Dagblaðið Vísir - DV - 17.11.2001, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2001
DV
Fréttir
Össur Skarphéðinsson sendir pólitískum andstæðingum tóninn á landsfundi:
Davíð sofandi í lúkarnum
Össur Skarphéðinsson sendi póli-
tískum andstæðingum sinum föst
skeyti í setningarræðu sinni á
landsfundi flokksins í gær. Sérstak-
lega beindi hann spjótum sinum að
Davið Oddssyni og Sjálfstæðis-
flokknum en Vinstri grænir fengu
líka sina sneið. Athygli vakti að
Framsóknarflokkurinn fékk engar
pillur. Meðal þess sem Össur sagði
var að nú reru mörg fyrirtæki og
fjölskyldur lífróður til að komast
gegnum holskeflur efnahagslegra
áfalla. Sum þessi áfoll sagði hann
hafa verið búin til í stjómarráðinu
og vera afleiðingu af misökum við
stjórn efnahagsmála. Hann sagði að
forsætisráðherra hefði ekki tekið
mark á endurteknum aðvörunum
Samfylkingarinnar og fleiri aðila
um viðskiptahallann og síðan
spurði Össur: „Hvar er hin mjúka
lending sem forsætisráðherra lof-
aði? Birtist hún í gengisfeflingu sem
nemqr rúmum 25%? Birtist hún í
verðbólgu sem er meira en þrefalt
hærri en i nágrannalöndunum?
Birtist hún i vaxtastigi sem er að
sliga fjölskyldur og fyrirtæki? Er
þetta snertilendingin sem fjármála-
ráðherrann lofaði?... Þegar hin efna-
hagslegu óveðursský hrönnuðust
upp var forsætisráðherra sofandi í
lúkarnum með sjálfstýringuna
með sjálfstýringuna beint í brimgarðinn
stillta beint í brimgarðinn." Össur
sagði síðan að það hefði tekið Reyk-
víkinga tvö kjörtímabil að vinna sig
út úr ólgusjónum sem Davíð skildi
eftir sig en vonandi myndi það ekki
taka Samfylkinguna eins langan
tíma að vinna úr viðskilnaði hans í
landsmálum.
En Vinstri grænir fengu líka
sendingu frá formanni Samfylking-
arinnar þegar hann sagði Samfylk-
inguna ekki svífa um á skýjaborg-
um eins og róttæklingar fastir í for-
tíðinni. „Við erum ekki fúll á móti
sem leggst gegn öllu án þess að geta
sagt hvað eigi að koma í staðinn.
Samfylkingin vinnur ekki þannig.
Við erum ábyrgur flokkur sem tek-
ur afstöðu út frá málefnum.“
-BÞ
Fagnaðarfundir
Félagarnir Margrét Frímannsdóttir og
Möröur Árnason heilsuðust meö
kossi viö upphaf landsfundar.
Landsfundur
Samfylkingarmenn geröu góöan róm aö ræöu formanns síns í gær og greini-
legt var aö þar haföi myndast mikil „landsfundarstemning".
Formaður Búkollu ósáttur með atkvæðagreiðslu um norska fósturvísa:
Undarlegt brölt hjá bændaforystu
- margar röksemdir gegn smithættu.
„Það er undarlegt að forysta okkar
kúabænda haldi til streitu þeim fyrir-
ætlunum að stefna að innflutningi fóst-
urvisa úr norskum kúm, þó kannanir
sýni að meirihluti landsmanna sé and-
vígur slíku brölti,“ segir Guðbergur
Eyjólfsson, bóndi i Hléskógum í Grýtu-
bakkahreppi við Eyjafjörð. Hann er
formaður Búkollu, samtaka til vemdar
og viðgangi íslenska kúastofnsins.
Kosning er hafln meðal bænda um
hvort flytja eigi norsku fósturvísana til
landsins. Atkvæðaseðlar hafa verið
sendir til kúabænda og úrslit eiga að
liggja fyrir um mánaðamót. Kosningin
ræður framhaldi þessa máls, verði
meirihluti bænda á móti norskum
kúm leggja Bændasamtök íslands og
Landssamtök kúabænda fyrirætlanir
um innflutning á hilluna.
