Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2001, Qupperneq 2
2
LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001
Fréttir DV
Formaður SVÞ gagnrýnir borgaryfirvöld vegna stefnu þeirra í miðbænum:
Samdráttur í verslun
- spár um minni veltu í jólamánuðinum en í fyrra
Blikur á lofti í verslun
Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir blikur á lofti í
verslun um þessar mundir. Uþþsagnir séu yfirvofandi víða og svo virðist sem
þjóðin sé varkárari í kauþum nú vegna umræðu um efnahagsmál. Hið
jákvæða sé að minna er um verslunarferðir til útlanda.
Afar rólegt hefur
verið í verslun
undanfarið og eru
vísbendingar um
að jólaverslunin
verði minni í ár en
í fyrra þrátt fyrir
stóraukið framboð
á búðum með til-
komu Smáralindar
í Kópavogi. Kaup-
menn sem DV hef-
ur rætt við eru fremur svartsýnir og
er von á töluverðri fækkun starfa á
næstunni. Sigurður Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka verslunar og
þjónustu, segir að svo virðist sem ís-
lendingar séu varkárari í kaupum nú
vegna umræðu um efnahagsmál og
stórauknar skuldir heimilanna.
Að sögn Sigurðar starfa milli 6.000
og 8.000 manns í verslun núna en blik-
ur eru á lofti. „Það er mikið af upp-
sögnum í pípunum. Margir eru með
uppsagnarbréfið í vasanum og hætta
um næstu mánaðamót," segir Sigurð-
ur.
Hið jákvæða er þó fyrir innlenda
verslun að minna virðist um inn-
kaupaferðir t.d. til Dublin og Glasgow
en áður og er þar um mikla hagsmuni
að ræða. „Við höfum sagt að þessi
haustverslun þama úti geti numið allt
að 2,5 milljöröum og við vonumst til
að fá töluverðan hluta af þessu inn í
jólaverslunina."
Á móti kemur hins vegar að ferða-
mönnum hefur snarfækkað og eink-
um frá Bandaríkjunum. Hlutur út-
lendinga í innlendri verslun hefur
numið 2,5-3 milljörðum árlega.
DV spurði Sigurð hvort offramboð
á verslunum væri staðreynd eftir til-
komu Smáralindar. Hann sagði ótíma-
bært að leggja mat á það en hins veg-
ar væri ljóst að hún nyti mestra vin-
sælda um helgar. Meiri slaki væri um
miðja vikuna. Ágætlega árar í Kringl-
unni skv. upplýsingum þaðan en í
miðbænum er töluvert um laust versl-
unarpláss. Maður hefur á tilfinning-
unni að viss óvissa sé þar. Það eru
deildar meiningar um nýtt skipulag
og menn eru tvístígandi."
Samkvæmt nýrri skýrslu hefur
verslunum fækkað um nokkra tugi í
miðbænum á síðustu árum og gagn-
rýnir Sigurður yfirvöld. „Ef haldið
verður jafnstift í þessa húsfriðunar-
stefnu og verið hefur og ekki fæst
byggt þama upp verslunarhúsnæði
sem talið er henta nútíma verslunar-
háttum þá mun sú breyting verða á að
alvöru verslunarfyrirtæki flytji sig
burt og eftir standi frekar smáverslan-
ir,“ segir Sigurður. -BÞ
Ingibjörg Haraldsdóttir:
Hlaut verölaun
Jónasar Hall-
grímssonar
Ingibjörg Haraldsdóttir, ljóð-
skáld og þýðandi, hlaut verðlaun
Jónasar Hallgrímssonar í ár.
Verðlaunin voru veitt við hátíð-
lega athöfn í Reykholti á degi ís-
lenskrar tungu. Ráðgjafarnefnd
skipuð Kristjáni Árnasyni, Guð-
rúnu Norðdal og Kolbrúnu Berg-
þórsdóttur gerði að tillögu sinni
að Ingibjörg hlyti verðlaunin fyr-
ir skáldskap sinn.
„Ljóðform hennar er knappt og
fágað, þar er engu orði ofaukið. 1
ljóðum sínum laðar hún fram eft-
irminnilegar stemningar og sýn
hennar er frumleg og snörp - og
iðulega gagnrýnin. Einnig hefur
Ingibjörg verið mikilvirkur þýð-
andi. Starf þýðandans er gjarna
vanmetiö," segir meðal annars í
umsögn nefndarinnar. Menning-
arsjóður íslandsbanka leggur til
verðlaunin sem eru hálf milljón
króna auk heildarútgáfu Jónasar
Hallgrímssonar í hátíðarbandi.
Auk þess hlaut Félag fram-
haldsskóla viðurkenningu fyrir
framlag sitt í þágu íslenskrar
tungu. Þar ber hæst
Söngvakeppni framhaldsskóla-
nema sem haldin hefur verið ár-
lega í áratug. Þar er keppendum
sett það mikilvæga skilyrði að
syngja á íslensku. Námsflokkar
Reykjavíkur hlutu einnig viður-
kenningu fyrir íslenskukennslu
fyrir útlendinga en þeir hafa frá
árinu 1979 verið meirihluti nem-
enda.
í umsögn nefndarinnar segir að
mikilvæg starfsemi Námsfiokk-
anna hafi aukist með árunum en
á þessu ári munu 1700 manns af
100 þjóðernum sækja íslensku-
nám hjá Námsflokkunum. Guð-
rún Halldórsdóttir, skólastjóri
Námsfiokkanna, tók á móti viður-
kenningarskjali og þáði listaverk
eftir Pál Halldórsson á Húsafelli.
