Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2001, Qupperneq 2
22
FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001
Sport
i>v
Forms-
atriði
var það
Stjarnan vann auöveldan sigur
á KA/Þór, 22-33, i 16-liða úrslitum
SS-bikars kvenna í handknattleik
á Akureyri í gærkvöld. Sigurinn
var þó ekki auðsóttur, þ.e. utan
vallar, þar sem leikurinn hófst
ekki fyrr en rúmum klukkutíma
eftir að hann átti að hefjast vegna
þess að Stjarnan þurfti að fljúga til
Húsavíkur og taka síðan rútu það-
an sem síðan bilaði á leiöinni.
Það mátti kannski merkja ferða-
þreytu á Stjörnuliðinu í upphafi,
heimastúlkur höfðu í fullu tré við
þær og'virtust ætla að fara langt á
baráttunni. Það breyttist þó um
miðjan fyrri hálfleik og Stjarna fór
að síga fram úr og hafði ágæta for-
ystu í leikhléi, 12-16.
í síðari hálfleik var allt annað
Stjömulið að sjá og þær bmtu nið-
ur mótstöðu norðanstúlkna og
juku muninn en KA/Þór kom þó
til baka og náði að minnka hann
aftur niður í fjögur mörk, 20-24.
Það var siðan á síðustu 12 mínút-
unum sem styrkleikamunur lið-
anna kom í ljós, KA/Þór skoraði
ekki i heilar 11 mínútur á meðan
Stjarnan skoraði sex og uppskar
stórsigur.
Harpa Melsted úr Haukum sést hér brjótast fram hjá FH-ingunum Evu Albrechtsen og Dröfn Sæmundsdóttur. DV-mynd E.ÓI.
Haukar tryggðu sér sæti í undanúrslitum bikarkeppni kvenna:
Búið fyrir hlé
Fyrsti leikur Herdísar
Að vanda var það hægur og
hugmyndasnauður sóknarleikur
sem varð KA/Þór að falli en vörn
liðsins er oft og tíðum ágæt.
Stjarnan var ekki svipur hjá sjón á
stundum og ekki fyrr en að Herdís
Sigurbergsdóttir kom inn á í sinn
fyrsta leik eftir langt hlé að þær
fóru virkilega að berjast fyrir hlut-
unum.
„Ég er komin í þetta aftur til að
hafa gaman af þessu, mig langaði
að ljúka þessu á annan hátt og
prófa hvemig þetta væri en ég næ
ekki að vera nema 50% af því sem
ég var áður,“ sagði Herdís Sigur-
bergsdóttir, sem kom inn í lið
Stjörnunnar eftir langt hlé vegna
erflðra meiðsla. Hún sýndi nokkra
gamla takta, skoraði fjögur lagleg
mörk og tók vel á því i vöminni.
„Keppnisskapið er enn til stað-
ar, það vantar ekki, en ég hef því
miður ekki líkamann til að fylgja
því eftir. Ég ætla að láta keppnis-
skapið fleyta mér langt. Ég ætlast
hins vegar ekki til of mikils af
sjálfri mér og er hér til að hafa
gaman af þessu.“
-ÓK
Mörk KA/Þórs: Elsa Birgisdóttir
8/6, Ásdís Sigurðardóttir 6, Ebba Særún
Brypjarsdóttir 3, Inga Dís Sigurðardótt-
ir 2, Ása Maren Gunnarsdóttir 1, Martha
Hermannsdóttir 1, Þórhildur Brynjars-
dóttir 1. Varin skot: Selma Malmquist
5/1, Sigurbjörg Hjartardóttir 1.
Mörk Stjömunnar: Anna Blöndal
8, Jóna Margrét Ragnarsdóttir 6, Mar-
grét Vilhjálmsdóttir 4, Herdís Sigur-
bergsdóttir 4, Hrund Sigurðardóttir 4,
Ragnheiður Stephensen 4/2, Elísabet
Gunnarsdóttir 2, Halla María Helga-
dóttir 1. Varin skot: Jelena Jovanovic
16/1, Ólína Einarsdóttir 4.
Haukastelpur léku við hvern sinn
fingur i gærkvöldi þegar þær unnu
afar öruggan og sanngjarnan sigur
á FH, 26-18, og tryggðu sér sæti i
undanúrslitum bikarkeppninnar í
handbolta. Það var ljóst strax frá
upphafi hvort liöið væri sterkara,
Haukar náðu strax undirtökunum
inn í leikinn enda fór svo að úrslit-
in voru nánast ráðin þegar flautað
var til leikhlés en þá var staðan
16-7, íslandsmeisturunum í vil.
Þessum fyrri hálfleik vilja gestimir
eflaust gleyma sem fyrst enda var
ráðaleysið allt að því algjört og lyk-
iUeikmenn svo til flestir úti að aka.
Undantekningarlítið tóku leikmenn
liðsins skot af gólfinu sem vörn
Haukanna átti í litlum erfíðleikum
með og í kjölfarið fylgdi fullt af vel
útfærðum hraðaupphlaupum þar
sem Hanna G. Stefánsdóttir var i að-
alhlutverki og gestimir fengu ekki
rönd við reist.