„Afskaplega margar röksemdir
mæla gegn fósturvisainnflutningi,"
segir Guðbergur
og nefnir sérstak-
lega riðusmit,
„Kúariða hefur
ekki enn greinst í
Noregi og því get-
ur yflrdýralæknir
ekki sett sig á móti
innflutningi. Hins
vegar hafa vís-
indamenn eins og
Margrét Guðna-
dóttir, prófessor í
við innflutningi vegna hugsanlegs
riðusmits og komið með gild rök. Seg-
ir að sjúkdómar hafi komist til Noregs
með innflutningi lífgripa og engin
trygging sé fyrir því að kúariðusmitið
sé ekki í norskum kúm, þótt það hafi
ekki komið fram. Greining smitsins
geti tekið áratugi."
Ennfremur segir Guðbergur aö
0norskar kýr mjólki
mun minna en
önnur langræktuð
kúakyn í Evrópu.
Þá sé vert að hafa í
huga að meðalnyt
íslenskra kúa hafa
verið að aukast
um tæpa 500 lítra á
Þórólfur síðustu fjórum
Sveinsson. árum. Sé nú að
nálgast 5.000 litra.
...en til að ná þessu mjólkurmagni
þurfa norsku kýmar helmingi meira af
kjamfóðri á hvem framleiddan lítra en
þær íslensku."
Þekki ekki lýðræðislegri leið
í samtali við DV sagði Þórólfur
Sveinsson, formaður Landssambands
kúabænda, að hann þekkti enga lýð-
ræðislegri aðferð en að efna til al-
mennra kosninga þegar taka ætti end-
anlega ákvörðun um tilraunainn-
flutnig á fósturvísum. „Að öðm leyti
hef ég átt ágætt samstarf við Guðberg
í aðdraganda þessara kosninga og hef
ekki áhuga á að efna til illdeilna við
hann í flölmiðlum þá fáu daga sem eft-
ir lifa þar til niðurstaða í þessu máli
liggur fyrir.“
Um þau sjónarmið sem Margrét
Guðnadóttir hefur sett fram um hætt-
una á kúariðu sagði Þórólfúr að flestir
visindamenn væm á öndverðri skoðun
en Margrét, það er um dreifileiðir
kúariðusmits. „Dýralæknaráð og yflr-
dýralæknir hafa gefið sitt leyfi fyrir
innflutningi og síðar ráðherra. Við
innflutning fósturvísa hingað til lands,
ef kúabændur samþykkja hann, er
einnig vert að nefna að gætt er fúilrar
varúðar og raunar meiri en yflrleitt
þekkist." -sbs
Guöbergur
Eyjólfsson.
veirufræði, varað
Akureyrarbær:
Viöleitni til að
styrkja kaup-
mennina
- segir bæjarstjórinn
„Málið er það að Akureyrarbær
fékk blaðamann til að skrifa greinar
fyrir Akureyrarbæ sem eiga að fara
í þetta blað, en bærinn samþykkti
að kaupa nokkrar síður í blaðinu,"
segir Kristján Þór Júlíusson, bæjar-
stjóri á Akureyri, en það hefur sætt
nokkurri gagnrýni að Akureyrar-
bær hefur ráðið blaðamann til að
sjá um fréttaskrif í nýtt auglýsinga-
og fréttablað Kaupmannafélags Ak-
ureyrarbæjar sem væntanlegt mun
á næstunni.
Kristján Þór segir að umræddur
starfsmaður eigi einungis að vinna
efni fyrir Akureyrarbæ á þær síður
í blaðinu sem bærinn kaupir. En
hvers vegna er Akureyrarbær að
kaupa sér síður í auglýsingablaði
sem samtök kaupmanna í bænum
gefa út, eru ekki nægir aðilar í bæn-
um til að koma því á framfæri sem
bæjaryfirvöld þurfa að koma frá(
sér?
„Ástæðan fyrir því að bærinn fór
inn í þetta með Kaupmannafélaginu
er að félagið gefur út blað fyrir jóla-
vertíðina sem dreifa á í hvert hús á
svæðinu frá Hólmavik til Djúpa-
vogs. Þátttaka bæjarins er viðleitni
til þess að styrkja kaupmennina á
Akureyri í því að koma versluninni
á framfæri. Ákvörðun bæjarráðs
byggðist á þessum sjónarmiðum,"
segir Kristján Þór. -gk
Loks flogið
frá Húsavík
Vegna veðurs var flugfarþegum
ekið frá Akureyri til Húsavíkur í
gær og flogið þaðan til Reykjavíkur.
