Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.2001, Side 7
FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 2001
27
r>v
Sport
Fjórir leikmenn
Angóla sáu rautt
- „vináttuleik“ Portúgala og Angóla
varö að stöðva eftir 68 mínútur
Fjöldamargir vináttulandsleikir
voru háöir í gær og fóru þeir flestir
fram í hinu mesta bróðerni. Annað
blasti við í Lissabon, höfuðborg
Portúgals, þegar heimamenn tóku á
móti liði Angóla. Hætta varð leikn-
um eftir 68 mínútur en þá var búið
að reka fjóra leikmenn og einn til
hafði þurft að yfirgefa völlinn vegna
meiðsla og því aðeins 6 leikmenn í
liði Angóla.
Þeir þrír fyrstu sem fengu að
fjúka fóru allir á fyrstu 26 mínútum
leiksins og allir fyrir að hafa fengið
2 gul spjöld. Leikurinn byrjaði
nefnilega vel fyrir gestina sem
komust yfir strax á 1. mínútu og
héldu forystunni þar til rauðu
spjöldin fóru á loft. Heimamenn
gengu á lagið og þegar leikurinn var
blásinn af höföu þeir bætt við fjór-
um mörkum.
Þá mætti lið Spánar Mexíkó í gær
í slökum leik. Leikvöilurinn sem
leikið var á var í mjög slæmu ásig-
komulagi og gerðu liðin ótal mistök
í leiknum vegna þess. Það var Raul
sem tryggði sigurinn 17 mínútum
fyrir leikslok.
Tvær aðrar þjóðir sem hafa
tryggt sér sæti á HM á næsta ári
léku vináttulandsleik í gær, Rússar
unnu Letta, 3-1, og Pólverjar gerðu
markalaust jafntefli við Kamerún.
-esá
Reuters
Brasilía og Þýskaland
björguðu sér fyrir horn
Það eru eflaust margir fegnir bví
að stórþjóðir eins og Brasilía og
Þýskaland láti sig ekki vanta á úr-
slitakeppni HM á næsta ári. Þrátt
fyrir hálfgert basl í gegnum und-
ankeppnina tókst það loksins.
Þá komst einnig á hreint hvaða
Evrópuþjóðir verða í Japan og Suð-
ur-Kóreu á næsta ári og tókst Sló-
venum, Belgum og Tyrkjum að
hreppa það hnoss.
Það verða að teljast heldur óvænt
tíðindi að Belgar unnu báða leikina
gegn Tékkum og Slóvenar héldu
jöfnu í Rúmeníu eftir að hafa unnið
gegn gangi leiksins á heimavelli.
Tyrkir áttu hins vegar ekki í neinum
vandræðum með Austurríkismenn
og rótburstuðu þá, 5-0.
„Ég er ángæður, þetta land er á
uppleið," sagði Senol Gunes, þjálfari
Tyrkja. „Við erum allir á leiðinni til
Kóreu.“
Léttir fyrir Þýskaland
„Ég hreinlega neita að ímynda
mér hvað hefði gerst værum við ekki
á leið á HM,“ sagði knattspyrnukeis-
arinn þýski, Franz Beckenbauer.
„Þökk sé Guði að þær áhyggjur eru
okkur núna að baki.“
Hætta var á að liðinu tækist ekki
að taka þátt í úrslitakeppni HM í
fyrsta- sinn síðan 1950. Þjóðverjar
komu með jafntefli frá Úkraínu og
dugði markalaust jafntefli til að
komast áfram. En ekkert slíkt var
uppi á teningnum, 3 mörk á fyrstu 15
mínútunum var eins og kjaftshögg
fyrir gestina og sýndu Þjóðverjar
fram á að þetta geta þeir enn.
Rúmenar tefldu fram þremur
sóknarmönnum gegn Slóvenum í
gær en allt kom fyrir ekki þrátt fyr-
ir nokkur góð tækifæri. Slóvenar
tóku svo forystu á 56. minútu en eft-
ir að hafa bætt fjórða sóknarmannin-
um við tókst heimamönnum að
jafna, þótt að þar hafi verið varnar-
maður að verki. Lengra komst rúm-
enska liðið ekki og þarf því að sitja
heima, fjórða stórmótið í röð.
Andlausir Tékkar tóku á móti
Belgum í Prag í gær. Þrátt fyrir að
hafa stjórnað leiknum sköpuðu
Tékkar ekki nema nokkur færi sem
þeir misnotuðu. Undir lok leiksins
var svo brotið á Gert Verhayen inn-
an vítateigs Tékka og Marc Wilmots
markaði endurkomu sína í landslið-
ið með því að skora úr vítiaspym-
unni.
Þar með komust Belgar í sína
sjöttu úrslitakeppni HM í röð.
Þá dró til tíðinda í Suður-Ameriku
í gær. Brasilíu dugði sigur gegn
Venesúela á heimavelli í gær og
voru þeir í engum vandræðum með
andstæðinga sína eftir að hafa kom-
ist yfir snemma í leiknum. Það þýð-
ir að Brasilía kemst beint í úrslita-
keppnina en Úrúgvæ sem tapaði fyr-
ir Kólombíu, 0-4, þarf að spila viö
Ástralíu um síöasta lausa sætið.
esá
Rúmenía-Slóvenía...........1-1
0-1 Rudonja (56.), 1-1 Contra (65.).
Slóvenía vann samanlagt, 3-2.
Tyrkland-Austurríki........5-0
1-0 Bastúrk (21.), 2-0 Súkúr (30.), 3-0
Burak (44.), 4-0 Erdem (68.), 5-0 Er-
dem (83.).