-aþ
Verðlaunahafarnir ásamt menntamálaráðherra dv-mynd dvó
Ingibjörg Haraldsdóttir, skáld og þýðandi, Guðrún Halldórsdóttir, skólastjóri Námsflokka Reykjavíkur, íris Elma Jóns-
dóttir frá Félagi framhaldsskólanema og Björn Bjarnason menntamáiaráöherra fögnuðu degi íslenskrar tungu í Reyk-
holti í gær.
Lúðvík Ólafsson, settur landlæknir:
Högni njóti vafans
- ekki viðurkenning á stjórnsýslubroti
Lúðvík Ólafsson, settur
landlæknir vegna kæru á
hendur Högna Óskarssyni,
segir að að afturköllun sín á
áminningu til Högna feli ekki
í sér viðurkenningu á því að
stjórnsýslulög hafi verið
brotin. Högni hefur hins veg-
ar sagt að settur landlæknir
hafi ekki farið að lögum með
því gefa honum ekki kost á
að njóta andmælaréttar síns.
I yfirlýsmgu, sem
E. mr jm Lúðvík sendi frá sér í gær, segir m.a: „Högni Óskarsson naut andmælarétt- ar meðan á meðferð málsins stóð og skilaði greinargerð 20. nóvember 2000, allt í samræmi við v ' T
Lúðvík 13. gr. stjómsýslu- Högni
Ólafsson. íaga. Krafa hans Óskarsson.
um aukinn andmælarétt nú á
aö mínu mati ekki stoð í
stjórnsýslulögum, en vegna
lögfræðilegs vafa á túlkun lag-
anna þar að lútandi taldi ég
rétt að láta hann
njóta vafans." Segir Lúðvik
ákvörðun sína um afturköllun
áminningar byggja á þessum
vafa enda standi lög ekki í
vegi fyrir því að veita aukinn
andmælarétt. -BG
Ingólf ekki í kjallara
aBorgarstjórn hef-
ur samþykkt að
vísa til skipulags-
og bygginganefnd-
Magnússonar borg-
arfulltrúa um end-
urskoðun á skipu-
með tilliti til fundinna rústa Ing-
ólfsbæjar. Ólafur segir að þeim
verða ekki tryggð umgjörð við
hæfi í hótelkjallara í eigu einkaað-
ila.
Íslandssími tapar
Íslandssími tapaði 777 milljón-
um króna á fyrstu níu mánuðum
ársins. Rekstrartekjur námu rúm-
um milljarði á tímabilinu og juk-
ust um 65% miðað viö sl. ár.
Stjórnendur Íslandssíma segja
þetta í takt við endurskoðaðar
áætlanir sínar þar sem gert sé ráð
fyrir rekstrarbata á síðasta árs-
fjórðungi.
Atvinnuleysi eykst
Atvinnuleysisdagar í október
samsvara því að 1.765 íslendingar
hafi verið án atvinnu. Tölurnar
jafngilda 1,2% atvinnuleysi. í sept-
ember mældist atvinnuleysi 0,9%
af mannafla. Sveiflan milli mánaða
er meiri en hún hefur verið í tíu
ár.
Ábyrgðarleysi hjá TR
Það er ábyrgðarlaust af Trygg-
ingastofnun ríkisins að halda því
fram að það sé alfarið vegna verð-
skrár tannlækna hvaö sjúklingar
fá endurgreitt. Hvorki heimilin né
tannlæknar geta greitt reikninga á
þriggja ára gömlu verðlagi, segir í
yfirlýsingu formanns Tannlækna-
félags íslands vegna deilna tann-
lækna og TR.
Tap hjá Tæknival
Aco-Tæknival hf. tapaði 861 millj-
kr. á þremur fyrstu fjórðungum árs-
ins. Á þriðja ársfjórðungi var tapið
197 millj. kr. í tilkynningu til Verð-
bréfaþings segir að aðgerðir tU að
bæta reksturinn muni ekki skila full-
um árangri fyrr en á næsta ári en
síðasti hluti líðandi árs ætti að verða
í plús.
Fiskur lúxusvara
aBandaríkjamenn
virðast hættir að
fara á finni veitinga-
staði og fiskur er
lúxusvara vestan-
hafs eftir hryðju-
verkin 11. septem-
ber. Markaðir fyrir
ferskfisk sem fluttur
er með flugi tU Bandaríkjanna hafa
nánast þurkast út. Þetta segir Sigur-
geir Brynjar Kristgeirsson í Vinnslu-
stöðinni á Eyjafréttir.is
Dæmdur fyrir hnefahögg
Þrír ungir Vestfirðingar hiutu
30-45 daga skilorðsbundna fangelsis-
dóma í héraðsdómi í gær. Þeir voru
dæmdir fyrir ýmsar sakir, einn fyrir
aö hafa slegið lögreglumann með
krepptum hnefa í andlitið í anddyri
lögreglustöðvarinnar á ísafirði. Hann
skal og greiða lögregluþjóninum bæt-
ur. Mbl. greindi frá.
Jón Grímsson
Gullna stýrið
DV-bilar
Flökkusagnir
samtímans
Þjóösögur og
hullðshelmar
Grunaður um
aðild að hvarfi
Geirfinns
Morðið í
Garðyrkju-
skólanum
islenskir
harmleikir
Blæjurnar falla
Sögur af
svindli
Erlent fréttaljós
Innlent fréttaljós
Himnaríkisvist
Takmarkinu um
fríverslun í heimin-
um má líkja við
himnaríkisvist,
sagði Geir H. Haar-
de I erindi á Rótary-
fundi í gær. Von-
andi notar alþjóða-
samfélagið ekki
ófriðarástand og efnahagslega niður-
sveiflu sem átyllu til þess að snúa af
braut aukins verslunarfrelsis í heim-
inum. -sbs