Eftir að áætlunarflug lagðist niður
milli Húsavíkur og Reykjavíkur hef-
ur verið lítil umferð á Húsavíkur-
flugvelli en aftur færðist líf í flug-
stöðina í gær. Veðurguðirnir hafa
verið sérlega óhagstæðir Flugfélagi
Islands síðustu fostudaga og hefur
flug raskast mjög undanfarið á þess-
um mesta annadegi vikunnar. -BÞ
m
m
Stormviðvörun
Suðvestan 10-18 en allt að 25 á Norðurlandi
vestra og á stöku staö á austanveröu landinu.
Suðvestan ogvestan 8-13 á morgun. Skúrir
vestan til en yfirleitt léttskýjaö austan til. Hiti
2 til 8 stig.
‘B]j' AKUREYRI
Sólarlag i kvöld 16.22 15.50
Sótarupprás á morgun 10.06 10.07
Sí°lsflóö 19.44 24.17
Árdegisflóö á morgun 08.06 12.39
Skýrúigar á vefeurtátóuutj
Í^-VINOATT lOV-Hm Í5 -10° WlNOSTYRKUR VrerKT ! metrum á sekúndu x ‘ HEIÐSKÍRT
o
tETTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝJAÐ ALSKÝJAO
SKÝJAO
ij %stö( W ©'
RIGNING SKURIR SLYDDA SNJÓK0MA
' h? "t* =
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
Aíll tdl>
'í ’JbLlflUU
Akureyri eða Mallorca?
Hitastigið síðustu daga verður að
teljast nokkuð óvenjulegt miðaö við
árstíma. í gærmorgun var jafnheitt á
Akureyri og í Barcelona á Spáni og
tveimur stigum heitara en á Mallorca.
Rigning eða súld
Suðvestlæg átt, 8-13 og rigning eða súld sunnan- og vestanlands en
annars hægari og úrkomulítiö. Hiti 5 til 10 stig.
MÞ'H'íM,
pi
Vindur:
10-15 m/*
J
Hiti 3° til 8°
Sunnan og suövestan
10-15. Rlgnlng og síöan
skúrlr sunnan- og
vestanlands en annars
úrkomulítið. Hltl 3 tll 8
stig.
£SK
Vindun tf
8-12
Hiti 1“ til 8”
Su&vestlæg átt og
slydduél sunnan- og
vestanlands en annars
þurrt. Hltl 1 tll 6 stig.
Mi&vtttii
OffSBl
Vindur: ,
S-12mA
Hiti 0° til -<r
Vestlæg átt og víöa slydda
e&a él. Hltl kringum
frostmark.
AKUREYRI rjgning 10
BERGSSTAÐIR rigning 0
BOLUNGARVÍK skúr 8
EGILSSTAÐIR léttskýjaö 9
KIRKJUBÆJARKL. skúr 8
KEFLAVÍK úrkoma í gr. 7
RAUFARHÖFN léttskýjaö 8
REYKJAVÍK þokumóöa 7
STÓRHÖFÐI skúr 7
BERGEN súld 5
HELSINKI léttskýjað -1
KAUPMANNAHÖFN léttskýjað 8
ÓSLÓ skýjaö 3
STOKKHÓLMUR 3
ÞÓRSHÖFN súld 9
ÞRÁNDHEIMUR rigning 2
ALGARVE skýjaö 13
AMSTERDAM súld 11
BARCELONA
BERLÍN léttskýjaö 8
CHICAGO þokuruöningur 9
DUBLIN alskýjaö 10
HALIFAX þokumóöa 10
FRANKFURT skýjaö 5
HAMB0RG skýjaö 7
JAN MAYEN snjókoma 0
LONDON mistur 10
LÚXEMBORG alskýjað 5
MALLORCA þrumur 11
MONTREAL alskýjaö 12
NARSSARSSUAQ snjókoma 1
NEWYORK skýjaö 14
ORLANDO alskýjað 17
PARÍS léttskýjað 9
VÍN skýjaö 6
WASHINGTON þokumóöa 2
WINNIPEG heiöskírt 0
■ilWrfMIE