Tyrkland vann samanlagt, 6-0.
Tékkland-Belgía ...........O-l
0-1 Wilmots (86., víti).
Belgía vann samanlagt, 2-0.
Þýskaland-Úkraína .........4-1
1-0 Ballack (4.), 2-0 Neuville (11.), 3-0
Rehmer (15.), 4-0 Ballack (51.), 4-1
Shevchenko (90.).
Þýskaland vann samanlagt, 5-2.
Suður-Ameríka:
Brasilía-Venesúela..........3-0
1-0 Luizao (12.), 2-0 Luizao (19.), 3-0
Rivaldo (35.).
Paragvæ-Kólombía ...........0-4
0-1 Arisitzabal (25.), 0-2 Arisitzabal
35., víti), 0-3 Arisitzabal (62.), 0-4
Castillo (84.).
Úrúgvæ-Argentína............1-1
1-0 Silva (18.), 2-0 Lopez (44.).
Chile-Ekvador...............0-0
Perú-Bólivía ...............1-1
1-0 Alva (8.), 1-1 Coimbra (88.).
Lokastaðan:
Argentína 18 13 4 1 42-15 43
Ekvador 18 9 4 5 23-20 31
Brasilía 18 9 3 6 31-17 30
Paragvæ 18 9 3 6 29-23 30
Kólombía 18 7 6 5 20-15 27
Bólivía 18 4 6 8 21-33 18
Perú 18 4 4 10 14-25 16
Venesúela 18 5 1 12 18-14 16
Chile 18 3 3 12 15-27 12
Vináttulandsleikir:
Malta-Kanada ..............2-1
1-0 Carabott (33., víti), 1-1 Salteri
(42.), 2-1 Mifsud (75.).
Grikkland-Kýpur.............1-2
0-1 Okkas (41.), 1-1 Liberoppulos
(86.), 1-2 Ioakeim (88.).
Lettland-Rússland...........1-3
0-1 Hohlov (8.), 0-2 Alenichev (47.),
0-3 Panov (72.), 1-3 Astaflevs (89.).
Pólland-Kamerún ............0-0
Eistland-Kasakhstan.........0-0
Ungverjaland-Makedónía . .. 5-0
1-0 Lisztes (3.), 2-0 Ferenczi (25.), 3-0
Tokoli (56., víti), 4-0 Tokody (66.), 5-0
Lisztes (75.).
Marokkó-Sambia..............1-0
1-0 Rokki (86.).
Portúgal-Angóla ............5-1
0-1 Mendonca (1.), 1-1 Figo (26.), 2-1
Gomes (36.), 3-1 Andrade (39.), 4-1
Boa Morte (47.), 5-1 Gomes (63.).
Rauð spjöld: Yamba Asha (16.), Wil-
son Estrela (25.), Franklin Manuel
(26.), Antonio Neto (65.).
Spánn-Mexíkó................1-0
1-0 Raul (73.).
Leikmenn þýska landsliðsins fagna einu fjögurra marka sinna gegn Úkraínu í gær.
30 þjóðir komnar
áfram á HM 2002
- tæpir 200 dagar til stefnu
Nú er ljóst um 30 af þeim 32 þjóð-
um sem fá að taka þátt í úrslita-
keppni HM sem fer fram í Japan og
Suður-Kóreu á næsta ári. Rétt tæp-
ir 200 dagar eru til stefnu.
Eftirtaldar þjóðir hafa unnið sér
rétt til þátttöku:
Heimsmeistarar: Frakkland.
Gestgjafar: Japan og Suður-Kórea.
Evrópa: Pólland, Svíþjóð, Spánn,
Rússland, England, Króatía, Portú-
gal, Danmörk, Ítalía, Tyrkland,
Belgía, Slóvenía og Þýskaland.
Suður-Ameríka: Argentína,
Paragvæ, Ekvador og Brasilía.
Afríka: Kamerún, Nígería,
Senegal, Túnis og Suður-Afríka.
Mið- og Norður-Ameríka: Kosta-
ríka, Bandaríkin og Mexíkó.
Asía: Kína og Sádi-Arabía.
íran tekur á móti írlandi í dag kl.
14 í síöari leik liöanna um hvort
liðið fer á HM. írland vann fyrri
leikinn, 2-0.
Úrúgvæ mætir Ástraliu í tveimur
leikjum, 20. og 25. nóvember, til að
skera úr um hvort liðið öðlast þátt-
tökurétt á HM á næsta ári.
Fjórar þjóðir taka nú þátt í fyrsta
sinn, Slóvenía, Ekvador, Senegal
og Kína. -esá
Fýrsti sigur
Möltu undir
stjórn Held
Sigfried Held, fyrrum lands-
liðsþjálfari íslands og núverandi
þjálfari Möltu, stýrði í gær sín-
um mönnum til sigurs í fyrsta
sinn síðan hann tók við liðinu
en hann hefur stjómað Möltu í
síðustu 5 landsleikjum þeirra.
Maltverjar léku viö Kanada og
unnu, 2-1, með mörkum frá Dav-
id Carabott úr víti og Michael
Mifsud. Paul Salteri skoraði
mark Kanada.
„Sigi“ Held stjómaði íslenska
landsliðinu í 37 leikjum á tíma-
bilinu 1986-9. Undir hans stjórn
gerði íslenska landsliðið 3 jafn-
tefli við Sovétmenn, þar af 1 í
Moskvu, en tapaði einnig fyrir
A-Þjóöverjum, 0-6, á Laugardals-
velli árið 1987.
-esá