Dröfn sást varla
Haukamir leika mjög sterka 6:0
vörn og því nokkuð undarlegt hvað
FH-liðið nýtti sér illa uppstfllingar
og uppstökk eftir aukaköst enda
sást til að mynda stórskyttan Dröfn
Sæmundsdóttir varla i leiknum og
það var eins og leikur liðsins miðað-
ist ailan tímann við eitthvað allt
annað varnarafbrigði.
Seinni hálfleikur var hálfgert
formsatriði en þá hresstust gestirn-
ir til muna og tókst að halda í við
meistarana en minnstur varð mun-
urinn sex mörk, 22-14. FH-liðið get-
ur miklu betur en það sýndi í þess-
um leik en það er brothætt enda
ungt að árum. Hafdís Hinriksdóttir
var langbest þeirra í gær en þær
Harpa Vífilsdóttir og Eva Albrecht-
sen voru ágætar og þá stóð Kristín
María Guðjónsdóttir sig mjög vel i
markinu þann alltof stutta tíma sem
hún fékk.
í Haukaliðinu var engan veikan
hlekk að finna og greinilegt að liðið
er að komast á fuflt skrið og sér í
lagi hefur varnarleikurinn tekið
stakkaskiptum að undanfömu. Þá
er sóknarleikurinn allur að koma tfl
og markvarslan var í finu lagi og ef
fram fer sem horfir þá heldur liðið
ekki einungis titlunum tveimur
heldur bætir þeim þriðja við.
Brynja Steinsen, leikmaður Hauka,
hafði þetta að segja í leikslok.
Okkar hættulegasti and-
stæðingur
„Ég bjóst við þeim mun öflugri en
raun bar vitni en við vorum virki-
lega tilbúnar og vel stemmdar fyrir
þennan leik. Ef við náum að spila
eins og við viljum eigum við ekki að
þurfa að hafa áhyggjur af hinum lið-
unum enda vil ég meina að við sé-
um sjálfar oft okkar hættulegasti
andstæðingur.“
„Ég átti von á mun miklu jafnari
leik og ég hélt að við værum tilbún-
ar i slaginn en það var bara ekki
rétt. Það virtist einfaldlega vanta
vilja og græðgi í okkur en liðið er
reynslulítið og dettur niður inn á
milli eftir góða kafla en það bætist í
reynslusarpinn eftir hvem leik og
við verðum bara að læra af þessu,“
sagði Kristín María Guðjónsdóttir,
leikmaður FH -SMS
Mörk Hauka: Hanna G. Stefánsdóttir
5 (4 hraðaupphlaup), Sandra Anulyte 4 (2
hraðaupphlaup), Inga Fríða Tryggvadótt-
ir 4/2 (1 fiskað víti), Nína Björnsdóttir
4/1, Brynja Steinsen 3, Thelma Árnadótt-
ir 3, Björk Hauksdóttir 1, Heiða Erlings-
dóttir 1, Harpa Melsted 1 Varin skot:
Jenný Ásmundsdóttir 9, hélt 3, Berglind
Hafliðadóttir 4, hélt 1.
Mörk FH: Hafdís Hinriksdóttir 9/3,
Eva Albrechtsen 3, Harpa Vífúsdóttir 3,
Helga Á. Jónsdóttir 1, Dröfn Sæmunds-
dóttir 1, Ragnhildur Guðmundsdóttir 1,
Varin skot: Kristín María Guðjónsdóttir
7, hélt 3, Jolanta Slapikiene 6, hélt 2.
og hleyptu FH-ingum í raun aldrei
Stoltur þjálfari Fylkis
Fjölmargir áhorfendur mættu í
Fylkishöllina í gærkvöld og sáu
heimastúlkur standa í reyndu liði
Gróttu/KR. En gestirnir unnu
28-16, eftir að staðan í hálfleik var
7-17. „Ég er stoltur af stelpunum
því þær spiluðu mjög vel í leikn-
um fyrir utan síðustu fimmtán
mínútunar í seinni hálfleik. Þá
náðu þær forskotinu en á þessun
kafla vorum við óheppin með skot-
in okkar,“ sagði Gunnar Magnús-
son, þjálfari Fylkis.
„Fylkisliðið er ungt og efnilegt
og þar eru sprækar stúlkur. En við
erum komnar áfram og það er fyr-
ir rnestu," sagði Ágústa Edda, fyr-
irliði Gróttu/KR, eftir leikinn.
Mörk Fylkis: Lára Hannesdóttir
3/2, Olga Hrönn Jónsdóttir 3, Hrönn
Kristinsdóttir 2, Hulda Karen Guð-
mundsdóttir 2, Tinna Jökulsdóttir 2/1,
Valgerður Ámadóttir 2, Helga Björk
Pálsdóttir 1, Ingunn Guðbrandsdóttir 1.
Varin skot: Ásdís Benediktsdóttir 10
skot.
Mörk Gróttu/KR: Amela Hegic 7/2,
Heiða Valgeirsdóttir 6, Ragna Karen
Sigurðardóttir 4, Eva Björk Hlöðvers-
dóttir 4/1, Ágústa Edda Björnsdóttir 3,
Kristín Þórðardóttir 3. Varin skot:
Þóra Hlíf Jónsdóttir 8 og Ásdís Krist-
jánsdóttir 1. -BB