sem tóku sporið á þessu
dansgólfi.
Nýr skemmtistaður á gömlum grunni:
Höldum upprunalegu út-
liti þrátt fyrir endurbætur
- segir Garðar Kjartansson, eigandi Nasa við Austurvöll
í kvöld verður skemmtistað-
urinn Nasa opnaður formlega í
gamla Sjálfstæðishúsinu við
Austurvöll sem margir þekkja
sem gamla Sigtún eða Bláu
stjörnuna. Það eru Garöar
Kjartansson, Ingibjörg Örlygs-
dóttir og Þormóður Jónsson
sem eiga og reka staðinn.
Að sögn Garðars er Nasa í
tveimur húsum. Fremra húsið
var byggt 1895 af Páli og Þóru
Melsteð og var fyrsti kvenna-
skólinn á íslandi. Geir Hall-
grímsson, fyrrverandi borgar-
stjóri og forsætisráðherra,
fæddist í húsinu en foreldrar
hans bjuggu í því um tima. Aft-
an við gamla húsið var síðan
byggt samkomuhús og fyrsta
Sjálfstæðishúsið og þar voru
skrifstofur Sjálfstæðisflokksins
frá 1941- 1968.
Margir eiga skemmtilegar
minningar af dansleikjum i
húsinu. Haraldur Ámason og
fleiri leikarar skemmtu í reví-
um Bláu stjörnunnar og þar
voru einnig haldnar kvik-
myndasýningar.
Upprunalegur stíll
Sigmar Pétursson sem kenndur
var við Sigtún rak samnefnt veit-
ingahús í gamla Sjálfstæðishúsinu
fram yfir 1970 eða þar til hann flutti
upp á Suðurlandsbraut. Eftir það
tók Síminn við húsinu og notaði
sem mötuneyti í þrjátíu ár.
Þegar komið er inn í húsið sést
greinilega að haldið hefur verið í
upprunalegan stíl og húsið gert upp
á smekklegan hátt.
Garðar segir að hann og konan
hans hafi veriö að leita að hentugu
húsnæði í tvö ár og gripið tækifær-
ið þegar þetta hús bauðst. „Við
erum búin að vera í fjörutíu og
fimm daga að gera klárt og ætlum
að opna í kvöld.“
Nýir elgendur
Garðar Kjartansson og Ingibjörg Orlygsdóttir, tveir af þremur eigendum Nasa.
Slökkt á
Kinks
Þegar Garðar er
spurður um rekst-
urinn sem var í
húsinu segist
hann kunna
nokkrar skemmti-
sögur. „Sigmar
var til dæmis
þekktur fyrir að
standa við raf-
magnsrofann og
taka rafmagnið af á slaginu eitt. Þeg-
ar Kinks voru með tónleika á sínum
tíma komu þeir hingað til að skemmta
sér og tóku lagið. Sigmar stóð við rof-
ann eins og vanalega og slökkti á
þeim á slaginu rétt eins og íslensku
hljómsveitunum og um tíma var Lási
Gömul plaköt
Meðan á endurbótum stóð fundust
gömul plaköt frá Sjálfstæðisflokknum.
kokkur klósettvörð-
ur og seldi smokka
undir borðið.“
Garðar segir að
margir hafi litið inn
á meðan verið var
að laga húsið. „Þeir
hafa gengið um og
rifjað upp gamlar
minningar og bent á
borðin þar sem þeir
sátu oftast. Mér
finnst reyndar
margir benda á sama borðið og kalla
það boröið sitt, þetta er besta borðið á
staðnum og menn muna ef til vill best
eftir því. Menn spyrja lika mikið um
glerið sem aðskildi borðin frá dans-
gólfinu og ég get sagt öllum það hér og
nú að þau eru á sínum stað. Þetta eru
hrein listaverk og við létum pússa
þau upp. Við varðveittum líka ljósin á
sviðinu og settum upp ný og fullkom-
in ljós í loftið þannig að þetta verður
mjög glæsilegt."
Diskótek og ilfandi tónllst
„Við ætlum að vera með diskótek
um helgar og lifandi tónlist á fimmtu-
dögum. Sviðið veitir okkur marga
möguleika og i framtíðinni ætlum við
að standa fyrir leiksýningum og alls
konar uppákomum, barnaskemmtun-
um, jólaböllum og útgáfutónleikum."
Garðar segir að nafnið á staðnum,
Nasa, eigi að höfða til tímabilsins í
kringum 1970 og stemningarinnar á
þeim tíma. „Hugmyndin er að stíllinn
sé sá sami og þá. Við höfum reynt að
halda sem upprunalegustu útliti í hús-
inu þrátt fyrir miklar endurbætur.
Á meðan á lagfæringunum stóð
fundum við eitt og annað skemmtilegt
sem tilheyrir gamalli tíð. Við fundum
til dæmis gamla brennivínsflösku
inni í vegg og hún er verðmerkt á
fjörutíu og niu krónrn*. Einnig fannst
gamalt ávísanahefti og kauptaxti fyrir
starfsfólk á veitingahúsum þar sem
launin eru sjö krónur og fjörutíu aur-
ar á tímann og uppi á lofti fundum við
svo gömul plaköt frá Sjálfstæðis-
ílokknum."
Opnað með pomp og prakt
í kvöld ætlar Skífan að standa fyrir
boði frá hálfsjö til níu í tilefni af tutt-
ugu og fimm ára afmæli fyrirtækis-
ins. Ýmsir landsþekktir skemmti-
kraftar koma fram og má þar helsta
nefna Stuðmenn, Diddú, Björgvin
Halldórsson, Sálina og Svölu. „í fram-
haldi af því ætlum við að opna stað-
inn með pomp og prakt og ég veit að
það á eftir að verða mikið fjör. Ég
skemmti mér sjálfur hér í gamla daga
og þá mætti maður á háhæluðum
bítlaskóm, með leðurbindi og sítt hár.
Þetta var vinsælasti staðurinn í bæn-
um og verður það aftur." -Kip
Gamli barlnn
Innréttingarnar í gamla Sjálfstæðishúsinu voru
mjög glæsilegar eins og sjá má á þessari mynd frá
árinu 1962.
Glerlö á sínum staö
Margir muna eftirglerinu sem aðskildi borðin frá
dansgólfinu. Þau þóttu mikil prýði og nýju eigend-
urnir létu pússa þau upp og koma þeim fyrir á sín-
um stað.
Anddyriö
Garðar segir að nafnið á staðnum, Nasa, eigi aö
höföa til tímabilsins í kringum 1970 og stemningar-
innar á þeim tíma. „Hugmyndin er að stíllinn sé sá
sami og þá. Við höfum reynt að halda sem uppruna-
legustu útliti í húsinu þrátt fyrir miklar endurbætur. “